Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
= slétt frá réttu, brugðið frá röngu | |
= brugðið frá réttu, slétt frá röngu | |
= setjið 2 lykkjur á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af hjálparprjóni | |
= setjið 2 lykkjur á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af hjálparprjóni |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Micah |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn með köðlum og laskalínu úr 2 þráðum DROPS Alpaca.
DROPS Baby 21-40 |
|||||||||||||
-------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: -------------------------------------------------------- STROFF: * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2 – mynsturteikning sýnir mynstur séð frá réttu og er endurtekið til loka. ÚRTAKA (á við um laskalínu án kants): Prjónið 2 lykkjur slétt saman. * Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan næsta prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman *, endurtakið frá *-* við næstu 2 prjónamerkin, prjónið síðan þar til eftir eru 4 lykkjur á prjóni, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, 2 lykkjur slétt. ÚRTAKA (á við um laskalínu með kanti): FÆKKIÐ LYKKJUM FRÁ RÉTTU ÞANNIG: Prjónið 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 lykkjur slétt saman. * Prjónið þar til eftir eru 3 lykkjur á undan næsta prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman *, endurtakið frá *-* við 2 næstu prjónamerki, prjónið síðan þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. FÆKKIÐ LYKKJUM FRÁ RÖNGU ÞANNIG: Prjónið 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 lykkjur brugðið saman. * Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan næsta prjónamerki, 2 lykkjur snúnar brugðið saman (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogana í stað fremri), 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur snúnar brugðið saman, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. ATH: Passið uppá að lykkjurnar snúi í rétta átt frá réttu. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í kanti með laskalínu sem er staðsettur er á hluta á ermi – metið hvort þess þurfi í stærri stærðunum. Fellið af þannig: 1 lykkja slétt, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt. Fellið af fyrir hnappagötum þegar kantur að framan mælist: Stærð 1/3 mán: 2, 5 og 8 cm. Stærð 6/9 mán: 3, 6 og 9 cm. Stærð 12/18 mán: 3, 7 og 10 cm. Stærð 2 ára: 3, 7 og 11 cm. Stærð 3/4 ára: 4, 8 og 12 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 102-114-126 (138-150) lykkjur á hringprjón 3,5 með 2 þráðum Alpaca. Prjónið 1 umferð sléttprjón, haldið síðan áfram með STROFF í 3 cm – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð sléttprjón. Næsta umferð er prjónuð þannig: 11-14-17 (20-23) lykkjur sléttprjón, setjið eitt prjónamerki í fyrstu af þessum lykkjum (= hlið), M.1 (= 33 lykkjur), 11-14-17 (20-23) lykkjur, setjið eitt prjónamerki í síðustu af þessum lykkjum (= hlið), 47-53-59 (65-71) lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 16-17-20 (23-25) cm. Fellið nú af 5 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (= lykkja með prjónamerki + 2 lykkjur hvoru megin við hana)= 49-55-61 (67-73) lykkjur á framstykki og 43-49-55 (61-67) lykkjur á bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Fitjið upp 30-30-36 (36-36) lykkjur á sokkaprjón 3,5 með 2 þráðum Alpaca. Prjónið 1 umferð sléttprjón, haldið áfram með stroff í 3 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 4, haldið áfram í sléttprjóni. Jafnframt þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi, endurtakið með 3-2-3 (2,5-2,5) cm millibili alls 4-6-5 (7-9) sinnum = 38-42-46 (50-54) lykkjur. Þegar stykkið mælist 17-19-20 (25-29) cm eru felldar af 5 lykkjur mitt undir ermi = 33-37-41 (45-49) lykkjur. