DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6930.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Winter Snuggles

Prjónað sett: Prjónuð peysa með norrænu mynstri, buxur og húfa með dúsk, vettlingar, sokkar og teppi úr DROPS Alpaca. Stærð 1 mán – 4 ára.

DROPS Baby 13-5
DROPS design: Modell nr z-035-by
--------------------------------------------------------

Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 50/56- 62/68- 74/80 (86/92-98/104)

HÚFA:
Höfuðmál: ca 40/42 - 42/44 - 44/46 (46/48 - 48/50) cm.

SOKKAR:
Fótlengd: 10-11-12 (14-15) cm.


Efni í allt settið:
DROPS Alpaca frá Garnstudio
250-300-350 (400-450) gr litur nr 100, natur
100-100-100 (100-150) gr litur nr 618, beige
DROPS TRÉTALA NR 503: 8-8-8 (9-9) st

Peysa:
100-150-150 (150-200) gr litur nr 100, natur
50-50-100 (100-100) gr litur nr 618, beige
DROPS TRÉTALA NR 503: 6-6-6 (7-7) st

Buxur:
150-150-150 (200-200) gr litur nr 100, natur
50-50-50 (50-50) gr litur nr 618, beige
DROPS TRÉTALA NR 503: 2 st

Húfa:
50- 50-50 (100-100) gr litur nr 100, natur
+ afgangur lit nr 618, beige

Sokkar og vettlingar:
50-50-100 (100-100) gr litur nr 618, beige
+ afgangur lit nr 100, natur

DROPS HRINGPRJÓNAR OG SOKKAPRJÓNAR NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l x 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR OG SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6930.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

STROFF:
* 2 l sl, 2 l br *, endurtakið *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 til M.5. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

HNAPPAGAT (buxur):
Fellið af fyrir 2 hnappagötum að framan með ca 8-9-10 (11-12) cm millibili.
1 hnappagat = fellið af 2 l (fallegast er að fella af með 2 l br séð frá réttu) og fitjið upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af í næstu umf.

ÚRTAKA (buxur):
ATH: Innan við buxnaskálm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki.
Fækkið l á undan prjónamerki þannig: 2 l slétt saman.
Fækkið l á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l.

ÚRTAKA (húfa):
Fækkið l á undan prjónamerki þannig: 2 l slétt saman.
Fækkið l á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 144-160-172 (200-212) l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 2,5 með litnum natur.
Prjónið 1 umf br frá röngu. Prjónið síðan stroff með 1 kantlykkju og 2 l sl í hvorri hlið við miðju að framan (séð frá réttu). Þegar stroffið mælist 3-4-4 (5-5) cm er skipt yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið 1 umf slétt frá réttu jafnframt er l fækkað til 123-135-147 (171-183) l. Prjónið síðan 1 umf slétt frá röngu og 1 umf slétt frá réttu. Setjið 1 prjónamerki 31-34-37 (43-46) l inn frá hvorri hlið = 61-67-73 (85-91) l á milli prjónamerkja á bakstykki – látið prjónamerki fylgja með stykkinu uppúr.
Prjónið M.1 með 1 kantlykkju í hvorri hlið, prjónið síðan næstu umf þannig: 1 kantlykkja, M.2A yfir næstu 108-120-132 (156-168) l, M.2B (= 13 l) og 1 kantlykkja. Haldið svona áfram með mynstur.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Þegar stykkið mælist ca 15-17-21 (25-28) cm – passið að prjónaðar séu 2 umf með litnum natur eftir 1 umf með ”doppum” – haldið áfram með M.3 á sama hátt, þ.e.a.s. 1 kantlykkja, M.3A yfir næstu 108-120-132 (156-168) l, M.3B (= 13 l) og 1 kantlykkja. Jafnframt þegar stykkið mælist 17-18-21 (24-26) cm skiptist stykkið upp við handveg við bæði prjónamerkin og hvor hluti er nú prjónaður til loka fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 61-67-73 (85-91) l. Fitjið upp 1 nýja l í hvorri hlið (= kantlykkja fyrir saum) = 63-69-75 (87-93) l. Haldið áfram með M.3 með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 27-29-33 (37-40) cm fellið af miðju 21-23-25 (25-27) l fyrir hálsmáli. Fækkið að auki 2 l í næstu umf við háls = 19-21-23 (29-31) l eftir á hvorri öxl. Eftir M.3 er fellt af, stykkið mælist ca 28-30-34 (38-41) cm – ATH: Ef stykkið mælist styttra en þetta er haldið áfram með litnum natur til loka.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 31-34-37 (43-46) l. Fitjið upp 1 nýja l við handveg (= kantlykkja fyrir saum) = 32-35-38 (44-47) l. Haldið áfram með M.3 með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Jafnframt þegar stykkið mælist 24-26-29 (33-35) cm eru síðustu 7-8-9 (9-9) l við miðju að framan settar á þráð fyrir hálsmáli. Haldið áfram að fækka lykkjum fyrir hálsmáli í annarri hverri umf: 2 l 2 sinnum og 1 l 2-2-2 (2-3) sinnum = 19-21-23 (29-31) l eftir á öxl. Fellið af þegar prjónað hefur verið jafn langt og á bakstykki.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema gagnstætt.

