DROPS Fabel uni colour 75% Ull, 25% Polyamide |
638.00 kr /50g |
Panta | |
DROPS Fabel 75% Ull, 25% Polyamide |
682.00 kr /50g |
Panta | |
DROPS Fabel long print 75% Ull, 25% Polyamide |
726.00 kr /50g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Fabel uni colour 75% Ull, 25% Polyamide 638.00 kr /50g Panta |
|
DROPS Fabel print 75% Ull, 25% Polyamide 682.00 kr /50g Panta |
|
DROPS Fabel long print 75% Ull, 25% Polyamide 726.00 kr /50g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Stormcloud |
|
|
|
Prjónuð peysa úr DROPS Fabel með stuttum umferðum og sjalkraga. Stærð S - XXXL
DROPS 145-23 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka frá hlið að hlið á hringprjóna til þess að fá pláss fyrir allar l. BAKSTYKKI: Fitjið upp 168-172-178-182-188-192 l á hringprjóna nr 3 með litnum yfir hafið DROPS Fabel. Setjið 1 prjónamerki í stykkið þegar 46-48-50-52-54-56 l eru eftir á prjóni (séð frá réttu). Þetta prjónamerki merkir hver ermin er saumuð á stykkið. Prjónið 12 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Prjónið nú stuttar umferðir með byrjun frá réttu (þær 3 fyrstu l eru alltaf prjónaðar í garðaprjóni) þannig: * Prjónið 3 l garðaprjón, sléttprjón yfir næstu 32 l, snúið við og prjónið til baka. Prjóni 3 l garðaprjón, sléttprjón yfir næstu 67 l, snúið við og prjónið til baka. Prjónið 3 l garðaprjón, sléttprjón yfir næstu 102 l, snúið við og prjóni til baka. Prjónið 3 l garðaprjón, sléttprjón yfir næstu 67 l, snúið við og prjónið til baka. Prjónið 3 l garðaprjón, sléttprjón yfir næstu 32 l, snúið við og prjónið til baka, prjónið 8 umf garðaprjón fram og til baka yfir allar l *, endurtakið frá *-* , 1 mynstureining = 8 umf efst, 18 umf neðst. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram í garðaprjóni og stuttum umferðum í sléttprjóni þar til stykkið mælist 15-17-18-21-22-26 cm mælt þar sem er styst. Í næstu umf frá röngu eru felldar af 5 fyrstu l við hnakka = 163-167-173-177-183-187 l. Prjónið nú áfram í garðaprjóni og stuttum umferðum í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 25-27-30-33-36-40 cm (10-10-12-12-14-14 cm frá þeim stað sem lykkjur voru felldar af við hnakka) fitjið upp 5 nýjar l í lok næstu umf frá réttu = 168-172-178-182-188-192 l. Haldið áfram eins og áður. Þegar stykkið mælist 40-44-48-54-58-66 cm (nú eru jafn margar umf í garðaprjóni á undan og á eftir úrtöku fyrir hálsmáli – passið uppá að enda með heila mynstureiningu + 4 umf í garðaprjóni yfir allar l) setjið prjónamerki í stykkið þegar eftir eru 46-48-50-52-54-56-58 l á prjóni (séð frá réttu). Þetta prjónamerki merkir hvar sauma á ermi í stykkið. Fellið af í næstu umf. HÆGRA FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað frá hlið að hlið á hringprjóna til þess að fá pláss fyrir allar l. Byrjið á hlið og prjónið að miðju að framan. Fitjið upp 168-172-178-182-188-192 l á hringprjóna nr 3 með litnum yfir hafið DROPS Fabel. Setjið 1 prjónamerki í stykkið þegar eftir eru 46-48-50-52-54-56 l á prjóni (séð frá réttu). Þetta prjónamerki sýnir hvar sauma á ermi í stykkið. Prjónið 12 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Prjónið nú stuttar umferðir byrjun frá réttu (þær fyrstu 3 l eru alltaf prjónaðar í garðaprjóni) þannig: * Prjónið 3 l garðaprjón, sléttprjón yfir næstu 32 l, snúið við og prjónið til baka. Prjónið 3 l garðaprjón, sléttprjón yfir næstu 67 l, snúið við og prjónið til baka. Prjóni ð 3 l garðaprjón, sléttprjón yfir næstu 102 l, snúið við og prjónið til baka. Prjónið 3 l garðaprjón, sléttprjón yfir næstu 67 l, snúið við og prjónið til baka. Prjónið 3 l garðaprjón, sléttprjón yfir næstu 32 l, snúið við og prjónið til baka, 8 umf garðaprjón fram og til baka yfir allar l *, endurtakið frá *-*, 1 mynstureining = 8 umf efst, 18 umf neðst. Haldið áfram í garðaprjóni og stuttar umferðir í sléttprjóni þar til stykkið mælist 15-17-18-21-22-26 cm mælt þar