DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 880.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Children 24-10
DROPS Design: Mynstur nr e-013-bn
Garnflokkur A og C eða A + A
-----------------------------------------------------------

LITIÐ LJÓN:
Stærð: ca 9 cm á hæð x 10 cm á lengd

Efni:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio
50 gr litur nr 28, appelsínugulur
50 gr litur nr 22, ljós brúnn
+ smá af litnum svartur fyrir augu, nef og munn

DROPS HEKLUNÁL NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 fl verði 10 cm á breidd.
FYLGIHLUTIR: Vatt til fyllingar.

STÓRT LJÓN:
Mál: ca 13 cm á hæð x 14 cm á lengd

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio
50 gr litur nr 19, ljós gulur
50 gr litur nr 26, dökk beige
+ smá af litnum svartur fyrir augu, nef og munn

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 17 fl verði 10 cm á breidd.
FYLGIHLUTIR: Vatt til fyllingar.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 880.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

RÁÐ VARÐANDI FYLLINGU:
Fyllið dýrið með vatti jafnóðum og heklað er.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Allar umf með fl byrja á 1 ll (þessi kemur ekki í stað fyrstu fl) og endar á 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf.
Allar umf með fl er snúið við með 1 ll – þessi ll kemur ekki í stað fyrstu fl í umf.

ÚRTAKA:
Fækkað er um 1 l með því að hekla 2 l saman þannig: * Stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

LÍTIÐ LJÓN - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað frá neðst á baki á búk og fram að og með höfði. Síðan er heklaður makki í kringum höfuðið, eyru, lappir og skott er heklað hvert fyrir sig og saumað á í lokin. LESIÐ RÁÐ VARÐANDI FYLLINGU!

BÚKUR OG HÖFUÐ:
Heklið 4 ll með litnum appelsínugulur með heklunál nr 3 og tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR!
UMFERÐ 1: Heklið 6 fl um ll-hringinn – umf byrjar fyrir miðju undir ljóninu.
UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 12 fl.
UMFERÐ 3: Heklið * 1 fl í fyrstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl.
UMFERÐ 4: Heklið * 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl.
UMFERÐ 5-14: Heklið 1 fl í hverja fl.
Nú er hekluð 1 fl í hverja af fyrstu 10 fl, snúið við með 1 ll – héðan er heklað fram og til baka í eitt stykki fyrir brjóstkassa.
UMFERÐ 15 (ranga): Hoppið yfir 2 fyrstu fl, heklið 1 fl í hverja af næstu 16 fl, snúið við með 1 ll.
UMFERÐ 16 (rétta): Hoppið yfir 2 fyrstu fl, heklið 1 fl í hverja af næstu 13 fl, snúið við með 1 ll.
UMFERÐ 17 (ranga): Hoppið yfir 2 fyrstu fl, heklið 1 fl í hverja af næstu 10 fl, snúið við með 1 ll.
UMFERÐ 18 (rétta): Hoppið yfir 2 fyrstu fl, heklið 1 fl í hverja af næstu 7 fl, snúið við með 1 ll.
UMFERÐ 19 (ranga): Hoppið yfir 2 fyrstu fl, heklið 1 fl í hverja af næstu 4 fl, snúið við með 1 ll.
UMFERÐ 20 (rétta): Hoppið yfir 2 fyrstu fl, heklið nú 7 fl, snúið við með 1 ll.
UMFERÐ 21 (ranga): Hoppið yfir fyrstu fl, heklið nú 10 fl, snúið við með 1 ll.
UMFERÐ 22 (rétta): Hoppið yfir fyrstu fl, heklið nú 13 fl, snúið við með 1 ll.
UMFERÐ 23 (ranga): Hoppið yfir fyrstu fl, heklið nú 16 fl, snúið við með 1 ll, heklið nú aftur í hring.
UMFERÐ 24: Heklið 22 fl í hringinn (umf byrjar nú við miðju á hnakka).
UMFERÐ 25: Heklið 8 fyrstu fl saman 2 og 2 – LESIÐ ÚRTAKA! Heklið nú 1 fl í hverja af næstu 6 fl, síðan eru síðustu 8 fl heklaðar 2 og 2 = 14 fl.
UMFERÐ 26: Heklið 2 fl í hverja af fyrstu 3 fl, síðan 1 fl í hverja af næstu 8 fl og 2 fl í hverja af síðustu 3 fl = 20 fl, heklið nú 1 fl í hverja af fyrstu 9 fl, snúið við með 1 ll – héðan er nú heklað fram og til baka í eitt stykki og myndað höfuð.
UMFERÐ 27 (ranga): Hoppið yfir 2 fyrstu fl, heklið 1 fl í hverja af næstu 15 fl, snúið við með 1 ll.
UMFERÐ 28 (rétta): Hoppið yfir 2 fyrstu fl, heklið 1 fl í hverja af næstu 12 fl, snúið við með 1 ll.
UMFERÐ 29 (ranga): Hoppið yfir 2 fyrstu fl, heklið 1 fl í hverja af næstu 9 fl, snúið við með 1 ll.
UMFERÐ 30 (rétta): Hoppið yfir 2 fyrstu fl, heklið 1 fl í hverja af næstu 6 fl, snúið við með 1 ll.
UMFERÐ 31 (ranga): Hoppið yfir 2 fyrstu fl, heklið 1 fl í hverja af næstu 3 fl, snúið við með 1 ll.
UMFERÐ 32 (rétta): Hoppið yfir fyrstu fl, síðan eru heklaðar 6 fl, snúið við með 1 ll.
UMFERÐ 33 (ranga): Hoppið yfir fyrstu fl, síðan eru heklaðar 9 fl, snúið við með 1 ll.
UMFERÐ 34 (rétta): Hoppið yfir fyrstu fl, síðan eru heklaðar 12 fl, snúið við með 1 ll.
UMFERÐ 35 (ranga): Hoppið yfir fyrstu fl, síðan eru heklaðar 15 fl, snúið við með 1 ll, heklið nú aftur í hring.
UMFERÐ 36: Heklið 21 fl í hring.
UMFERÐ 37: Heklið 1 fl í hverja fl – setjið 1 prjónamerki í þessa umf (hér er makkinn heklaður á í lokin).
UMFERÐ 38: Heklið 1 fl í hverja fl.
UMFERÐ 39: * Heklið 2 fyrstu fl saman, síðan 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 14 fl.
UMFERÐ 40: Heklið 1 fl í hverja fl.
UMFERÐ 41: Heklið 1 fl í hverja fl jafnframt er fækkað um 4 fl jafnt yfir = 10 fl.
UMFERÐ 42: Heklið 1 fl í hverja fl.
UMFERÐ 43: Heklið 2 og 2 fl saman umf hringinn, klippið frá, þræðið í kringum opið framan á nefi og herðið að.

