DROPS Cotton Viscose
DROPS Cotton Viscose
54% Bómull, 46% Viscose
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Lace
DROPS Lace
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale
DROPS 136-28
DROPS Design: Mynstur N-136
Garnflokkur A
---------------------------------------------------------

Mál efst: ca 80 cm þar sem það er breiðast.

Efni:
DROPS COTTON VISCOSE frá Garnstudio
100 gr litur nr 02, natur
Og einnig:
DROPS LACE frá Garnstudio
50 gr litur nr 0100, natur

DROPS HRINGPRJÓNN NR 4 (80 cm) – eða þá stærð sem þart til að 19 l og 25 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm með 1 þræði af hvorri tegund.
DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – fyrir heklaðan kant

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Viscose
DROPS Cotton Viscose
54% Bómull, 46% Viscose
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Lace
DROPS Lace
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LEIÐBEININGAR:
Þær 2 fyrstu l á prjóni (séð frá réttu) eru prjónaðar í garðaprjóni alla leið svo að kanturinn brettist ekki upp.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2. 1 rúða = 2 umf.

ÚTAUKNING (frá réttu):
Prjónið þar til 1 l er eftir. Aukið er út um 1 l með því að taka þráðinn upp á milli 2 l frá fyrri umf – prjónið þessa l snúna slétt, þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan til þess að koma í veg fyrir göt.

ÚRTAKA (frá réttu):
Prjónið þar til 3 l eru eftir. Fækkið um 1 l með því að prjóna 2 l sl saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL:
Fitjið upp 4 l á hringprjóna nr 4 með 1 þræði Cotton Viscose og 1 þræði Lace. Umferð 1 = rétta. Lesið LEIÐBEININGAR! Prjónið M.1 – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT sem aukið er út í lok 4. hverrar umf – sjá ÚTAUKNING. Þegar stykkið mælist ca 40 cm frá uppfitjunarkanti eru prjónaðar 2 umf án útaukninga. Prjónið nú M.2 – JAFNFRAMT er fækkað um 1 l í lok 4. hverrar umf – sjá ÚRTAKA að ofan.
Fellið af þegar 4 l eru eftir.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið kant frá réttu kringum allt sjalið með Cotton Viscose og heklunál nr 3,5:
UMFERÐ 1: * Helið fl, 4 ll, hoppið yfir 1 cm *, endurtakið frá *-* meðfram ytri kanti, endið með 1 kl í 1. fl.
UMFERÐ: Heklið kl í 1. ll-boga, 1 fl, 5 ll, * 1 fl í næsta ll-boga, 5 ll *, endurtakið frá *-* út umf, endið með 1 kl í 1. fl.
Í ll-bogann í hverju horni er heklað frá *-* 2 sinnum.
UMFERÐ 3: Heklið kl í 1. ll-boga, 1 fl, 6 ll, * 1 fl í næsta ll-boga, 6 ll *, endurtakið frá *-*, endið með 1 kl í 1. fl.
Í ll-bogann í hverju horni er heklað frá *-* 2 sinnum.

STREKKING:
Leggið sjalið í volgt vatn þar til það er orðið blautt í gegn. Pressið varlega vatnið úr sjalinu – það má ekki vinda það. Sjalinu er nú rúllað í handklæði og pressað til að fá burt enn meira vatn – sjalið kemur til með að vera lítið rakt. Leggið sjalið á mottu eða dýnu – dragið það varlega út í rétta stærð og notið nálar til þess að festa það í hvern ll-boga . Látið sjalið þorna. Endurtakið þetta í hvert sinn sem sjalið er þvegið.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 11.04.2012
Nýr mynsturtexti
Yfirfarið á vefsvæði: 03.01.2017
Nýtt efnismagn:Efni: DROPS LACE frá Garnstudio 50 gr litur nr 0100, natur

Mynstur

symbols = 2 umferðir slétt með Cotton Viscose + Lace
symbols = 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð brugðið frá röngu með Cotton Viscose + Lace
symbols = 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð brugðið frá röngu með Lace
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 136-28

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (29)

country flag Christina Cersosimo wrote:

In the crochet border the second row reads "ROW 2: Work sl st to first ch space, 1 sc, ch 5," - What is does work sl st mean? And how many of the sl's do you do? The rest I undertstand to be - work this SL stich til you get to the open chain space/loop from previous row, 1 single crochet, then chain 5 to the next "open" loop, repeat.

08.12.2023 - 15:52

DROPS Design answered:

Dear Christina, sl st = slip stitch. So you work 1 slip stitch in each stitch until you reach the first chain space. Then, in the chain space, work 1 single crochet and chain 5; in the next and following chain spaces, work 1 single crochet and chain 5 (in the chain spaces in each corner work: 1sc, chain 5, 1sc, chain 5 then go to the next loop). To end the round, work 1 slip stitch in the first single crochet. Happy crocheting!

10.12.2023 - 23:55

country flag Nicole FORTIN wrote:

Si j\'ai bien compris, je fais 4 rang endroits au départ et 1 augmentation à la fin du 4ème rang endroit ?\r\nou les augmentations se font au 4ème rang du diagramme\r\nmerci

11.01.2022 - 19:43

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Fortin, vous augmentez tous les 4 rangs en commençant au 4ème rang de A.1 soit après 2 cases/rangs de A.1 (exceptionnellement 1 case = 2 rangs dans ce modèle), toutefois vous tricoterez soit à l'endroit (= 1er symbole = 1 côte mousse) soit 2 rangs jersey (= les 2 derniers symboles). Donc la 1ère augmentation se fait après 1 côte mousse + 2 rangs jersey (= 4 rangs au total). Bon tricot!

