DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1870.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Freshwater Pearl Top

Prjónaður toppur / vesti úr DROPS Cotton Light. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri á framstykkjum og v-hálsmáli. Stærð S - XXXL.

DROPS 249-24
DROPS Design: Mynstur cl-131
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS COTTON LIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-250-300-300-350-350 g litur 02, hvítur

TÖLUR:
DROPS TALA NR 521: 4 stykki í öllum stærðum.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: Lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: Lengd 80 cm.

PRJÓNFESTA:
21 lykkjur á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1870.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING-1 (kantur að framan):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
AUKIÐ SVONA ÚT Í HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt framan við og aftan við næstu lykkju (= 1 lykkja fleiri), prjónið 2 lykkjur slétt.
AUKIÐ SVONA ÚT Í VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju slétt framan við og aftan við næstu lykkju (= 1 lykkja fleiri).

ÚTAUKNING-2 (bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (= ranga) er uppslátturinn prjónaður brugðið, svo að það myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni.

ÚTAUKNING-3 (hliðar á fram- og bakstykki):
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚTAUKNING-4 (jafnt yfir):
Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA-1 (hliðar á fram- og bakstykki):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum á sama hátt við hinn merkiþráðinn.

HNAPPAGAT (ofan frá og niður):
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar prjónaður hefur verið ca 1 cm á eftir síðustu útaukningu í kanti að framan. Fellið síðan af fyrir 3 næstu hnappagötum með ca 7-7½-7½-8-8-8 cm á milli hnappagata.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður. Á böndum á öxl / hlýrum er prjónað garðaprjón, gatamynstur á framstykkjum og sléttprjón á bakstykki.
Byrjað er á að fitja upp lykkjur fyrir bandi á öxl / hlýra á hægra framstykki og prjónað er niður á við jafnframt því sem aukið er út hvoru megin á stykki fyrir handveg og V-hálsmáli. Þegar handvegur og V-hálsmál hefur verið prjónað til loka, er hægra stykkið sett til hliðar, á meðan bakstykkið er prjónað.
Þegar bakstykkið hefur verið prjónað niður að handvegi, prjónið vinstra framstykki á sama hátt eins og hægra framstykki. Við handveg eru framstykkin og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki er prjónað niður á við fram og til baka á hringprjóna. Í lokin er bönd á öxlum / hlýrar fest við bakstykkið.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 7-7-9-9-11-11 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Cotton Light og prjónið GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan. Þegar band á öxl / hlýi mælist 7-7-7-7-7-8 cm, setjið 1 merki í umferð, þetta merki merkir öxl. Prjónið síðan í garðaprjóni þar til band á öxl / hlýri mælist 11-11-11-11-11-13 cm, endið eftir umferð frá röngu.
Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, þ.e.a.s. prjónið A.1 og aukið út í hvorri hlið fyrir handveg og v-hálsmáli eins og útskýrt er í mynsturteikningu (umferð 1 = rétta).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, eru 29-29-31-31-33-33 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.2A, prjónið A.2B alls 2 sinnum, prjónið A.2C. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar 4 umferðir eru eftir í A.2 (sjá sviga fyrir rétta stærð) og næsta umferð er prjónuð frá réttu, aukið út 1 lykkju fyrir kant að framan í lok umferðar – lesið ÚTAUKNING-1. Endurtakið útaukningu í næstu umferð frá réttu (þessar 2 lykkjur gera að kantur í hálsmáli nær yfir að kanti að framan).
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, eru 47-49-53-57-61-65 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 18-19-20-21-22-24 cm frá merki á bandi á öxl / hlýra. Klippið þráðinn, leggið stykkið til hliðar og prjónið bakstykki eins og útskýrt er að neðan.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 52-54-60-64-70-74 lykkjur á hringprjón 3 og prjónið 3 umferðir garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta):
3 lykkjur í garðaprjóni, aukið út 1 lykkju fyrir handveg – lesið ÚTAUKNING-2, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju fyrir handveg, prjónið 3 lykkjur í garðaprjóni.
UMFERÐ 2 (= ranga):
3 lykkjur í garðaprjóni, prjónið brugðið (uppslátturinn er prjónaður brugðið, svo það myndist gat) þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur í garðaprjóni.
Endurtakið 1. og 2. umferð þar til aukið hefur verið út alls 16-17-18-20-21-23 sinnum í hvorri hlið = 84-88-96-104-112-120 lykkjur og síðasta umferð er prjónuð frá röngu. Klippið þráðinn, leggið stykkið til hliðar og prjónið vinstra framstykki eins og útskýrt er að neðan.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 7-7-9-9-11-11 lykkjur á hringprjón 3 og prjónið garðaprjón. Þegar band á öxl / hlýi mælist 7-7-7-7-7-8 cm, setjið 1 merki í umferð, þetta merki merkir öxl. Prjónið síðan í garðaprjóni þar til band á öxl / hlýri mælist 11-11-11-11-11-13 cm, endið eftir umferð frá röngu.
Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, þ.e.a.s. prjónið A.1 og aukið út í hvorri hlið fyrir v-hálsmáli og handveg eins og útskýrt er í mynsturteikningu (umferð 1 = rétta).