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handvegi = 158-178-198 (218-238) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykkis og erma. Nú er hægt að prjóna stykkið með eða án kants fyrir tölur – sjá útskýringu að neðan. BERUSTYKKI MEÐ TÖLUM: Prjónið nú fram og til baka frá hægri „laskalínusaumur“ að framan. Fitjið upp 4 auka lykkjur á hlutann með framstykkinu (= kantur fyrir tölur) = 162-182-202 (222-242) lykkjur. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Haldið áfram í sléttprjóni og kaðla við miðju að framan ásamt 4 lykkjum í garðaprjóni í byrjun og lok umferðar (fyrir kant með tölum). Jafnframt er lykkjum fækkað fyrir laskalínu – sjá ÚRTAKA – fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð: 11-11-12 (12-13) sinnum og síðan í hverri umferð: 1-3-4 (6-7) sinnum. ATH: Fellið einnig af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Jafnframt þegar stykkið mælist 23-25-29 (32-35) cm eru miðju 13-13-13 (15-15) lykkjurnar settar á þráð fyrir hálsmáli. Fellið síðan af við hálsmál í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2-2-2 (3-3) sinnum. Eftir alla úrtöku/affellingu fyrir laskalínu og hálsmáli eru 45-49-53 (53-57) lykkjur á prjóni. BERUSTYKKI ÁN TALNA: Prjónið nú hringinn. Haldið áfram í sléttprjóni og köðlum. Jafnframt er lykkjum fækkað fyrir laskalínu – sjá ÚRTAKA – fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð: 11-11-12 (12-13) sinnum og síðan í hverri umferð: 1-3-4 (6-7) sinnum. Jafnframt þegar stykkið mælist 23-25-29 (32-35) cm eru miðju 13-13-13 (15-15) lykkjur að framan settar á þráð fyrir hálsmáli. Fellið nú af við háls í hvorri hlið í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2-2-2 (3-3) sinnum. Eftir alla úrtöku/affellingu fyrir laskalínu og hálsmáli eru 41-45-49 (49-53) lykkjur á prjóni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Takið upp ca 23 til 27 lykkjur framan í hálsmáli (meðtaldar lykkjur á þræði) = 68 til 84 lykkjur. Setjið allar lykkjur á hringprjón 3,5 – prjónið 1 umferð sléttprjón jafnframt sem lykkjum er fækkað/aukið út jafnt yfir til 64-76 lykkjur. Prjónið 8 cm stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, fellið laust af – brjótið kantinn saman tvöfaldan að röngu og saumið. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir höndum. Ef þú hefur prjónað kant fyrir tölur að framan: Leggið kantinn fyrir tölur yfir hvorn annan með kant fyrir hnappagötum efst og saumið niður neðri kantinn frá röngu. Saumið tölur í. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6922 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (28)
Sylvie Audet wrote:
Je fait la grandeur 12/18 je suis rendu au 2 rang et a la fin sa ne marche pas
10.04.2024 - 20:52DROPS Design answered:
Bonjour Mme Audet, pouvez-vous nous en dire plus? Qu'est-ce qui ne marche pas à la fin? En 12/18 mois, vous avez 126 mailles que vous tricotez ainsi: 17 m jersey, les 33 m du diagramme M.1, 17 m jersey, et 59 m jersey soit: 17+33+17+59=126 mailles. Bon tricot!
11.04.2024 - 07:13Sara wrote:
Buonasera. Modello Micah. Devo fare il raglan ma non capisco come. Per prima cosa, da dove si parte? E poi, la diminuzione 2 insieme è sul davanti del lavoro o dopo il segnapunti sulle maglie della spalla? Mi potreste aiutare per favore? Grazie Sara
06.01.2024 - 16:25DROPS Design answered:
Buonasera Sara, il raglan si lavora sullo sprone seguendo le indicazioni riportate all'inizio delle spiegazioni, nei paragrafi dedicati al raglan. Buon lavoro!
09.01.2024 - 20:14Mejer wrote:
Kan ikke få masketallet til at passe, hverken med rib kanten, eller mønstret?
25.12.2023 - 15:59M Radius wrote:
Het minderen voor de raglan begint met: 2 steken samen. Zijn dit 1 steek voorpand en 1 steek mouw? dan komt de raglan bovenop de mouw. Waar begin je met de raglan instructie 2 steken samen, daarna krijg je de *tot* instructies. Er staat herhaal het bij de volgende markeerders. Is dat voor of na de markeerders of over de markeerders heen?