12.01.2022 - 07:18

country flag Louise C wrote:

Ce modèle N-136 est réaliser avec 2 laines différentes ensemble. Lorsque nous arrivons avec seulement une laine selon le diagramme, comment fait-on pour faire suivre les 2 autres laine sans couper la laine.

27.06.2019 - 03:02

DROPS Design answered:

Bonjour Louise, cette vidéo montre comment tricoter des rayures de couleurs différentes, vous pouvez utiliser la même technique pour les 2 fils différents. Bon tricot!

27.06.2019 - 08:49

country flag Margareta Söderlund, Sundsvall wrote:

Jag hade bestämt mig för en bolero i Lace men när jag stickat en dm tyckte jag inte om mönstret. Nu har jag hittat en halsduk, ”Suzy”, i 1 tråd Lace o 1 tråd Cotton Merino. Det skulle gå 50 gr Lace = 400 gr och 100 gr Cotton Merino = 350 m. Men jag har 100 gr Lace = 800m. Kan jag börja med halsduken o hoppas att det blir bra med 2 trådat Lace och att det garnet räcker till?\r\nMvh/Margareta, Sundsvall

24.02.2019 - 11:31

DROPS Design answered:

Hej. Ja garnet bör räcka till det. Lycka till!

08.03.2019 - 09:19

country flag Julie wrote:

Hi. Does this scarf really take 2 balls of lace yarn? Several other shawl patterns use 2 balls and finish up much larger. Thank you for your wonderful yarns and patterns! I always go to you first when I want a project.:=)

17.11.2016 - 19:05

DROPS Design answered:

Dear Julie, you need 100 g Lace, ie 2 balls 50 g each in Lace + 100 g Cotton Viscose, ie 2 balls 50 g each in Cotton Viscose. Happy knitting!

18.11.2016 - 12:57

country flag G.t.Wiskerke wrote:

Ik vindt het een mooi patroon maar ik snap het niet goed. het telpatroon is met cotton viscose +lace maar het 3de tekentje is alleen met lace ? Dus het is helemaal met cotton viscose schreef U.Het tekentje op het telpatroon het open rondje is alleen met lace???. Dan wordt het toch smaller en wat doe je met de cotton viscove?

17.11.2016 - 13:48

DROPS Design answered:

Hoi. Ja, sorry, ik las het patroon - en keek niet naar het telpatroon. Maar dat klopt. Je breit dus die 2 nld ALLEEN Lace en laat de Cotton Viscose even rusten. Je krijgt dan een leuk effect tussen het CV+Lace en het Lace gedeelte. De Lace zal fijner zijn - maar dat is juist de bedoeling.

17.11.2016 - 13:54

country flag G.T.Wiskerke wrote:

De vierde nld. meerderen is toch aan de averechtse kant en niet aan de goede kant. Ook breien met het lace dan is dat toch smaller dan met allebeide de garens . Knip je de andere (cotton viscose) dan af? de eerste naald is de goede kant?

11.11.2016 - 19:42

DROPS Design answered:

Hoi G.T. Wiskerke. Je telt de naalden als volgt: brei de nld met meerderingen. Dan verkeerde kant (= 1e nld), goede kant (= 2e nld), verkeerde kant (= 3e nld) en volgende nld is goede kant = 4e nld. Dan komen de meerderingen altijd aan de goede kant. De omslagdoek is gebreid met 2 draden = 1 draad Lace en 1 draad Cotton Viscose samen. Je knipt iet de Cotton Viscose draad af

14.11.2016 - 15:17

country flag Tanja wrote:

Hallo, wenn die 1. Reihe die Vorderseite ist, wie soll ich in der 4. Reihe von der Vorderseite aufnehmen ? Das wäre doch die Rückseite. Was mache ich mit dem Cotton Viscose Faden, wenn ich die Reihen nur mit Lace stricken muss ? Bleibt der Faden liegen und ich nehmen ihn danach wieder auf ? Der Online Shop Algawo war sich mit mir einig, dass in der Anleitung zur Aufnahme etwas nicht stimmen kann. Über eine schnelle Antwort würde ich mich sehr freuen.

30.10.2015 - 07:13

DROPS Design answered:

Sie können am Anfang einfach am Ende der 5. R zunehmen, und dann in jeder darauffolgenden 4. R, sodass Sie immer am Ende der Hin-R zunehmen. Den gerade nicht benötigten Cotton-Viscose-Faden können Sie am Rand mitführen, indem Sie ihn mit dem Arbeitsfaden verkreuzen.

05.11.2015 - 12:57

country flag Annette wrote:

Der står, det skal måle 40 cm.i højden(bredde på sjalet), men jeg kunne godt tænke mig at vide, hvor mange masker, der er på pinden, når de ca. 40 cm er nået.

16.04.2012 - 09:15

DROPS Design answered:

På 40cm strikker du ca 100p ifølge strikkefastheden. På 100 p har du taget ud på hver 4 = ca 25m + dem du startede med. Det bliver da ca 15 cm + blondekanten. God fornøjelse!

16.04.2012 - 15:52

Mónica wrote:

Hermoso, lo haré en vacaciones.

06.02.2012 - 04:51