DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS SS24

Heart's Desire

Prjónað teppi úr DROPS Delight og DROPS Alpaca með ferningum með fjölbreytilegri áferð.

DROPS 124-20
DROPS Design: Mynstur nr DE-036
--------------------------------------------------------

Mál: Ca 106 cm x 132 cm.

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
500 gr litur nr 02, plóma/beige/fjólublár

Og einnig:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
250 gr litur nr 3800, bleikur
150 gr litur nr 0618, ljós beige
150 gr litur nr 6736, bláfjólublár

DROPS PRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) nr 6 – eða þá stærð sem þarf til að 16 l og 24 umf með mismunandi mynstrum og einum þræði af hvorri tegund verði 10 x 10 cm. Hver ferningur á að vera ca 23 cm á breidd og 24 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LITASKIPTI:
Til þess að litaskiptin með Delight verði falleg þegar byrjað er á nýjum þræði verður að finna dokku sem byrjar á þeim lit sem síðast var prjónað með.

LITIR Á FERNINGUM:
A = Delight + bláfjólublár Alpaca
B = Delight + ljós beige Alpaca
C = Delight + bleikur Alpaca
Sjá teikningu 1 hvernig ferningarnir eru prjónaðir í tengingu við hvern annan.

MYNSTUR:
Prjónið 4 mismunandi mynstur á ferningunum – sjá útskýringu að neðan.

MYNSTUR M.1:
Prjónið 5 l slétt yfir allar l (umf 1= rétta).
Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig:
Prjónið 3 l sl, 3 l br, 2 l sl, 4 l br, 2 l sl, 3 l br, 3 l sl, 3 l br, 2 l sl, 4 l br, 2 l sl, 3 l br og 3 l sl. Í næstu umf er aukið út um 16 l þannig: * 3 l sl, prjónið 2 l sl í hverja af næstu 3 l, 2 l sl, prjónið 2 l sl í næstu l, 2 l sl, prjónið 2 l sl í næstu l, 2 l sl, prjónið 2 l sl í hverja af næstu 3 l *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, endið á 3 l sl = 53 l.
Haldið áfram með mynstur M.1 og með 3 l garðaprjón í hvorri hlið (umf 1 = ranga). Í fyrstu umf á eftir M.1 er fækkað um 16 l þannig: * Prjónið 3 l sl, 2 l slétt saman, 2 l slétt saman, 2 l slétt saman, 2 l sl, 2 l slétt saman, 2 l sl, 2 l slétt saman, 2 l sl, 2 l slétt saman, 2 l slétt saman, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar með 3 l sl = 37 l. Prjónið 3 l slétt umf.

M.2, M.3 og M.4:
Prjónið 4 umferðir slétt yfir allar lykkjur. Haldið áfram með M.2, M.3 eða M.4 með 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið (umferð 1 = rétta). Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka eru prjónaðar 4 umferðir slétt yfir allar lykkjur.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í 4 lengjum sem síðan eru saumaðar saman í lokin.
Hver lengja samanstendur af 5 ferningum, ferningarnir eru prjónaðir með 4 mismunandi áferðum og með 3 mismunandi litasamsetningum – sjá útskýringu að ofan á MYNSTUR og LITIR Á FERNINGUM. Lesið LITASKIPTI að ofan.

LENGJA 1:
Fitjið upp 37 l með 1 þræði af Delight + 1 þræði af litnum bláfjólublár Alpaca. Prjónið M.1 eftir útskýringu að ofan. Skiptið Alpaca þræðinum út fyrir litinn ljós beige, prjónið M.2 eftir útskýringu að ofan. Skiptið Alpaca þræðinum út fyrir litinn bleikur, prjónið M.3 eftir útskýringu að ofan. Skiptið Alpaca þræðinum út fyrir litinn bláfjólublár, prjónið M.4 eftir útskýringu að ofan. Skiptið Alpaca þræðinum út fyrir litinn ljós beige, prjónið M.1 eftir útskýringu að ofan. Setjið lykkjur á þráð og geymið stykkið.

LENGJA 2:
Prjónið á sama hátt og lengja 1, nema með mynstur og litaskipti eins og útskýrt er í mynsturteikningu 1 – þ.e.a.s. byrjið með litinn bleikur Alpaca og M.2.

LENGJA 3:
Prjónið á sama hátt og lengja 1, nema með mynstur og litaskipti eins og útskýrt er í mynsturteikningu 1 – þ.e.a.s. byrjið með litinn beige Alpaca og M.3.

LENGJA 4:
Prjónið á sama hátt og lengja 1, nema með mynstur og litaskipti eins og útskýrt er í mynsturteikningu 1 – þ.e.a.s. byrjið með litinn bláfjólublár Alpaca og M.4.

FRÁGANGUR:
Saumið saman lengjurnar kant í kant með Delight og 1 spori í aðra hverja umf.

KANTUR:
Prjónið nú kant út frá hvorri hlið á teppinu sem að lokum er saumaður saman á hornum.
Kantarnir eru prjónaðir í garðaprjóni fram og til baka á hringprjón nr 6 með Delight + litinn bleikur Alpaca.
SKAMMHLIÐ EFST:
Setjið allar lykkjur af þræði efst frá hverri lengju á hringprjón nr 6 = 148 l. Prjónið garðaprjón fram og til baka – byrjið frá röngu – JAFNFRAMT í umf 2 er aukið út um 1 l í hvorri hlið fyrir horn með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við síðustu l – í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn til þess að koma í veg fyrir göt (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan). Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf þar til prjónaðar hafa verið 20 umf í garðaprjóni. Í næstu umf frá réttu er fellt laust af.
SKAMMHLIÐ NEÐST:
Prjónið upp frá réttu 1 l í hverja l frá uppfitjunarkanti á öllum lengjum = 148 l. Prjónið nú alveg eins og SKAMMHLIÐ EFST – sjá útskýringu að ofan.
LANGHLIÐ:
Prjónið upp frá réttu 1 l yst í annarri hverri umf meðfram annarri langhliðinni = 150 l. Prjónið 1 umf slétt til baka JAFNFRAMT er aukið út um 30 l jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn í 5. hverri l – í umf til baka er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til þess að koma í veg fyrir göt. Prjónið síðan eins og skammhliðar með sömu útaukningu á báðum endum fyrir horn.
Endurtakið á sama hátt í hinni langhliðinni.

