DROPS Vienna
DROPS Vienna
91% Mohair, 9% Polyester
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
DROPS SS24
DROPS 143-30
DROPS Design: Mynstur nr o-311
Garnflokkur D + E
----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL - XXL/XXXL

Efni:
DROPS VIENNA frá Garnstudio
200-250-300 gr litur nr 19, dökk fjólublár
Og einnig:
DROPS SNOW frá Garnstudio
400-500-600 gr litur nr 39, blávínrauður

Eða notið:
DROPS MELODY frá Garnstudio
150-200-200 gr litur nr 07, dökk gallabuxnablár
Og notið:
DROPS Snow frá Garnstudio
400-500-600 gr litur nr 39, blávínrauður

DROPS HRINGPRJÓNN NR 7 (80 cm) – eða þá stærð sem þarf til að 13 l og 15 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm með Vienna eða Melody.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 6 (60 cm) – eða þá stærð sem þarf til að 13 l með garðaprjóni verði 10 cm á breidd með Snow.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Vienna
DROPS Vienna
91% Mohair, 9% Polyester
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

ÚRTAKA 1 (á við um fram- og bakstykki þegar prjónað er fram og til baka):
Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkað er um 1 l í hvorri hlið þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Prjónið svona þar til 3 l eru eftir á prjóni, prjónið næstu 2 l slétt saman, 1 kantlykkja í garðaprjóni.

ÚRTAKA 2 (á við um bakstykki og poncho þegar prjónað er í hring):
Fækkað er um 1 l hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, (prjónamerkið), prjónið næstu 2 l slétt saman.

ÚRTAKA 3 (á við um garðaprjón með Snow):
Fækkað er um 1 l með því að prjóna 2 l sl saman.

ÚTAUKNING:
Aukið er út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. aftan í lykkjubogann í stað framan) til að koma í veg fyrir göt.

MÆLING:
Öll mæling er gerð þegar stykkið liggur flatt, það er mikilvægt svo ekki strekkist á stykkinu þegar mælt er.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykkið og bakstykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna, hvort fyrir sig. Síðan er stykkið sett saman og prjónað í hring á hringprjóna.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 60-70-76 l á hringprjóna nr 6 með Snow. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – í 6-6-7 cm (1. umf = rétta). Skiptið yfir í Vienna eða Melody og hringprjóna nr 7, prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 12-13-14 cm. Í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA 1 = 2 l færri. Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf. Þegar stykkið mælist 20-21-22 cm eru allar l settar á þráð.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 158-176-194 l á hringprjóna nr 6 með Snow. Prjónið garðaprjón 6-6-7 cm (1. umf = rétta). Skiptið nú yfir í Vienna eða Melody og hringprjóna nr 7, prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 12-13-14 cm. Setjið 1 prjónamerki 47-53-59 l inn frá hvorri hlið = 64-70-76 l milli prjónamerkja, látið þau fylgja áfram með í stykkinu. Í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l í hvorri hlið á stykki og hvoru megin við prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA 1 og 2 = 6 l færri. Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf. Haldið áfram þar til stykkið mælist 20-21-22 cm – ATH: Prjónið jafn margar umf eins og á framstykki.

PONCHO:
Setjið allar l á sama prjón, setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu milli fram- og bakstykkis = alls 4 prjónamerki (meðtalin 2 prjónamerki á bakstykki frá því áður), látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið nú í hring í sléttprjóni yfir allar l – JAFNFRAMT er úrtöku haldið áfram hvoru megin við hvert prjónamerki í 4. hverri umf þar til lykkjum hefur verið fækkað 11 sinnum (talið frá 1. úrtöku), nú er lykkjum fækkað í annarri hverri umf 0-2-4 sinnum = 134-142-150 l eftir. Haldið áfram þar til stykkið mælist 44-46-48 cm (nú á öll úrtaka að vera lokið).
Í næstu umf er skipt yfir í Snow og hringprjóna nr 6, prjónið nú áfram GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – til loka. Prjónið 4 umf garðaprjón, síðan er fækkað um 20 l – LESIÐ ÚRTAKA 3 – jafnt yfir í næstu umf. Endurtakið úrtöku um 20 l jafnt yfir í umf þegar stykkið mælist 50-52-54 cm, fækkið nú um 32-34-36 l jafnt yfir í umf þegar stykkið mælist 55-57-59 cm = 62-68-74 l eftir. Haldið áfram þar til stykkið mælist 58-61-64 cm. Stykkið er nú mælt héðan.

