DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9900.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 144-5
DROPS Design: Mynstur nr z-629
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
150-150-150-150-200-200 gr litur nr 607, ljós brúnn
100-100-100-100-100-100 gr litur nr 601, dökk brúnn
50-50-100-100-100-100 gr litur nr 3770, dökk bleikur
50-50-50-50-50-50 gr litur 100 natur
50-50-50-50-50-50 gr litur 2925 dökk appelsínugulur
50-50-50-50-50-50 gr litur 3650 rústrauður
50-50-50-50-50-50 gr litur 6790 kóngablár

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að fá 22 fl eða 1 fl og 1 ll til skiptis 11 sinnum, verði 10 cm á breidd. 1 mynstureining af öldumynstri mælist 7 cm á breidd þar sem það er þrengst og 10 cm þar sem það er beiðast. Þegar öldumynstrið er heklað verður það ca 8,5 umf og 10 cm á hæðina.
DROPPS SKELJATALA með gati NR 525: 3-3-3-4-4-4 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9900.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR-1:
Í öllum umf með fl er snúið við með 1 ll, þessi ll kemur ekki í stað fyrstu fl.

HEKLLEIÐBEININGAR-2:
Í hverri umf með öldumynstri er 1. st skipt út fyrir 3 ll og hver umf endar með 1 kl í 3. ll í byrjun umf.

RENDUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 1 umf í mynstri = 1 umf með st og öldumynstur.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PILS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað ofanfrá og niður. Heklað er fram og til baka frá hlið og þar til opið/klauf að framan er lokið, síðan er heklað áfram í hring.

PILS:
Heklið 175-192-210-227-262-297 ll með heklunál nr 3,5 með litnum dökk brúnn DROPS Alpaca.
Fyrsta umf er hekluð þannig: Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni og 1 fl í hverja af næstu 5-1-5-1-1-1 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 150-164-180-194-224-254 fl, snúið stykkinu við –
LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR-1! Heklið 2 umf til viðbótar fram og til baka með 1 fl í hverja fl. Skiptið yfir í litinn ljós brúnn.
Næsta umf er hekluð þannig: Heklið 2 ll, hoppið yfir fyrstu fl, 1 fl í næstu fl, * 1 ll, hoppið yfir 1 fl, 1 fl í næstu fl*, endurtakið frá *-* út umf = 75-82-90-97-112-127 fl með 1 ll á undan hverri fl.
Næsta umf er hekluð þannig: Heklið 2 ll, hoppið yfir fyrstu fl frá fyrri umf og heklið 1 fl um fyrstu ll, * 1 ll, hoppið yfir 1 fl, 1 fl um næstu ll*, endurtakið frá *-* út umf. Endurtakið þessa síðustu umf þar til stykkið mælist 5-6-6-7-7-8 cm.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Heklið nú 1 umf með 1 fl í hverja fl og 1 fl um hverja ll = 150-164-180-194-224-254 fl. Í næstu umf er aukið út jafnt yfir þannig: * Heklið 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* þar til eftir eru 0-2-0-2-2-2 fl, heklið 2 fl í hverja af þessum fl = 200-220-240-260-300-340 fl.
Heklið nú RENDUR eftir mynsturteikningu A.1 – sjá útskýringu að ofan – JAFNFRAMT er heklað öldumynstur fram og til baka þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 3 ll (= 1 st) í fyrstu fl, 1 st í hverja af næstu 8 fl, * hoppið yfir 2 fl, 1 st í hverja af næstu 9 fl, 3 ll, 1 st í hverja af næstu 9 fl *, endurtakið frá *-* 8-9-10-11-13-15 sinnum til viðbótar, hoppið yfir 2 fl, 1 st í hverja af síðustu 9 fl = 180-198-216-234-270-306 st.
UMFERÐ 2: Heklið 3 ll (= 1 st) + 1 st í fyrsta st, 2 st í hvorn af næstu 2 st, 1 st í hvern af næstu 4 st, * hoppið yfir 4 st, 1 st í hvern af næstu 7 st, 3 st um ll-boga, 3 ll, 3 st um sama ll-boga, 1 st í hvern af næstu 7 st *, endurtakið frá *-* 8-9-10-11-13-15 sinnum, hoppið yfir 4 st, endið með 1 st i hvern af næstu 4 st og 2 st í hvern af síðustu 3 st = 200-220-240-260-300-340 st.
UMFERÐ 3: Heklið 3 ll (= 1 st) + 1 st í fyrsta st, 2 st í næsta st, 1 st í hvern af næstu 6 st, * hoppið yfir 4 st, 1 st í hvern af næstu 8 st, 2 st um ll-boga, 3 ll, 2 st um sama ll-boga, 1 st í hvern af næstu 8 st*, endurtakið frá *-* 8-9-10-11-13-15 sinnum til viðbótar, hoppið yfir 4 st, endið með 1 st í hvern af næstu 6 st og 2 st í hvorn af síðustu 2 st = 200-220-240-260-300-340 st.
Endurtakið umf 3 einu sinni til viðbótar, snúið við. Nú mælist stykkið ca 11-12-12-13-13-14 cm. Hér endar opið/klauf, heklið nú næstu umf þannig: 3 ll + 1 st í fyrsta st, 2 st í næsta st, 1 st í hvern af næstu 6 st, * hoppið yfir 4 st, 1 st í hvern af næstu 8 st, 2 st um ll-boga, 3 ll, 2 st um sama ll-boga, 1 st i hvern af næstu 8 st * endurtakið frá *-* 8-9-10-11-13-15 sinnum til viðbótar, hoppið yfir 4 st, 1 st í hvern af næstu 6 st, 2 st í hvorn af síðustu 2 st í umf, 3 ll, 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 200-220-240-260-300-340 st.
Næsta umf er hekluð þannig – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR-2: * Heklið 1 st í hvern af fyrstu 8 st, hoppið yfir 4 st, 1 st í hvern af næstu 8 st, 2 st um ll-boga, 3 ll, 2 st um sama ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf.
Haldið áfram að hekla í hring með öldumynstri. JAFNFRAMT í næstu umf er aukið út um 2 st í hverri mynstureiningu með því að hekla 3 st + 3 ll + 3 st í hvern ll-boga í stað þess að hekla 2 st + 3 ll + 2 st (þ.e.a.s. aukið er út frá 10 st til 11 st meðfram hverju horni, umf hringinn) = 220-242-264-286-330-374 st.
Endurtakið útaukningu á sama hátt í 4. hverri umf 5 sinnum til viðbótar = 320-352-384-416-480-544 st (eftir síðustu útaukningu eru 16 st meðfram hverju horni). Heklið nú áfram þar til pilsið mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm þar sem það er lengst (haldið áfram með litnum ljós brúnn til loka, ef þörf er á að hekla lengra en þegar mynstur A.1 er lokið). Klippið frá og festið enda.

