DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Extra 0-901
DROPS Design: Mynstur nr fa-244
--------------------------------------------------------

Stærð:
15/17 - 18/19 - 20/21 - 22/23 - (24/25 - 26/28 - 29/31 - 32/34) - 35/37 - 38/40 - 41/43 - 44/46
Lengd á legg / stroffi:
6-7-8-9 (10-11-12-13) 14-15-16-17 cm.
Lengd fótar:
10-11-12-13 (15-17-18-20) 22-24-27-30 cm.

GARN:
DROPS FABEL frá Garnstudio
50-50-50-50-(50-50-100-100)-100-100-100-100 gr litur nr 804, blár/grár
Og einnig:
50-50-50-50-(50-50-50-50)-50-50-50-50 gr litur nr 103, gráblár

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.

PRJÓNFESTA:
26 lykkjur á breidd og 34 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HÆLÚRTAKA:
Hælúrtaka er prjónuð í sléttprjóni þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-7-7-7 (7-7-8-8) 7-7-8-10 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-7-7-7 (7-7-8-8) 7-7-8-10 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 5-6-6-6 (6-6-7-7) 6-6-7-9 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 5-6-6-6 (6-6-7-7) 6-6-7-9 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu.
Haldið áfram með úrtöku á sama hátt með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 8-10-10-10 (10-10-12-12) 14-14-16-16 lykkjur eru eftir á prjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður að tá.

SOKKUR:
Fitjið upp 44-48-52-52 (56-56-64-64) 64-68-72-76 lykkjur jafnt yfir á sokkaprjóna 2,5 með litnum gráblár DROPS Fabel.
Prjónið stroff mismunandi eftir stærðum þannig (ATH! Passið uppá að það er byrjað mismunandi eftir stærðum):
STÆRÐ 15/17 - 29/31 - 32/34 - 35/37 - 38/40 - 44/46: 1 lykkja brugðið * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur slétt og 1 lykkju brugðið.
STÆRÐ 18/19 - 20/21 - 22/23 - 24/25 - 26/28 -41/43: 1 lykkja slétt * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur brugðið og 1 lykkju slétt.
ALLAR STÆRÐIR:
Þegar stykkið mælist 2 cm er skipt yfir í litinn blár/grár.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið áfram í stroffprjóni þar til stykkið mælist 4-5-6-7 (8-9-10-11) 12-13-14-15 cm. Síðan er næsta umferð prjónuð þannig: 9-11-11-11 (11-11-13-13) 13-13-15-17 lykkjur í stroffprjóni, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 26-26-30-30 (34-34-38-38) 38-42-42-42 lykkjur JAFNFRAMT er fækkað um 8-8-10-10 (12-12-8-6) 6-6-6-4 lykkjur jafnt yfir (= 18-18-20-20 (22-22-30-32) 32-36-36-38 lykkjur slétt), prjónið stroffprjón yfir þær 9-11-11-11 (11-11-13-13) 13-13-15-17 lykkjur sem eftir eru = 36-40-42-42 (44-44-56-58) 58-62-66-72 lykkjur. Haldið áfram í stroffprjóni og sléttprjóni þar til stykkið mælist 6-7-8-9 (10-11-12-13) 14-15-16-17 cm. Haldið núna eftir fyrstu 9-11-11-11 (11-11-13-13) 13-13-15-17 lykkjum á prjóni, setjið næstu 18-18-20-20 (22-22-30-32) 32-36-36-38 lykkjur á þráð (= mitt ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 9-11-11-11 (11-11-13-13) 13-13-15-17 lykkjur á prjóni = 18-22-22-22 (22-22-26-26) 26-26-30-34 lykkjur yfir hæl. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 3-3½-4-4 (4½-4½-5-5) 5-5½-6-6 cm. Setjið eitt merki í stykkið. Fækkið síðan lykkjum fyrir hæl – sjá HÆLÚRTAKA! Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 8-9-10-10 (11-12-13-13) 13-14-16-16 lykkjur hvoru megin við hæl og 18-18-20-20 (22-22-30-32) 32-36-36-38 lykkjur af þræði eru settar til baka á prjóninn = 42-46-50-50 (54-56-68-70) 72-78-84-86 lykkjur.
Setjið 1 merki hvoru megin við 18-18-20-20 (22-22-30-32) 32-36-36-38 lykkjur ofan á fæti. Síðan er prjónað sléttprjón, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið þannig:
Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan 18-18-20-20 (22-22-30-32) 32-36-36-38 lykkjum ofan á fæti snúnar slétt saman (þ.e.a.s. það er prjónað í aftari lykkjubogana í stað fremri), þær 2 fyrstu lykkjur á eftir 18-18-20-20 (22-22-30-32) 32-36-36-38 lykkjum eru prjónaðar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 3-4-5-5 (6-6-10-10) 10-11-11-11 sinnum = 36-38-40-40 (42-44-48-50) 52-56-62-64 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 7-8-9-9 (11-13-14-16) 18-19-22-24 cm frá merki á hæl – nú eru eftir 3-3-3-4 (4-4-4-4) 4-5-5-6 cm að loka máli.
Setjið nú 1 merki mitt í hvora hlið, þannig að það verða 18-19-20-20 (21-22-24-25) 26-28-31-32 lykkjur á milli merkja.
Skiptið yfir í litinn gráblár, prjónið með litnum gráblár til loka máls.
Síðan er prjónað sléttprjón yfir allar lykkjur JAFNFRAMT því sem lykkjum er fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði merkin.
Fækkið lykkjum á undan merki þannig: 2 lykkjur slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir merki þannig: 2 lykkjur snúnar slétt saman.
Fækkið lykkjum svona í hvorri hlið í annarri hverri umferð alls 3-3-3-6 (6-6-5-5) 6-7-6-7 sinnum og síðan í hverri umferð 4-4-4-2 (2-2-4-4) 4-4-6-6 sinnum = 8-10-12-8 (10-12-12-14) 12-12-14-12 lykkjur eftir á prjóni. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar saman 2 og 2. Klippið þráðinn og þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel.
Prjónið annan sokk á sama hátt.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-901