sem stykkið er styst. Í lok næstu umf frá réttu eru fitjaðar upp 20-20-22-22-24-24 nýjar l fyrir kraga = 188-192-200-204-212-216 l. Prjónið nú áfram í garðaprjóni og stuttum umferðum í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 20-22-24-27-29-33 cm (5-5-6-6-7-7 cm frá þeim stað sem fitjaðar voru upp nýjar l – endið aðeins á undan 8 umf garðaprjóni í mynstureiningu) prjónið garðaprjón yfir allar l í 1 cm. Fellið nú af fyrir hnappagati – frá réttu þannig: Prjónið 82-84-88-92-96-100 l, prjónið 2 l slétt saman, sláið uppá prjóninn, prjónið 16 l, prjónið 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Prjónið út umf. Haldið áfram þar til prjónaðir hafa verið 3 cm í garðaprjóni. Fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd. Stuttar umferðir eru prjónaðar frá röngu. Fellið ekki af fyrir hnappagötum. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 56-58-60-62-64-66 l á sokkaprjóna nr 3 með litnum beige DROPS Fabel. Prjónið GARÐAPRJÓN í 4 cm – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir í litinn yfir hafið. Prjónið nú sléttprjón. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki, endurtakið útaukningu með 2½-2-2-2-1½-1½ cm millibili 17-18-19-20-21-22 sinnum til viðbótar (alls 18-19-20-21-22-23 útaukningar) = 92-96-100-104-108-112 l. Þegar stykkið mælist 54-53-52-50-49-46 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) fellið af. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma. Saumið hliðarsauma frá prjónamerki og niður. Saumið ermar í. Saumið saman kragann við miðju að aftan og saumið við hálsmál. Saumið tölur í vinstra framstykki. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið kant í kringum op að framan á peysu, byrjið neðst niðri á hægra framstykki, heklið í kringum kragann og niður meðfram vinstra framstykki. Heklið með litnum beige með heklunál nr 3 þannig: Heklið 1 fl, * 3 ll, 1 st í 1. ll, hoppið fram ca 1 cm, 1 fl *, endurtakið frá *-*. Klippið frá og festið enda. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6925 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (105)
Sandra Bouwhuis wrote:
Thanks for your previous reply. Still confused. The marker is placed at remaining stitches 56. Why is the cast on number of stitches, the same for the back and right front 192. As a machine knitter, I'll need to divide the back into 2 pieces as I will use the xxxl sizing. Thanks
18.09.2022 - 19:05DROPS Design answered:
Dear Mrs Bouwhuis, back piece is worked from the left side towards the right side (sideways); the marker before the last 56 sts seen from WS marks the armhole (the last 56 sts is the armhole part of the jacket), you will work the bottom of the jacket (from bottom edge towards the armhole) over the remaining 136 stitches with short rows as explained (with garter stitch and stocking stitch). Right front piece will be worked the same way. Hope it can help. Happy knitting!
19.09.2022 - 10:46Sandra Bouwhuis wrote:
This is going to be a crazy question...... I am a machine knitter. Due to arthritis, I am unable to keep the proper tension on my projects, so I won't be using a circular needle. I really want to make this sweater and am able to do short rows, increasing and decreasing stitches, and stocking stitch. The purl side is always facing me. I have read and re-read the instructions and realize i will have to do the back in two pieces. Is the stitching done in the round or vertical. Please help
18.09.2022 - 16:35DROPS Design answered:
Dear Sandra, this sweater is worked from side to side, not in the round nor vertically. You cast on all the stitches for the length of the back and then you work short rows to shape the piece. Happy knitting!
18.09.2022 - 18:49Ann-Marie wrote:
Tack för tålmodiga svar! Allt är inte så självklart ... Bra också med ordlistan som hjälper en att förstå kommentarer och frågor på andra språk.
