DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2112.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Children 24-6
DROPS Design: Mynstur nr w-052-bn
Garnflokkur C
--------------------------------------------------------
Stærð: 3/5 - 6/9 - 10/12 ára
Stærð í cm: 98/110 - 116/134 - 140/152
Yfirvídd: 54/58 - 60/66 - 70/76 cm.
Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio
300-350-400 gr litur nr 31, millifjólublár

DROPS HEKLUNÁL NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að ca 13 st á breidd og 10 umf með gatamynstri sem notað er á ermar verði 10 x 10 cm.
--------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2112.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

PICOT:
4 ll, 1 st í fyrstu ll sem var hekluð.

ÚRTAKA-1 (á við um fram- og bakstykki):
Fækkið um 4 st í byrjun og í lokin með því að hekla 5 fyrstu og 5 síðustu st saman.
Það er gert þannig: Heklið 1 st en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (þegar fækkað er í byrjun umf eru heklaðar 3 ll í stað 4), * heklið 1 st en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin * , endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 6 lykkjur á heklunálinni.

ÚRTAKA-2 (á við um ermakúpu):
Fækkið um 3 st í byrjun og í lok umf með því að hekla 4 fyrstu og 4 síðustu st saman.
Það er gert þannig: Heklið 1 st en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (þegar fækkað er í byrjun umf eru heklaðar 3 ll í stað 4), * heklið 1 st en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 5 lykkjurnar á heklunálinni.

MYNSTUR – ERMI:
UMFERÐ 1: Heklið 4 ll (þær koma í stað 1 fl + 3 ll), hoppið yfir 2 st, 1 fl í næsta st, * 3 ll, hoppið yfir 2 st, 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* út umf. Snúið við.
UMFERÐ 2: Heklið ll (þær koma í stað fyrsta st), heklið nú 2 st um hvern ll-boga og 1 st í hverja fl á milli ll-boga, endið á 3 st um síðasta ll-bogann. Snúið við.
Endurtakið umf 1 og 2 til loka.
--------------------------------------------------------

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Stykkið er heklað í hring frá miðju að aftan.
Heklið 4 ll með Paris með heklunál nr 5 og tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll.
UMFERÐ 1: Heklið 3 ll (þær koma í stað 1 st), 11 st um ll-hringinn, endið á 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 12 st.
UMFERÐ 2: * Heklið 1 PICOT – sjá útskýringu að ofan – hoppið yfir 1 st í 1 kl í næsta st *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum, endið á 1 picot og 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf = 6 blöð.
UMFERÐ 3: Heklið 3 ll, 1 fl efst á fyrsta blaði, * 7 ll, 1 fl efst á næsta blaði *, endurtakið frá *-* 6 sinnum, en endið á 1 kl í fl á toppi á fyrsta blaði í umf = 6 ll-bogar.
UMFERÐ 4: * Heklið 1 picot, 1 fl um ll-boga, 1 picot, 1 fl í fl á milli ll-boga *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum, en endið á 1 kl í fyrstu ll á picot í byrjun umf = 12 blöð.
UMFERÐ 5: Heklið 3 ll, 1 fl efst á fyrsta blaði, * 5 ll, 1 fl efst á næsta blaði , 5 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf = 12 ll-bogar.
UMFERÐ 6: Heklið 4 ll + 4 st um fyrsta ll-boga, 1 ll, * 5 st um næsta ll-boga, 1 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í 4. ll í byrjun umf = 60 st.
UMFERÐ 7: * Heklið 7 ll, hoppið yfir 5 st, 1 fl um ll á milli st-hópa *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf = 12 ll-bogar.
UMFERÐ 8: * Heklið 1 picot, 1 fl um ll-boga, 1 picot, 1 fl í fl á milli ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn þannig að það verði 2 picot í hverjum ll-boga = 24 picot, endið á 1 kl í fyrstu ll á picot í byrjun umf.
UMFERÐ 9: Heklið 3 ll, 1 fl efst á fyrsta picot, * 4 ll, 1 fl efst á næsta picot *, endurtakið frá *-* út umf, endið á 4 ll og 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf = 24 ll-bogar.
UMFERÐ 10: Heklið 3 ll + 3 st um fyrsta ll-boga, * 1 ll, 4 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 ll og 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 96 st (= 24 st-hópar).
Stykkið mælist nú ca 12 cm frá miðju og út.