AFTUR FÓTUR:
Heklið 4 ll með litnum appelsínugulur og tengið í hring með 1 kl í 1. ll.
UMFERÐ 1: Heklið 6 fl um ll-hringinn.
UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 12 fl.
UMFERÐ 3: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, síðan eru heklaðar næstu 6 fl saman 2 og 2 – SJÁ ÚRTAKA, síðan eru 1 fl hekluð í hverja af síðustu 3 fl = 9 fl.
UMFERÐ 4-6: Heklið 1 fl í hverja fl.
UMFERÐ 7: Hekli 2 fl í fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 7 fl og 2 fl í síðustu fl = 11 fl.
UMFERÐ 8: Heklið 2 fl í fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 9 fl og 2 fl í síðustu fl = 13 fl. Klippið frá.
Heklið 2 alveg eins aftur lappir. Troðið aðeins vatti í þær og saumið þær niður undir aftari hluta á búknum með fótinn fram.

FRAM FÓTUR:
Heklið 4 ll með litnum appelsínugulur og tengið í hring með 1 kl í 1. ll.
UMFERÐ 1: Heklið 5 fl um ll-hringinn.
UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 10 fl.
UMFERÐ 3: Heklið 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, síðan eru heklaðar næstu 6 fl saman 2 og 2 – SJÁ ÚRTAKA, síðan er hekluð 1 fl í hvora af síðustu 2 fl = 7 fl.
UMFERÐ 4-6: Heklið 1 fl í hverja fl.
UMFERÐ 7: Heklið 2 fl í fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 5 fl og 2 fl í síðustu fl = 9 fl.
UMFERÐ 8: Heklið 2 fl í fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 7 fl og 2 fl í síðustu fl = 11 fl. Klippið frá.
Heklið 2 alveg eins lappir. Troðið aðeins vatti í þær og saumið þær niður undi fremri hluta á búknum með fótinn fram.

SKOTT:
Heklið 10 ll með litnum appelsínugulur, snúið við og heklað 2 st í 3. ll frá heklunálinni, heklið nú 2 ll, festið með 1 kl í sömu ll eins og 2 st voru heklaðir, heklið nú 1 fl í hverja af síðustu 7 ll. Klippið frá og saumið skottið fast aftan á búknum svo að það hangi niður.

