DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4004.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Spring Novel

Prjónaður toppur / bolur úr DROPS Muskat eða DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu, stuttum ermum og klauf í hliðum. Stærð XS - XXL.

DROPS 249-34
DROPS Design: Mynstur r-825
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

GARN:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
350-400-450-500-550-600 g litur 89, ljós sægrænn

Eða notið:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
350-400-450-500-550-600 g litur 15, ljós sægrænn

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4004.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

LASKALÍNA:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju á undan/eftir 4 laskalykkjum.
Laskalykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn eins og útskýrt er að neðan, síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni.

Uppslátturinn er prjónaður frá röngu á undan og á eftir laskalykkjum þannig:
Á UNDAN laskalykkjum:
Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann. Það á ekki að myndast gat.
Á EFTIR laskalykkjum:
Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Það á ekki að myndast gat.

Uppslátturinn er prjónaður frá réttu á undan og á eftir laskalykkjum:
Á UNDAN lasakalykkjum:
Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann. Það á ekki að myndast gat.
Á EFTIR laskalykkjum:
Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann. Það á ekki að myndast gat.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf.
Fyrst er hálsmálið prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður þar sem fitjaðar eru upp nýjar lykkjur í hvorri hlið til að forma hálsmál. Síðan er berustykkið prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan.
Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka er lykkjum skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Stykkið skiptist við klauf í hvorri hlið, síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig.
Ermar eru síðan prjónaðar niður á við í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. Í lokin eru prjónaðar upp lykkjur í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður í hring.

HÁLSMÁL:
Fitjið upp 88-90-92-92-94-96 lykkjur á hringprjón 4.
Setjið 4 merki og 1 merkiþráð í stykkið þannig: Teljið 1 lykkju, setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 26 lykkjur (ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 15-16-17-17-18-19 lykkjur, setjið 1 merkiþráð (mitt að aftan), teljið 15-16-17-17-18-19 lykkjur, setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 26 lykkjur (ermi), setjið 1 merki í síðustu lykkju = 1 lykkja eftir á eftir síðasta merki. Lykkjur með merki í eru nú kallaðar laskalykkjur.
Prjónið fram og til baka þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið slétt, aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 laskalykkjurnar – lesið útskýringu að ofan (8 lykkjur fleiri), fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 98-100-102-102-104-106 lykkjur.
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið brugðið (munið eftir – að uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina), fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 100-102-104-104-106-108 lykkjur.
UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið slétt, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 laskalykkjurnar (8 lykkjur fleiri), fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 110-112-114-114-116-118 lykkjur.
UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið brugðið, fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 112-114-116-116-118-120 lykkjur.
UMFERÐ 5 (rétta): Prjónið slétt, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 laskalykkjurnar (8 lykkjur fleiri), fitjið síðan upp 3 nýjar lykkjur í lok umferðar = 123-125-127-127-129-131 lykkjur.
UMFERÐ 6 (ranga): Prjónið brugðið, fitjið síðan upp 3 nýjar lykkjur í lok umferðar = 126-128-130-130-132-134 lykkjur.
UMFERÐ 7 (rétta): Prjónið slétt, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 laskalykkjurnar (8 lykkjur fleiri), fitjið síðan upp 14-16-18-18-20-22 nýjar lykkjur í lok umferðar = 148-152-156-156-160-164 lykkjur. Nú á að setja lykkjurnar saman og byrjun á umferð á að vera við merkiþráðinn að aftan, klippið þráðinn, ekki snúa stykkinu, færið lykkjurnar frá vinstri prjóni yfir á hægri prjón fram að merkiþræðinum.

Hálsmálið hefur nú verið prjónað til loka og aukið hefur verið út 4 sinnum fyrir laskalínu hvoru megin við 4 laskalykkjurnar.
Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Prjónið sléttprjón hringinn frá miðju að aftan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 13-14-19-20-18-18 sinnum (ásamt útaukningu í hálsmáli) = 220-232-276-284-272-276 lykkjur. Haldið áfram með útaukningu fyrir lasaklínu, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykki/bakstykki. Þ.e.a.s. það er aukið út á framstykki/bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð (aukið er út til skiptis 4 og 8 lykkjur). Aukið svona út 10-12-10-14-22-26 sinnum á fram- og bakstykki (5-6-5-7-11-13 sinnum á ermum). Aukið hefur verið út alls 23-26-29-34-40-44 sinnum á framstykki/bakstykki og 18-20-24-27-29-31 sinnum á ermum = 280-304-336-368-404-432 lykkjur.

