DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2772.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Baby 20-19
DROPS Design: Mynstur nr ME-052-by
Garnflokkur B
---------------------------------------------------------

Stærð 1/3 mán – 6/18 mán (2/4) ára
Höfuðmál: 40/42 – 44/48 (48/52) cm

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
100-100 (100) g litur nr 16, ljós bleikur
50-50 (50) g litur nr 01, natur (fyrir kanta)

DROPS HEKLUNÁL NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 hálfir stuðlar á breidd og 14 umferðir á hæð verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2772.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR-1:
Fyrsta hálfa stuðli í hverri umferð er skipt út fyrir 2 loftlykkjur Hver umferð endar með 1 hálfum stuðli í 2. loftlykkju í byrjun á fyrri umferð.

HEKLLEIÐBEININGAR-2:
Fyrsta hálfa stuðli í byrjun á hverri umferð er skipt út fyrir 2 loftlykkjur. Hver umferð enda með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju í byrjun á umferð.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 hálfan stuðul með því að hekla 2 hálfa stuðla í næst síðasta hálfa stuðul.

HÁLFIR STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN:
Fækkað er um einn hálfan stuðul með því að hekla 2 hálfa stuðla saman, þ.e.a.s. heklið einn hálfan stuðul en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 3 lykkjur eftir á heklunálinni), heklið 1 hálfan stuðul í næstu lykkju og dragið að lokum þráðinn í gegnum allar 5 lykkjurnar á heklunálinni.

FASTALYKKJUR HEKLAÐAR SAMAN:
Heklið 2 fastalykkjur saman í 1 fastalykkju þannig: Stingið heklunálinni í fyrstu lykkju, sækið þráðinn, stingið heklunálinni í næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst eru eyrnaleppar heklaðir fram og til baka, síðan er húfan hekluð í hring.

EYRNALEPPUR:
Heklið 5 loftlykkjur með heklunál 4,5 með litnum ljós bleikur.
Heklið 1 hálfan stuðul í 3. loftlykkju frá heklunálinni, 1 hálfan stuðul í 2 næstu loftlykkjur = 4 hálfir stuðlar, snúið stykkinu.
LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR-1. Heklið 1 hálfan stuðul JAFNFRAMT er aukið út um 1 hálfan stuðul í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING!
Endurtakið útaukningu í hvorri hlið í hverri umferð alls 6-7 (8) sinnum = 16-18 (20) hálfir stuðlar.
Haldið áfram með hálfa stuðla og endið þegar eyrnaleppurinn mælist 6-7 (8) cm.
Geymið stykkið og heklið hinn eyrnaleppinn á sama hátt.

HÚFA:
LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR-2! Heklið 7-8 (9) loftlykkjur, heklið hálfa stuðla yfir annan eyrnaleppinn, heklið 18-20 (22) loftlykkjur (= miðja að framan), heklið hálfa stuðla yfir hinn eyrnaleppinn, heklið 7-8 (9) loftlykkjur og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju = 64-72 (80) hálfir stuðlar. Haldið áfram með hálfa stuðla hringinn. Þegar stykkið mælist 8-10 (11) cm frá kanti við miðju að aftan er næsta umferð hekluð með úrtöku þannig: * 1 hálfur stuðull í hvern af fyrstu 6 lykkjum, heklið síðan næstu 2 hálfa stuðla saman – sjá útskýringu að ofan *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn (nú hefur fækkað um 8-9-10 hálfa stuðla í umferð). Heklið 1 umferð án úrtöku og síðan næstu umferð þannig: * 1 hálfur stuðull í hverja af fyrstu 5 lykkjum, heklið síðan næstu 2 hálfa stuðla saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð (með 1 hálfum stuðli færri á milli úrtöku í hvert skipti sem lykkjum er fækkað) 3 sinnum til viðbótar = 24-27 (30) hálfir stuðlar í umferð. Heklið 2-2 (3) umferðir án þess að fækka lykkjum. Næsta umferð er hekluð þannig: * 1 hálfur stuðull í fyrstu lykkju, síðan eru næstu 2 hálfu stuðlarnir heklaðir saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 16-18 (20) hálfir stuðlar. Í næstu umferð eru allir hálfu stuðlarnir heklaðir saman 2 og 2 = 8-9 (10) hálfir stuðlar til baka í umferð. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkjurnar og herðið að, húfan mælist ca 17-19 (21) cm ofan frá topp og niður.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið með heklunál 4,5 með litnum natur í kringum opið á húfunni þannig: * 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 lykkju/umferð *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju.