MAKKI Á HÖFUÐ:
UMFERÐ 1: Heklið með litnum appelsínugulur í umf 37 í kringum höfuðið þannig: Heklið 1 fl í fyrstu fl, * 5 ll, heklið nú 1 kl í 2. ll frá heklunálinni og 1 kl í hverja af síðustu 3 ll, festið með 1 kl í næstu fl í umf *, endurtakið frá *-* í kringum allt höfuðið, klippið frá og festið enda.
UMFERÐ 2: Heklið nú einungis meðfram efri helmingnum á höfði, byrjið á hlið 2 umf aftan við þá fyrri sem var hekluð. Heklið með litnum ljós brúnum þannig: Heklið 1 fl í fyrstu fl, * 5 ll, síðan 1 kl í 2. ll frá heklunálinni og 1 kl í hverja af síðustu 3 ll, festið með 1 fl í næstu fl í umf *, endurtakið frá *-* fram að hinni hliðinni á höfðinu, klippið frá og festið enda.
UMFERÐ 3: Heklið í 2. l fyrir aftan þá fyrri sem hekluð var, nú er heklað með litnum appelsínugulur alveg eins og í umf 2.

EYRA:
Heklið 4 ll með litnum ljós brúnn, heklið nú 1 st í fyrstu ll sem hekluð var, klippið frá.
Heklið annað eyra á sama hátt, saumið eyrun á höfuðið.

Saumið út augu, nef og munn með litnum svartur.

-------------------------------------------------------

STÓRT LJÓN - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Heklið á sama hátt og lítið ljón, nema með heklunál nr 4 með Paris. Skiptið út litnum appelsínugulur fyrir litinn ljós gulur og skiptið út litnum ljós brúnn fyrir litinn dökk beige.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 24-10

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag Carina wrote:

Hej, (mönster Mufasa) från varv 15 ska man jobba med 18 m (Hoppa över de 2 första fm, virka 1 fm i var och en av de 16 nästa fm) Var finns de 18 maskorna? Fr.o.m. varv 5 finns det 24 m och då ska man bara jobba med 10 m för bröstkorgen, det förstår jag, men från varv 15 ska man jobba med 18m, vilka 18m menar ni? Det är ju 24 runt och om jag tar bort de 10 till bröstkorg så blir det bara 14 kvar att jobba med.

04.12.2021 - 19:31

DROPS Design answered:

Hei Carina. Du har 24 fastmasker på omgangen, men nå skal det hekles rader frem og tilbake et stykke til brystkasse. Hekle 10 fastmasker, SNU arbeidet med 1 luftmaske og deretter hekles det slik: 15.RAD (vrangen): Hopp over de 2 første fm, hekle 1 fm i hver av de 16 neste fm, SNU med 1 lm. 16.RAD (retten): Hopp over de 2 første fm, hekle 1 fm i hver av de neste 13 fm, SNU med 1 lm. Les i oppskriften hvordan det hekles videre. mvh DROPS Design

07.12.2021 - 13:25

country flag Nathalie wrote:

Où trouver les explications d'un ancien modèle de veste pour femme Drops ? Veste en laine, modèle Drops, tricotée en Eskimo Tweed, aux aiguilles numéro 8 ? Je sais que Eskimo est remplacé par Snow mais comment avoir les explications ?

08.03.2021 - 19:24

DROPS Design answered:

Bonjour Nathalie, retrouvez tous nos modèles de gilets et veste femme tricotés en DROPS Snow ici - ne s'agirait-il pas du modèle Tweed on the town ? Bon tricot!

09.03.2021 - 07:32

country flag Guittard wrote:

Où trouver les explications d'un ancien modèle de gilet pour femme Drops ?

08.03.2021 - 19:16

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Guittard, si vous connaissez le numéro ou son nom, vous pouvez l'indiquer dans la case concernée du moteur de recherche de notre page d'accueil - sinon, vous pouvez retrouvez tous nos modèles de gilets femme ici - filtrez les résultats pour affiner la recherche. Bon tricot!

