DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Extra 0-789
DROPS design: Mynstur nr FA-172
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: 35/37 - 38/40 - 41/43
Lengd fótar: ca 22 - 24 - 27 cm
Hæð á sokk: ca 20 - 21 - 21 cm

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
50-50-50 g litur 100, natur
50-50-50 g litur 106, rauður

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l x 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Mynsturteikning M.1 til M.6. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

HÆLÚRTAKA:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sl þar til 9 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið br þar til 9 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana br, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sl þar til 8 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eina og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið br þar til 8 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana br, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
Haldið áfram á sama hátt með því það fækki um 1 l áður en 1 l er steypt yfir þar til 15-15-15 l eru eftir á prjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.

SOKKUR:
Fitjið upp 66-66-72 l á sokkaprjóna með litnum rauður Fabel.
Prjónið 1 umf sl, prjónið síðan 4 umf stroff = 1 l sl, 1 l br. Prjónið síðan M.1 yfir allar l. Þegar M.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið M.2 JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 72 l í öllum stærðum í fyrstu umf í M.2. Þegar M.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið M.3 JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 66-72-72 l í fyrstu umf í M.3.1
Þegar M.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónuð 1 umf með litnum natur yfir allar l. Prjónið nú þannig: M.4A (= 3 l), M.4B (= 25-31-31 l), M.4C (= 3 l), M.5 (= 35 l).
ATH! Í umf 8 og umf 16 er fækkað um 1 l hvoru megin við M.5 eins og útskýrt er í mynstri = 62-68-68 l. Þegar M.5 hefur verið prjónað 1 sinni til loka á hæðina eru settar 31-37-37 l (= M.4A, B og C) á þráð = 31 l fyrir hæl.
Prjónið M.6 yfir hæl-l í 5-5½-6 cm, setjið 1 prjónamerki, fækkið síðan lykkjum fyrir hæl – sjá HÆLÚRTAKA – haldið áfram með mynstur M.6.
Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 12-13-14 l hvoru megin við hæl (prjónið upp til skiptis með litnum rauður og natur þannig að það passi inn í M.6) og 31-37-37 l af þræði eru settar til baka á prjóninn = 70-78-80 l. Þær 31-37-37 l ofan á fæti halda áfram með M.4 eins og áður, l undir fæti eru prjónaðar með M.6. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað hvoru megin við M.4 (l ofan á fæti). Prjónið 2 l á undan M.4A slétt saman og 2 l á eftir M.4C snúnar slétt saman (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri), endurtakið í annarri hverri umf alls 6 sinnum = 58-66-68 l. Haldið áfram með mynstur M.4 og M.6 þar til stykkið mælist 17-18-21 cm frá prjónamerki á hæl (= 5-6-6 cm eftir).
Prjónið nú þannig: M.4A, M.6 yfir næstu 25-31-31 l, M.4C, M.6 yfir næstu 27-29-31 l. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við M.4A/C. Fækkið lykkjum á undan M.4A/C þannig: prjónið 2 síðustu l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir M.4A/C þannig: takið fyrstu l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið lykkjum í annarri hverri umf alls 6-9-9 sinnum og síðan í hverri umf alls 4-1-1 sinnum = 18-26-28 l eftir. Í næstu umf eru allar l prjónaðar 2 og 2 slétt saman með rauður = 9-13-14 l.
Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel.

Prjónið annan sokk á sama hátt.

Mynstur

symbols = natur
symbols = rauður
symbols = 2 l slétt saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Christmas Fable

Gillian Johnstone, Cyprus

Elisa's julesokker

Elisabeth, Norway

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-789

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (24)

country flag Sandra wrote:

Hallo, ich habe Größe 41-43 mit Nadeln Gr. 3 gestrickt, leider wurde die Socke viel zu eng. Ich hatte am Anfang keine Maschenprobe gemacht. Jetzt habe ich die Maschenprobe mit Nadeln Gr. 4 gemacht, die Breite 10 cm stimmte bei 24 Maschen, nach 16 Reihen hatte ich aber schon 8 cm. Was empfehlen Sie? Darüber hinaus hätte ich auch gerne noch die Angaben für Sockengröße 43-45. Herzlichen Dank!

27.12.2023 - 22:41

DROPS Design answered:

Liebe Sandra, stimmt Ihre Maschenprobe? Wenn Sie 24 Maschen für 10 cm haben, dann sollen die Socken nicht zu eng sein, sollte Ihre Reihenanzahl nicht stimmen, dann stricken Sie einfach bis die gewüsnchte Länge (Sie brauchen dann einfach mehr Reihen zu stricken, vielleicht brauchen Sie aber dann etwas mehr Wolle). Hier finden Sie unsere Anleitungen für Socken in Größe 44/46 cm, vielleicht kann das Ihnen helfen. Viel Spaß beim stricken!

