DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 447.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1341.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Woodlands

Prjónaðir sokkar fyrir dömur og herra í stroffprjóni og sléttprjóni úr DROPS Fabel. Stærð 38-46.

DROPS 135-12
DROPS Design: Mynstur nr FA-109
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------

Stærð: 38/40 - 41/43 – 44/46
Lengd fótar: 24 - 27 - 30 cm.
Hæð á sokk: 35 - 37 - 38 cm.

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
150 g í allar stærðir litur nr 542, grænn

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 l og 34 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 447.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1341.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HÆLÚRTAKA:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 6-7-7 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 6-7-7 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 5-6-6 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 5-6-6 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
Haldið áfram á sama hátt með því það fækki um 1 l áður en 1 l er steypt yfir þar til 14-14-16 l eru eftir á prjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá.

SOKKUR:
Fitjið upp 75-80-85 l á sokkaprjóna nr 2,5 með 1 þræði Fabel. Prjónið 2 umf slétt. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú stroffprjón = 2 l sl/3 l br þar til stykkið mælist 20-22-23 cm. Nú er fækkað um 1 l í hverri br einingu = 60-64-68 l. Haldið áfram með stroffprjón 2 l sl/2 l br. Þegar stykkið mælist 22-23-24 cm er prjónað áfram í sléttprjóni – JAFNFRAMT er fækkað um 6 l jafnt yfir í 1. umf = 54-58-62 l.
Prjónið þar til stykkið mælist 30-31-32 cm. Haldið eftir fyrstu 24-26-28 l á prjóni fyrir hæl, setjið síðustu 30-32-34 l á þráð (= ofan á fæti). Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 5-5½-6 cm.
Setjið prjónamerki – héðan er stykkið nú mælt! Prjónið HÆLÚRTAKA! Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 13-14-16 l hvoru megin við hæl og þær 30-32-34 l af þræði eru settar aftur á prjóninn = 70-74-82 l. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 30-32-34 l ofan á fæti. Prjónið nú sléttprjón JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið þannig: Prjónið 2 síðustu l á undan prjónamerki við 30-32-34 l á fæti snúnar sl saman (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) og prjónið 2 fyrstu l á eftir prjónamerki við 30-32-34 l á fæti slétt saman. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umf 9-9-11 sinnum = 52-56-60 l. Prjónið þar til stykkið mælist 20-22-24 cm frá prjónamerki á hæl (= 4-5-6 cm að loka máli). Nú er sett 1 prjónamerki í hvora hlið svo að það verða 26-28-30 l bæði ofan á fæti og undir fæti. Haldið svona áfram í sléttprjóni JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin þannig:
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið 2 l sl saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 2 l snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum í hvorri hlið í annarri hverri umf alls 4-7-9 sinnum og síðan í hverri umf 6-3-2 sinnum = 12-16-16 l eftir á prjóni. Í næstu umf eru allar l prjónaðar saman 2 og 2.
Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Lengd á sokk er ca 24-27-30 cm.

Prjónið annan sokk á sama hátt.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 135-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag Eva Flataunet wrote:

Hur långt ska jag sticka innan hoptagning för tår på herrsockor i storlek 48

19.07.2022 - 06:33

DROPS Design answered:

Hej Eva, du behöver 6 cm till hoptagningen för tår :)

03.08.2022 - 15:10

country flag Sharon wrote:

Jag har börjat det här mönstret flera gånger men har varit tvungen att börja om flera gånger. Jag tycker det blir för svårt för mig att jobba med st 2,5. Har ni något förslag vad kan göra det lättare?

19.09.2021 - 23:28

DROPS Design answered:

Hej Sharon. Har du testat en annan typ av sticka? Vissa tycker att det är lättare med trä och andra med stål tex. Mvh DROPS Design

22.09.2021 - 09:47

country flag Lili wrote:

Oh, ok. Danke! Das sind meine ersten Socken - dass man Maschen wieder aufnehmen muss, wusste ich nicht. Aber jetzt ist es natürlich klar. Mal sehen wie es klappt…😊

07.08.2021 - 23:59

country flag Lili wrote:

Hallo, wenn ich 74 M anschlage, bleiben nach Abn. vor der Ferse 54 M übrig. 24 bleiben und 30 soll ich stilllegen. Dann str. ich die Ferse - da sollen dann 14 M übrig bleiben. Und dann steht in der Anleitung man soll 13 M je Seite UND die stillgelegten Maschen wieder aufnehmen sollen - dann sind es 70 M…. wieso sind es dann 70 Maschen? 13 pro Seite wären 26 (obwohl ich auch das nicht verstehe) plus die 30 M (vorher stillgelegt) = 56 M?? Wo denke ich falsch?