KRAGI:
= 62-68-74 l. Haldið áfram hringinn í garðaprjóni þar til kraginn mælist 7 cm. Í næstu umf er aukið út um 8 l – LESIÐ ÚTAUKNING – jafnt yfir í umf. Endurtakið útaukningu með 8 l með 7 cm millibili 2 sinnum til viðbótar (alls 3 sinnum), aukið nú út um 8-4-2 l jafnt yfir þegar kraginn mælist 28 cm = 94-96-100 l á prjóni. Haldið áfram þar til kraginn mælist 34 cm, fellið af allar l.

KANTUR AÐ FRAMAN:
Með Snow og hringprjóna nr 6, prjónið upp frá réttu 26-28-30 l innan við 1 kantlykkju meðfram opi á framstykki (ekki yfir l á uppfitjunarkanti). Prjónið 6 umf garðaprjón fram og til baka, fellið laust af allar l. Prjónið upp á sama hátt meðfram opi á bakstykki. Setjið kant á framstykki yfir kant á bakstykki, saumið niður skammhliðar efst á opinu með nokkrum smáum sporum. Endurtakið eins meðfram opi í hinni hliðinni á poncho.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 143-30

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (30)

country flag GLIKSON Fabienne wrote:

Bonjour Pourriez-vous svp m'indiquer le nombre de pelotes pour la raille FR 42-44 ? Merci

25.10.2023 - 20:41

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Glikson, vous trouverez les quantités requises par couleur et par taille au début des explications et au poids pur chaque couleur, soit part ex 150 g DROPS Fabel/50 g la pelote= 3 pelotes écru en taille S. Pour choisir votre taille, mesurez un vêtement similaire que vous avez et dont vous aimez la forme et comparez ces mesures à celles du schéma en bas de page. Retrouvez plus d'infos ici. Bon tricot!

26.10.2023 - 06:50

country flag Babe0685 wrote:

Hallo ! Danke für die schnelle Antwort! Heisst das für die 2. Größe nun das ich 1x 4 Maschen abnehme und 2 Runden später nochmal vor und nach der Markierung? Und damit sind die Abnahmen abgeschlossen? Bin nicht dicher auf was sich die 8 Maschen in eurer Antwort beziehen. Es ist aber richtig, dass ich nur noch vor und nach den Markierungen abnehme (ab Poncho Teil) und nicht mehr am Anfang/Ende? Liebe Grüße und vielen Dank!

24.11.2016 - 22:54

DROPS Design answered:

Liebe Frau Babe0685, nachdem Sie 11 Abnahmen schon gearbeitet haben, dann müssen Sie wie zuvor noch 2 M in jeder 2. R abnehmen, dh je 1 M beidseitig jeder 4 Markierung = 8 Abnahmen pro Abnahme Runde (1 M vor und 1 M nach jede der 4. Markierungen = 8 Abnahme). Viel Spaß beim stricken!

25.11.2016 - 08:49

country flag Babe0685 wrote:

Hallo! Danke für die tolle Anleitung, die auch wirklich gut verständlich ist. Bei den Abnahmen für den Poncho verstehe ich nicht was mit 0-2-4 × Abnehmen in jeder 2. Reihe gemeint ist. Also konkret was 0-2-4 bedeutet und wo die Abnahmen zu machen sind. Auch vor und nach den Markierungen? Vielen Dank vorab für Eure Hilfe! Liebe Grüße

24.11.2016 - 14:11

DROPS Design answered:

Liebe Babe0685, diese 0-2-4 sind je nach Größe, dh in der 1. Größ nehmen Sie keine weitere Masche ab = 134 M. In der 2. Größe nehmen Sie in jeder 2. Reihe 2 Mal ab (= 142 M.) und in der letzte Größe nehmen Sie in jeder 2. Reihe 4 Mall ab (= 150 M.). Es wird beidseitig jede Markierung abgenommen (= vor und nach jeder Markierung) = 8 Maschen werden in jeder Abnahmen Reihe abgenommen. Viel Spaß beim stricken!

24.11.2016 - 16:08

country flag Malene Haarder wrote:

På diagrammet er der indtegnet et skuldermål med stiplede linjer, men jeg kan ikke se at nogen af målene svarer til skuldermålene. Har i skulder målene for de tre størrelser, så man kan være sikker på, at det passer?