09.03.2021 - 07:30

country flag Vanessa wrote:

Ce modèle n'est pas vraiment facile. C'est pire qu'un sudoku :) :) même avec les explications des pcédentes crocheuteuses. le tour 24 fait bien 22 ms (il comprend bien les 16 ms. Je n'arrive pas du tout à m'imaginer la "bestiole". . Merci d'avance

20.04.2020 - 15:57

DROPS Design answered:

Bonjour Vanessa, tout à fait le tour 24 fait bien 22 ms. Parfois, tout prend son sens quand on a les mailles sous les yeux, en suivant pas à pas les explications, votre lion va prendre forme petit à petit. Pour toute assistance individuelle complémentaire, n'hésitez pas à contacter le magasin où vous avez acheté votre laine, même par mail ou téléphone. Bon crochet!

20.04.2020 - 16:38

country flag Vanessa wrote:

Bonjour, je ne comprends pas à partir soir au rang 5 à 14 , fait-on en rond 24 m ? ou seulement 10 m que nous faisons en aller retour ? ensuite pour le rang 15 vous dites : Sauter les 2 premières ms, 1 ms dans chacune des 16 ms suivantes, 1 ml pour tourner. mais où fait-on les augmentations ? je ne comprend pas trop Merci d'avance

17.04.2020 - 15:06

DROPS Design answered:

Bonjour Vanessa, du tour 5 au tour 14, vous crochetez 1 ms dans chaque ms. Quand le tour 14 est fait, crochetez 1 ms dans chacune des 10 premières ms du tour, puis 1 maille en l'air, tournez et crochetez maintenant le poitrail en rangs, on a décalé le début des rangs pour que le poitrail soit situé au bon endroit. Aux rangs 15 à 19, vous sautez simplement les 2 premières ms sans les crocheter, aux rangs 20 à 23 vous sautez la 1ère ms et vous continuez en rond à partir du rang 23. Bon crochet!

17.04.2020 - 15:43

country flag Fanchon wrote:

Merci pour votre réponse mais je ne comprends toujours pas très bien. Je ne fais pas la différence entre rang précédent et rangs précédents. A la fin du rang 23, j'ai un poitrail de 16m, quand vous parlez de tour de 22 m, le poitrail en fait-il partie ? d'avance merci pour votre réponse.

22.02.2016 - 17:23

DROPS Design answered:

Bonjour Fanchon, tout à fait, le rang 23 se fait sur l'envers, tournez et crochetez le tour 24 sur l'endroit: 1 m dans les 16 m du rang 23 + 6 ms réparties le long des rangs précédents pour terminer en rond par 1 mc dans la 1ère ms du tour. Bon crochet!

23.02.2016 - 08:43

country flag Fanchon wrote:

Tout va bien jusqu'au rang 24 mais après, je suis perdue. Merci

21.02.2016 - 19:34

DROPS Design answered:

Bonjour Fanchon, au tour 24, crochetez de nouveau en rond (sur l'endroit), 1 m dans chaque m du rang précédent + 1 m dans chaque début/fin des rangs précédents (ajustez si nécessaire le nbe de mailles pour bien avoir 22 ms à la fin de ce tour). Bon crochet!

22.02.2016 - 10:47

country flag Monika Schenk wrote:

Möchte den Löwen häkeln. Verstehe nicht die Anleitung ab der 20 Reihe. Wie kann ich aufeinmal wieder 7 fM stricken wenn nur noch 4 fM da sind? Sehr verwirrend. Viele Grüße Monika Schenk

23.01.2016 - 13:58

DROPS Design answered:

Sie können in die fM der darunterliegenden R häkeln. Mit den verkürzten Reihen häkeln Sie ja den Brustkorb, danach geht es dann nach und nach wieder über alle M der Rd weiter.

02.02.2016 - 13:15

country flag Lise Lotte Stenberg wrote:

24.omg: hækl 22 fm hele vejen rundt ( omg starter nu midt ovenpå nakken) Hvordan kan det være midt ovenpå nakken, da jeg lige har hæklet brystkassen (frem og tilbage) og slutter den af med de 22 fm?

30.08.2015 - 21:39

DROPS Design answered:

Hej LiseLotte, du må om i nakken inden du häkler de 8 fm sammen 2 og 2. God fornöjelse!

04.09.2015 - 13:01

country flag Seija Ala-villilä wrote:

Leijonasta : Nyt en ymmärrä ? Mihin lisätään 19 kerroksessa ne 7 silmukkaa kerroksella 20 ??? On vain ne neljä silmukkaa ?

11.03.2015 - 12:04

DROPS Design answered:

Voisitko vielä tarkentaa kysymystä? Lisäykset aloitetaan heti kjs-renkaassa.

12.03.2015 - 16:06