02.01.2024 - 09:19

country flag Labernia Pascale wrote:

J ai fini la 1ère chaussette, mais je ne suis pas satisfaite du talon. En effet, comme indiqué, après les diminutions du talon j ai relevé les mailles en alternant le rouge et le blanc. Les mailles sont lâches alors que j ai bien tendu le fil. Est-ce un problème récurent à ce genre de talon rayé ? Sur vos photos on voit un peu ce problème... merci

22.11.2021 - 19:15

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Labernia, veillez bien à ce que les mailles lisières du talon ne soient pas trop lâche, vous pouvez par ex tricoter 1 m point point mousse de chaque côté du talon (vous pouvez par ex. augmenter ces 2 mailles au 1er du talon et les diminuer au dernier rang pour ne pas perturber le motif) et ensuite relever les mailles dans cette maille point mousse, votre talon peut être ainsi plus net. Votre magasin a peut être même d'autres astuces pour vous. Bon tricot!

23.11.2021 - 08:11

country flag Theresa Suszko wrote:

Thank you for getting back to me on the decrease! I like it to when you go on you tube to help us out on our projects!

05.05.2021 - 02:42

country flag Theresa Suszko wrote:

I tried the decrease so many times and kept getting holes ? Watched the video and she doesn’t say how to do it so I was wondering how do you do it without getting holes? Please?😎I love making your projects thank you!

03.05.2021 - 23:51

DROPS Design answered:

Dear Theresa, there isn't anything special about the decreases, K / P 1, and PSSO, but you do have to make sure to pull the yarn thight before and after turning the piece. If you still getting holes, you can try to pull up the thread befre the next stitch, put it on the needle twisted and knit together with the decreased stitches. Happy Knitting,

04.05.2021 - 04:05

country flag Joanna wrote:

Thank you for your reply. I managed in the end to print the whole pattern. At first I found the pattern by putting the number in the search box, the pattern came up but wouldn’t print properly. So I searched for it by looking at every sock pattern you have, I eventually found it and it printed everything ok. Thank you again for your help.

02.10.2018 - 22:48

country flag Joanna wrote:

Hello, I have tried to print the pattern but it has not included the diagram (chart). What am I doing wrong? It has everything else even the yarn prices which I don’t need printing. Please can you help.Thankyou

01.10.2018 - 20:39

DROPS Design answered:

Dear Joanna, we successfully could print this pattern including diagrams. Make sure you haven't selected a number of pages so that they will be all printed. Try to clean the browser's cache and try again. Should you still have worries to print whole pattern, please let us know which browser you are using. Happy knitting!

02.10.2018 - 09:33

country flag Jannie wrote:

Er det en fejl eller. Sidder nu med 58m, og skal fortsætte med mønster således: m4a,m6 over de næste 25m og m4c,m6 over de næste 27m ? det tilsammen giver kun 52m, diff på 6m, hvad med dem ?

01.12.2016 - 14:04

DROPS Design answered:

Hej Jannie. M.4A og C er begge 3 masker: 3+25(=M.6)+3+27(=M.6) = 58 m i alt

01.12.2016 - 15:58

country flag Laurie Flom wrote:

I just purchased Dale of Norway Heilo yarn (22 sts = 10 cm on US 3 or 4) and just started knitting the DROPS extra 0-789 socks. However, casting on 66 for a medium-sized woman's foot and then increasing to 72 sts make this sock huge! Comparing this to several other sock patterns I have, 72 sts (even 66) seems like way too many. Help?

05.03.2016 - 18:12

DROPS Design answered:

Dear Mrs Flom, This pattern has been written for DROPS Fabel with a tension of 24 sts x 32 rows, remember to check your tension - to get the best results we can only highly recommand to use original yarn. Happy knitting!

07.03.2016 - 10:52

country flag Lea wrote:

Ich verstehe leider nicht, wie man M6 stricken muss, wenn es nicht rund gestrickt wird. Ich stecke fest bei der Anweisung "M6 über die Fersenmaschen stricken". Hier muss ich doch, um Vorder- und rückreihe zu stricken jeweils die Arbeit wenden und die Rückreihe folglich links stricken, oder? Ich verstehe nicht, wie man mit zwei Fäden links strickt, so dass es trotzdem auf der Vorderseite der Arbeit glatt rechts erscheint. Danke für Ihre Hilfe!

07.10.2014 - 12:18

DROPS Design answered:

Ja genau, Sie stricken die Rück-R links. Dabei behalten Sie den Faden, den Sie gerade nicht benötigen und daher mitführen müssen, VOR der Arbeit, also auf genau derselben Seite wie vorher auch, dann bleibt die Arbeit ja auf der Vorderseite "fadenfrei". Im "Fair-Isle"-Video unter "Videos" oben im Kopf neben dem Foto können Sie sich das auch noch mal anschauen.

07.10.2014 - 14:06

country flag Rijgwaart wrote:

Patroon 0-789 staat na mindering van78 st naar 66 dan breien tot lengte van18 cm dan minderen voor de tenen maar dan zijn er nog maar totaal 60 st over waar moeten die dan gemindert worden of is dit een druk fout

16.12.2012 - 15:03

DROPS Design answered:

Waar komen de 60 st vandaan? Je had 78 st, mindert 6 keer 2 st (= 12) volgens de beschrijving en hebt dan 66 st op de nld. Dan brei je door tot een lengte van 18 cm vanaf de hiel. Je breit dan door volgens M.4A/C en M6 en mindert nu voor de tenen zoals beschreven.

19.12.2012 - 13:11