07.06.2015 - 17:41

DROPS Design answered:

Hej Malene. Vi har desvaerre ingen maal til skuldrene.

08.06.2015 - 14:11

country flag GOFFART Lucie wrote:

Bonjour, j'aimerais réaliser le poncho en laine plus fine. Vous parler du nombres de gr qu'il faut mais je ne vois nulle part à combien de mètres correspond ce poids. N'ayant pas de magasin à proximité de chez moi, pourriez-vous me dire combien de mètre de laine me faudrait-il? Merci d'avance, Lucie

29.03.2014 - 12:42

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Goffart, pour toute information complémentaire sur nos laines, cliquez sur les liens vers les nuanciers (à droite de la photo, sous les fournitures), et n'hésitez pas à contacter par mail ou téléphone votre détaillant DROPS en Belgique. Bon tricot!

31.03.2014 - 08:53

country flag Maaike wrote:

Ik kom niet uit het stuk onder het kopje 'poncho'. Graag een iets uitgebreidere en specifiekere uitleg. 'ga TEGELIJKERTIJD verder met minderen aan elke kant van elke markeerder elke 4e nld tot in totaal 11 minderingen gemaakt zijn (geteld vanaf de 1e mindering) en minder dan om de nld 0-2-4 keer = 134-142-150 st over'

06.03.2014 - 21:49

DROPS Design answered:

Hoi Maaike. Je hebt 4 markeerders geplaatst in je werk. Je breit nu verder in tricotst over alle st en tegelijkertijd minder je in elke 4e nld (zie tip voor het MINDEREN-2) in totaal 11 keer. Minder daarna om de nld (in elke 2e nld) nog 0, 2 of 4 keer afhankelijk van welke maat je maakt.

07.03.2014 - 10:31

country flag Maaike wrote:

Ik wil deze poncho dolgraag breien, maar het omrekenen van het patroon vind ik erg lastig. Bieden jullie hierbij ook hulp? De wolwinkel heeft hier geen tijd voor. Stekenverhouding bij mij: tricotsteek: 15 st. x 20 nld = 10 x 10 cm Ribbelsteek: 18 st. = 10 cm breed Moet ik het aantal steken qua vermeerderen/verminderen ook aanpassen?

22.02.2014 - 11:48

DROPS Design answered:

Hoi Maaike. Wij kunnen helaas niet helpen met individuele aanpassingen. Heb je een garen die dezelfde dikte hebt als Vienna/Eskimo, dan moet je de stekenverhouding in het patroon aanhouden. Wil je breien met een andere dikte, dan moet je de stekenverhouding van het nieuwe garen aanhouden en het patroon opnieuw berekenen voor deze met hulp van de stekenverhouding / afmetingen en aantal st in het patroon. Succes.

07.03.2014 - 10:37

country flag Janet wrote:

Ik heb 10 bollen eskimo en 5 vienna heb ik dan genoeg als de kol van eskimo gemaakt wordt en de poncho van vienna

10.11.2013 - 17:17

DROPS Design answered:

Hoi Janeth. Dit is wat je nodig hebt voor dit patroon: Maat: S/M - L/XL - XXL/XXXL Materiaal: DROPS VIENNA van Garnstudio Kleur nr. 19, grijs: 200-250-300 gr En gebruik: DROPS ESKIMO van Garnstudio Kleur nr. 39m, druifblauw: 400-500-600 gr. Dus je zou genoeg moeten hebben voor maat S/M en L/XL

12.11.2013 - 12:28

country flag Janet wrote:

Is de poncho het zelfde als het voor en achterpand maar dan op de rondbreinaald gebreid.

10.11.2013 - 17:14

DROPS Design answered:

Hoi Janet. Ja, je breit eerst een stuk voorpand, dan achterpand, en vervolgens plaats je beide panden op de rondbreinld en breit door in de rondte: "PONCHO: Zet alle st op dezelfde nld, plaats 1 markeerder in elke overgang tussen voorpand en achterpand = 4 markeerders in totaal"

12.11.2013 - 12:27

country flag Janet wrote:

Is de kol van eskimo gebreid, op het plaatje lijkt het van wel

10.11.2013 - 17:13

DROPS Design answered:

Hoi Janet. Ja, dat is Eskimo. Dit staat ook in het patroon onder materiaal, maar ook in het patroon zelf onder PONCHO.

12.11.2013 - 12:23