Prjónið síðan hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 18-19-21-25-29-32 cm frá miðju að aftan.
Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 39-43-47-52-59-64 lykkjur (hálft bakstykki), setjið næstu 62-66-74-80-84-88 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 lykkjur undir ermi, prjónið næstu 78-86-94-104-118-128 lykkjur (framstykki), setjið næstu 62-66-74-80-84-88 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 lykkjur undir ermi, prjónið síðustu 39-43-47-52-59-64 lykkjur (hálft bakstykki) = 168-184-200-222-252-272 lykkjur í umferð. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 168-184-200-224-252-272 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 6-6-6-8-8-8 lykkjur undir hvorri ermi. Látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu. Merkiþræðirnir eru notaðir þegar stykkið skiptist fyrir klauf í hvorri hlið. Prjónið hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist 18-19-19-17-15-14 cm frá skiptingunni. Nú skiptist stykkið við báða merkiþræðina og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig.

FRAMSTYKKI:
= 84-92-100-112-126-136 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð frá réttu og aukið út 14-14-14-18-20-22 lykkjur jafnt yfir = 98-106-114-130-146-158 lykkjur.
Prjónið stroff, fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 2 lykkjur GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm, fellið af. Stykkið mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm frá öxl og niður.

BAKSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og framstykki.

ERMAR:
Setjið 62-66-74-80-84-88 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á stykki á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 68-72-80-88-92-96 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist ca 3 cm frá skiptingunni er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í ca hverjum 3-2-3-1½-0-0 cm alls 2-2-2-2-1-0 sinnum (lykkjum er ekki fækkað í stærð XXL) = 64-68-76-84-90-96 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 13-12-11-8-8-6 cm frá skiptingunni. Prjónið 1 umferð slétt þegar aukið er út um 4-4-4-0-2-0 = 68-72-80-84-92-96 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 16-15-14-11-9-9 cm frá skiptingunni.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið frá réttu við aðra öxlina. Notið stuttan hringprjón 3 og prjónið upp ca 104 til 116 lykkjur í kringum hálsmál. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 249-34

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Anonym wrote:

Leider stehe ich als Anfängerin vor einem Problem: Der Beginn des Pullovers wird in Hin-u Rückreihen erklärt, die Videos zeigen die Raglan-Zunahmen und Abnahmen aber immer nur beim Stricken in Runden. Gibt es ein spezielles Video, das ich noch nicht entdeckt habe?

24.04.2024 - 16:54

DROPS Design answered:

Hallo! Am Anfang vom Pullover wird man in Hin- und Rückreihen stricken, gleichzeitig nimmt man für Raglan zu (siehe Video) und am Ende jeder Reihe wird man neue Maschen für den Halsausschnitt anschlagen (siehe Video), dann endlich wird man in Runden stricken und von der hintere Mitte stricken. Viel Spaß beim Stricken!

25.04.2024 - 07:41

country flag Karan wrote:

Hi, I’ve question about the no. Of increases in the yoke. The raglan stitches are 4(which is 8 stitch increased)and the no. Of increases are 19 times for the size I’m knitting. So at the end it says 276 stitches in total after the yoke but if I do 19*8=152 And my stitch count comes as 308 instead of 276. So where am I doing wrong. All the stitches counts in yoke pattern comes 32 stitches short. I need help with that.

22.04.2024 - 17:38

DROPS Design answered:

Dear Karen, the 19 increases are including the 4 increases made with the short rows, this means after the short rows and all new stitches for neck are done, you have 156 sts, you increase 8 sts 15 times more (for a total of 19 times), you get then 156 + 15x4= 276 sts. Happy knitting!

23.04.2024 - 07:52

country flag Carine ALMA wrote:

Bonjour, je viens de finir les alternances des augmentations dos/devant et manches pour l'empiècement et j'ai atteint 336 mailles (Taille M). Selon le patron je dois continuer à tricoter jusqu'à ce que l'ouvrage mesure 21 cm au milieu dos. J'en suis actuellement à 18cm, ce qui veut dire que je dois continuer de tricoter en rond sans augmentations encore 3 cm c'est bien cela? Mais du coup je n'aurais plus de raglan sur ces 3cm si je comprends bien? Merci d'avance pour votre aide?

