DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2958.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS Extra 0-721
DROPS Design: Mynstur nr NE-040
Garnflokkur C
--------------------------------------------------------

Hæð: ca 35 cm.

GARN:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
50 gr litur nr 8903, svartur
50 gr litur nr 0206, ljós beige
50 gr litur nr 3608, rauður
50 gr litur nr 1101, hvítur
50 gr litur nr 0517, milligrár
50 gr litur nr 0500, ljós grár

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 3,5.

HEKLFESTA:
18 stuðlar á breidd verði 10 cm.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

DROPS TÖLUR:
DROPS TRÉTALA NR 503, 2 stykki.

FYLIGHLUTIR: Vatt til fyllingar.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2958.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN:
Heklið 2 stuðla í 1 stuðul þannig: Heklið 1 stuðul en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið síðan næsta stuðul en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni.

LYKKJULYKKJUR:
Heklið frá röngu.
Leggið þráðinn í lykkju utan um vinstri vísifingur. Stingið inn heklunálinni í fastalykkju frá fyrri umferð eins og venjuleg fastalykkju, en dragið báða þræðina í gegn = 3 lykkjur á heklunálinni. Sleppið lykkjunni af fingri. Bregðið þræðinum á ný um heklunálina og dragið í gegnum allar lykkjur á heklunálinni.

LITIR Á JÓLASVEINI:
Fætur: 7 umferðir með litnum svartur, 16 umferðir með litnum ljós beige.
Hendur: 4 umferðir með litnum ljós beige, * 1 umferð með litnum milligrár, 1 umferð með litnum ljós grár *, endurtakið frá *-* að loka máli.
Buxur: Litur rauður.
Búkur: * 1 umferð með litnum milligrár, 1 umferð með litnum grár *, endurtakið frá *-* að loka máli.
Höfuð: 3 umferðir í litnum ljós beige, 3 umferðir í litnum hvítur, 6 umferðir í litnum ljós beige.
Axlabönd + efri hluti á buxum + húfa: Litur rauður.
Hár: Litur hvítur.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

JÓLASVEINN - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Lesið útskýringu á litum að ofan.
Það eru heklaðir 2 fætur, 2 hendur, buxur, búkur, höfuð, húfa, axlabönd.

FÓTUR:
Heklið 4 loftlykkjur og formið í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju.
UMFERÐ 1: Heklið 6 fastalykkjur um hringinn. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju.
UMFERÐ 2: 1 loftlykkja, * 1 fastalykkja, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* (= 9 fastalykkjur hringinn). Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.
UMFERÐ 3-21: 1 loftlykkja, 9 fastalykkjur, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.
UMFERÐ 22: 1 loftlykkja, 4 fastalykkjur, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju, 3 fastalykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju (= 11 fastalykkjur hringinn). Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.
UMFERÐ 23: 1 loftlykkja, heklið 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 22 fastalykkjur. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Klippið þráðinn og festið.

Heklið annað fót á sama hátt en ekki klippa þráðinn frá í lokinn. Þráðurinn er notaður til að hekla fæturna saman. Fyllið fæturna með vatti.

HENDI:
Heklið umferð 1-21 á sama hátt og á fæti, síðan í næstu umferð er fækkað um 1 fastalykkju með því að hoppa yfir 1 lykkju (= 8 fastalykkjur í umferð). Klippið þráðinn og festið.

Heklið aðra hendi á sama hátt og fyllið hendurnar með vatti.

SKÁLM:
Heklið 16 loftlykkjur og tengið í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.
UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju.
UMFERÐ 2-4: 3 loftlykkjur, 1 stuðull í hverja lykkju. Endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar.
UMFERÐ 5: 3 loftlykkjur, 2 stuðlar í fyrstu lykkju, 1 stuðull í hverja lykkju umferðina hringinn og endið með 2 stuðla í síðustu lykkju og 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar = 18 stuðlar.
UMFERÐ 6: 3 loftlykkjur, 2 stuðlar í fyrstu lykkju, 2 stuðlar í næstu lykkju, 1 stuðull í hverja lykkju þar til 2 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur í hvora af síðustu 2 lykkjum og 1 keðjulykkja í 3. loftlykkju í byrjun umferðar = 22 stuðlar. Klippið þráðinn.
Heklið aðra skálm á sama hátt en ekki klippa þráðinn frá, þráðurinn er notaður síðar til að hekla skálmarnar saman.

BUXUR:
Setjið sitt hvorn fótinn í sitt hvora skálmina.
Heklið 3 loftlykkjur með þráðinn frá annarri skálminni.
UMFERÐ 1: Nú er fóturinn festur við buxurnar með því að hekla bæði í gegnum buxurnar og fótinn. Heklið 1 umferð með stuðlum í kringum annan fótinn og síðan í kringum hinn fótinn og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar.
UMFERÐ 2: 3 loftlykkjur, 1 umferð með stuðlum jafnframt því sem í 4. hverjum stuðli er lykkjum fækkað með því að hekla saman 3. og 4. hvern stuðul – lesið STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN í útskýringu að ofan = 33 stuðlar í umferð. Endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar.
UMFERÐ 3: 3 loftlykkjur, 1 umferð með stuðlum jafnframt því sem fækkað er um 3. hvern stuðul með því að hekla annan hvern stuðul og 3. hvern stuðul saman = 22 stuðlar.
Endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar.

