DROPS Daisy
DROPS Daisy
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6468.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sand Diamond Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Daisy eða DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, v-hálsmáli, gatamynstri og ¾ löngum ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 248-5
DROPS Design: Mynstur da-004
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS DAISY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
350-400-450-450-500-550 g litur 02, marsipan

Eða notið:
DROPS MERINO EXTRA FINE (tilheyrir garnflokki B)
350-400-450-500-550-600 g litur 50, ljós beige

TÖLUR:
DROPS TALA NR 628: 4 stykki í allar stærðir

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: Lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Daisy
DROPS Daisy
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6468.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD:
RÉTTA:
Prjónið 10 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki og prjónið 1 lykkju slétt.
RANGA:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 10 lykkjur í garðaprjóni.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD:
RÉTTA:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 10 lykkjur í garðaprjóni.
RANGA:
Prjónið 10 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki og prjónið 1 lykkju slétt.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan frá réttu.
UMFERÐ 1: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 síðustu lykkjur frá kanti að framan eins og áður.
UMFERÐ 2: Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar öll útaukning fyrir v-hálsmáli er lokið (framstykkið mælist 23 cm, mælt efst frá öxl), síðan er fellt af fyrir hnappagötum þegar framstykkið mælist (mælt efst frá öxl):
S: 29, 36 og 43 cm
M: 30, 38 og 45 cm
L: 30, 39 og 47 cm
XL: 30, 39 og 48 cm
XXL: 31, 40 og 50 cm
XXXL: 31, 41 og 52 cm
(= fellt er af fyrir síðasta hnappagatinu í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs neðst á framstykki).

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir (á undan lykkju með merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt (merkiþráðurinn situr í þessari lykkju), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf.
Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka, ofan frá og niður.
Byrjað er á að prjóna 2 lausa kanta að framan. Lykkjur eru fitjaðar upp fyrir hálsmáli á milli lausu kantana að framan og prjónað er fram og til baka. Berustykkið er prjónað ofan frá og niður, fram og til baka á hringprjóna.
Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Eftir fram- og bakstykki eru ermar prjónaðar niður á við í hring á hringprjóna / sokkaprjóna.
Kantar að framan frá hvoru framstykki eru saumaðir saman, saumur = mitt að aftan, kantar að framan eru saumaðir við lykkjur í kringum hálsmál.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN (hægri = séð þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 12 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Daisy eða DROPS Merino Extra Fine.
Prjónið HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 4 cm, prjónið 2 fyrstu lykkjur frá réttu slétt saman (gagnstæð hlið á I-cord), fækkið lykkjum svona í 3. hverjum cm alls 5 sinnum = 7 kantlykkjur að framan. Haldið áfram þar til kantur að framan mælist 21 cm í öllum stærðum, endið eftir 1 umferð slétt frá röngu. Klippið þráðinn og leggið stykkið til hliðar.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN (vinstri = séð þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 12 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Daisy eða DROPS Merino Extra Fine.
Prjónið VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 4 cm, prjónið 2 síðustu lykkjur frá réttu slétt saman (gangstæð hlið á I-cord), fækkið lykkjum svona í 3. hverjum cm alls 5 sinnum = 7 kantlykkjur að framan. Haldið áfram þar til kantur að framan mælist 21 cm í öllum stærðum, endið eftir 1 umferð slétt frá réttu, en ekki klippa þráðinn.

Haldið áfram frá umferð með vinstri kanti að framan. Nú eru fitjaðar upp 99-99-99-103-103-103 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar, síðan eru prjónaðar 7 lykkjur frá hægri kanti að framan inn í umferð = 113-113-113-117-117-117 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu yfir allar lykkjur, prjónið brugðið yfir nýjar 99-99-99-103-103-103 lykkjur og haldið áfram með kantlykkjur að framan eins og áður yfir 7 lykkjur í hvorri hlið.

UPPLÝSINGAR ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM:
FRAMSTYKKI OG BAKSTYKKI:
Á framstykki og bakstykki er prjónað gatamynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu.
Útaukning fyrir V-hálsmáli og laskalínu er teiknuð í mynsturteikningu. Þegar A.2, A.3 og A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið 1 mynstureiningu til viðbótar af A.3 á milli A.2 og A.4.
ERMAR:
Á ermum er prjónað sléttprjón og aukið út eins og útskýrt er í LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan.

