DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3740.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Emma

Prjónaður kjóll úr Cotton Light með stuttum ermum, gatamynstri og garðaprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 148-12
DROPS Design: Mynstur nr cl-017
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON LIGHT frá Garnstudio
500-550-600-650-750-800 gr litur nr 25, ljós fjólublár

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm og 21 l og 42 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm. Að 17 l í mynstri eftir teikningu A.4 verði 10 cm á breiddina.
DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 3,5 – fyrir gatamynstur í mitti.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3740.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
* 1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.4.

ÚTAUKNING
Aukið er út um 1 l með því að prjóna 2 l í sömu l.

ÚRTAKA-1 (á við um þrengingu):
Byrjið á 1 l á undan l með prjónamerki og fækkið lykkjum þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l sl saman, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri).

ÚRTAKA-2 (á við um úrtöku við ermar):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki og á undan kantlykkju þannig: Prjónið 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki og á eftir kantlykkju þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp.

KJÓLL:
Fitjið laust upp 324-360-396-432-468-504 l á hringprjóna nr 4 með Cotton Light.
Prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað eru 252-280-308-336-364-392 l á prjóni. Prjónið nú mynstur A.2 (= 9-10-11-12-13-14 mynstureiningar með A.2 í umf). Þegar A.2 hefur verið prjónað (stykkið mælist ca 10 cm), setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig: Prjónið 42-42-42-56-56-70 l, setjið 1 prjónamerki í síðustu l, prjónið 41-55-69-55-69-55 l, setjið 1 prjónamerki í næstu l, prjónið 83-83-83-111-111-139 l, setjið 1 prjónamerki í næstu l, prjónið 41-55-69-55-69-55 l. Setjið 1 prjónamerki í næstu l og prjónið síðustu 41-41-41-55-55-69 l í umf. Prjónið nú sléttprjón hringinn (látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 11 cm er fækkað um 2 l við hvert prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA-1 (= 8 l færri). Endurtaki úrtöku í 4. hverri umf, 11-12-13-14-14-15 sinnum til viðbótar (= alls 12-13-14-15-15-16 úrtökur) = 156-176-196-216-244-264 l.
Þegar stykkið mælist 30 cm í öllum stærðum er prjónuð 1 umf slétt JAFNFRAMT sem fækkað er um 0-2-4-0-4-0 l jafnt yfir = 156-174-192-216-240-264 l. Fjarlægið prjónamerki, skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið mynstur eftir A.3. Þegar stykkið mælist ca 49-50-51-52-53-54 cm (endið eftir 1 umf með gati), prjónið nú 1 umf slétt JAFNFRAMT sem fækkað er um 8-10-12-14-14-14 l jafnt yfir = 148-164-180-202-226-250 l. Prjónið 1 umf brugðið, 1 umf slétt og 1 umf brugðið.
Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT sem fækkað er um 28-36-36-42-42-42 l jafnt yfir = 120-128-144-160-184-208 l. Prjónið nú mynstur eftir mynsturteikningu A.4. Þegar A.4 hefur verið prjónað er prjónuð 1 umf slétt JAFNFRAMT sem aukið er út um 28-36-36-42-42-44 l jafnt yfir = 148-164-180-202-226-252 l. Prjónið 1 umf brugðið. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf og 1 prjónamerki eftir 74-82-90-101-113-126 l (= hliðar) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Skiptið aftur yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið GARÐAPRJÓN hringinn á hringprjóna – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – SJÁ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 6 og 9 cm = 160-176-192-214-238-264 l. Þegar stykkið mælist 10 cm – passið uppá að næsta umf er brugðin umf, fellið af 8-10-12-16-20-24 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 4-5-6-8-10-12 l hvoru megin við bæði prjónamerkin) = 72-78-84-91-99-108 l eftir á fram- og bakstykki.

BAKSTYKKI:
= 72-78-84-91-99-108 l. Byrjið á sl frá réttu og fellið af í byrjun umf í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 l 1-1-2-2-2-2 sinnum í hvorri hlið = 68-74-76-83-91-100 l, klippið frá.
Prjónið nú inn ermakúpur á bakstykki (1. umf = rétta) þannig:
Fitjið upp 30-30-32-34-36-38 l á prjón, setjið 1 prjónamerki, prjónið 68-74-76-83-91-100 l frá bakstykki, setjið 1 prjónamerki og fitjið upp 30-30-32-34-36-38 l á prjóninn = 128-134-140-151-163-176 l.
Haldið áfram í garðaprjóni fram og til baka á hringprjóna nr 4. JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu byrjar úrtaka þannig – LESIÐ ÚRTAKA-2:

Fækkið um 1 l í byrjun og lok umf innan við 1 kantlykkju: Fækkið lykkjum í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) alls 12-12-13-13-14-14 sinnum.