FRÁGANGUR:
Saumið saman hornin, kant í kant með einu spori í annarri hverri umf.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 l slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir

symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi hana slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir, sláið 1 sinni uppá prjóninn
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 124-20

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (139)

country flag Caroline Andersson wrote:

Hej! På mönster M4 på 9e raden känns det inte som att mönstret stämmer. Jag ska ha 37 maskor totalt, varav 3+3 är räta på varje sida. Då återstår 31 maskor till mönstret, men stickar jag rad 9 som den är skriven behöver jag 32 maskor. Hur ska jag göra så att det blir rätt?

06.03.2024 - 21:19

DROPS Design answered:

Hei Caroline. Det skal stemme med 31 masker (+3+3). M.4 består av 31 masker og på rad 9 minsker det med 6 masker og det lages 6 kast. Sjekk om du har misforstått de 2 midterste diagramikonene ( 1 omslag, lyft 1 m som om den skulle stickas rät, 2 rm ihop, lyft den lösa m över, 1 omslag). mvh DROPS Design

11.03.2024 - 11:38

country flag Katrin wrote:

Kas seda tekki kootakse kahekordse lõngaga: delight 02+alpaca?

30.11.2022 - 20:47

DROPS Design answered:

Tere Katrin! Jah, tekk kootakse 2 lõngaga (mõlemast sordist 1), värvid on antud värvikombinatsioonide all. Head kudumist!

15.12.2022 - 22:40

country flag ISABELLE CLOUTIER wrote:

Bonjour, j'aimerais savoir si les 5 premiers rangs se tricottent en point mousse ou bien en jersey. Merci de m'aider.

07.10.2022 - 20:50

country flag ISABELLE CLOUTIER wrote:

Les 5 premiers rangs se tricote en point mousse ou bien en jersey?

07.10.2022 - 20:49

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Cloutier, vous devez tricoter 5 rangs à l'endroit, autrement dit, vous allez tricoter au point mousse. Bon tricot!

10.10.2022 - 08:19

country flag Jeanet wrote:

Ik wil deze deken graag maken met drops delight kleur 18 (herfstbos), welke andere drops alpaca kleuren kan ik hierbij gebruiken (en hoeveel bollen)?

06.10.2022 - 22:00

DROPS Design answered:

Dag Jeanet,

Hiervoor kun je het beste even bij een verkooppunt langs gaan, zodat je de bollen kunt bekijken. Of je bestelt extra bollen en retourneert de kleuren die je niet mooi vindt. Het is natuurlijk ook een kwestie van smaak :)

08.10.2022 - 16:34

country flag Wenche Sørgård wrote:

Når man strikker den avsluttende kanten, skal de to rillene på selve mønsteret regnes med i de 10 rillene. Eller skal rillekanten på kortenden av teppet være bredere enn rillekanten på langsidene? På forhånd takk for hjelpen!

03.08.2022 - 21:48

DROPS Design answered:

Hej Wenche, du strikker alle 4 sider lige lange :)

05.08.2022 - 15:15

country flag Mariana Danz wrote:

Me encantan sus patrones me motivan a tejer sin complicaciones gracias

20.10.2021 - 16:45

country flag Hilde Kristiansen wrote:

Hei Ser det er blitt forskjellig innfarging på Drops Delight, men at mange butikker opererer med det «gamle» fargekartet Synd forresten at fargene er blitt med kortere sprang mellom fargetonene og de stemmer jo ikke med tidligere oppgitte farger heller. Finnes det en god forklaring til hvorfor innfargingen er blitt «ødelagt» mon tro…. Strikker pleddet Hearts Desire igjen og fargene blir ikke så fine nå som tidligere… Hilsen fortvilet

02.09.2021 - 14:33

country flag Celine wrote:

Bonjour, Je ne comprends pas bien M1. Doit -on alterner les rangs 16 augmentation puis 16 diminutions sur l’endroit et l’envers ? Si oui combien de fois ? Le carré doit mesurer combien en hauteur ? Merci

25.09.2020 - 17:41

DROPS Design answered:

Bonjour Celine, Vous tricotez d'abord 5 rangs puis 1 rang sur l'endroit en côtes, 1 rang sur l'envers en augmentant 16 m, tricotez maintenant le diagramme M.1 avec 3 m point mousse de chaque côté, tricotez ensuite 1 rang de diminutions et 3 rangs endroit. Bon tricot!

28.09.2020 - 08:00

country flag Jeanett wrote:

Hvad gør man på bagsiden med tråde fra mønster? eks.i M2 mønstret er der langt fra højre side af hjertet til venstre side - har man bare tråden 'hængende' på bagsiden?

31.08.2020 - 11:35

DROPS Design answered:

Hej Jeanett, du strikker alle masker og pinde i mønsteret ifølge diagrammet, så du vil ikke få nogle løse tråde. God fornøjelse!

02.09.2020 - 14:56