DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 142-6
DROPS Design: Mynstur nr u-674
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
600-650-700-750-850-900 gr litur nr 60, turkos

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 17 st og 10 umf verði 10 x 10 cm.
DROPS TALA NR 525: 4 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrsta st í öllum umf er skipt út fyrir 3 ll.
UMFERÐ HRINGUR: Allar umf enda með 1 kl í 3. ll í byrjun umf.
UMFERÐ FRAM OG TIL BAKA: Allar umf enda með 1 st í fyrsta st í byrjun fyrri umf.

ÚTAUKNING:
Aukið er út með því að hekla 2 st í 1 st, fyrst öðru megin við öll prjónamerki í umf, í næsta sinn hinum megin við öll prjónamerki í umf, haldið svona áfram með útaukningu.

ÚRTAKA:
Heklið 1 st, bíðið með að draga þráðinn í gegn í síðasta sinn (= 2 l á heklunálinni), heklið nú næsta st, þegar þráðurinn er dreginn í gegn í síðasta sinn er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 l.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað ofan frá og niður. Heklað er fram og til baka frá miðju að framan.

PEYSA:
Heklið 111-116-121-131-136-146 ll (meðtaldar eru 3 ll til að snúa við) með heklunál nr 4 með Karisma.
Heklið næstu umf þannig:
Heklið 1 st í 4. ll (= 2 st), 1 st í hvora af næstu 2 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 4 ll*, endurtakið frá *-* = 88-92-96-104-108-116 st – lesið HEKLLEIÐBEININGAR. Setjið 19-20-21-23-24-26 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið 1. prjónamerki eftir 8. st, setjið nú 18-19-20-22-23-25 prjónamerki með 4 st millibili, eftir síðasta prjónamerki eru 8 st. Heklið fram og til baka með st, JAFNFRAMT er aukið út um 1 st við öll prjónamerki þannig: Í annarri hverri umf 5-6-6-5-5-6 sinnum og í 4. hverri umf 2-2-2-3-3-3 sinnum – LESIÐ ÚTAUKNING = 221-252-264-288-300-350 st. Heklið eina umf þar sem aukið er út um 14-7-7-7-19-5 st jafnt yfir (aukið ekki út yfir fyrstu og síðustu 6 st = kantur að framan) = 235-259-271-295-319-355 st.

Í næstu umf er heklað þannig: Heklið 36-40-43-47-51-58 st (framstykki), 8 ll (undir ermi), hoppið yfir 52-56-56-60-64-68 st frá fyrri umf (notist seinna fyrir ermi), 59-67-73-81-89-103 st (bakstykki), 8 ll (undir ermi), hoppið yfir 52-56-56-60-64-68 st frá fyrri umf (notist seinna fyrir seinni ermi) og 36-40-43-47-51-58 st (framstykki). Setjið prjónamerki, stykkið er nú mælt héðan. Heklið 1 st í hvern st/ll = 147-163-175-191-207-235 st. Heklið nú þannig: Heklið 1 st í hvern af fyrstu 6 st (= kantur að framan), * 1 ll, hoppið yfir 3 st, heklið 3 st í næsta st *, endurtakið frá *-* og endið með 1 ll, hoppið yfir 3 st og heklið 1 st í hvern og einn af þeim síðustu 6 st (= 33-37-40-44-48-55 stuðlahópar með 6 st í hvorri hlið).

Heklið nú þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 1 st í hvern af fyrstu 6 st, 3 st um fyrstu ll, 1 ll, * hoppið yfir 3 st, 3 st um næstu ll, 1 ll *, endurtakið frá *-* þar til eftir er 1 ll og 6 st, endið með 3 st um næstu ll og 1 st í hvern og einn af 6 síðustu st.
UMFERÐ 2: Heklið 1 st í hvern af fyrstu 6 st, * 1 ll, hoppið yfir 3 st, 3 st um næstu ll *, endurtakið frá *-* þar til eftir eru 6 st, endið með 1 ll og 1 st í hvern af síðustu 6 st.
Endurtakið umf 1 og 2. Þegar stykkið mælist 10 cm frá prjónamerki er aukið út um 1 stuðlahóp í hægri hlið þannig: Heklið 3 st + 1 ll um fyrstu 8-9-10-11-12-13 ll, í næstu ll er heklað þannig: Heklið 3 st, 1 ll, 3 st, 1 ll. Þegar stykkið mælist 17 cm er aukið út á sama hátt í vinstri hlið – aukið svona út þegar eftir eru 9-10-11-12-13-14 ll. Þegar stykkið mælist 24 cm er aukið út um 1 stuðlahóp í hægri hlið, aukið út í 10.- 11.- 12.- 13.- 14.- 15. ll. á sama hátt og áður. Þegar stykkið mælist 31 cm er aukið út í vinstri hlið, aukið út þegar eftir eru 10-11-12-13-14-15 ll. Eftir útaukningu eru 37-41-44-48-52-59 stuðlahópar í umf. Klippið frá og festið enda þegar stykkið mælist 37-37-39-39-41-42 cm frá prjónamerki, stykkið mælist alls 56-58-60-62-64-66 cm.