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (26)

country flag Mechtilde Willumsen wrote:

Hor er oppskriften til herre sokker?

08.02.2024 - 18:00

DROPS Design answered:

Hei Mechtilde. Alt skal ligge der, se evnt vårt forrige svar til deg. mvh DROPS Design

09.02.2024 - 07:56

country flag Mechtilde Willumsen wrote:

Jeg kan ikke finne oppskriften. There are all slags forklaringer om hvordan this and that skal gjøres, men hvor er oppskriften?

08.02.2024 - 17:58

DROPS Design answered:

Hei Mechtilde. Oppskriften og all informasjon du trenger for å strikke sokkene ligger til høyre og under bildet. Hva du trenger til oppskriften ligger øverst og under "Pattern instructions" står det hvordan det skal strikkes. Ser du det ikke? Sjekk nettleseren din / hastigheten på nettet ditt, om den ikke greier å laste ned oppskriften. mvh DROPS Design

09.02.2024 - 07:54

country flag Blah wrote:

What a messy horrible pattern

02.02.2024 - 01:42

country flag Grith Lagermand wrote:

Str 41-43 Kilen: starter med 84 masker og så tages 2 masker ind i hver side 11 gange. 4 x 11=44 maskers indtagning! Så er der kun jo 40 masker til foden og IKKE 62 som der står i opskriften. Eller tager jeg fejl? 🙄

23.04.2023 - 12:28

DROPS Design answered:

Hej Grith, ifølge opskriften tager du kun 1 maske ind i hver side 11 gange. 84-22 = 62 masker :)

25.04.2023 - 13:50

country flag Gigi wrote:

J\'aimerais des modèles tricotés avec des aiguilles droites .J\'ai appris à tricoter avec ce genre d\'aiguilles et ,j\'ai 85 ans je ne me sens pas apte à tricoter avec des aiguilles circulaires,Merci de votre attention

26.10.2022 - 18:38

country flag Mélanie wrote:

Bonjour! Je n’arrive pas à trouver/ comprendre la taille des chaussettes?