BERUSTYKKI:
Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan eins og áður, A.1, 2 lykkjur í garðaprjóni – lesið útskýringu að ofan, 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan, 20-20-20-22-22-22 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur í garðaprjóni, A.2, A.3 yfir næstu 20-20-20-30-30-30 lykkjur sléttprjón, A.4, 2 lykkjur í garðaprjóni, 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, 20-20-20-22-22-22 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur í garðaprjóni, A.1, 7 kantlykkjur að framan eins og áður.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

FINNDU ÞÍNA STÆRÐ:
Prjónið síðan mynstur og aukið út mismunandi eftir stærðum, prjónaðu eftir þinni stærð að neðan.

STÆRÐ S:
Aukið út fyrir laskalínu og prjónið mynstur eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert samtímis, lestu bæði LASKALÍNA og MYNSTUR áður en þú prjónar áfram.
LASKALÍNA:
Aukið út innan við 2 lykkjur sléttprjón í hvorri hlið á ermum þannig: Aukið út í annarri hverri umferð 4 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 10 sinnum = 14 útaukningar í hvorri hlið á ermi.
MYNSTUR:
Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, hefur öll útaukning verið gerð til loka = 289 lykkjur í umferð.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
Prjónið 7 kantlykkjur að framan, A.3 yfir næstu 40 lykkjur, prjónið fyrstu lykkju í A.3, 2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið sléttprjón yfir lykkjur fyrir ermi, 2 lykkjur í garðaprjóni, A.3 yfir næstu 80 lykkjur, prjónið fyrstu lykkju í A.3, 2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið sléttprjón yfir lykkjur fyrir ermi, 2 lykkjur í garðaprjóni, A.3 yfir næstu 40 lykkjur, prjónið fyrstu lykkju í A.3, 7 kantlykkjur að framan – JAFNFRAMT í þessari umferð byrjar affelling fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan!
Prjónið A.3 alls 1 sinni á hæðina, stykkið mælist ca 27 cm frá öxl.
Prjónið síðan frá SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR.

STÆRÐ M-L:
Aukið út fyrir laskalínu og prjónið mynstur eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert samtímis, lestu bæði LASKALÍNA og MYNSTUR áður en þú prjónar áfram.
LASKALÍNA:
Aukið út innan við 2 lykkjur sléttprjón í hvorri hlið á ermum þannig: Aukið út í annarri hverri umferð 3-2 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 13-13 sinnum = 16-15 útaukningar í hvorri hlið á ermi.
MYNSTUR:
Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, hefur öll útaukning við miðju að framan verið gerð til loka, en síðan á að auka út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
Prjónið 7 kantlykkjur að framan, A.3 yfir næstu 30 lykkjur, prjónið A.4, 2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið og aukið út eins og áður yfir lykkjur fyrir ermi, 2 lykkjur í garðaprjóni, A.2, A.3 yfir næstu 60 lykkjur, A.4, 2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið og aukið út eins og áður yfir lykkjur fyrir ermi, 2 lykkjur í garðaprjóni, A.2, A.3 yfir næstu 30 lykkjur, prjónið fyrstu lykkju í A.3, 7 kantlykkjur að framan – JAFNFRAMT í þessari umferð byrjar affelling fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan!
Haldið áfram með útaukningu með þessum hætti þar til A.2, A.3 og A.4 hefur verið prjónað 1-1 sinni á hæðina.
Öll útaukning er nú lokið. Það eru alls 317-313 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 27-27 cm frá öxl.
Prjónið síðan frá SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR.

