DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
DROPS Cotton Viscose
DROPS Cotton Viscose
54% Bómull, 46% Viscose
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Avalon

Prjónuð peysa úr DROPS Kid-Silk með víðu stroffi á ermum og umferðum af DROPS Cotton Viscose eða DROPS Safran. Stærð XXXL.

DROPS 113-13
DROPS design: Mynstur nr KS-023
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

Stærð: S-M-L-XL-XXL-XXXL

Efni:
DROPS KID-SILK
100-100-125-125-150-150 g nr 04, bleikur
og notið:
DROPS COTTON VISCOSE frá Garnstudio
50-50-50-50-50-50 g nr 27, ljós bleikur/fjólublár
Eða:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio
50-50-50-50-50-50 g nr 01, ljós bleikur

DROPS PRJÓNAR NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 16 lykkjur og 22 umferðir með sléttprjóni með Kid-Silk verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – fyrir snúru í mitti

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
DROPS Cotton Viscose
DROPS Cotton Viscose
54% Bómull, 46% Viscose
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

LEIÐBEININGAR:
Byrjið alltaf í nýrri dokku í hlið á stykki þannig að gengið sé frá þráðum á hliðasaumum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka. Lesið LEIÐBEININGAR!

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 86-92-98-106-114-122 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 6 með Kid-Silk. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – og haldið síðan áfram í sléttprjóni.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist ca 16-17-18-19-20-21 cm (passið uppá að næsta umferð sé frá réttu) skiptið yfir í Cotton Viscose eða Safran. Prjónið 1 umferð slétt – JAFNFRAMT er fækkað um 12 lykkjur jafnt yfir = 74-80-86-94-102-110 lykkjur. Prjónið 3 umferðir slétt. Skiptið yfir í Kid-Silk, prjónið 1 umferð slétt frá réttu, næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja, * 2 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* og endið með 1 kantlykkju. Skiptið yfir í Cotton Viscose eða Safran, prjónið 4 umferðir slétt. Prjónið síðan til loka í sléttprjóni og Kid-Silk. Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm fellið af lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg. Fellið af í byrjun hverrar umferðar: 4 lykkjur 1-1-1-2-2-2 sinnum, 2 lykkjur 1-2-3-2-3-4 sinnum og 1 lykkja 2-2-2-3-4-5 sinnum = 58-60-62-64-66-68 lykkjur eftir á prjóni. Þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm setjið miðju 12-12-14-14-16-16 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli. Hvor hlið er nú prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af í byrjun umferðar frá hálsmáli: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 3 sinnum = 16-17-17-18-18-19 lykkjur eftir á öxl. Fellið síðan af þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og framstykki. Fellið af fyrir handveg eins og á framstykki og prjónið áfram þar til stykkið mælist 53-55-57-59-61-63 cm. Fellið af miðju 24-24-26-26-28-28 lykkjur fyrir hálsmáli og prjónið til loka hvora öxl fyrir sig. Í næstu umferð er felld af 1 lykkja við hálsmáli = 16-17-17-18-18-19 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm.

STROFF:
Prjónið tvö stroff hvor fyrir sig í mismunandi lengdum. Þau eru síðan lögð saman og prjónuð saman.

STYKKI 1: Fitjið upp 80-82-84-86-88-90 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 6 með Kid-Silk. Prjónið 2 umferðir garðaprjón, haldið áfram í sléttprjóni – JANFRAMT í 5. umferð er felld af 1 lykkja í hvorri hlið. Endurtakið úrtöku í 3. hverri umferð alls 18 sinnum = 44-46-48-50-52-54 lykkjur. Haldið síðan áfram að prjóna þar til stykkið mælist 28 cm. Geymið stykkið.
STYKKI 2: Fitjið upp og prjónið eins og STYKKI 1 en nú er fellt af til skiptis í annarri hverri og 3. hverri umferð alls 18 sinum. Prjónið þar til stykkið mælist 23 cm.

ERMI:
Leggið STYKKI 2 á stroffi á STYKKI 1 (bæði stykkin með réttuna upp). Prjónið stykkin saman með Cotton Viscose eða Safran þannig: Prjónið fyrstu lykkju frá stykki 1 saman við fyrstu lykkju frá stykki 2. Prjónið síðan aðra lykkju frá stykki 1 saman við aðra lykkju frá stykki 2 o.s.frv. þar til allar lykkjur hafa verið prjónaðar = 44-46-48-50-52-54 lykkjur. Prjónið 3 umferðir slétt með Cotton Viscose eða Safran og prjónið síðan til loka í sléttprjóni og Kid-Silk.
Þegar stykkið mælist 31 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 5-4-4-3-2-2 umferðir millibili alls 6-7-7-8-9-10 sinnum = 56-60-62-66-70-74 lykkjur. Þegar stykkið mælist 47-46-45-44-43-42 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna hærri ermakúpu og breiðari axla) fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið: 4 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 5-6-7-8-9-10 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkjur á hvorri hlið þar til stykkið mælist 56 cm og fellið síðan af í lokin 3 lykkjur 1 sinni á hvorri hlið. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Stykkið mælist ca 57 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið annan axlasauminn.