BÚKUR:
Umferðin byrjar mitt að aftan.
UMFERÐ 1: Heklað er í gegnum alla lykkjuna á 6 fyrstu lykkjum, einungis í gegnum innsta lykkjubogann á næstu 10 lykkjum og aftur í gegnum alla lykkjuna á síðustu 6 lykkjum – JAFNFRAMT eru heklaðar 2 fastalykkjur í annan hvern stuðul = 33 fastalykkjur.
UMFERÐ 2-10: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hverja lykkju, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.
UMFERÐ 11: 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 fastalykkju, heklið 1 fastalykkju, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 11 fastalykkjum, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja í næstu lykkju, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja næstu lykkju, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 11 fastalykkjum, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja í næstu lykkju, hoppið yfir 1 fastalykkju og festið með 1 keðjulykkju í fastalykkju frá byrjun umferðar = 26 fastalykkjur.
UMFERÐ 12: 1 loftlykkja, heklið 1 fastalykkju, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 8 fastalykkjum, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja í næstu lykkju, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja í næstu lykkju, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja í hverja af 8 næstu fastalykkjum, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja í næstu lykkju, hoppið yfir 1 fastalykkju og festið með 1 keðjulykkju í byrjun umferðar = 20 fastalykkjur.
UMFERÐ 13: Nú eru hendurnar festar á búkinn þannig: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, leggið hendina tvöfalda ofan á búkinn, heklið 4 fastalykkjur í gegnum bæði hendi og búk, síðan er hekluð 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum (= framan), síðan er hin hendin fest á sama hátt eins og fyrri ermi, heklið 1 fastalykkja í hverja af síðustu 4 fastalykkjur, endið með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju.
UMFERÐ 14: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hverja lykkju, hoppið yfir 5. fastalykkjur og endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar = 16 fastalykkjur.
UMFERÐ 15: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hverja lykkju, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.

HÖFUÐ:
UMFERÐ 1: 1 loftlykkja, 16 fastalykkjur hringinn, endið með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju.
UMFERÐ 2: 1 loftlykkja, * 1 fastalykkja, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.
UMFERÐ 3: 1 loftlykkja, * 2 fastalykkjur, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 30 fastalykkjur, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.
Snúið stykkinu. Næsta umferð er hekluð frá röngu.
UMFERÐ 4: 1 loftlykkja, 1 LYKKJULYKKJA – lesið útskýringu að ofan – í hverja lykkju, endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar.
UMFERÐ 5: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hverja lykkju, endið með 1 keðjulykkju í loftlykkjur í byrjun umferðar.
UMFERÐ 6: 1 loftlykkja, 1 lykkjulykkja í hverja lykkju, endið með 1 keðjulykkju í byrjun umferðar.
Snúið stykkinu. Heklið síðan aftur frá réttu.
UMFERÐ 7: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hverja af næstu 16 lykkjum, í næstu lykkju er heklað nef (1 fastalykkja, 3 loftlykkjur, 1 stuðull í 1. af 3 loftlykkjum, 1 fastalykkja), 1 fastalykkja í hverja lykkju út umferðina og 1 keðjulykkja í byrjun umferðar.
UMFERÐ 8: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hverja lykkju (ATH! Yfir nefið er hekluð 1 fastalykkja á milli 2 fastalykkja) og endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar.
UMFERÐ 9: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju JAFNFRAMT er hoppað yfir 5. hverja fastalykkju = 24 fastalykkjur og endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar.
UMFERÐ 10: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju og endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar.
UMFERÐ 11: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju JAFNFRAMT er hoppað yfir 4. hverja fastalykkju = 18 fastalykkjur og endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar.
UMFERÐ 12: 1 loftlykkjka, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju og endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar.
Klippið frá og festið þráðinn. Fylli jólasveininn með vatti.

HÚFA:
Heklið 26 loftlykkjur og tengið saman í hring með 1 keðjulykku í 1. loftlykkju.
UMFERÐ 1: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hverja loftlykkju og endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar = 26 fastalykkjur.
UMFERÐ 2: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, hoppið yfir 1 fastalykkju, *1 fastalykkja í hverja af næstu 3 fastalykkjum, hoppið yfir 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* og endið með 1 fastalykkju og 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar = 20 fastalykkjur.
UMFERÐ 3: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju og endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar.
UMFERÐ 4: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju JAFNFRAMT er hoppað yfir 2 fastalykkjur jafnt yfir og endið með 1 keðjulykkjur í loftlykkju í byrjun umferðar = 18 fastalykkjur.