SNÚRA MEÐ DÚSK:
Byrjið á dúsknum: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 4,5 og litnum natur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. ATH: 1. fastalykkja í byrjun á umferð er skipt út fyrir 1 loftlykkju og hver umferð endar með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar.
UMFERÐ 1: Heklið 4 fastalykkjur um hringinn.
UMFERÐ 2: Heklið 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 8 fastalykkjur.
UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í fyrstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 12 fastalykkjur.
UMFERÐ 4-5: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur.
UMFERÐ 6: * 1 fastalykkja í fyrstu fastalykkju, heklið síðan 2 næstu fastalykkjur saman – sjá útskýringu að ofan *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 8 fastalykkjur.
UMFERÐ 7: Leggið dúskinn flatan og heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju í gegnum bæði lögin = 4 fastalykkjur.
UMFERÐ 8: Heklið fastalykkjurnar saman 2 og 2 = 2 fastalykkju.
Heklið 22-26 (30) cm með loftlykkjum fyrir snúru og festið með 1 keðjulykkju neðst mitt á öðrum eyrnaleppnum. Endurtakið í hinni hliðinni.

KANTUR:
Heklið ca 7 umferðir með kanti í kringum húfuna. Byrjið á umferð 2 ofan frá toppi á húfu og heklið 1. umferð þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í 1. loftlykkju, hoppið yfir ca 1,5 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn á toppnum á húfunni og endið með keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. Klippið frá og festið enda. Heklið síðan 6 umferðir til viðbótar (eða að óskuðu máli) alveg eins með ca 2-2½ cm á milli hverra umferða.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 20-19

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Elena wrote:

Bonjour Merci pour les corrections précédentes. toujours pour le bonnet taille 2/4 il est marqué de "Répéter ces diminutions (avec 1 dB en moins entre 2 dB fermées ens à chaque tour de diminutions) encore 3 fois tous les 3 tours = 24-27 (30) dB. " or si l'on veut respecter la taille finale il faudrait faire ces diminutions tous les tours, et non tous les 3 tours ? Car le résultat donne un bonnet très pointu, très différent de la photo. D'avance merci.

13.09.2015 - 18:57

DROPS Design answered:

Bonjour Elena, on aura bien les 21 cm de hauteur totale en commençant les diminutions à 11 cm + 17 tour avec dim (y compris les tours sans diminutions). Si vous souhaitez un bonnet plus arrondi, vous pouvez volontiers modifier la hauteur et les diminutions. Bon crochet!

14.09.2015 - 09:46

country flag Elena wrote:

Bonjour, je suis en train de crocheter le cache oreille en taille 2/4 ans. je suis arrivée à 20 dB mais comme il s'agit du 16eme rang, la hauteur totale mesure beaucoup plus de 8 cm. (logique par rapport à l'échantillon). Faut il faire 8 cm de hauteur totale ou 8 cm de 20 dB à partir de la fin des augmentations? d'avance merci.

10.09.2015 - 21:11

DROPS Design answered:

Bonjour Elena, on augmente tous les rangs (et pas tous les 2 rangs, correction faite), et on continue jusqu'à ce que le cache-oreille mesure 8 cm de hauteur totale. Bon crochet!