HÁLSMÁL:
Takið upp ca 74 til 84 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) í kringum hálsmál á prjóna nr 6 með Kid-Silk. Prjónið 7 umferðir sléttprjón og fellið síðan LAUST af, hálsmál á að rúllast upp.
Saumið hinn axlasauminn og upp meðfram hálsmáli. Saumið ermar í og saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju – tvö lögin af stroffi á ermum eru saumuð hvort fyrir sig.

SNÚRA:
Heklið með Cotton Viscose eða Safran með heklunál nr 3,5 LAUST loftlykkjuband ca 150-160-170-180-190-200 cm, snúið og heklið 1 keðjulykkju í hverja loftlykkju til baka. Þræðið snúruna inn í gataumferð í mitti – byrjið við miðju að framan.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 113-13

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (58)

country flag Georgina Howarth wrote:

Does it really only require 100gms (4 x 25gm balls) of the kid silk for the smallest size? That is incredible.

05.02.2021 - 07:11

DROPS Design answered:

Dear Mrs Howarth, correct, but make sure your tension is right - read more about tension here. Happy knitting!

05.02.2021 - 09:01

country flag Selam wrote:

Single or double threads of kid silk?'

02.03.2020 - 17:52

DROPS Design answered:

Hi Selam, You use a single strand of Kid Silk. Happy knitting!

03.03.2020 - 09:27

Ibt wrote:

Cuffs in part two can knitted in circal neddle round shpe not flat ?

24.08.2018 - 15:37

DROPS Design answered:

Hello, Yes, you can knit them up in circular needle. Happy Knitting!

30.08.2018 - 12:37

country flag Alessandra wrote:

I have a question,,I saw on the website that this wool must be work with needles n.3,5. in the instruction you use needles n.6. Do I have to work 2 threads together?

05.03.2014 - 11:27

DROPS Design answered:

Dear Alessandra, this jumper is worked with 1 thread Kid-Silk on the basis of a gauge of 16 sts x 22 rows in stocking st = 10 x 10 cm. It is volontary worked loose. Happy knitting!

05.03.2014 - 12:02

country flag Monica wrote:

I love this a lot. I'm about to start making it but I'm not clear on joining the Part 1 with Part 2. How do you continue working up the sleeve after you join Part 1 with Part 2? Are the cuffs made of two layers? Thanks a lot.

24.02.2014 - 16:01

DROPS Design answered:

Dear Monica, bottom of sleeves are made with 2 layers, put then 2 parts together as stated, and work them together as shown in the video below. Happy knitting!

24.02.2014 - 16:14

country flag Maureen Donald wrote:

I am about to start part two of the sleeve and it says to cast on and work just like part one. It seems like casting on the same number of stitches as the wide bell of the cuff for the part near the elbow is too many stitches. Am I supposed to cast on that many stitches for part two?

09.12.2012 - 06:28

DROPS Design answered:

Dear Mrs Donald, you cast on the same nber of sts for both part of sleeve but dec another way for 2nd part and work only 23 cm. Happy knitting !

09.12.2012 - 22:09

Gabrielle wrote:

Can you please explain the meaning for part 2 cuff pattern details: "dec....on every other and 3rd row alternately...18 times" Thank you :)

12.09.2012 - 15:05

DROPS Design answered:

Dear Gabrielle, it means you will work this way *knit 1 row, inc on next row, knit 2 rows, inc on next row* repeat from *-* a total of 9 times. Happy Knitting !

12.11.2012 - 13:40

country flag Miriam Goldby wrote:

I am going to knit this in the smallest size - do I really need 100g of the kid silk? It seems rather a lot. Could I get away with 75g?

13.07.2012 - 22:50

DROPS Design answered:

Dear Mrs Goldby, material requirements looks correct. Happy knitting !

06.12.2012 - 09:16

country flag Karine wrote:

Leider komplett verfilzt beim ersten Waschen.... wo war denn eine Warnung dagegen zu lesen ? habe keine gesehen, und nicht gewusst dass Kid Silk verfilzen kann! die ganze Arbeit umsonst !!.... Attention, le lavage machine transforme ce pull en petit morceau de feutrine. A savoir avant de tricoter...

08.04.2012 - 14:40

DROPS Design answered:

Die Etikette empfiehlt das Kid-Silk mit 30 Grad von Hand gewaschen wird.

10.04.2012 - 09:22

country flag DROPS Design wrote:

Hej Marisa, Lingarnet är underbart men har en annan stickfasthet. Titta istället på de tröjor vi har i lin :-)

16.03.2010 - 10:41