10.12.2023 - 20:43DROPS Design answered:
Nee de minderingen voor de raglan zitten naast de raglanlijnen welke uit 2 steken recht bestaan. Je breit tot er 3 steken over zijn voor de volgende markeerdraad, dan minder je en brei je 2 recht en dan minder je weer. Tussen die 2 steken recht zit de markeerdraad.
17.12.2023 - 17:53Trijs Schotema wrote:
Minderen in het midden van de mouw doe je toch niet als je geen rondbreinaald gebruikt? De mindering of meerdering zit dan boven op de kop van de mouw. ( dit is dan niet onder de mouw) Dit geeft toch een gat bij het aan elkaar breien.
22.11.2023 - 08:06DROPS Design answered:
Dag Trijs,
Het werk wordt volgens patroon in de rondte gebreid, maar als je de mouwen op rechte naalden breit, dan doe je het minderen inderdaad aan elke kant van de naald.
25.11.2023 - 09:23Trijs Schotema wrote:
Bij het breien van de mouw staat er : meerderen bij een hoogte van 6 cm 2 st. midden onder de mouw. Hoe moet ik dit lezen: 1 steek aan het begin van de naald, 1 steek aan het einde van de naald? Ook 5 steken afkanten midden onder de mouw, waar doe ik dat dan?
21.11.2023 - 20:59DROPS Design answered:
Dag Trijs,
Je kunt het meerderen onder de mouw aan beide kanten van het midden doen. Als je een markeerdraad plaatst tussen de steken om het midden aan te geven, dan kun je 1 steek ervoor en 1 steek erna meerderen. De 5 steken afkanten doe je ook midden onder de mouw. Het zit dan natuurlijk niet precies midden onder de mouw omdat je een oneven aantal steken afkant, maar dat is niet zo erg.
21.11.2023 - 22:39Jane B wrote:
Should the neck be knitted on a 3.5mm circular needle? The pattern says to slip the stitches onto 4mm needle, but they’re already on that! Thanks.
28.12.2022 - 15:20DROPS Design answered:
Dear Jane, you need to work the neck with the 4 mm needles but you can pick up the stitches with either the 3.5 or the 4mm needles. That's why we indicate that you slip the stitches onto 4mm needles, because we are going to use those to work. If you picked up stitches with the 4mm needles, ignore this and continue working as explained. Happy knitting!
07.01.2023 - 19:15Catherine wrote:
Il y a une erreur sur le placement du premier marqueur. S’il est fait tel qu’indiqué dans le patron, la diminution pour l’emmanchure se retrouve à être fait dans le motif avant.
07.12.2022 - 14:34DROPS Design answered:
Bonjour Catherine, on place le 1er marqueur dans la 1ère des 11-14-17 (20-23) m jersey et dans la dernière des 11-14-17 (20-23) m jersey après M.1, autrement dit, lorsque vous rabattrez les mailles des emmanchures vous rabattrez la maille avec le marqueur + 2 mailles avant + 2 mailles après. Vous ne rabattez pas les mailles des torsades, juste les mailles jersey. Bon tricot!
07.12.2022 - 16:42Fientje Broess wrote:
In het telpatroon M1 (voor de kabels) tel ik 35 steken, terwijl er in de beschrijving/instructie gerekend wordt met 33 steken. Hoe moet ik dit zien?
31.07.2022 - 12:37DROPS Design answered:
Dag Fientje,
Het zijn er toch echt 33 steken in patroon M.1 en geen 35 steken.
07.08.2022 - 13:52Sabine wrote:
Hallo, ich stricke gerade Micah, habe aber eine generelle Frage, die ich in Ihren Video-Tutorials nicht finde: Welche Randmasche passt am besten, damit bei einem gestrickten Teil, z.B. Topflappen, das umhäkelt werden soll, keine Löcher neben der Randmasche entstehen? Ich habe schon alles Mögliche ausprobiert, auch den Kettrand. Vielen Dank!
03.01.2022 - 19:39DROPS Design answered:
Liebe Sabine, die Randmaschen können entweder glatt rechts/glatt links oder kraus rechts gestrickt, je nach Gewohnheit. Viel Spaß beim stricken!
04.01.2022 - 07:12