HNESLA:
Meðfram hliðinni af opinu í hlið sem snýr ámóti framstykki er heklaður kantur með hneslum þannig: Heklið 3 umf með fl með litnum dökk brúnn fram og til baka. Heklið nú 3-3-3-4-4-4 hneslur jafnt yfir í næstu umf – 1 lykkja = 3 ll, hoppið yfir 1 cm. Neðsta lykkjan á að vera ca 1 cm frá neðri kanti af opinu og sú efsta ca 1 cm frá streng að ofan.
Heklið til baka þannig: Heklið 1 fl í hverja fl og 3 fl um hvern ll-boga, klippið frá og festið enda.

FALDUR FYRIR TÖLUR:
Meðfram hliðinni á móti opinu eru heklaðar 5 umf með fl fyrir fald með litnum dökk brúnn fram og til baka, klippið frá og festið enda.
Saumið tölur í 1. umf við faldinn fyrir tölur svo að þær passi við hneslurnar.

Mynstur

symbols = litur rústrauður
symbols = litur dökk bleikur
symbols = litur ljós brúnn
symbols = litur kóngablár
symbols = litur dökk appelsínugulur
symbols = litur dökk brúnn
symbols = litur natur
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 144-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (18)

country flag Mari wrote:

Hei! Jeg jobber med dette mønsteret nå. Jeg bruker viking bamboo garn. Når jeg skal legge opp de første luftmaskene (Medium størrelse), så opplever jeg at den blir alt for lang. Den rekker nesten to ganger rundt livet, er dette meningen?

13.08.2022 - 16:07

DROPS Design answered:

Hei Mari. Du startet med 192 luftmasker og etter 1 rad minskes maskeantallet til 165 masker. Dette skjørtet er heklet i DROPS Aplaca, hekler du i et annet garn må du husk å få den samme heklefasthet som er oppgitt i oppskriften. mvh DROPS Design

15.08.2022 - 10:44

country flag Lilian wrote:

Have saved this skirt would make it right away but have so much on my hands but a summer version with brighter colours in cotton.

26.05.2022 - 12:54

country flag Ellis wrote:

Promise this is the last one! I have finished the vent, completed the row to make the skirt in the round and I have completed one full round row, however as I sl st into the first 3ch at the beginning of round to complete and start the next one, I only have 8tr to use, so when I skip 4, the pattern changes. I have3 counted stitches and there is 200 as previous. Do I assume when I start the next round that I am in the middle of the instruction to make sure the pattern falls the same place?

25.05.2022 - 14:39

DROPS Design answered:

Dear Ellis, make sure that you end the last row with 3 chains before the slip stitch in the 3rd chain from beg of the row, so that you get one ch-space at the end of this round, then work pattern in the round as before, you will continue as before, but the beg of the round will be now at the beg of the repeat, continue working as before, skipping always the same 4 sts (last 2 sts + first 2 sts) so that the ch-spaces are lined up. Happy crocheting!

