DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS SS24

Autumn Aurora

Settið samanstendur af: Prjónuðu poncho, húfu og handstúkum úr DROPS Alpaca með með Fair-isle mynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 143-28
DROPS Design: Mynstur nr z-621
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

PONCHO:
Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
200-250-250-300-300-350 gr litur nr 601, dökk brúnn / eða litur nr 501, ljósgrár
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 401, brúnn / eða litur nr 517, milligrár
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 2915, appelsínugulur / eða litur nr 7300, lime
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 2923, sinnepsgulur / eða litur nr 100, natur
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 3770, dökk bleikur / eða litur nr 2923, sinnepsgulur
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 6309, turkos/ grár / eða litur nr 7139, grágrænn
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 7120, ljós grágrænn / eða litur nr 6309, turkos/grár

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 og 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 26 l og 34 umf með mynstri verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 2,5 – fyrir stroff og garðaprjón.

HÚFA:
Stærð: S/M - M/L
Höfuðmál: ca 54/56 - 56/58 cm.

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
50-50 gr litur nr 401, brúnn /eða litur nr 517, milligrár
50-50 gr litur nr 601, dökk brúnn /eða litur nr 501, ljós grár
50-50 gr litur nr 2915, appelsínugulur /eða litur nr 7300, lime
50-50 gr litur nr 2923, sinnepsgulur/ eða litur nr 100, natur
50-50 gr litur nr 3770, dökk bleikur / eða litur nr 2923, sinnepsgulur
50-50 gr litur nr 6309, turkos/ grár / eða litur nr 7139, grágrænn
50-50 gr litur nr 7120, ljós grágrænn / eða litur nr 6309, turkos/grár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 26 l og 34 umf með mynstri verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (40 cm) NR 2,5 – fyrir stroff.

HANDSTÚKUR:
Stærð: Ein stærð
Ummál: ca 23 cm
Lengd: ca 30 cm

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
50 gr litur nr 401, brúnn /eða litur nr 517, milligrár
50 gr litur nr 601, dökk brúnn / eða litur nr 501, ljós grár
50 gr litur nr 2915, appelsínugulur /eða litur nr 7300, lime
50 gr litur nr 2923, sinnepsgulur/ eða litur nr 100, natur
50 gr litur nr 3770, dökk bleikur / eða litur nr 2923, sinnepsgulur
50 gr litur nr 6309, turkos/ grár / eða litur nr 7139, grágrænn
50 gr litur nr 7120, ljós grágrænn / eða litur nr 6309, turkos/grár

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 26 l og 34 umf með mynstri verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 – fyrir stroff.

INNBLÁSTUR FYRIR AÐRAR LITASAMSETNINGAR (sjá ljósmynd): ATH! Þetta er tillaga hugsuð sem innblástur og kemur til með að líta út eins og eintakið á myndinni. (Litanúmer eftir/ í efni, kemur í stað litanúmers í uppgefnu mynstri).

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðanfrá og upp. Byrjun umferðar = miðja að aftan.