STÆRÐ 3/5 ÁRA:
UMFERÐ 11: Heklið 1 ll (þessi kemur í stað fyrstu fl), * 5 ll, 1 fl í næstu ll *, endurtakið frá *-* alls sinnum, 23 ll (= handvegur), hoppið yfir 4 st-hópa, 1 fl í næstu ll, endurtakið frá *-* 10 sinnum, 23 ll (= handvegur), hoppið yfir 4 síðustu st-hópa, endið á 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf.
UMFERÐ 12: Heklið 3 ll + 4 st um fyrsta ll-boga, 5 st um hvern og einn af 5 næstu ll-bogum, í langa ll-boga á undan handveg er heklað þannig: * Heklið 1 st í hvern og einn af 5 fyrstu ll, hoppið yfir 1 ll *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, endið á 1 st í hverri og einni af 5 síðustu ll, heklið nú 5 st í hverja og eina af næstu 10 ll-bogum, þ.e.a.s. fram að næsta langa ll-boga fyrir handveg, heklið alveg eins yfir þær eins og yfir fyrsta langa ll-bogann, endið á 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 120 st.
UMFERÐ 13: Heklið 1 ll (þessi kemur í stað fyrstu fl), * 6 ll, hoppið yfir 5 st, 1 fl á milli síðustu st sem hoppað var yfir og næstu st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 6 ll og 1 kl í fyrstu ll í umf = 24 ll-bogar.
UMFERÐ 14: Heklið 3 ll + 4 st um fyrsta ll-boga, * 1 ll, 5 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 ll og 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf= 120 st (= 24 st-hópar).
UMFERÐ 15: Heklið 1 ll (þessi kemur í stað fyrstu fl), * 3 ll, 1 fl í 3. st í fyrsta st-hópinn 3 ll, 1 fl á milli st-hópa *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 3 ll og 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf = 48 ll-bogar.
UMFERÐ 16: Heklið 3 ll + 2 st um fyrsta ll-boga, heklið nú 3 st um hvern ll-boga, endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 144 st.
UMFERÐ 17: Heklið 1 ll (þessi kemur í stað fyrstu fl), * 4 ll, hoppið yfir 2 st, 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 4 ll og 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf = 48 ll-bogar.
UMFERÐ 18: Heklið 3 ll + 3 st um fyrsta ll-boga, * 3 st um næsta ll-boga, 4 st um næsta ll-boga, 3 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-*, endið á 4 st í hvern og einn af 2 síðustu ll-bogum og 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 162 st.
UMFERÐ 19: Heklið 1 ll (þessi kemur í stað fyrstu fl), * 4 ll, hoppið yfir 2 st, 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 4 ll og 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf = 54 ll-bogar.
Stykkið mælist nú ca 21 cm frá miðju og út, klippið frá.
Heklið nú einungis yfir 17 ll-boga í hvorri hlið – þ.e.a.s. ekki hekla lengur yfir 10 ll-boga efst við hnakka, 10 ll-bogar neðst á baki.
Haldið áfram frá útskýringu undir framstykki fyrir neðan.

STÆRÐ 6/9 ÁRA:

UMFERÐ 11: Heklið 1 ll (þessi kemur í stað fyrstu fl), * 5 ll, 1 fl um næstu ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf = 24 ll-bogar.
UMFERÐ 12: Heklið 3 ll + 4 st um fyrsta ll-boga, síðan 5 st um hvern ll-boga umf hringinn = 120 st. Stykkið mælist nú ca 14 cm frá miðju og út.
UMFERÐ 13: Heklið 1 ll (þessi kemur í stað fyrstu fl), * 6 ll, hoppið yfir 5 st, 1 fl á milli síðasta st sem hoppað var yfir og næsta st *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum, 25 ll (= handvegur), hoppið yfir 20 st, 1 fl á milli síðasta st sem hoppað var yfir og næsta st, endurtakið frá *-* 10 sinnum, 25 ll (= handvegur), hoppið yfir 20 síðustu st, endið á 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf.
UMFERÐ 14: Heklið 3 ll + 4 st um fyrsta ll-boga, * 1 ll, 5 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum, í langa ll-boga fyrir handveg er heklað þannig: Heklið 1 ll, hoppið yfir fyrsta ll, ** 1 st í hverja og eina af 5 næstu ll, 1 ll, hoppið yfir 1 ll ** 1 endurtakið frá **-** alls 3 sinnum, endið á 1 st í hverja og eina af 5 næstu ll, 1 ll, hoppið yfir síðustu ll, endurtakið nú frá **-** yfir næstu 10 ll-boga, þ.e.a.s. fram að næsta langa ll-boga fyrir handveg, heklið alveg eins yfir þá eins og yfir fyrsta langa ll-boga, endið á 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 120 st (= 24 st-hópar).
UMFERÐ 15-19: Heklið eins og útskýringin við stærð 3/5 ár, eftir umf 19 eru 54 ll-bogar í umf.
UMFERÐ 20: Heklið 3 ll + 3 st um fyrsta ll-boga, * 3 st um næsta ll-boga, 4 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-*, endið á 4 st í síðasta ll-boga og 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 190 st.
UMFERÐ 21: Heklið 1 ll (þessi kemur í stað fyrstu fl), * 4 ll, hoppið yfir 2 st, 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, en á 2 stöðum jafnt yfir er einungis hoppað yfir 1 st, endið á 4 ll og 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf = 64 ll-bogar.
Stykkið mælist nú ca 23 cm frá miðju og út, klippið frá.
Heklið nú einungis yfir 19 ll-boga í hvorri hlið – þ.e.a.s. að ekki lengur er heklað yfir 13 ll-boga efst við hnakka 13 ll-bogar neðst á baki.
Haldið áfram frá útskýringu undir framstykki fyrir neðan.