ERMI:
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Fitjið upp 48-52-56 (60-64) l skipt niður á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum natur.
Prjónið 1 umf slétt, prjónið síðan stroff. Þegar stykkið mælist 5 cm er sett 1 prjónamerki í stykkið – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar stykkið mælist 5 cm er skipt yfir á sokkaprjóna nr 3. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er l fækkað til 40-42-44 (46-48) l. Prjónið 1 umf br og 1 umf sl. Prjónið síðan M.1 – stillið af við miðju, sjá ör í mynstri. Eftir M.1 er haldið áfram með M.2 (stillið af við miðju eftir ör) þar til stykkið mælist 16-17-19 (23-27) cm, prjónið síðan M.4. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 7 cm er aukið út um 2 l mitt undir ermi alls 7-8-9 (11-12) sinnum á prjóni 1/3 + 6/9 + 12/18 mán + 2 ára: í 5. hverri umf, stærð 3/4 ára: í 6. hverri umf = 54-58-62 (68-72) l – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Þegar M.4 hefur verið prjónað er fellt laust af, stykkið mælist ca 19-20-22 (26-30) cm frá prjónamerki – ATH: Ef stykkið mælist styttra en þetta er haldið áfram með litnum natur til loka.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma.

KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið upp 74-78-86 (94-102) l meðfram vinstra framstykki á prjóna nr 2,5 með litnum natur.
Prjónið 1 umf slétt frá röngu og 1 umf slétt frá réttu. Prjónið síðan stroff með 2 l garðaprjón og 2 l sl í hvorri hlið (séð frá réttu). Þegar kantur að framan mælist ca 2,5 cm fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Endurtakið meðfram hægra framstykki, þegar kantur að framan mælist ca 1 cm er fellt af fyrir 5-5-5 (6-6) hnappagötum jafnt yfir – neðsta hnappagatið er staðsett ca 1 cm frá neðri kanti og það efsta ca 4-6 cm ofan frá (einnig er fellt af fyrir einu hnappagati í kanti í hálsmáli).
1 hnappagat = fellið af 2 l (fallegast er að fella af 2 l br séð frá réttu) og fitjið upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af í næstu umf.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp ca 86-110 l – meðtaldar l af þræði að framan (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4 + 2) í kringum hálsmál og ofan við kant að framan á prjóna nr 2,5 með litnum natur.
Prjónið 1 umf slétt frá röngu og 1 umf slétt frá réttu. Prjónið síðan stroff með 2 l garðaprjóni og 2 l sl í hvorri hlið við miðju að framan (séð frá réttu). Þegar stroffið mælist ca 1 cm er fellt af fyrir 1 hnappagati yfir þau hin sem eru í hægri kanti að framan (prjónið 3. og 4. l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn). Þegar stroff mælist 3-4-4 (5-5) cm fellið af fyrir 1 hnappagati alveg eins. Þegar kantur í hálsmáli mælist 4-5-5 (6-6) cm fellið af með sl yfir sl og br yfir br.

FRÁGANGUR:
Brjótið kantinn í hálsmáli saman tvöfaldan að röngu og festið með fínu spori.
Saumið ermar í og festið tölur. Brjótið stroffið á ermum saman tvöfalda að réttu.