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, eru 29-29-31-31-33-33 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.2A, prjónið A.2B alls 2 sinnum, prjónið A.2C. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar 4 umferðir eru eftir í A.2 og næsta umferð er prjónuð frá réttu, aukið út 1 lykkju fyrir kant að framan í byrjun umferðar – lesið ÚTAUKNING-1. Endurtakið útaukningu í næstu umferð frá réttu (þessar 2 lykkjur gera að kantur í hálsmáli nær yfir að kanti að framan).
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, eru 47-49-53-57-61-65 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 18-19-20-21-22-24 cm frá merki á bandi á öxl / hlýra. Ekki klippa þráðinn, nú eru stykkin sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Byrjið frá réttu og prjónið stykkin í eftirfarandi röð þannig: Vinstra framstykki, bakstykki, hægra framstykki:
UMFERÐ 1 (= rétta):
Prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni (= kantur að framan), haldið áfram með mynstur eins og útskýrt er í A.2B þar til eftir eru 3 lykkjur á vinstra framstykki, prjónið 3 lykkjur í garðaprjóni, fitjið upp 6-8-8-10-14-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið), prjónið 3 lykkjur í garðaprjóni, 78-82-90-98-106-114 lykkjur slétt, 3 lykkjur í garðaprjóni frá bakstykki, fitjið upp 6-8-8-10-14-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið), prjónið 3 lykkjur í garðaprjóni, haldið áfram með mynstur eins og útskýrt er í A.2B þar til 5 lykkjur eru eftir á hægra framstykki, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni (= kantur að framan) = 190-202-218-238-262-286 lykkjur.
Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 6-8-8-10-14-18 lykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið. Látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðir þegar fækka á lykkjum og auka út í hliðum.
UMFERÐ 2 (= ranga):
Prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, haldið áfram með A.2 þar til eftir eru 6-7-7-8-10-12 lykkjur á undan fyrri merkiþræði, prjónið 12-14-14-16-20-24 lykkjur í garðaprjóni (merkiþráðurinn situr mitt í þessum lykkjum), prjónið 78-82-90-98-106-114 lykkjur brugðið, 12-14-14-16-20-24 lykkjur í garðaprjóni (merkiþráðurinn situr mitt í þessum lykkjum), haldið áfram með A.2 þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni.
UMFERÐ 3 (= rétta):
Prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, haldið áfram með A.2 þar til eftir eru 6-7-7-8-10-12 lykkjur á undan fyrri merkiþræði, prjónið 12-14-14-16-20-24 lykkjur í garðaprjóni, prjónið 78-82-90-98-106-114 lykkjur slétt, 12-14-14-16-20-24 lykkjur í garðaprjóni, haldið áfram með A.2 þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni – munið eftir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan.
UMFERÐ 4 (= ranga):
Prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, haldið áfram með A.2 þar til eftir eru 6-7-7-8-10-12 lykkjur á undan fyrri merkiþræði, prjónið 12-14-14-16-20-24 lykkjur í garðaprjóni (merkiþráðurinn situr mitt í þessum lykkjum), prjónið 78-82-90-98-106-114 lykkjur brugðið, 12-14-14-16-20-24 lykkjur í garðaprjóni (merkiþráðurinn situr mitt í þessum lykkjum), haldið áfram með A.2 þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni.
Prjónið síðan fram og til baka með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan, A.2 á framstykki og sléttprjón á bakstykki. Prjónið A.2 eins langt og hægt er að merkiþræði í hvorri hlið – lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í heila mynstureiningu við merkiþráðinn, eru prjónaðar í sléttprjóni.
Þegar stykkið mælist 6-6-7-7-8-8 cm frá þar sem stykkin voru sett saman, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina – lesið ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 13-13-14-14-15-15 cm frá þar sem stykkin voru sett saman = 182-194-210-230-254-278 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 19-19-20-21-22-22 cm frá þar sem stykkin voru sett saman, aukið út 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina – lesið ÚTAUKNING-3 (= 4 lykkjur fleiri) = 186-198-214-234-258-282 lykkjur.
Prjónið síðan þar til stykkið mælist 24-25-26-26-27-27 cm frá þar sem stykkin voru sett saman – stillið af að prjónaðar séu nokkrar umferðir í sléttprjóni eftir umferð með gatamynstri á framstykkjum.
Í næstu umferð (= rétta) byrjar stroff jafnframt því sem aukið er út um 17-19-19-21-23-27 lykkjur jafnt yfir í umferð (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan) – lesið ÚTAUKNING-4 = 203-217-233-255-281-309 lykkjur, prjónið þannig:
Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukningu) þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður.
Þegar stroffið mælist 2-2-2-3-3-3 cm, fellið af. Stykkið mælist ca 44-46-48-50-52-54 cm frá merki á bandi á öxl / hlýra.

FRÁGANGUR:
Saumið bönd á öxl / hlýra við bakstykki – byrjið sauminn yst í hvorri hlið og saumið lykkju á móti lykkju.
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið (það á að myndast gat)
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 249-24

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (6)

country flag Michelle wrote:

Beim rechten Vorderteil steht: "Weiter glatt rechts stricken, bis der Schulterträger eine Länge von (...). Dem Bild und dem linken Vorderteil zu entnehmen, sollte doch weiter in Krausrippen gestrickt werden oder?

22.04.2024 - 12:08

DROPS Design answered:

Liebe Michelle, ja man soll weiter in krausrippen stricken, danke für den Hinweis, eine Korrektur erfolgt. Viel Spaß beim Stricken!

22.04.2024 - 13:09

country flag Eveli wrote:

Summer in the countryside

21.01.2024 - 14:22

country flag Cecilia wrote:

Mayfield

19.01.2024 - 11:41

country flag Kelly wrote:

Night Jasmine

18.01.2024 - 21:52

country flag Caren Veraart wrote:

Daisy

18.01.2024 - 18:13

country flag Signe wrote:

Daisy day top

18.01.2024 - 15:51