27.05.2022 - 08:52

country flag Ellis wrote:

Hi There Just working on the start of the pattern now, when it says to do a row of '2 ch, skip first dc from previous row and work 1 dc in first ch' - Are you trying to work into the actual chain stitch itself and to get one loop on the hook or are you working the space under the chain ? Many Thanks

16.05.2022 - 18:28

DROPS Design answered:

Dear Ellis, you work in the space under the chain, since you can't work inside the chain stitch. Happy crocheting!

16.05.2022 - 23:09

country flag Ellis wrote:

Hi There This is great pattern, I am excited to start! Is there any modification I could do so that I do not have the vent at the start? So its just the chevron skirt? Best Wishes

05.05.2022 - 00:10

DROPS Design answered:

Dear Elis, we are unfortunately not able to adjust every pattern to every single request, please contact your yarn store or any crochet forum for any further help. Thanks for your comprehension. Happy crocheting!

05.05.2022 - 09:08

country flag Josie wrote:

Rebonjour Est ce qu'après je fais 4/3/4 et 5/3/5 etc...? Et comment crocheter en rond ? Merci

29.11.2019 - 16:20

DROPS Design answered:

Bonjour Josie, je ne comprends pas ce que vous entendez par 4/3/4 ni 5/3/5. Vous devez augmenter en crochetant dans la pointe de chaque zigzag 3 brides, 3 ml, 3 brides, là où auparavant vous crochetez 2 brides, 3 ml, 2 brides, et toujours 1 bride dans chaque bride, et vous sautez toujours 4 brides comme avant. Commencez les tours par 3 ml (= 1ère bride), et terminez par 1 mc dans la 3ème ml du début du tour (cf vidéo. Bon crochet!

02.12.2019 - 08:05

country flag Josie wrote:

Bonjour Je suis en train de réaliser la jupe DROPS 144.5, comment faire pour crocheter en rond,et que veux dire augmenter dans chaque rapport ? Merci d'avance et bon week-end.

29.11.2019 - 15:01

DROPS Design answered:

Bonjour Josie, 1 rapport correspond à un motif à répéter, pour augmenter, vous crochetez 3 brides + 3 ml + 3 brides dans chaque arceau (au lieu de crocheter 2 brides, 3 ml, 2 brides comme avant). Bon crochet!

29.11.2019 - 15:50

country flag Dorothy Ann Foggie wrote:

I am confused about the start of the vent for this pattern. I don't see any instructions prior to the start.

17.08.2018 - 00:08

DROPS Design answered:

Dear Mrs Foggie, the skirt is first worked in rows until piece measures approx. 11-12-12-13-13-14 cm / 4½"-4 3/4"-4 3/4"-5"-5"-5½". Then you work in the round as explained on next row starting with "Vent ends here". Happy crocheting!

17.08.2018 - 11:03

country flag Linn wrote:

Hei, kan dere hjelpe med dette: "Neste omg hekles slik- LES HEKLEINFO-2: * 1 st i hver av de første 8 st, hopp over 4 st, 1 st i hver av de 8 neste st, 2 st om lm-buen, 3 lm, 2 st om samme lm-bue *, gjenta fra *-* omg rundt." Skal man ikke hekle 2 staver i hver av de 2 første stavene, slik at man får 10 staver på begynnelsen av omgangen? Det vil være nødvendig for så å kunne hoppe over 4 staver?

02.07.2017 - 11:44

DROPS Design answered:

Hei Linn. Når jeg hekler dette skjørtet får jeg, etter LES HEKLEINFO-2, at det kun skal hekles stav i stav/8 staver i begynnelsen av omgangen (nå hekles det rundt og ikke frem og tilbake)for å kunne hoppe over 4 staver, slik at sikk-sakk mønstret blir riktig. Om jeg skal hekle 10 staver før jeg hopper over 4 staver vil sikk-sakk mønstret forskyve seg.

05.07.2017 - 14:13

country flag Laura wrote:

HOLA, ME GUSTARÍA SABER A QUE VUELTA HAY QUE VOLVER CUANDO EL PATRÓN TE DICE QUE HAGAS LOS AUMENTOS A CADA 4 VUELTAS Y SIGAS CON EL PATRÓN ZIG ZAG, A QUE HILERA HAY QUE VOLVER? GRACIAS.

22.09.2016 - 13:24

DROPS Design answered:

Hola Laura. Los aumentos se trabajan de la siguiente manera: en la primera vta has hecho los aum, trabajar las sig tres vtas sin aum y en la 4ª vta trabajas otra vez los aum de la misma manera. El patrón del zigzag lo trabajas según las explicaciones del patrón. Para controlar mejor, te recomiendo marcar con los MP (marcapuntos) la vta con los aum.

23.09.2016 - 19:30