-------------------------------------------------------

BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring frá miðju og niður. Skálmar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

BUXUR:
Fitjið upp 160-168-176 (184-192) l á hringprjóna nr 2,5 með litnum natur – byrjun umf = miðja að aftan.
Prjónið 1 umf br, prjónið síðan stroff. Þegar stroffið mælist 2 cm er fellt af fyrir 2 hnappagötum að framan – sjá HNAPPAGAT – að ofan. Þegar stykkið mælist 4 cm er sett 1 prjónamerki fyrir miðju að framan (merkir uppábrot) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar stykkið mælist 2 cm er fellt af fyrir 2 hnappagötum að framan eins og áður (hnappagötin eiga að passa á móti hvort öðru þegar stroffið er brotið upp við prjónamerki). Þegar stroffið mælist 4 cm er skipt yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið 1 umf slétt jafnframt er l fækkað jafnt yfir til 114-120-126 (132-138) l. Prjónið 1 umf br og 1 umf sl.

UPPHÆKKUN AÐ AFTAN:
Prjónið nú M.2A jafnframt er prjónuð upphækkun að aftan þannig: Prjónið 9-10-10 (11-11) l frá byrjun umf, snúið við (til að sleppa við göt er fyrsta l tekin óprjónuð þegar prjónað er til baka og hert á þræði). Prjónið 18-20-20 (22-22) l og snúið við. Haldið svona áfram að prjóna 9-10-10 (11-11) l fleiri í hvert skipti sem snúið er við 10 sinnum til viðbótar (= 12 umf). Prjónið síðan M.2A hringinn yfir allar l.

ÚTAUKNING:
Þegar stykkið mælist 13-16-17 (18-19) cm frá prjónamerki við miðju að framan er sett 1 nýtt prjónamerki í byrjun umf og 1 prjónamerki eftir 57-60-63 (66-69) l. Aukið nú út um 1 l hvoru megin við þessi prjónamerki (= 4 l fleiri í hverri útaukningu í umferð) í 3. hverri umf alls 6 sinnum = 138-144-150 (156-162) l. Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 18-21-22 (23-24) cm.

SKÁLM:
Prjónið 69-72-75 (78-81) l með byrjun við miðju að aftan og setjið þær l sem eftir eru á þráð. Prjónið í hring (M.2A er haldið áfram eins og áður) – setjið 1 prjónamerki að innanverðu á skálm = byrjun umf. Fækkið um 1 l hvoru megin við prjónamerki – lesið ÚRTAKA að ofan: alls 13-12-11 (11-11) sinnum í stærð 1/3 mán: í 3. hverri umf, stærð 6/9 mán: í 4. hverri umf, stærð 12/18 mán: í 5. hverri umf, stærð 2 ára: í 7. hverri umf, stærð 3/4 ára: til skiptis í 8. hverri og 9. hverri umf = 43-48-53 (56-59) l. Þegar stykkið mælist ca 30-36-40 (46-52) cm – passið að prjónaðar verði minnst 2 umf með litnum natur eftir 1 umf með ”doppum” – prjónið M.1 – byrjið efst í mynstri og sjá ör sem merkir miðju umf (= ytri hlið á skálm). Eftir M.1 er skipt yfir í litinn natur og sokkaprjóna nr 2,5. Prjónið 1 umf slétt jafnframt er aukið út jafnt yfir til 68-72-76 (80-84) l. Prjónið nú stroff í 10 cm áður en fellt er laust af í stroffi.
Prjónið hina skálmina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Brettið stroffið efst á buxum niður að innanverðu á stykki. Passið uppá að hnappagötin passi yfir hvort annað. Saumið stroffið niður að innanverðu á stykki. Til að koma í veg fyrir að stroffið verði of stíft er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

AXLABÖND:
Fitjið upp 12 l á prjóna nr 2,5 með litnum natur og prjónið stroff með 1 l garðaprjón og 2 l sl í hvorri hlið (séð frá réttu). Þegar axlabandið mælist ca 34-40-48 (58-64) cm fellið af.
Prjónið annað axlaband á sama hátt.
Festið axlaböndin aftan á buxurnar (að innanverðu við stroff) með ca 8-9-10 (11-12) cm millibili. Saumið eina tölu ca 2 cm inn á annan endann á axlabandinu – axlaböndin eru sett í kross að aftan, mátið gjarna buxurnar til að fá sem besta staðsetningu á tölum.