Fellið JAFNFRAMT af í hvorri hlið við ermar (þ.e.a.s. á undan fyrsta prjónamerki og á eftir öðru prjónamerki séð frá réttu): Fækkið lykkjum í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu): Fækkið um 1 l alls 12-12-13-13-14-14 sinnum.

Fækkið JAFNFRAMT kykkjum í hvorri hlið inn við bakstykki (þ.e.a.s. á eftir fyrsta prjónamerki og á undan öðru prjónamerki séð frá réttu): Fækkið lykkjum í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu): Fækkið um 1 l alls 0-2-2-4-7-9 sinnum.

HÁLSMÁL:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 76-78-80-82-84-86 cm eru felldar af miðju 34-34-36-37-37-38 l frá réttu fyrir hálsmál og hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig.

HÆGRI ÖXL:
Haldið áfram með úrtöku við ermakúpu eins og áður. Eftir síðustu úrtöku eru 23-24-24-27-28-32 l eftir á prjóni (þ.e.a.s. 17-18-18-19-20-22 l á öxl + 6-6-6-8-8-10 l eftir efst á ermakúpu). Prjónið 1 umf slétt frá röngu og setjið síðustu 6-6-6-8-8-10 l af ermakúpu á þráð. Haldið áfram í garðaprjóni fram og til baka yfir 17-18-18-19-20-22 l á öxl JAFNFRAMT eru l frá ermakúpu prjónaðar saman með l á prjóni þannig: Prjónið 1 umf slétt frá réttu þar til 1 l er eftir á vinstri prjóni, setjið síðustu l á hægri prjón án þess að prjóna hana, setjið til baka fyrstu og aðra l af þræði á vinstri prjón, steypið óprjónuðu l af hægri prjón aftur til baka á vinstri prjón og prjónið þessar 3 l slétt saman, snúið við, herðið á þræði og prjónið 1 umf slétt frá röngu, * prjónið 1 umf slétt frá réttu þar til 1 l er eftir á vinstri prjóni, setjið síðustu l á hægri prjón án þess að prjóna hana, setjið til baka næstu l af þræði á vinstri prjón, steypið óprjónuðu l af hægri prjóni til baka yfir á vinstri prjón og prjónið þessar 2 l slétt saman, snúið við, herðið á þræði og prjónið 1 umf slétt frá röngu *, endurtakið þessar 2 umf frá *-* þar til allar l af þræði hafa verið prjónaðar saman með síðustu l á prjóni, fellið laust af. Berustykkið mælist ca 25-26-27-28-29-30 cm frá prjónamerki og allur kjóllinn mælist ca 80-82-84-86-88-90 cm.

VINSTRI ÖXL:
Prjónið á sama hátt og hægri öxl en eftir síðustu úrtöku eru síðustu 6-6-6-8-8-10 l fyrir ermakúpu settar á þráð. Byrjið frá röngu og prjónið 1 umf slétt þar til 1 l er eftir á vinstri prjón, setjið síðustu l yfir á hægri prjón án þess að prjóna þær, setjið til baka fyrstu og aðra l af þræði yfir á vinstri prjón, steypið óprjónuðu l á hægri prjóni yfir á vinstri prjón og prjónið þessar 3 l slétt saman, snúið við, herðið á þræði og prjónið 1 umf slétt frá réttu, endurtakið síðan þessar 2 umf frá *-* eins og á hægri öxl (en með byrjun frá röngu) þar til allar l af þræði hafa verið prjónaðar saman með síðustu l á prjóni, fellið laust af.

FRAMSTYKKI:
= 72-78-84-91-99-108 l. Prjónið á sama hátt og bakstykki og fitjið upp fyrir ermakúpur í hvorri hlið eins og á bakstykki = 128-134-140-151-163-176 l. Fellið nú af á framstykki og á ermakúpum eins og á bakstykki en þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm er fellt af miðju 34-34-36-37-37-38 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með úrtöku og prjónið síðan hægri og vinstri öxl á bakstykki. Berustykkið mælist ca 25-26-27-28-29-30 cm frá prjónamerki. Kjólinn mælist ca 80-82-84-86-88-90 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsaumana og niður meðfram ermakúpum – saumið yst í lykkjubogann svo að saumurinn verði ekki of þykkur.