STÆRÐ 10/12 ÁRA:
UMFERÐ 11: Heklið 1 ll (þessi kemur í stað fyrstu fl), * 5 ll, 1 fl í næstu ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf = 24 ll-bogar.
UMFERÐ 12: Heklið 3 ll + 4 st um fyrsta ll-boga, síðan 5 st um hvern ll-boga umf hringinn = 120 st.
UMFERÐ 13: Heklið 1 ll (þessi kemur í stað fyrstu fl), * 6 ll, hoppið yfir 4 st, 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 6 ll og 1 kl í fyrstu ll í umf = 24 ll-bogar.
UMFERÐ 14: Heklið 3 ll + 4 st um fyrsta ll-boga, * 1 ll, 5 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 ll og 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf = 120 st (= 24 st-hópar). Stykkið mælist nú ca 16 cm frá miðju og út.
UMFERÐ 15: Heklið 1 ll (þessi kemur í stað fyrstu fl), * 6 ll, 1 fl í næstu ll *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum, 27 ll (= handvegur), hoppið yfir 4 st-hópa, 1 fl í næstu ll, endurtakið frá *-* 10 sinnum, 27 ll (= handvegur), hoppið yfir síðustu 4 st-hópa, endið á 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf.
UMFERÐ 16: Heklið 3 ll + 5 st um fyrsta ll-boga, heklið nú 6 st um hvern og einn af næstu 5 ll-bogum, í löngu ll-bogum fyrir handveg er heklað þannig: * Heklið 1 st í hvern og einn af 6 fyrstu ll, hoppið yfir 1 ll *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, endið á 1 st í hvern og einn af 6 síðustu ll, heklið nú 6 st um hvern og einn af næstu 10 ll-bogum, þ.e.a.s. fram að næsta langa ll-boga fyrir handveg, heklið á sama hátt yfir þessa eins og yfir fyrstu löngu ll-boga, endið á 1 kl í 3. ll íbyrjun umf = 144 st.
UMFERÐ 17-19: Heklið eins og útskýring í stærð 3/5 ára, eftir umf 19 eru 54 ll-bogar í umf.
UMFERÐ 20-21: Heklið eins og útskýring í stærð 6/9 ára, eftir umf 21 eru 64 ll-bogar í umf.
UMFERÐ 22: Heklið 3 ll + 3 st um fyrsta ll-boga, * 3 st um næsta ll-boga, 3 st um næsta ll-boga, 3 st um næsta ll-boga, 4 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-*, endið á 3 st um næsta ll-boga, síðan 4 st um hvern og einn af 2 síðustu ll-bogunum og 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 210 st.
UMFERÐ 23: Heklið 1 ll (þessi kemur í stað fyrstu fl), * 4 ll, hoppið yfir 2 st, 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 4 ll og 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf = 70 ll-bogar.
UMFERÐ 24: Heklið 3 ll + 3 st um fyrsta ll-boga, * 3 st um næsta ll-boga, 3 st um næsta ll-boga, 3 st um næsta ll-boga, 3 st um næsta ll-boga, 4 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-*, endið á 3 st um hvern og einn af 4 síðustu ll-bogum og 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 224 st.
UMFERÐ 25: Heklið 1 ll (þessi kemur í stað fyrstu fl), * 4 ll, hoppið yfir 2 st, 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, en á 2 stöðum jafnt yfir er hoppað yfir 3 st í stað 2, endið á 4 ll og 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf = 74 ll-bogar.
Stykkið mælist nú ca 27 cm frá miðju og út, klippið frá.
Heklið nú einungis yfir 22 ll–boga í hvorri hlið – þ.e.a.s. að ekki er lengur heklað yfir 15 ll-boga efst við hnakka 15 ll-bogar neðst við bak.
Haldið áfram frá útskýringu undir framstykki fyrir neðan.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 17-19-22 ll-bogar. Haldið áfram þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 1 st í hverja fl (fyrsti st er skipt út fyrir 3 ll) og 3 st um hvern ll-boga – JAFNFRAMT eru heklaðir 5 fyrstu og 5 síðustu st í umf saman SJÁ ÚRTAKA-1 – (þ.e.a.s. að það verða 8 st færri í umf fyrir hvert skipti sem umf 1 er hekluð) = 61-69-81 st í umf.
UMFERÐ 2: Heklið 5 ll (jafngilda 1 fl + 4 ll) upp frá fyrsta st (þ.e.a.s. þeir 5 st sem heklaðir voru saman), * hoppið yfir 3 st, 1 fl í næsta st, 4 ll *, endurtakið frá *-*, endið á 1 fl í síðasta st (þ.e.a.s. í þá 5 st sem heklaðir voru saman) = 15-17-20 ll-bogar í umf.
Endurtakið umf 1 og 2 alls 4-4-5 sinnum (= ca 8-8-10 cm). Nú eru 9-11-12 ll-bogar eftir lengst út á framstykki. Klippið frá.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Heklið eins og vinstra framstykki, yfir 17-19-22 ll-boga í hægri hlið.