PONCHO:
Fitjið upp 460-495-535-570-605-640 l á hringprjóna nr 2,5 með litnum brúnn.
Prjónið 2 umf stroff (= 2 l sl, 3 l br). Skiptið yfir í litinn dökk brúnn og haldið áfram með stroff. Þegar stoffið mælist 2 cm er önnur hver 3 l br fækkuð í 2 l br = 414-445-481-513-544-576 l. Þegar stroffið mælist 4 cm eru 3 hver l br sem eftir er fækkuð í 2 l br = 368-396-428-456-484-512 l. Þegar stroffið mælist 5 cm er skipt yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 56-60-68-72-76-80 l jafnt yfir = 312-336-360-384-408-432 l. Prjónið nú eftir mynstri A.1 (= 13-14-15-16-17-18 mynstureiningar hringinn). Þegar stykkið mælist ca 8-10-12-14-16-18 cm – stillið af eftir heila mynstureiningu á hæðina – prjónið A.2. Eftir A.2 eru 156-168-180-192-204-216 l á prjóni og stykkið mælist ca 29-31-33-35-37-39 cm. Prjónið 1 umf slétt með litnum brúnn JAFNFRAMT er fækkað um 24-25-26-27-28-29 l jafnt yfir = 132-143-154-165-176-187 l. Prjónið A.3. Eftir A.3 eru 120-130-140-150-160-170 l eftir á prjóni og stykkið mælist ca 31-33-35-37-39-41 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5 og litinn dökk brúnn og prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN hringinn – sjáið útskýringu að ofan. Nú er sett 1 prjónamerki við miðju að framan. Byrjið við miðju að aftan og prjónið þar til 15-17-19-19-20-21 l eru eftir fyrir prjónamerki JAFNFRAMT er fækkað um 3-3-3-4-6-8 l jafnt yfir þessar 45-48-51-56-60-64 l, fellið af næstu 30-34-38-38-40-42 l (þ.e.a.s 15-17-19-19-20-21 l hvoru megin við prjónamerki að framan) og prjónið síðustu 45-48-51-56-60-64 l í umf (þ.e.a.s. við miðju að aftan) JAFNFRAMT er fækkað um 3-3-3-4-6-8 l jafnt yfir allar þessar l = 84-90-96-104-108-112 l eftir á prjóni.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Nú er prjónaður kantur í hálsmáli eða ”hálsklútur” hvoru megin við opið að framan (hálsklúturinn er saumaður saman við miðju að aftan í lokin) þannig:
Fitjið LAUST upp 90-94-96-98-102-104 l á hringprjóna nr 2,5 með litnum dökk brúnn, prjónið þær 84-90-96-104-108-112 l sem eru á prjóni, fitjið síðan LAUST upp 90-94-96-98-102-104 nýjar l í lok umf = 264-278-288-300-312-320 l. Prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan, þar til kantur í hálsi mælist 10-10-11-11-12-12 cm. Nú eru prjónaðar stuttar umferðir svo að kanturinn verði hærri að aftan í hnakka þannig: Prjónið 92-98-96-101-101-104 l, setjið þessar l á þráð, prjónið út umf, snúið við og prjónið 92-98-96-101-101-104 l, setjið þessar l á þráð, prjónið út umf, snúið við og prjónið 6 l, setjið þessar l á þráð, prjónið út umf, snúið við, prjónið 6 l, setjið þær l á þráð og prjónið út umf. Haldið svona áfram með því að setja fyrstu 6 l sem prjónaðar eru í hvorri hlið á þráð þar til 20-22-24-26-26-28 l eru eftir á prjóni við miðju að aftan, prjónið út umf. Nú eru l af þræði settar til baka á prjóninn og haldið er áfram í garðaprjón fram og til baka yfir allar l þar til kantur í hálsmáli mælist ca 12-12-13-13-14-14 cm þar sem hann er þynnstur (þ.e.a.s. lengst út í hvorri hlið). Fellið nú mjög laust af.
Setjið báða ”hálsklútana” í kross við miðju að framan, yfir axlir og að miðju að aftan svo að stuttu hliðarnar mætast við miðju að aftan. Saumið stuttu hliðarnar saman kant í kant yst í lykkjubogann. Hálsmálið liggur nú mjúkt í kringum opið á poncho.

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna / sokkaprjóna.

HÚFA:
Fitjið upp 120-128 l á hringprjóna nr 2,5 með litnum brúnn.
Prjónið 2 umf stroff (= 2 l sl, 2 l br). Skiptið yfir í litinn dökk brúnn og haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 5 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT sem aukið er út um 24-28 l jafnt yfir = 144-156 l. Nú er prjónað MYNSTUR eftir mynsturteikningu A.1 (= 12-13 mynstureiningar hringinn). Eftir A.4 er prjónað með litnum dökk brúnn til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 20-21 cm (A.4 á nú að vera lokið), setjið 12 prjónamerki í húfuna með 12-13 l milli prjónamerkja. Í næstu umf er fækkað um 1 l á eftir hverju prjónamerki með því að prjóna 2 l sl saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf, 5 sinnum til viðbótar og síðan í hverri umf alls 4-5 sinnum = 24-24 l eftir á prjóni. Í næstu umf eru allar l prjónaðar slétt saman 2 og 2. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru og festið vel. Húfan mælist ca 24-26 cm á hæðina.

DÚSKUR:
Gerið þéttan dúsk með litnum brúnn og litnum dökk brúnn, ca 3-4 cm að þvermáli. Saumið dúskinn niður efst á húfuna.

-------------------------------------------------------

HANDSTÚKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.

HÆGRI HANDSTÚKA:
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ PRJÓNA!
Fitjið laust upp 64 l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum brúnn. Prjónið stroff (= 2 l sl, 2 l br). Þegar stoffið mælist 3 cm er skipt yfir í litinn dökk brúnn, haldið áfram með stroff. Nú þegar stroffið mælist 5 cm er skipt yfir á sokkaprjóna nr 3. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 10 l jafnt yfir = 54 l. Prjónið nú mynstur eftir mynsturteikningu A.5 (= 4½ mynstureiningar í umf) JAFNFRAMT í umf 3 í A.5 eru settar fyrstu 12 l í umf á þráð fyrir op fyrir þumal (eftir að þær hafa verið prjónaðar) og fitjið upp 12 nýjar l yfir þráðinn í næstu umf = 54 l. Haldið áfram með mynstur hringinn. Í hverri umf merktri með ör í mynstri er aukið út um 6 l jafnt yfir = 60 l. Þegar A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er skipt yfir á sokkaprjóna nr 2,5. Prjónið 1 umf slétt með litnum dökk brúnn JAFNFRAMT er aukið út um 12 l jafnt yfir = 72 l. Prjónið nú stroff (= 2 l sl, 2 l br). Þegar stroffið mælist 2 cm er skipt yfir í litinn brúnn. Prjónið 1 umf stroff og fellið síðan laust af með sl yfir sl og br yfir br. Handstúkan mælist ca 30 cm á lengdina.