01.08.2021 - 14:31

DROPS Design answered:

Liebe Lili, nach der Fersenabnahmen sind es nur noch 14 Maschen übrig + 13 M an der linken Seite von Fersen aufgefassen + 30 stillgelegten Maschen gestrickt + 13 M an der linken Seite von Fersen aufgefassen = 14+13+30+13=70 Maschen. Kann das Ihnen helfen? Viel Spaß beim stricken!

02.08.2021 - 08:12

country flag Sofia wrote:

Hej! Jag har gjort en provstickning för att mäta stickfastheten och får endast 25m på 10 cm. Skulle ni rekommendera att jag skaffar mindre stickor än 2,5? Och isåfall vilket nummer?

12.01.2021 - 21:19

DROPS Design answered:

Hej Sofia. Ja då kan du testa att gå ner till 2,0 för att se om du får det att stämma då. Mvh DROPS Design

14.01.2021 - 10:35

country flag Maddalena wrote:

Buongiorno, ho realizzato questo modello due volte e trovo che riesce molto meglio se invece di lavorare insieme nel filo dietro le ultime 2 m. prima delle 30-32-34 m. della parte sopra del piede e lavorare insieme a dir. le prime 2 m. dopo le 30-32-34 m. della parte sopra del piede si fa il contrario ossia lavorare insieme a dir. le ultime 2 m. prima delle 30-32-34 m. della parte sopra del piede e lavorare insieme nel filo dietro le prime 2 m. dopo le 30-32-34 m. della parte sopra del piede.

05.12.2019 - 19:17

country flag Melanie wrote:

Hallo, wie kann man ein Loch zwischen Ferse und Oberfuß vermeiden ? Eine Bekannte meinte, indem man aus dem Querfaden zwischen Oberfuß und Ferse auf jeder Seite 1 Masche rechts verschränkt herausstrickt. Ich sehe dabei trotzdem noch immer ein Löchlein, obwohl ich sonst sehr ordentlich stricke. Gibt es noch einen Tipp ? Liebe Grüße Melanie

21.10.2015 - 15:18

DROPS Design answered:

Winzige Löchlein werden Sie nicht vermeiden können, das liegt in der Natur des Strickens. Ziehen Sie nach dem Stricken an der Stelle ein wenig am Faden der betreffenden Masche, dann können Sie das Loch noch etwas kleiner machen. Weitere Tipps zur Vermeidung von Löchern als die Ihnen bereits bekannten haben wir hier auch nicht.

30.10.2015 - 10:04

country flag Valentina wrote:

Valid pattern! I use Needles n°3 and 100 g of yarn to make a pair of n°43 socks medium tall.

21.01.2015 - 22:45

country flag Paivi Pylvalainen wrote:

Hei, lankamenekissä virhe. Pienimpään kokoon riittää 100 g. lankaa reilusti.

21.12.2013 - 12:46

country flag Lisa wrote:

Hallo, man soll ja nach dem Stricken der Ferse einen Markierungsfaden einziehen um die Arbeit von dort messen zu können. Wenn ich den Strumpf nun glatt vor mich lege um zu messen, weiß ich nicht, welche Stelle genau gemeint ist. Soll der Markierungsfaden in der Mitte des Fersenstücks angebracht sein (was dem genauen Ende der Socke vor mir liegend entspräche) oder von der äußeren Kante (wodurch die Länge ca. 2 cm kürzer würde)? Ich hoffe, die Frage ist verständlich...

10.08.2013 - 09:32

DROPS Design answered:

Liebe Lisa, bringen Sie die Markierung in der Mitte der Ferse an, so können Sie später die Gesamtlänge messen.

10.08.2013 - 14:16