ERMI:
Stykkið er heklað fram og til baka og saumað saman í lokin.
Heklið 30-34-37 lausar ll (meðtaldar 3 ll til að snúa við) með heklunál nr 5 með Paris.
UMFERÐ 1: Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni, 1 st í hverja og eina af þeim 5-2-5 næstu ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja og eina af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 25-28-31 st. Snúið við.
Heklið 1 umf með 1 st í hvern st til baka – fyrsta st er skipt út fyrir 3 ll. Haldið áfram með MYNSTUR -ERMI – sjá útskýringu að ofan! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 10 cm (stillið af að næsta umf sem hekluð er umf 2 í mynstri) aukið út 3 st jafnt yfir. Endurtakið útaukningu með ca 8.- 10.- 12 millibili 2 sinnum til viðbótar = 34-37-40 st alls í umf. ATH: Haldið uppi stykkinu þegar ermalengd er mátuð, annars verður ermin allt of löng í lokin. Þegar stykkið mælist ca 29-35-40 cm (stillið af að næsta umf sem hekluð er, er umf 1 í mynstri), fellið af í hvorri hlið fyrir ermakúpu þannig. Heklið kl yfir fyrstu 4 st, heklið nú ll-boga eins og áður (fyrsti ll-boginn er heklaður upp frá 4. kl sem hekluð var), þar til 3 st eru eftir, snúið við. Í næstu umf eru 4 fyrstu og 4 síðustu st heklaðir saman – SJÁ ÚRTAKA-2. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf 3 sinnum til viðbótar. Klippið frá, stykkið mælist ca 37-43-48 cm. Saumið ermasauma kant í kant, svo að saumurinn verði ekki of þykkur.

FRÁGANGUR:
Heklið 1 umf í kringum allt fram- og bakstykki þannig – byrjið frá miðju að aftan við hnakka með 1 fl um fyrsta ll-boga: * Heklið 1 picot (= 4 ll, 1 st í fyrstu ll), hoppið yfir ca 1½ cm, 1 fl *, endurtakið frá *-* í kringum allt stykkið, endið á 1 kl í fyrstu fl.
Heklið alveg eins neðst niðri í kringum ermar.
Saumið ermar í fram- og bakstykki – passið uppá að ermakúpan er saumuð efst í op fyrir handveg, þ.e.a.s. þar sem stysta bilið er á milli í handveg.

Heklið loftlykkju umferðir ca 50 ll með heklunál nr 5 með Paris. Klippið frá og festið enda, loftlykkju umferðirnar eru notaðar til þess að hneppa peysunni við miðju að framan.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 24-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (109)

country flag Dominique wrote:

Zwei Monate und noch keine Antwort....? Das ist schade.