11.09.2015 - 10:23

Ghita wrote:

Pouvez-vous me dire si db veut dire double ou demi bride ? Merci

21.03.2015 - 09:11

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Ghita, 1 dB = 1 demi-bride (voir vidéo ci-dessous). Bon crochet!

21.03.2015 - 10:50

country flag Susanne wrote:

Ok, danke, das wollte ich nur bestätigt wissen - hab gerade gesehen, dass das von mir gemeinte hellrosa der Farbkarte merino EXTRA FINE angehört- aber auch das wirkt anders...danke!

01.09.2014 - 19:55

country flag Susanne Strobl wrote:

Liebes Garnstudio Team, ich bin gerade dabei mir Baby Merino Wolle von Drops zu bestellen...bin mir mit den von euch angegebenen Farbnummern nicht sicher. Beim Baby Drops gehäkelten Kleid (20-20) mit Mütze steht Farbe hellrosa Nr.16- die Nr 16 ist lt Farbkarte aber nicht hellrosa und das abgebildetet hellrosa sieht ganz anders aus. Meine Frage, welche Farbe muss ich bestellen, die der Farbe des abgebildeten Kleides entspricht? Mit lieben Grüßen, Susanne

01.09.2014 - 13:39

DROPS Design answered:

Nr. 16 ist auch in der Farbkarte hellrosa (hell rosa), wirkt aber tatsächlich anders als auf dem Modellfoto. Leider ist es so, dass die Farben nie ganz naturgetreu abgebildet werden können. Zum einen wirken die Farben von Bildschirm zu Bildschirm anders, je nach Bildschirmmarke und -einstellung, außerdem spielen auch die Lichtverhältnisse und Kameraeinstellungen beim Fotografieren eine Rolle. Etwas kräftiger als hellrosa ist die Farbe 25, rosa.

01.09.2014 - 13:59

country flag Corinda wrote:

Geweldige muts. Ik heb hem alleen een maatje kleiner gemaakt. Valt best groot

27.01.2014 - 10:51

country flag Kerstin wrote:

Hallo, Sind die 8-10(11) cm mit den Ohrenklappen oder ohne den Ohrenklappen gemeint? Manches ist doch etwas missverständlich erklärt. LG Kerstin

08.03.2013 - 22:31

DROPS Design answered:

Liebe Kerstin, ja diese Angabe hat in der deutschen Übersetzung gefehlt, ich ergänze es gleich: es wird ab der hintern Mitte gemessen, also ohne die Ohrenklappen.

11.03.2013 - 10:18

country flag Allison wrote:

Hello, Thank you for the adorable patterns- the dress is gorgeous! I have started making this hat now and am curious if the pattern has been corrected according to the mistakes found by previous posters. Thank you!

10.02.2013 - 18:27

country flag Camilla wrote:

Som sagt som de övriga redan påpekat är det fel i mönstret. Sista delen på mössan när den skall minskas när man har virkat 8-10 (11)cm, så skall varje varv minskas med i mitt fall 9 halvst. Detta görs genom att minska antalet halvst innan man virkar ihop två hst dvs Varv 1 6 halvst virka ihop två osv repetera varvet ut. Varv 2 bara halvst. Varv 3 5 halvst virka ihop två repetera varvet ut Varv 4 endast halvst. Varv 5 4 halvst virka ihop två osv i totalt tio varv. Då blir det rätt. :)

25.04.2012 - 14:43

DROPS Design answered:

Det stämmer, du har en m mindre mellan minskn för varje gång du minskat på ett varv. Vi ska se över så det kan förklaras tydligare, tack för hjälpen.

01.05.2012 - 00:23

country flag Melanie Kargl-kasper wrote:

Hallo, muss es unbedingt eine drops-häkelnadel sein oder geht auch eine andere in derselben stärke?? mfg, melanie

15.04.2012 - 21:05

DROPS Design answered:

Sie können auch eine andere Nadel benutzen. Wichtig ist die Maschenprobe.

18.04.2012 - 10:16