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.

HÚFA:
Fitjið laust upp 112-116-120 (124-132) l skipt niður á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum natur.
Prjónið 1 umf br. Prjónið nú stroff með 2 l sl/2 l br.
Þegar stykkið mælist 10 cm er skipt yfir á sokkaprjóna nr 3 og haldið áfram í sléttprjóni og M.2A jafnframt sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 90-96-102 (108-114) l í 1. umf eftir stroff. Þegar stykkið mælist 17-17-18 (19-20) cm setjið 6 prjónamerki í stykkið með 15-16-17 (18-19) l á milli hverra. Haldið áfram með M.2A jafnframt sem fækkað er um 1 l hvoru megin við öll prjónamerkin – lesið ÚRTAKA - Í annarri hverri umf: 6-7-7 (6-6) sinnum og síðan í hverri umf: 0-0-0 (2-2) sinnum = 18-12-18 (12-18) l eftir á prjóni – þær l sem ekki ganga upp í mynstrið þegar l er fækkað eru prjónaðar með litnum natur. Þræðið tvöfaldan þráð í gegnum allar l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Brjótið upp neðstu 5 cm á stroffi, húfan mælist nú ca 15-16-17 (18-19) cm.

DÚSKUR:
Gerið einn dúsk með litnum natur ca 4-5 cm að þvermáli og saumið efst á húfuna.

-------------------------------------------------------

VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Þrjár stærstu stærðirnar eru prjónaðar með þumli, þær tvær minni eru án þumals. Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.

VETTLINGUR:
Fitjið upp 36-40-44 (48-52) l skipt niður á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum beige.
Prjónið 1 umf br, prjónið síðan stroff 2 l sl/2 l br. Þegar stykkið mælist 8-8-10 (10-12) cm aldið áfram með sléttprjóni jafnframt er aukið út til 38-42-46 (50-54) l í 1. umf.
Þær 3 stærstu stærðirnar: Eftir 1 (2-3) cm sléttprjón eru settar 5 (6-6) síðustu l í umf á þráð fyrir þumal. Fitjið upp 5 (6-6) nýjar lykkjur yfir þessar í næstu umf.

Allar stærðir:
Þegar stykkið mælist 10-11-12 (13-14) cm prjónið M.5 yfir miðju 13 l á hönd, aðrar l eru prjónaðar með litnum beige – munið eftir að prjóna inn löngu þráðunum þannig að fingurnir festist ekki í þeim þegar vettlingurinn er mátaður – endarnir þurfa ekki að fylgja með alla leiðina hringinn, bara fram og til baka yfir mynstur-l. Eftir M.5 er haldið áfram með litnum beige yfir allar l. Þegar stykkið mælist 15-16-18 (19-21) cm setjið 1 prjónamerki í hvora hlið. Fækkið nú um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin í hverri umf þar til 10 l eru eftir á prjóni – lesið ÚRTAKA. Þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Brjótið upp neðstu 4-4-5 (5-6) cm af stroffi, vettlingurinn mælist nú ca 13-14-16 (17-18) cm.

ÞUMALL:
Setjið til baka 5 (6-6) l af þræði á sokkaprjóna nr 2,5 og prjónið upp 7 (8-8) l í kantinn yfir þær = 12 (14-14) l. Prjónið br hringinn þar til þumallinn mælist 3 (4-5) cm. Prjónið nú allar l saman 2 og 2. Þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru og herðið að.

Prjónið annan vettling á sama hátt.

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.

SOKKUR:
Fitjið upp 44-48-48 (52-56) l jafnt yfir á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum beige.
Prjónið 1 umf sléttprjón, prjónið síðan stroff með 2 l sl/2 l br þar til stykkið mælist 4-5-5 (6-7) cm. Prjónið 1 umf sléttprjón jafnframt sem fækkað er um 4-8-4 (8-8) l jafnt yfir = 40-40-44 (44-48) l.
Prjónið nú hæl - lesið HÆLÚRTAKA - þannig: Prjónið 3- 3½ - 3½ (4- 4 ½) cm sléttprjón fram og til baka yfir 16-16-16 (18-18) l fyrir miðju að aftan.