22.04.2024 - 11:51

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Alma, tout à fait, tricotez simplement en jersey endroit pendant 3 cm, mais notez bien que vous risquez d'avoir besoin de davantage de laine si votre tension en hauteur est plus serrée (les 58 rangs de l'empiècement (28 augmentations tous les 2 rangs/tours pour le raglan) doivent mesurer environ 21 cm). Bon tricot!

22.04.2024 - 13:07

country flag Roelien wrote:

Hoe krijg ik de halslijn erin als je van boven naar beneden breit. Voor-hals is toch lager dan achter?

31.03.2024 - 13:06

DROPS Design answered:

Dag Roelien,

Dit wordt gedaan door zogenaamde 'verkorte toeren' (dus waarbij je de naalden niet helemaal uitbreit tot het einde) en is helemaal uitgeschreven onder de paragraaf 'HALSLIJN'.

04.04.2024 - 20:28

country flag Tabea wrote:

Hallo, welche Nadelstärke wird denn für die Maschenprobe empfohlen? Bei mir passt es mit der Nadelstärke 3. Ist das dann die größere oder kleinere angebene Stärke in der Anleitung? Viele Grüße Tabea

25.03.2024 - 20:28

DROPS Design answered:

Liebe Tabea, die Maschenprobe 21 Maschen x 28 Reihen glatt rechts wir mitden grösseren Nadeln gestrickt, aber natürlich muss mann die Nadelstärke anpassen, solange daß die Maschenprobe stimmt. Hier lesen Sie mehr. Viel Spaß beim Stricken!

02.04.2024 - 10:14

country flag Marta wrote:

Można prosić o jaśniejsze objaśnienie fragmentu po zrobieniu dekoltu? „Teraz połączyć robótkę na okrągło, zaczynając okrążenie od nitki markera na środku tyłu. Odciąć nitkę, nie obracać robótki.” Nie kontynuować przerabiania po dodaniu oczek w rzędzie 7 tylko zostawiać to, a nową nitką zacząć przerabiać oczka od środka tyłu? I odciąć nitkę za tymi dodanymi oczkami w rzędzie 7? Dziękuję za pomoc!

15.03.2024 - 22:04

DROPS Design answered:

Witaj Marto, odcinasz nitkę, przekładasz oczka z lewego drutu na prawy (bez przerabiania), aż do nitki markera (środek tyłu, tu będą zaczynać się okrążenia podczas przerabiania na okrągło). Dołączasz nową nitkę i od teraz zaczynasz przerabiać KARCZEK jak w opisie poniżej. Powodzenia!

18.03.2024 - 09:03

country flag PASCALE JEANNE wrote:

Bonjour, Comment puis je adapter un patron donné pour des aiguilles taille 3-4 en taille 5-5,5? Merci pour votre aide

13.03.2024 - 18:15

DROPS Design answered:

Bonjour Pascale, vous devrez recalculer entièrement les explications sur la base de votre propre échantillon, essayez de consulter les différents modèles du même type dans la tension souhaitée, cela pourra vous aider. Bon tricot!

14.03.2024 - 08:03

country flag Leena Lamminpää Jokioinen wrote:

Heippa! aloitus pääntieltä ei voi olla oikein koska silmukkamerkit raglan lisäyksiin ei voi tulla eteen 2 merkkiä samaan kohtaan ?

12.03.2024 - 13:04

country flag Hanneke wrote:

Ziet er goed uit. Voor mij waarschijnlijk aan de korte kant

05.03.2024 - 07:02

country flag Hanne wrote:

Er det feil her: Sett 4 merker og 1 merketråd i arbeidet slik: Tell 1 maske, sett 1 merke i neste maske, tell 26 masker (erme), sett 1 merke i neste maske, tell 15-16-17-17-18-19 masker, sett 1 merketråd (midt bak), tell 15-16-17-17-18-19 masker, sett 1 merke i neste maske, tell 26 masker (erme), sett 1 merke i siste maske = 1 maske igjen etter siste merke. Maskene med merke i kalles nå raglanmasker.

04.03.2024 - 22:20

DROPS Design answered:

Hei Hanne, Du har 4 merker og 1 merketråd (midt bak). Hvert merke er satt i en maske, slik at du har 4 merke-masker. Hjelper det? God fornøyelse!

05.03.2024 - 08:10