ERMI:
Ermin er hekluð í hring ofan frá og niður. Byrjið að hekla við miðju undir ermi þannig: Heklið 1 fl í 5. ll af þeim 8 ll sem heklaðar voru við handveg á fram- og bakstykki. Heklið 3 ll (= 1 st). Heklið nú 1 st í hverja næstu 3 ll. Heklið nú 1 st í hvern st yfir ermi, áður en heklaður er 1 st í hverja af þeim 4 ll sem eru eftir undir ermi = 60-64-64-68-72-76 st. Setjið 1 prjónamerki við miðju undir ermi. Heklið nú þannig: Heklið 1 st í hvern af fyrstu 10-10-10-12-12-14 st, * 1 ll, hoppið yfir 3 st, heklið 3 st í næsta st *, endurtakið frá *-* og heklið 1 st í hvern af síðustu 10-10-10-12-12-14 st. Haldið áfram með 1 st í hvern af 20-20-20-24-24-28 st við miðju undir ermi, í hverja ll eru heklaðir 3 st + 1 ll. Haldið áfram með þetta mynstur, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 st hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með 3½-3½-3½-3-3-2½ cm millibili 9-9-9-11-11-13 sinnum til viðbótar = 40-44-44-44-48-48 st. Eftir úrtöku eru heklaðir 3 st + 1 ll um hverja ll. Klippið frá og festið enda þegar ermin mælist 47-46-46-44-44-43 cm frá prjónamerki – ATH – styttri mæling í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og breiðari axla.

FRÁGANGUR:
Saumið tölurnar í vinstra framstykki – efsta talan er 1 cm frá kanti við hálsmál, sá neðsti í skiptingunni milli st og stuðlahópa. Tölum er hneppt á milli 2 st í hægra framstykki.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 19.09.2012
FRAM- OG BAKSTYKKI (* hefur verið færð fyrir framan 1 ll)... Heklið 1 st í hvern og einn að 6 fyrstu st (= listi að framan), * 1 ll, hoppið yfir 3 st, heklið 3 st í næsta st *, endurtakið frá *-* ...

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

142-6 Chantal

Megan, Italy

Chantal cardigan

Kimstu, United States

Chantal

Jessica, United States

Skrifaðu athugasemd um DROPS 142-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (128)

country flag Sigrun Radau wrote:

Warum nicht beide Seiten gleichzeitig zunehmen? Hat das einen besonderen Grund ( wegen muster??) Sieht dass hinterher nicht schief aus?

13.04.2023 - 13:09

DROPS Design answered:

Wie früher gesagt werden so die Zunahmen weniger unauffällig und die Jacke wird dann nicht "plötzlich" breiter. Viel Spaß beim häkeln!

13.04.2023 - 14:37

country flag Sigrun Radau wrote:

Hallo, nach Aufteilung für die einzelnen Teilen Markierung setzen. Dann die Zunahmen: nach 10 cm re/17 cm li/24cm re/31 cm li. Warum? Verstehe die unterschiedlichen Längen nicht.

12.04.2023 - 17:27

DROPS Design answered:

Liebe Frau Radau, so werden die Zunahmen gehäkelt, dh nicht alle auf einmal sondern eine nach der anderen. Viel Spaß beim häkeln!

13.04.2023 - 09:35

country flag Marion Slikkerveer wrote:

Goedemorgen, er staat als ik het goed lees in de eerste toer dat je steeds een losse haakt en dan 4 stokjes vanaf en tot * ik neem aan dat je dan ook een st overslaat, maar dan krijg je hokjes en dat zie ik op het plaatje niet terug. Het meerderen geeft bij mij ook problemen, ik haak bij elke markeerder 2 stokjes in 1 stokje. Nu in de 7e toer al op het stekenaantal! Sla wel de volgende toer over maar niet na de 4e toer. Is dat het probleem ?

14.02.2022 - 10:41

DROPS Design answered:

Dag Marion,

Je haakt aan het begin van de toer steeds 3 lossen (boven het laatste stokje van de vorige toer) welke het eerste stokje vervangt. Het volgende stokje haak je dus in het tweede stokje van de vorige toer.

Je meerdert eerst om de toer (dus de ene toer wel en de andere toer niet) 5-6-6-5-5-6 keer. Afhankelijk van je maat zit je dan dus op 10 of 12 toeren. Daarna meerder je 2-2-2-3-3-3 keer op elke 4e naald.