14.12.2021 - 18:54Ann-Marie wrote:
Det är tydligen fler än jag som inte förstår av beskrivningen hur man ska börja de förkortade varven på vänster framstycke. Vilken sida man än börjar från så tycks det ju bli fel. "Stickas motsatt", betyder det att man stickar räta varv där man stickade aviga varv på höger framstycke och vice versa? Alltså att man börjar 3 räta + 32 aviga och sen tillbaka 32 + 3 räta?
13.12.2021 - 18:32DROPS Design answered:
Hei Ann-Marie. Ja, slik står det i oppskriften: De förkortade v stickas med början från avigsidan. Og da blir det slik du skriver: 3 räta + 32 aviga och sen tillbaka 32 + 3 räta. mvh DROPS Design
14.12.2021 - 14:35Ann-Marie wrote:
Hej igen! Jag stickar bakstycke stl XL. Förstår ändå inte. Att man ska sticka de 3 första m räta i alla räta varv är ju självklart. Så jag ställer frågan så här: ska de tre första m (alltså de i nedre kanten på bakstycket) stickas räta även i de förkortade (slätstickade) varven? Så att de varv som stickas avigt i slätstickning avslutas med 3 räta????
30.11.2021 - 13:20DROPS Design answered:
Hei Ann-Marie. Ja, de 3 nederste maskene på bakstykket strikkes rett på alle pinner. Om du ser på nærbildet av jakken (men fra forsiden), ser du at de nederste maskene strikkes rett på alle pinner, kanskje litt vanskelig å se. Når den nederste kanten strikkes slik, vil ikke kanten bøye seg så mye som den ville ha gjort om det hadde blitt strikket glattstrikk (slätstickning) helt ut. mvh DROPS Design
30.11.2021 - 14:44Ann--Marie wrote:
Beskrivningen säger "Sedan stickas det förkortade v med början från rätsidan (de första 3 m stickas alltid i rätst) så här: * Sticka 3 rätst m, slätst över de nästa 32 m, vänd och sticka tillbaka. Om jag alltid stickar de tre första m (alltså de som utgör nedre kanten på koftan) i rätstickning så viker nederkanten in sig. Är det verkligen meningen? Eller: skulle jag ha stickat slätstickning hela vägen tillbaka (alltså 35, 70 105 i slätstickning????
28.11.2021 - 20:04DROPS Design answered:
Hei Marie. Husk å skrive hvor du er i oppskriften, bakstk, høyre forstk eller venstre bakstk, og gjerne hvilken str du strikker, når du sender inn spørsmål. De 3 maskene nederst strikker alltid rett (rett fra retten og rett fra vrangen), mens de forkortede pinnene strikkes i glattstrikk (slätstickning). mvh DROPS Design
30.11.2021 - 09:54Ann-Marie Nilsson wrote:
Det går inte att skicka en fråga!
07.11.2021 - 21:58DROPS Design answered:
Hei Ann-Marie. Jo, du kan sende oss et spørsmål, vi svarer så godt vi kan og du vil vanligvis få svar innen 5-10 arbeidsdager. Og det er en god ide og spesifisere hvor du er i oppskriften, hva er problemet og hvilken str du strikker. Bare husk å huke av på Spørsmål (og ikke Kommentar) når du sender inn. mvh DROPS Design
08.11.2021 - 09:57Judi wrote:
I do not understand how to knit the left front. Am I suppose to start with the extra stitches (in my case 200) And then decrease? I can’t get the short rows on the proper side either 😱
12.07.2020 - 17:15DROPS Design answered:
Dear Judy, you start on the side (towards mid front) as for the right front piece, and work the short rows on the bottom of piece, ie starting from WS instead of from RS on right front piece. Happy knitting!
13.07.2020 - 09:10Ria Agterberg wrote:
Ik ben nog niet zover maar is dat kleine stukje kraag aan het linker- en rechtervoorpand wel voldoende om in het midden van het achterpand aan elkaar te naaien? Alvast bedankt voor uw antwoord?
17.06.2020 - 10:06DROPS Design answered:
Dag Ria,
Ja hoor dat is ruim voldoende. De halsbreedte is 10-10-12-12-14-14 cm en daarnaast wordt nog een stukje over de schouder vast genaaid.
18.06.2020 - 09:37Ria Agterberg wrote:
Bedankt voor weer een mooi en duidelijk patroon. Sinds ik uw site heb ontdekt is bijna al mijn haak- en breiwerk van uw site afkomstig. Alleen jammer dat de opmerkingen en vragen niet geselecteerd zijn op taal.
12.06.2020 - 09:02