08.12.2021 - 23:23

DROPS Design answered:

Bonjour Mélanie, la taille des chaussettes correspond à la pointure habituelle (en système métrique européen), vérifiez la longueur de pied correspondante en posant le pied sur une feuille, dessinez le contour du pied (avec le crayon bien droit) et mesurez la longueur totale du pied du talon à la pointe. Bon tricot!

09.12.2021 - 07:37

country flag Marie wrote:

Ich mache die Schuhgröße 41/43. Wie kommen Sie am Ende auf 14 Maschen übrig??? Ich war bis zu den 62 Maschen - also 2 Markierer je 31 Maschen dazwischen - bei Ihnen. Dann 6 x 2 Maschen alle 2 Runden (= minus 12 M), 6 x 2 M jede Runde (= nochmal minus 12 M). Also nach diesem Abnehmen habe ich 24 M weniger. 62 - 24 = 38 M und nicht 14. Ich bitte Sie um Erläuterung. Danke.

01.12.2021 - 22:00

DROPS Design answered:

Liebe Marie, Sie haben 62 Maschen dann wird es für die Zehe jeweils 4 Maschen abgenommen (2 Maschen bei jeder Markierung bzw auf jeder Seite beider Markierungen): zuerst 6 Mal in jeder 2. Runde dann 6 Mal in jeder Runde = 62 - (24x6) -(24x6)=14 M; Viel Spaß beim stricken!

02.12.2021 - 09:01

country flag Renate wrote:

Hallo, ich habe diese Socken gestrickt, in der Wolle Flora, die Maschenprobe war korrekt, aber die Socken sind extrem auseinandergegangen und nun viel zu groß. Ähnliches ist mir mit den Yogastutzen passiert, die ich auch gestrickt habe, diese muss ich nun auftrennen, sie sind wie ausgeleiert. Woran kann das liegen? Ich bin sehr entmutigt und obwohl ich noch andere Socken stricken wollte, traue ich mich das nicht mehr. Vielen Dank!

18.03.2021 - 18:46

DROPS Design answered:

Liebe Renate, diese Socken sollten mit einer Maschenprobe von 26 M x 34 Reihen gestrickt werden, sollte diese Maschenprobe stimmen, dann zeigen Sie bitte Ihre Socken Ihrem DROPS Laden - auch ein Foto per E-Mail schicken, es wird für sie einfacher sein, Ihnen weiterzuhelfen, wenn Sie die Socken sehen können.

19.03.2021 - 06:31

country flag Tom wrote:

Bonjour! Je n'arrive pas à comprendre les explications au moment de relever des mailles après la diminution du talon : le nombre de mailles indiqué n'est pas suffisant pour atteindre le niveau des mailles du dessus du pied laissées en attente. Il y aura donc un trou de chaque côté de ma chaussette si je procède ainsi... Que dois-je faire? Merci d'avance!

12.11.2020 - 16:54

DROPS Design answered:

Bonjour Tom, en fonction de la taille que vous réalisez, il vous reste de 8 à 16 m après les diminutions du talon, relevez maintenant à droite du talon entre 8 et 16 mailles, tricotez les 18 à 38 m en attente (dessus du pied) et relevez maintenant à droite du talon de 8 à 16 m = vous devez maintenant avoir entre 42 et 86 mailles tout autour du pied - cette vidéo montre à partir du time code 5:48 comment on relève les mailles après les diminutions du talon. Bon tricot!

13.11.2020 - 07:49

country flag Åsa Nilsson wrote:

Kan jag använda merino extra fine eller baby merino garn till dessa sockor? Mvh Åsa

12.05.2020 - 18:54

DROPS Design answered:

Hej Du kan använda DROPS Baby Merino till dessa sockar (både Fabel och Baby Merino tillhör garngrupp A). Tänk bara som vanligt på att få den stickfasthet som uppges i mönstret. Mvh DROPS Design

13.05.2020 - 09:14