Mynstur

symbols = sl
symbols = br
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 148-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (83)

country flag Evgeniya Trifonova wrote:

Hi! I love this pattern. Are there any guidelines on how to make this dress longer as I'm taller and would like to adjust the pattern. What's the best way to do this? For example, the pattern says that this particular dress is 89 cm in XXL size. I would like the dress to be 102 cm long. Where in the pattern should I make adjustments? Thanking you in advance.

10.07.2020 - 01:45

DROPS Design answered:

Dear Mrs Trifonova, we are unfortunately not able to adjust every pattern to every single request, but you are welcome to contact your DROPS store, they might be able to assist you - even per mail or telephone. Happy knitting!

10.07.2020 - 08:07

country flag Tracey wrote:

Hi I casted on 324 and then it says to work a1 chart. Once the a1 chart as been worked I should av left with 252 sts on needle. So do I just do 1 row of chart a1 or all the 3. Rows ??

26.11.2019 - 23:38

DROPS Design answered:

Hi Tracey, You do all four rows of A.1, which should leave you with the right number of stitches. Happy knitting!

27.11.2019 - 07:39

country flag Tanja Henriksen wrote:

Hej Er det muligt, at strikke glatstrik, i stedet for retstrik? Hvis, skal der så ændres noget? I så fald hvad?

13.08.2019 - 14:09

DROPS Design answered:

Hej Tanja, du strikker færre pinde glatstrik i højden på 10 cm i forhold til retstrik. Men hvis du sørger for at følge målene i opskriften, så skal det kunne lade sig gøre. God fornøjelse!

16.08.2019 - 10:40

Nici Van Eeden wrote:

Hi, I would like to find out how the number of stitches for diagram A4 works. I am making the smallest size and can't get my diagram to work out with the 120 st count. The last pattern on the diagram is only half a diagram (8sts) and then I can't do the decrease or the yarn over at the end. Please advice!

19.05.2017 - 23:25

DROPS Design answered:

Dear Mrs Van Eeden, A.4 is worked over 16 sts, you will repeat the 16 sts in A.4 a total of 7 times, then work the first 8 sts once again: 7x 16 + 8 = 120 sts. Happy knitting!

22.05.2017 - 09:34

country flag Christin Alraek wrote:

Hur stikkes siste 2 runder av mønster A1?

23.01.2015 - 13:28

DROPS Design answered:

Hei Christin. 7 r, ta 1 m løs av p som om den skulle strikkes rett, 2 rett sammen, løft den løse m over, 13 r, ta 1 m løs av p som om den skulle strikkes rett, 2 rett sammen, løft den løse m over, 6 r (1 gentagelse af A.1 i bredden). Raekke 4: 28 vr (1 gentagelse af A.1 i bredden). Du har altsaa minsket fra 36 til 28 m per gentagelse af A.1.

23.01.2015 - 15:52

country flag Synnøve Aandalen wrote:

I mønstret a1 er det i andre omgang åpent rom etter 16 masker vrangt. Hva skal jeg gjøre her...?

15.10.2014 - 11:12

DROPS Design answered:

Det masker du har minsket på omgangen under. Derfor er det ingen masker der.

17.10.2014 - 15:23

country flag Liv Christiansen wrote:

149-12 I omgangen etter felling til 44 masker står det at neste omgang skal strikkes tilbake på samme måte. Gjør man det blir det 38 masker igjen på pinnen. Legger man sammen maskene på neste pinne er det 32 maser rille, vrangbord og mønster A1. Hvordan skal dette gjøres?

21.07.2014 - 10:56

DROPS Design answered:

Hej Liv. Jeg forstår ikke helt hvad du mener? A.1 strikkes først i mønstret og hvor feller du til 44 m? Hvis du kan beskrive lidt bedre hvor du har problemer, så skal jeg prøve at hjælpe dig :-) tak.

21.07.2014 - 14:05

country flag Megan wrote:

Can you please advise what are the measurements for each size? I would like to make this for my daughter. She has a 97 cm chest, and 80 cm waist. Thank you.

10.05.2014 - 07:16

DROPS Design answered:

Dear Megan, you will find at the very bottom of the pattern a measurement chart with all measures in cm for each size. They are taken flat from side to side. Compare these to a similar garment she likes the shape to find the matching size. Happy knitting!

10.05.2014 - 09:48

Siv wrote:

Där ska man inte sticka någonting!

06.12.2013 - 20:38

country flag Carolina wrote:

Hur ska man sticka i mönster A.1 där det i mönstret inte finns någon ruta?

05.12.2013 - 13:08

DROPS Design answered:

Du minskade m på varvet under, därför har du ingen m/ingen ruta varvet över!

10.12.2013 - 09:15