DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5104.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Morning Moon Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Belle. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu, V-hálsmáli og rúllukanti. Stærð S-XXXL.

DROPS 249-16
DROPS Design: Mynstur vs-114
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S – M – L – XL – XXL – XXXL

GARN:
DROPS BELLE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-450-500-550-600-650 g litur 26, perla

TÖLUR:
DROPS TALA NR 521: 3 stykki í allar stærðir.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5104.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR (á við um kanta að framan):
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju á undan/eftir merkiþræði þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð (= ranga) er uppslátturinn prjónaður þannig:
Á UNDAN MERKIÞRÆÐI:
Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann. Það á að myndast gat.
Á EFTIR MERKIÞRÆÐI:
Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Það á að myndast gat.

V-HÁLSMÁL:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út þannig: Prjónið vinstri kant að framan eins og áður, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, endið með hægri kant að framan eins og áður.
Í næstu umferð (= ranga) prjónið uppsláttinn til að fá minna gat þannig:
Á EFTIR HÆGRI KANTI AÐ FRAMAN:
Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann.
Á UNDAN VINSTRI KANTI AÐ FRAMAN:
Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð) frá röngu þannig: Prjónið 4 kantlykkjur að framan eins og áður, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (= rétta), er prjónað þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið uppsláttinn slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, endið með 4 kantlykkjur að framan eins og áður.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar öll útaukning fyrir V-hálsmáli hefur verið gerð til loka, hálsmálið mælist ca 14-14-15-15-16-16 cm.
Fellið síðan af fyrir 2 næstu hnappagötum með ca 3½-3½-3½-4-4-4½ cm millibili.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf.
Fyrst eru prjónaðir tveir kantar að framan hvor fyrir sig, síðan eru lykkjur fitjaðar upp fyrir berustykki á milli þeirra og prjónað er ofan frá og niður. Berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptast lykkjur fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring á sokkaprjóna / hringprjóna.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Fitjið upp 4 lykkjur á sokkaprjóna 4 með DROPS Belle. Prjónið A.1 fram og til baka í 17-17-17½-17½-18-18½ cm. Klippið þráðinn og leggið stykkið til hliðar.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Fitjið upp 4 lykkjur á sokkaprjóna 4 með DROPS Belle. Prjónið A.2 fram og til baka í 17-17-17½-17½-18-18½ cm. Síðasta umferð er prjónuð frá röngu. Nú eru fitjaðar upp lykkjur fyrir berustykki á milli kanta að framan eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið yfir vinstri kant að framan eins og áður frá réttu, fitjið upp 76-76-78-78-80-82 nýjar lykkjur á prjóninn, prjónið yfir hægri kant að framan eins og áður frá réttu = 84-84-86-86-88-90 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 4 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eins og áður.

Setjið 4 merkiþræði í stykkið án þess að prjóna þannig: Teljið 6 lykkjur (= framstykki), setjið 1 merkiþráð, teljið 18 lykkjur (= ermi), setjið 1 merkiþráð, teljið 36-36-38-38-40-42 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 merkiþráð, teljið 18 lykkjur (= ermi), setjið 1 merkiþráð, það eru 6 lykkjur eftir í umferð (= framstykki).
Prjónið fram og til baka í sléttprjóni með 4 kantlykkjum að framan eins og áður í hvorri hlið, jafnframt er aukið út fyrir LASKALÍNU og V-HÁLSMÁL – lesið útskýringu að ofan. Lestu því allan næsta kafla áður en prjónað er áfram.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Aukið út fyrir V-hálsmáli í báðum hliðum í annarri hverri umferð 16-16-17-17-18-19 sinnum, síðan er aukið út í 4. hverri umferð 2 sinnum. Það hafa verið auknar út alls 18-18-19-19-20-21 lykkjur fyrir V-hálsmáli á hvoru framstykki. Munið eftir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan.
Aukið út fyrir laskalínu á undan og á eftir merkiþráðum (= 8 lykkjur fleiri) alls 22-26-29-34-35-36 sinnum í annarri hverri umferð. Síðan er einungis aukið út á framstykki/bakstykki (= 4 lykkjur fleiri) 0-0-0-0-3-6 sinnum. Aukið hefur verið út alls 176-208-232-272-292-312 lykkjur fyrir laskalínu.

Þegar aukið hefur verið út til loka bæði fyrir laskalínu og V-hálsmáli eru 296-328-356-396-420-444 lykkjur í umferð. Prjónið síðan án þess að auka út lykkjur, þar til stykkið mælist 19-21-23-25-28-30 cm frá miðju að aftan. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar.

SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 4 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið 43-47-51-56-61-66 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 60-68-74-84-86-88 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (í hlið undir ermi), prjónið 82-90-98-108-118-128 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 60-68-74-84-86-88 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 43-47-51-56-61-66 lykkjur í sléttprjóni (= framstykki), endið með 4 kantlykkjum að framan eins og áður. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 196-212-232-252-276-300 lykkjur.
Prjónið sléttprjón fram og til baka með 4 kantlykkjum að framan eins og áður í hvorri hlið þar til stykkið mælist 28-28-28-28-27-27 cm frá skiptingunni – munið eftir HNAPPAGAT. Nú er prjónaður rúllukantur neðst á peysunni, JAFNFRAMT því sem fækkað er um 1 lykkju mitt að aftan með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman = 195-211-231-251-275-299 lykkjur. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir, endið með kant að framan eins og áður.
Prjónið 3 umferðir sléttprjón. Fellið af. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl.

ERMAR:
Setjið 60-68-74-84-86-88 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna / hringprjóna 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-12-14-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 70-78-86-96-100-104 lykkjur.
Setjið 1 merkiþráð mitt í nýjar lykkjur undir ermi, umferðin byrjar hér. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 3-4-3-4-2-4 cm frá skiptingu. Fækkið 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í hverjum 6-4-3-2-2-1½ cm alls 6-9-12-16-17-18 sinnum = 58-60-62-64-66-68 lykkjur.
Prjónið þar til ermin mælist 45-44-43-42-39-38 cm, það er eftir ca 1 cm að loka máli. Prjónið 1 umferð (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið 3 umferðir sléttprjón. Fellið af. Ermin mælist ca 46-45-44-43-40-39 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstra framstykki. Kantar að framan frá hvoru framstykki eru saumaðir saman = mitt að aftan, saumið síðan kanta að framan við lykkjur í kringum hálsmál.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 249-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Lilian Lund wrote:

Vad är det för skillnad på 249-16 respektive 206-34

06.04.2024 - 10:09

country flag Sonny wrote:

Symbols = knit from right side, purl from wrong side symbols = purl from right side, knit from wrong side Not doing very well as I’m struggling to get started🤣 Does the above mean knit when on right right and then purl when on wrong side please?

04.04.2024 - 17:12

DROPS Design answered:

Dear Sonny, the diagrams always show every pattern as you would see it from looking at it from the right side. Thus the stitches represented by the empty square symbol should be knitted from the right side, and purled from the wrong side. The stitches represented by the X symbole should be purled on the right side and knitted from the wrong side. Basically the A.1 is a K3/P1 ribbing, the A.2 is a P1/K3 ribbing. Happy Knitting!

05.04.2024 - 02:17

country flag Rina Tissen wrote:

Ik brei morning-afterpil moon cardigan en moest 2 biezen breien. Moet ik deze opzij leggen? Ik begrijp het breien van de pas niet.

28.03.2024 - 21:49

DROPS Design answered:

Dag Rina,

Je breit eerst de rechter voorbies, knipt de draad af en die leg je aan de kant (dus zonder de steken af te kanten). Vervolgens brei je de linker voorbies, maar als je daarmee klaar bent hoef je de draad niet af te knippen. In plaats daarvan zet je steken op aan het einde van de eerstvolgende naald van die bies (zie paragraaf PAS) en daarna brei je verder met de rechter bies. Nu heb je beide biezen op de naald met steken ertussen.

03.04.2024 - 21:06

country flag Karin wrote:

Ich möchte die tolle Jacke stricken.Leider stehe ich jetzt schon auf dem Schlauch was das für eine Blende ist. Ist das sozusagen der Kragen hinten?

16.03.2024 - 14:29

DROPS Design answered:

Liebe Karin, ja genau, die 2 Blende, die man am Anfang strickt, werden danach zusammengenäht und dann am Halsausschnitt angenäht. Viel Spaß beim Stricken!

18.03.2024 - 08:46

country flag Maria Tuohisto wrote:

Koen nämä nyt muotiin tulleet "ylhäältä alas, etu- takakappale yhdessä " -tehtävät neuleet raskaana niskahartia -seudulle. Yhden työn tein ja se riitti.

15.03.2024 - 19:40

country flag Susi wrote:

Super... und endlich viele neue Modelle Topdown!!!

01.03.2024 - 13:36

country flag Dorothee wrote:

Schlicht und einfach..... ein supertolles Basic-Modell

20.01.2024 - 13:26

country flag Nini wrote:

Fancy Bella

19.01.2024 - 14:17

country flag Kelly wrote:

Breeze

18.01.2024 - 21:50

country flag Caren Veraart wrote:

Almost summer

18.01.2024 - 18:13