25.02.2024 - 19:55

DROPS Design answered:

Liebe Dominique, da Ihre Frage als Kommentar veröffentlicht wurde, haben wir sie verpasst, sorry dafür. In 6/9 haben Sie insgesamt 64 Luftmaschenbogen: 13 oben am Hals, 13 unten und je 19 für die Vorderteile sind insgesamt 64. Falten Sie die Arbeit in 2 sodaß beide Armlöcher übereinander sind, und dann zählen Sie die Verteilung damit beide Vorderteile symmetrisch sind. Viel Spaß beim Häkeln!

26.02.2024 - 09:41

country flag Dominique wrote:

Ich häkele Größe 6/9.\r\nNachdem ich jetzt mit dem Rumpfteil fertig bin, soll ich über 19 Lm Bogen rechts und links arbeiten, bzw. nicht über die 13 Lm Bogen oben und unten. Es ist aber insgesamt eine gerade Zahl an Lm Bogen, d. h. ich habe weder oben noch unten einen Lm Bogen, der mittig ist und somit muss ich nach rechts oder links schieben und das bedeutet, dass es nicht mehr symmetrisch wäre und die Ärmel schief sitzen würden.\r\nWas mache ich da?

22.12.2023 - 18:28

country flag Nelly wrote:

Wat een leuk patroon. Ik ben nu bij de mouwen maar kom er niet uit. Wat bedoel je met ' in patroon ' haken. Als ik de tour 1 herhaal dan kom ik niet uit. Ik haak de kleinste maat.

21.05.2023 - 18:34

DROPS Design answered:

Dag Nelly,

Met in patroon haken wordt bedoeld wat in het begin van de mouw beschreven staat. Dus afwisselend steeds 1 toer zoals toer 1 en dan 1 toer met 1 stokje in elke steek.

23.05.2023 - 09:49

country flag Nelly wrote:

Wat een leuk patroon. Ik ben nu bij de mouwen maar kom er niet uit. Wat bedoel je met ' in patroon ' haken. Als ik de tour 1 herhaal dan kom ik niet uit. Ik haak de kleinste maat.

21.05.2023 - 18:33

country flag Malin Moreau wrote:

Hej jag gör storleken 3 till 5 år. Rad 11 förstår jag inte alls. När jag gjort 1 luftmaska pluss 5 till så ska jag göra en fastmaska var? I nästa luftmaska står det, var är den?

16.03.2023 - 20:02

country flag Tasneem Akhtar wrote:

Hello . I'm following your beautiful jacket pattern for my grand. I'm following for size 6-12 . In row 13 I faced problem. There are 12 chain space. I divided it into 4-6-4-10. Please comment weather it's okay or incorrect division.

15.01.2023 - 20:27

DROPS Design answered:

Dear Mrs Akhtar, in size 6/9 years you work the 13th row over the 120 sts from previous round as follows: (ch6, skip 5 sts, 1 dc before next treble) x 6 (= 6 ch-spaces), skip 20 treble crochets and crochet 25 chains, then crochet 1 dc after the 20th treble, repeat from *-* one more time (6 ch-spaces), and crochet 20 chains, skip 20 treble crochets, and join with 1 slip st in the first chain at the beg of the round. Can this help?

16.01.2023 - 10:08

country flag Tasneem Akhtar wrote:

In row 13 there are 24 chain space. I used 5 spaces for armholes and 7 for front and back. Is there any problem in my understanding. Please comment

14.01.2023 - 14:17

DROPS Design answered:

Dear Tasneem, which size are you working? So that we may better answer your question. Happy knitting!

15.01.2023 - 11:01

country flag Tasneem Akhtar wrote:

In row 13 there are 24 chain space. I used 5 spaces for armholes and 7 for front and back. Is there any problem in my understanding. Please comment

14.01.2023 - 14:15

DROPS Design answered:

Dear Tasneem, which size are you working? So that we may better answer your question. Happy knitting!

15.01.2023 - 11:02

country flag Tasneem Akhtar wrote:

In row 13 there are 24 chain space. I used 5 spaces for armholes and 7 for front and back. Is there any problem in my understanding. Please comment

14.01.2023 - 14:14

DROPS Design answered:

Dear Tasneem, which size are you working? So that we may better answer your question. Happy knitting!

15.01.2023 - 11:02

country flag Tasneem Akhtar wrote:

In row 13 there are 24 chain space. I used 5 spaces for armholes and 7 for front and back. Is there any problem in my understanding. Please comment

14.01.2023 - 14:13

DROPS Design answered:

Dear Tasneem, which size are you working? So that we may better answer your question. Happy knitting!

15.01.2023 - 11:01