DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6336.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 143-43
DROPS Design: Mynstur nr ne-107
Garnflokkur C
-----------------------------------------------------------

Breidd efst: ca 134 cm
Lengd í miðju: ca 67 cm

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
450 gr litur nr 2923, skærgulur

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 l og 20 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6336.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LEIÐBEININGAR:
Fitjið upp 3 l á hringprjóna nr 5,5 með Nepal. Prjónið 6 umf sl. Eftir 6. umf er ekki snúið við, heldur er snúið við um 90 gráður réttsælis, prjónið upp 3 l meðfram kanti (þ.e.a.s. 1 l í aðra hverja umf með garðaprjóni), snúið aftur við 90 gráður réttsælis og prjónið upp 3 l meðfram uppfitjunarkanti (þ.e.a.s. 1 l í hverja l) = 9 l á prjóni.

GARÐAPRJÓN (prjónið fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.2. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Sjalið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá hálsi og niður með 3 l garðaprjón í hvorri hlið.

SJAL:
Fitjið upp 9 l á hringprjóna nr 5,5 með Nepal og prjónið 1 umf slétt – ef óskað er eftir sterkari uppfitjunarkanti – SJÁ LEIÐBEININGAR að ofan.
Prjónið nú eftir mynstri A.1 1. umf = ranga. Eftir A.1 eru 21 l á prjóni.
Prjónið nú frá réttu þannig: Prjónið 3 l garðaprjón, A.2 (= 7 l), 1 l sléttprjón (= miðju-l), A.2 (= 7 l ) og 3 l garðaprjón. Í hverri umf frá röngu eru allar l og uppsláttur prjónaðar br en 3 síðustu l í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina (= 8 umf) eru 41 l á prjóni.
Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 3 l garðaprjón, A.3 (= 4 l) og A.4 (= 10 l) og A.5 (= 3 l), 1 l sléttprjón (= miðju-l), A.3 (= 4 l) og A.4 (= 10 l) og A.5 (= 3 l), endið með 3 l garðaprjón. Haldið svona áfram með mynstur – ATH: í hvert skipti sem A.3 – A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina verður 1 mynstureiningu fleiri af A.4 hvoru megin við miðju-l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið þar til stykkið mælist ca 48 cm mælt meðfram miðju-l – stillið af eftir heila mynstureiningu af A.3/A.4/ A.5 á hæðina en síðasta umf í mynstri er ekki prjónuð.
Næsta umf frá röngu er prjónuð þannig: Prjónið 3 l garðaprjón, A.8 (= 8 l) og síðan A.7 (= 10 l) þar til 9 l eru eftir á undan miðju-l, prjónið A.6 (= 9 l), 1 l sléttprjón, A.8 (= 8 l) og endurtakið A.7 (= 10 l) þar til 12 l eru eftir, prjónið A.6 (= 9 l) endið með 3 l í garðaprjóni.

Prjónið nú frá réttu þannig: Prjónið 3 l garðaprjón, A.6 og síðan A.7 þar til 8 l eru eftir á undan miðju-l, prjónið A.8, 1 l sléttprjón, A.6 og endurtakið A.7 þar til 11 l eru eftir, prjónið A.8 og endið með 3 l garðaprjón. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist ca 66 cm mælt meðfram miðjulykkju – passið uppá að síðasta umf sé prjónuð frá röngu. Prjónið nú 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT sem aukið er út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 3 l í garðaprjóni í hvorri hlið og hvoru megin við miðju-l (= 4 l fleiri). Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Fellið laust af frá réttu þannig: Fellið af 3 fyrstu l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, fellið uppsláttinn af, fellið af allar l fram að miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, fellið uppsláttinn af, fellið af miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, fellið uppsláttinn af, fellið af þar til 3 l eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, fellið uppsláttinn af, fellið af þær lykkjur sem eftir eru.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = slétt lykkja frá röngu
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 143-43

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (64)

country flag Denise wrote:

Bonjour. J'aime beaucoup ce châle mais je rencontre des difficultés. Je suis arrivée aux diagrammes A8 A7 A6. Sur le 2ème rang et les rangs suivants, quel est le détail de A7 : jeté, m endroit, jeté, 3 m endroit, surjet double, 3m endroit ? Et A6 : jeté, m endroit, jeté, 5 m endroit, 2m ensemble, 1m endroit, 1 jeté. Merci pour votre aide.

16.04.2024 - 11:21

DROPS Design answered:

Bonjour Denise, le 1er jeté à la limite de A.8/A.7 appartient à A.8 (il compense la diminution faite au début du rang). A.7 se termine par 1 jeté (ainsi on diminue 2 mailles au milieu compensées par les 2 jetés). A.6 commence par 1 m end, 1 jeté etc... Bon tricot!

16.04.2024 - 13:18

country flag Keith wrote:

In pattern 143-43 when working pattern A3 A4 A5 then repeat A4 is there suposed to be two yarn overs side by side.

02.04.2024 - 17:53

DROPS Design answered:

Hi Keith, A.3, A.4 and A.5 are workedon each side of the mid-stitch (1 stocking stitch), with 3 garter stitches at the beginning of the row and the end of the row (edge stitches), So you should not have 2 yarn overs side by side. Happy knitting!.