HÆLÚRTAKA:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 9-9-9 (10-10) l sl, 2 l snúnar slétt saman, 1 l sl, snúið við
UMFERÐ 2: Takið 1 l óprjónaða, 3-3-3 (4-4) l br, 2 l br saman, 1 l br, snúið við.
UMFERÐ 3: Takið 1 l óprjónaða, 4-4-4 (5-5) l sl, 2 l snúnar slétt saman, 1 l sl, snúið við.
UMFERÐ 4: Takið 1 l óprjónaða, 5-5-5 (6-6) l br, 2 l br saman, 1 l br, snúið við.
UMFERÐ 5: Takið 1 l óprjónaða, 6-6-6 (7-7) l sl, 2 l snúnar slétt saman, 1 l sl, snúið við.
UMFERÐ 6: Takið 1 l óprjónaða, 7-7-7 (8-8) l br, 2 l br saman, 1 l br, snúið við.
UMFERÐ 7: 2 l slétt saman, 6-6-6 (8-8) l sl, 2 l snúnar slétt saman = 8-8-8 (10-10) l á prjóni (= alls 32-32-36 (36-40) l). Prjónið upp 7-8-8 (9-11) l hvoru megin við hæl og setjið allar l á sama prjón = 46-48-52 (54-62) l. Haldið áfram með sléttprjón yfir allar l. Jafnframt er fækkað um 1 l hvoru megin við efstu 18-20-22 (24-26) l í annarri hverri umf 7 sinnum = 32-34-38 (40-48) l. Þegar fóturinn mælist 8-9-10 (12-12) cm (frá byrjun hælúrtöku) setjið 1 prjónamerki í hvora hlið. Fækkið nú um 1 l hvoru megin við prjónamerki í hverri umf (= 4 l færri í umf) alls 7-7-8 (8-10) sinnum. Þræðið þráðinn í gegnum þær 4-6-6 (8-8) l sem eftir eru og festið vel.

Prjónið annan sokk á sama hátt.

Teppi: Sjá mynstur DROPS Baby 13-10

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 24.03.2021
BUXUR: Búið er að bæta við leiðbeiningar um frágang á buxum.

Mynstur

symbols = natur
symbols = beige
symbols = miðja
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 13-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (116)

country flag Maria wrote:

Hej! Håller på med koftan, är på fram och bakstycke! Det står att kantm inte ingår i mönstret, vilken färg ska de stickas i? Natur eller samma som första/sista m i mönstret?

17.04.2024 - 20:18

DROPS Design answered:

Hej Maria, kantmasken strikker du i bundfarven :)

19.04.2024 - 14:29

country flag Yaëll wrote:

Hallo, ik heb een vraag over de mindering van de muts. Ik ben een beginner wat betreft de NLse instructies. "...minder tegelijkertijd 6-7-7 (6-6) x 1 st aan weerskanten van alle merkdraden (...): in elke 2e nld en vervolgens in elke nld 0-0-0 (2-2) x = 18-12-18 (2-18) st over" In het begin is de mindering om de naald (ik brei rond, dus elke 2e rij). Vanaf wanneer moet elke naald/rij geminderd worden? Wat betekent de 0 x = 18? (Ik neem aan de laatste n steken voor casting off)

04.04.2024 - 18:45

country flag Ute wrote:

Hallo,\r\nwie kann ich bei der Blende Knopflöcher in die Linksrippe stricken, wenn ich die Blende in rechts und kraus rechts stricken soll? \r\nUte

21.02.2024 - 13:59

DROPS Design answered:

Liebe Ute, die Blenden werden im Bündchen *2 re, 2 li* so gestrickt: 2 M kraus rechts, *2 re, 2 li* von *bis* wiederholen bis 4 Maschen übrig sind, 2 re, 2 M krausrechts. Die Knopflöcher sind dann in den Linken-Partien vom Bündchen gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

21.02.2024 - 15:10

country flag Pia Bech wrote:

Hvorfor laver I et 2-farvet mønster, som ikke passer til at skal strikke frem og tilbage? Man skal bryde det farve flere gange, for at kunne følge mønsteret.