Nú er höfuðið og húfan heklað saman með því að hekla í gegnum bæði höfuð og húfu.
UMFERÐ 5-7: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju og endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar.
UMFERÐ 8: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju JAFNFRAMT er hoppað yfir 6. hverja umferð og endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar = 15 fastalykkjur.
UMFERÐ 9-11: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju og endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar.
UMFERÐ 12: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju JAFNFRAMT er hoppað yfir 5. hverja fastalykkju og endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar = 12 fastalykkjur.
UMFERÐ 13-14: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju og endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar.
UMFERÐ 15: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju JAFNFRAMT er hoppað yfir 3. hverja fastalykkju og endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar = 8 fastalykkjur.
UMFERÐ 16-17: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju og endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar.
UMFERÐ 18: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju JAFNFRAMT er hoppað yfir aðra hverja fastalykkju og endið með 1 keðjulykkju í byrjun umferðar = 4 fastalykkjur.
UMFERÐ 19: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju og endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar. Klippið þráðinn, þráðurinn er notaður þegar sauma niður hárið.

EFRI HLUTI Á BUXUM:
Heklið 1 fastalykkju í hverja af 10 lykkjum mitt að framan (heklið í ystu lykkjuboganan) þar sem áður var einungis heklað í innri lykkjubogann.
* Snúið stykkinu. Heklið 3 loftlykkjur, heklið síðan 1 stuðul í hverja lykkju *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum. Klippið þráðinn og festið.

AXLABAND:
Heklið 28 loftlykkjur með heklunál 3,5 með litnum rauður. Snúið stykkinu. Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni. Heklið síðan 1 stuðul í hverja loftlykkju. Klippið þráðinn og festið.
Heklið annað axlaband á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Gerið hárbrúsk með litnum hvítur ca 2,5 cm að þvermáli. Festið efst á húfuna.
Notið þráð með litnum svartur til að sauma út augu.

Saumið axlaböndin aftan á bakið og leggið axlaböndin í kross yfir axlirnar að framan og á efra stykki á buxum. Saumið 1 tölu í hvora hlið í gegnum bæði efra stykkið á buxum og axlaböndin. Festið þráðinn vel.
Klippið upp lykkjulykkjurnar.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-721

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (5)

country flag Anna wrote:

Translate in polish pls

26.05.2021 - 13:41

DROPS Design answered:

Nie ma sprawy. W tym tygodniu będzie gotów. Pozdrawiamy!

26.05.2021 - 23:24

country flag Irene Müller wrote:

Beim Häkeln der Hose komme ich nicht weiter. Die Hosenbeine habe ich gehäkelt. In der Anleitung steht nur etwas von der Verbindung des Beins zum Hosenbein für ein Bein. Wie wird das eine Hose und wie kommt die an den Körper? Ich bin ratlos!\r\nIrene Müller

27.10.2018 - 09:08

DROPS Design answered:

Liebe Frau Müller, Bei der 1. Runde häkeln Sie 1 Stb in jeder Masche von beiden Hosenbeinen = es sind 44 Stb, mit 1 Kettm in die 3. Lm der Runde abschliessen. Bei der 2. und 3. Reihe werden Sie abnehmen = 22 Stb wenn die Hose fertig ist. Viel Spaß beim häkeln!

29.10.2018 - 09:37

country flag Birgit Werth wrote:

Hallo, fehlt bei dem Nikolaus die Beschreibung wie der Bart gefertigt wird, oder habe ich etwas übersehen. Ich finde den Nikolaus richtig süß. Wünsche allen eine schönes Weihnachtszeit und ich bin immer wieder von den Anleitungen begeistert! Vielen Dank und ganz liebe Grüße

03.12.2014 - 19:06

DROPS Design answered:

Die Beschreibung des Bartes steckt in den Schlaufenmaschen - diese bilden den Bart, sie werden am Ende aufgeschnitten. Sie müssen beim Kopf dafür die Farbabfolge (wie unter FARBEN über der eigentlichen Anleitung beschrieben) beachten - die ersten 3 R mit hellbeige mix, dann die 4.-6. R mit weiß, wobei die 4. und die 6. R mit Schlaufen-M gehäkelt werden und den Bart bilden, die letzten 6 R des Kopfes dann wieder mit hellbeige mix. Viel Spaß mit dem Nikolaus!

03.12.2014 - 21:55

country flag Goossens Martine wrote:

Heel correcte beschrijving! Het resultaat is gewoon prachtig. Bedankt voor dit patroontje.

09.11.2014 - 13:26

country flag Stefanie Engelhardt wrote:

Ich finde die Anleitung ziemlich kompliziert. Habe Teile nicht verstanden und improvisiert. Hat aber geklappt ;)

09.11.2013 - 13:10