03.04.2024 - 06:42

country flag Susanne wrote:

Buonasera non riesco a capire come lavorare i diagrammi A6 - A7 - A8 quando il lavoro si trova sul rovescio. Le righe vanno lavorate sempre nello stesso verso dopo aver superato la maglia centrale? Oppure bisogna lavorare a specchio?

02.01.2024 - 19:07

DROPS Design answered:

Buonasera Susanne, per il rovescio del lavoro deve leggere i diagrammi da sinistra a destra e seguire la legenda. Buon lavoro!

02.01.2024 - 19:33

country flag Susanne wrote:

Buonasera non riesco a capire come lavorare i diagrammi A6 - A7 - A8 quando il lavoro si trova sul rovescio. Le righe vanno lavorate sempre nello stesso verso dopo aver superato la maglia centrale? Oppure bisogna lavorare a specchio?

02.01.2024 - 19:06

DROPS Design answered:

Buonasera Susanne, per il rovescio del lavoro deve leggere i diagrammi da sinistra a destra e seguire la legenda. Buon lavoro!

02.01.2024 - 19:33

country flag Marina wrote:

Bonjour après A1 on a 21 mailles et le prochain rang est l’endroit, comment je tricote A2 si celui-ci commence sur le Rang 1 envers? A2 montre les jetés sur l’envers je ne comprends pas. Merci

28.10.2021 - 12:36

DROPS Design answered:

Bonjour Marina, le premier rang de A.1 est sur l'envers, le dernier sera sur l'envers aussi. Donc le premier rang de A.2 est sur l'endroit. Bon tricot!

01.11.2021 - 17:33

country flag Marie wrote:

Je suis rendue à la partie a8a7a6. Je fais 3 mailles endroit, a8 et a7. Est-ce que c'est uniquement a7 que je répète jusqu'å 9 mailles de la maille centrale. Merci

19.09.2021 - 00:31

DROPS Design answered:

Bonjour Marie, tout à fait, c'est bien A.7 que l'on doit répéter jusqu'à ce qu'il reste 9 m avant la m centrale dans la 1ère moitié du châle et jusqu'à ce qu'il reste 12 m à la fin du rang. Bon tricot!

20.09.2021 - 10:57

country flag Maria wrote:

Siguiendo con patrón chal Andalosie 8143-43. Tampoco entiendo qué tengo que medir (ancho.?largo,?desde dónde?) "Tejer hasta que la pieza mida aprox 48 cm, medida a lo largo del pt central – ajustar después de una repetición completa de A.3/A.4/A.5 verticalmente, mas no tejer la última hilera en la última repetición." He enviado dos mensajes porque no puedo escribir todo en uno. Gracias

16.07.2020 - 16:48

DROPS Design answered:

Ver la respuesta abajo.

20.07.2020 - 21:36

country flag Maria wrote:

Hola! Estoy tejiendo el chal Andalousie (143-43) y no entiendo parte de las instrucciones. Tejer la hilera sig, de la manera sig, por el LD: 3 pts en pt musgo, A.3 (= 4 pts) y A.4 (= 10 pts) y A.5 (= 3 pts), 1 pt en pt jersey (= pt central), A.3 (= 4 pts) y A.4 (= 10 pts) y A.5 (= 3 pts), terminar con 3 pts en pt musgo. Continuar el patrón de esta manera – ¿ NOTA: Cada vez que A.3-A.5 es tejido 1 vez verticalmente, hay 1 repetición más de A.4 en cada lado del pt central. ?????

16.07.2020 - 16:45

DROPS Design answered:

Hola Maria. Los diagramas A.3 y A.5 incluyen los aumentos. En este caso, después de completar las 8 filas de los diagramas tenemos suficientes puntos para trabajar una repetición más de A.4 entre las repeticiones de A.3 y A.5. El chal se mide de arriba abajo a lo largo del fila que se forma con el punto central (desde el borde superior hacia abajo( hacia la punta). Cuando llegamos a 48 cm, no trabajar la fila 8 de las diagramas A.3-A.5 y trabajar la fila por el lado revés según las explicaciones del patrón.

20.07.2020 - 21:31

country flag Serena wrote:

Si può fare anche con i ferri non circolari?

11.03.2019 - 13:33

DROPS Design answered:

Buongiorno Serena. Si lavora avanti e indietro sui ferri. Vengono però consigliati i ferri circolari perché più comodi per lavorare con un numero elevate di maglie. Buon lavoro!

11.03.2019 - 14:13

country flag Lelarge wrote:

Après la maille centrale dois-je tricoté le deuxième côté en lisant A5 de gauche à droite ainsi que A4 et terminer par A3 .Merci de la réponse car je suis un peu predue

11.02.2019 - 09:46

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lelarge, vous tricotez ainsi: 3 m point mousse, A.3, A.4, A.5, 1 m centrale, A.3, A.4, A.5, 3 m point mousse. Les diagrammes se lisent de droite à gauche tous les rangs sur l'endroit et de gauche à droite tous les rangs sur l'envers. Bon tricot!

11.02.2019 - 11:48