08.01.2024 - 19:42

DROPS Design answered:

Hei Pia. Men istedefor å klippe tråden, kan du ikke bare skyve masken på den ene siden over på den andre siden der tråden du skal bruker er og da strikke 2 pinner fra retten / eller fra vrangen? Når du f.eks strikker etter diagram A.3A+B og har strikket pinne 9 med beigmelert fra vrangen og skal strikke pinne 10 med natur og fargen er på motsatt side, så skyver du bare maskene over og strikker 1 pinne vrang med natur. Men noen ganger må man klippe tråden. mvh DROPS Design

15.01.2024 - 10:00

country flag Esther Seyfried wrote:

Hallo, wird beim Muster der Hose der Faden der dunklen Wolle für die eine Masche jeweils „mitgeführt“, damit man nicht immer wieder einen neuen Faden nehmen muss?

31.12.2023 - 11:34

DROPS Design answered:

Liebe Frau Seyfried, ja am besten soll der Faden der dunklen Wollen "mitgeführt", so wie beim Fair Isle stricken. Viel Spaß beim stricken!

02.01.2024 - 10:59

country flag Nina wrote:

Hej! Jag stickar mössan och enligt mönstret ska resåren vara 10 cm. Jag tycker det blir mycket resår på mössan och på bilden ser det inte ut att vara så bred resår som 10 cm. Kan man göra den smalare utan att det påverkar passformen? Mvh Nina

12.11.2023 - 22:13

DROPS Design answered:

Hei Nina. I oppskriften står det at man skal brette vrangborden dobbelt. Så strikkes den 10 cm og brettes, vil den da bli 5 cm, slik man ser det på bildet. Ved å ha vrangborden dobbelt, vil det bli ekstra beskyttelse for ørene til babyen og luen sitter godt. Men ønsker du en enkel vrangbord, avslutter du bare vrangborden etter 5 cm, eller ønsket lengde. mvh DROPS Design

13.11.2023 - 14:28

country flag Sylvie wrote:

Bonjour, Pour le haut du pantalon, je ne comprends pas si on le tricote en aller retour ou bien en circulaire. Merci pour votre réponse

07.08.2023 - 20:43

DROPS Design answered:

Bonjour Sylvie, on tricote les côtes de la taille en rond, puis on tricote une réhausse en allers et retours, on joint à nouveau et on tricote en rond en augmentant et on divise ensuite pour les jambes que l'on tricote séparément, en rond. Bon tricot!

08.08.2023 - 09:14

country flag Mychele Massicotte wrote:

Bonjour pour le bonnet je souhaite faire la grandeur 12-18 mois et 120 mailles c'est trop grand pour moi j'imagine que c'est un erreur? merci

20.09.2022 - 20:46

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Massicotte, c'est tout à fait juste, pensez à bien vérifier votre tension et à bien conserver cette même tension en tricotant; il vous faudra plus de mailles en côtes avec les aiguilles 2,5 qu'en jersey avec les aiguilles 3 - où vous diminuerez à 102 mailles au 1er rang (soit environ 43 cm de circonférence, un peu moins que le tour de tête pour que le bonnet tienne bien). Bon tricot!

21.09.2022 - 09:13

country flag Kerstin Münst wrote:

Ab wo messe ich die 7 cm für die M-Zunahme am Ärmel der Jacke? Eine Markierung habe ich ja nur nach 5 cm Büdchen gesetzt.

10.08.2022 - 08:05

DROPS Design answered:

Liebe Frau Münst, messen Sie diese 7 cm ab der Anschlagskante = 2 cm nach dem Bündchen. Viel Spaß beim stricken!

10.08.2022 - 09:18

country flag Ute Ortland wrote:

Liebes Team, ich habe leider nochmal eine Frage: Ich bin etwas irritiert. Wird die Hose in Runden oder Reihen gestrickt? Ich steige da nicht ganz durch. Vielen Dank für Ihre Hilfe. Gruß Ute

16.02.2022 - 23:38

DROPS Design answered:

Liebe Frau Ortland, die Hose wird in der Runde von oben nach unten gestrickt, Sie stricken eine gefaltete Kante und dann eine Erhöhung (in Reihen) dann stricken Sie wieder in der Runde mit Zunahmen - dann teilen Sie die Arbeit für die Beine, die in der Runde, separat gestrickt werden. Viel Spaß beim stricken!

17.02.2022 - 10:21