17.02.2022 - 11:23

country flag GIUSEPPINA wrote:

Buonasera purtroppo non riesco a capire dove è come fare gli aumenti nel corpo...il segnapunti l'ho messo a fine riga dove ho creato scalfi con 8 catenelle. Dopodiché ho fatto una riga piena e poi ho iniziato il traforato. Adesso sono ferma a 10 cm per aumenti...non capisco perché si parla di catenelle e non spazi o maglie alte...ho provato a fare 3 m.a - 1 cat - 3 m.a. nello stesso spazio ma si nota tantissimo...scusatemi e grazie

21.01.2022 - 18:35

DROPS Design answered:

Buonasera Giuseppina, le spiegazioni sono corrette: deve lavorare gli aumenti a 10 cm dal segnapunti come indicato. Deve lavorare 3 m.a. + 1 catenella nelle prime 8-9-10-11-12-13 catenelle, nella catenella successiva lavorare come segue: 3 m.a., 1 catenella, 3 m.a., 1 catenella; poi, a 17 cm farà l'aumento sul lato sinistro quando rimangono 9-10-11-12-13-14 catenelle. Buon lavoro!

22.01.2022 - 18:43

country flag Evelyne wrote:

Bonjour. En effet, je n'avais pas pris en compte celà. Merci beaucoup de votre réponse, et pour tous les modèles au crochet mis à notre disposition. Vivement que je réceptionne ma laine karisma. Bonne journée.

17.11.2021 - 10:01

country flag Evelyne wrote:

Bonjour. Pour le modèle en taille S. On débute avec 111 mailles moins les 3 ml pour tourner. On a 108 m, on ajoute 5 fois 19 augmentations tous les 2 rangs et 2 fois 19 augmentations tous les 4 rangs. Donc 108+133=241 et vous annoncez 221 m. Je ne comprends pas comment arriver à avoir 221 m. Merci pour la réponse. Cordialement.

15.11.2021 - 19:08

DROPS Design answered:

Bonjour Evelyne, on commence par plus de mailles en l'air que de brides au 1er rang car bien souvent la chaînette de base est trop serrée, on va donc sauter des mailles au 1er rang pour terminer avec 88 brides au 1er rang + (5+2) x 19 augmentations pour l'empiècement = 221 brides. Bon crochet!

16.11.2021 - 08:46

country flag Sylvia wrote:

Ik ben begonnen met het vest 142-6. Ik begrijp het meerderen met de markers maar toch een vraag. Laat je de markers zitten als ze eenmaal aangebracht zijn of verplaats ik elke toer met meerderenden de markers mee? Het is mijn eerste keer vandaar mijn onervaren vraag. Alvast bedankt voor het antwoord.

27.09.2021 - 15:39

DROPS Design answered:

Dag Sylvia,

De markeerders laat je op de positie in de breedte en schuif je mee in de hoogte tijdens het breien, zodat je steeds weet waar je moet meerderen.

30.09.2021 - 11:06

country flag Patricia wrote:

Meerder bij een hoogte van 10 cm vanaf de markeerder 1 stk-groep aan de rechterkant als volgt: Haak 3 stk en 1 l in de eerste 8-9-10-11-12-13 l, haak in de volgende l als volgt: 3 stk, 1 l, 3 stk, 1 l. Meerder bij een hoogte van 17 cm op dezelfde manier aan de linkerkant – meerder als er 9-10-11-12-13-14 l over zijn. Ik zie even niet hoe dit nu precies zit. Want als je eerst aan de ene kant meerderd en dan aan de andere kant dan word het toch scheef?

08.09.2021 - 22:26

DROPS Design answered:

Dag Patricia,

Je haakt de ene keer bij het meerderen aan de rechterkant van alle markeerdraden en de volgende keer steeds aan de linkerkant van alle markeerdraden. Het afwisselend rechts en links meerderen voorkomt juist dat het werk scheef wordt.

17.09.2021 - 10:57

country flag Robine wrote:

Ik begrijp niet wat er wordt bedoeld met: om de toer 5-6-6-5-5-6 keer en elke 4e toer 2-2-2-3-3-3 keer. Kunt u dat uitleggen?

22.08.2020 - 16:11

DROPS Design answered:

Dag Robine,

Stel je haakt maat S, dan geldt het eerste getal van de reeks getallen. Je meerdert in dat geval 5 keer om de toer (dus de ene toer wel en de andere toer niet) en daarna meerder je op elke 4e toer en dit doe je in totaal 2 keer.

26.08.2020 - 14:41

country flag Sri wrote:

Hi Could you please tell me how many rows of dcs and how long would it measure? When I reached end of the part. "Work 1 row while at the same time inc 14-7-7-7-19-5 dc evenly (do not inc over the first and last 6 dc = band) = 235-259-271-295-319-355 dc." I am getting confused with increasing part. Thank you Sri

03.04.2020 - 03:01

DROPS Design answered:

Dear Sri, these increases are worked on one row only, crochet this row in pattern as before (with the 6 front band sts on each side) and increase evenly 14-7-7-7-19-5 dc working 2 sts in the same sts a total of 14-7-7-7-19-5 times on this row - read more here about how to increase evenly. Happy crocheting!

03.04.2020 - 08:02