ÞUMALL:
Setjið þær 12 l af þræði aftur á sokkaprjóna nr 2,5 og prjónið upp 12 nýjar l hringinn í kringum opið á þumli með litnum dökk brúnn = 24 l. Prjónið stroff (= 2 l sl, 2 l br) hringinn þar til þumallinn mælist 2 cm. Skiptið yfir í litninn brúnn, prjónið 1 umf stroff og fellið síðan laust af með sl yfir sl og br yfir br.

VINSTRI HANDSTÚKA:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægri handstúka, en setjið 12 síðustu l í umf á þráð fyrir þumal (í stað fyrstu 12 l í umf).

Mynstur

symbols = litur dökk brúnn/eða ljós grár
symbols = litur brúnn/eða milligrár
symbols = litur ljós grágrænn/eða turkos/grár
symbols = litur turkos/grár/eða grágrænn
symbols = litur sinnepsgulur/eða natur
symbols = litur appelsínugulur/eða lime
symbols = litur dökk bleikur/eða sinnepsgulur
symbols = 2 lykkjur slétt saman
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 143-28

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Kerstin wrote:

Aktuell stricke ich den Poncho. Beim Wechsel des Musters von Diagramm A.2 zu A.3 soll ich eine ganze Runde in hellbraun stricken und "dabei gleichzeitig gleichmäßig verteilt" z.b. 24 Maschen abnehmen. Wenn ich diese Maschen einfach nach Gutdünken verteilt abnehme, dann "passt" das Muster von A.3 nicht zum vorherigen Muster A.2. - weil es dann immer wieder seitlich versetzt ist. Wie löse ich das? Welche Maschen genau soll ich wie abnehmen? Immer am Anfang oder Ende des Rapports?

18.12.2022 - 12:47

DROPS Design answered:

Liebe Kerstin, wenn 24 Maschen abgenommen werden sind es nur noch 132 Maschen übrig, und jetzt können Sie 12 Mal die 11 Maschen von A.3 wiederholen. Viel Spaß beim stricken!

19.12.2022 - 10:17

country flag Ilona wrote:

Seems like colours no 401 and 601 doesn't exist? Are they no longer prodcued or...? How can I substitute?

19.09.2021 - 20:12

DROPS Design answered:

Dear Ilona, if they don't appear on the yarn entry in the website, then they are not produced anymore. Right now, there aren't any similar colours in this yarn, so we recommend trying other colour combinations for this garment.

19.09.2021 - 22:44

country flag Polleke wrote:

Hoe kan ik een ronde pas breien voor een Noorse trui (xxxL) op de breimachine ? alvast bedankt voor de oplossing

17.09.2018 - 13:20

DROPS Design answered:

Dag Polleke, Helaas maken we geen patronen voor de breimachine en het is voor ons ook niet mogelijk om een patroon persoonlijk aan te passen voor de breimachine. Hopelijk vind je op internet ideeën hoe je dit kunt doen.

17.09.2018 - 20:15

country flag Rozella Davis wrote:

Can you a Worsted weight yarn for Fair Isle Knitting too, or does it have to be Wool? Thanks for your Help Rozella

29.11.2015 - 14:00

DROPS Design answered:

Dear Mrs Davis, you can use different kind of yarn when working fair isle - see our norwegian pattern here. Happy knitting!

30.11.2015 - 10:47

country flag Rianne wrote:

Dus ik heb dat stuk vervangen door: maak van die 12st 11st en ga door met A3. Je eindigd met 130 st (maat S). De laatsle rij van A3 vervangen met GELIJKMATIG minderen van 10st = 120st Door dit te doen liep A2 netjes over in A3

29.12.2012 - 22:25

country flag Rianne wrote:

Als je patroon A2 hebt gedaan staat er: "Brei 1nld recht met en minder TEGELIJKERTIJD 24st gelijkmatig= 132st. Brei dan A3. Na A3 staan er 120st op de nld" Maar als je kijkt naar A3 dan begint die met een patroon herhaling van 11st. Terwijl A2 eindigt met 12st.

29.12.2012 - 22:25

DROPS Design answered:

Dit patroon klopt, maar als je deze oplossing mooier vindt, dan kan dat natuurlijk. Maar A.2 sluit niet precies aan op A.3 dus het is geen enkel probleem dat er niet evenveel herhalingen op de nld zijn.

06.01.2013 - 17:55

Ekaterina wrote:

I like the pattern of the hat. It's really nice. But could you give me a piece of advice how to make this hat warmer. Should I knit the second layer on the inner side? How is it better to make these additional layers? Thanks in advance for any comment

04.11.2012 - 23:29

DROPS Design answered:

Dear Ekaterina, what about sewing a fabric on the inside of the hat? Happy Knitting !

16.11.2012 - 10:07

Annette wrote:

Kommt unbedingt auf die To-Do-Liste! Die Muster haben kein Verfallsdatum!

12.07.2012 - 17:37

Josée wrote:

Another nice set, love the colour-work!

04.07.2012 - 02:51

country flag Synne wrote:

Flott farge-kombinasjon!

26.06.2012 - 20:46