STÆRÐ XL - XXL:
Aukið út fyrir laskalínu og prjónið mynstur eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert samtímis, lestu bæði LASKALÍNA og MYNSTUR áður en þú prjónar áfram.
LASKALÍNA:
Aukið út innan við 2 lykkjur sléttprjón í hvorri hlið á ermum þannig: Aukið út í annarri hverri umferð 11-7 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 12-14 sinnum = 23-21útaukningar í hvorri hlið á ermi.
MYNSTUR:
Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, hefur öll útaukning við miðju að framan verið gerð til loka, en síðan á að auka út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
Prjónið 7 kantlykkjur að framan, A.3 yfir næstu 30 lykkjur, prjónið A.4, 2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið og aukið út eins og áður yfir lykkjur fyrir ermi, 2 lykkjur í garðaprjóni, A.2, A.3 yfir næstu 60 lykkjur, A.4, 2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið og aukið út eins og áður yfir lykkjur fyrir ermi, 2 lykkjur í garðaprjóni, A.2, A.3 yfir næstu 30 lykkjur, prjónið fyrstu lykkju í A.3, 7 kantlykkjur að framan – JAFNFRAMT í þessari umferð byrjar affelling fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan!
Haldið áfram með útaukningu með þessum hætti þar til A.2, A.3 og A.4 hefur verið prjónað 1-1 sinni á hæðina.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
Prjónið 7 kantlykkjur að framan, A.5, A.3 yfir næstu 30 lykkjur, prjónið A.4, 2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið og aukið út eins og áður yfir lykkjur fyrir ermi, 2 lykkjur í garðaprjóni, A.2, A.3 yfir næstu 70 lykkjur, A.4, 2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið og aukið út eins og áður yfir lykkjur fyrir ermi, 2 lykkjur í garðaprjóni, A.2, A.3 yfir næstu 30 lykkjur, A.6, 7 kantlykkjur að framan.
Haldið áfram með útaukningu með þessum hætti þar til A.2, A.3 og A.4 hefur verið prjónað 1-1 sinni á hæðina.
Öll útaukning er nú lokið. Það eru alls 369-361 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 32-32 cm frá öxl.
Prjónið síðan frá SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR.

STÆRÐ XXXL:
Aukið út fyrir laskalínu og prjónið mynstur eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert samtímis, lestu bæði LASKALÍNA og MYNSTUR áður en þú prjónar áfram.
LASKALÍNA:
Aukið út innan við 2 lykkjur sléttprjón í hvorri hlið á ermum þannig: Aukið út í annarri hverri umferð 6 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 17 sinnum = 23 útaukningar í hvorri hlið á ermi.
MYNSTUR:
Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, hefur öll útaukning við miðju að framan verið gerð til loka, en síðan á að auka út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
Prjónið 7 kantlykkjur að framan, A.3 yfir næstu 30 lykkjur, prjónið A.4, 2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið og aukið út eins og áður yfir lykkjur fyrir ermi, 2 lykkjur í garðaprjóni, A.2, A.3 yfir næstu 60 lykkjur, A.4, 2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið og aukið út eins og áður yfir lykkjur fyrir ermi, 2 lykkjur í garðaprjóni, A.2, A.3 yfir næstu 30 lykkjur, prjónið fyrstu lykkju í A.3, 7 kantlykkjur að framan – JAFNFRAMT í þessari umferð byrjar affelling fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan!
Haldið áfram með útaukningu með þessum hætti þar til A.2, A.3 og A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
Prjónið 7 kantlykkjur að framan, A.5, A.3 yfir næstu 30 lykkjur, prjónið A.4, 2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið og aukið út eins og áður yfir lykkjur fyrir ermi, 2 lykkjur í garðaprjóni, A.2, A.3 yfir næstu 70 lykkjur, A.4, 2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið og aukið út eins og áður yfir lykkjur fyrir ermi, 2 lykkjur í garðaprjóni, A.2, A.3 yfir næstu 30 lykkjur, A.6, 7 kantlykkjur að framan.
Haldið áfram með útaukningu með þessum hætti þar til A.2, A.3 og A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
Prjónið 7 kantlykkjur að framan, A.3 yfir næstu 40 lykkjur, prjónið A.4, 2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið og aukið út eins og áður yfir lykkjur fyrir ermi, 2 lykkjur í garðaprjóni, A.2, A.3 yfir næstu 80 lykkjur, A.4, 2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið og aukið út eins og áður yfir lykkjur fyrir ermi, 2 lykkjur í garðaprjóni, A.2, A.3 yfir næstu 40 lykkjur, prjónið fyrstu lykkju í A.3, 7 kantlykkjur að framan.
Haldið áfram með útaukningu með þessum hætti þar til A.2, A.3 og A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina.
Öll útaukning er nú lokið. Það eru alls 389 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 36 cm frá öxl.
Prjónið síðan frá SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR.

SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR – ALLAR STÆRÐIR:
Prjónið frá réttu þannig:
Prjónið kantlykkjur að framan og slétt yfir fyrstu 50-55-55-60-60-65 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið næstu 52-56-54-72-68-72 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 15-15-25-15-25-25 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið slétt yfir næstu 85-95-95-105-105-115 lykkjur (bakstykki), setjið næstu 52-56-54-72-68-72 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 15-15-25-15-25-25 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið slétt yfir síðustu 50-55-55-60-60-65 lykkjur (= hægra framstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI ALLAR STÆRÐIR:
= 215-235-255-255-275-295 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið umferð 2 í A.3 með 7 kantlykkjum að framan í hvorri hlið eins og áður.

FINNDU ÞÍNA STÆRÐ:
Prjónaðu síðan eftir þinni stærð að neðan:

STÆRÐ S - M - L- XXXL:
ATH! Í fyrsta skipti sem er prjónað, er byrjað í umferð 3 í mynsturteikningu.
* Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, A.5, A.3 þar til 13 lykkjur eru eftir, prjónið A.6 og 7 kantlykkjur að framan eins og áður. Prjónið mynsturteikningu 1 sinni á hæðina.
Prjónið síðan 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið A.7, A.3 þar til 18 lykkjur eru eftir, prjónið A.8 og 7 kantlykkjur að framan eins og áður. Prjónið mynsturteikningu 1 sinni á hæðina *.
Prjónið frá *-* þar til stykkið mælist 16-18-20-16 cm, stillið af eftir heilli mynstureiningu af A.3 á hæðina. Prjónið síðan frá ALLAR STÆRÐIR.

STÆRÐ XL - XXL:
ATH! Í fyrsta skipti sem er prjónað, er byrjað í umferð 3 í mynsturteikningu.
* Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, A.7, A.3 þar til 18 lykkjur eru eftir, prjónið A.8 og 7 kantlykkjur að framan eins og áður. Prjónið mynsturteikningu 1 sinni á hæðina.
Prjónið síðan 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið A.5, A.3 þar til 13 lykkjur eru eftir, prjónið A.6 og 7 kantlykkjur að framan eins og áður. Prjónið mynsturteikningu 1 sinni á hæðina *.
Prjónið frá *-* þar til stykkið mælist 18-16 cm, stillið af eftir heilli mynstureiningu af A.3 á hæðina. Prjónið síðan frá ALLAR STÆRÐIR.

ALLAR STÆRÐIR:
Í næstu umferð (= rétta) byrjar stroff JAFNFRAMT því er aukið út um 42-42-48-48-48-58 lykkjur jafnt yfir í umferð = 257-277-303-303-323-353 lykkjur, prjónið þannig:
Prjónið síðan með hringprjón 3, prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukning) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 7 kantlykkjur að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 5-5-5-6-6-6 cm, fellið af. Peysan mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl.

ERMAR:
Setjið 52-56-54-72-68-72 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 4, prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 15-15-25-15-25-25 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 67-71-79-87-93-97 lykkjur.
Setjið 1 merki í miðju af 15-15-25-15-25-25 lykkjum undir ermi – umferðin byrjar á undan lykkju með merki.
Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni, er lykkjum fækkað mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA, endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 8-8-9-6-6-6 cm = 63-67-75-83-89-93 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 15-16-17-12-13-10 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 13-13-15-17-19-19 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 76-80-90-100-108-112 lykkjur. Fellið af þegar stroffið mælist 5-5-5-6-6-6 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstra framstykki. Kantar að framan frá hvoru framstykki eru saumaðir saman – saumur = mitt að aftan, saumið síðan kanta að framan við lykkjur í kringum hálsmál.


Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 29.02.2024
Mynsturteikning A.2 hefur verið uppfærð

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt – það á að myndast gat
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 248-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (40)

country flag Zarmeen wrote:

Hello! I want to understand how you placed the right and left bands at the start of the pattern, which sides are front and how they will be joined at the back. I can't seem to grasp the placement and sewing of the bands at the end. I don't want to start the project and end up doing a mistake at the end. Can you please elaborate on that point where bands are knitted together in the row with the cast on stitches in the middle?

24.04.2024 - 21:01

DROPS Design answered:

Dear Zarmeen, work first the right front band exactly how explained (1st row = RS) decreasing as explained then put aside. Work then left front band as explained decreasing as explained (= mirrored to right front band) then after left front band is done, do not cut the yarn, work the sts from RS, then cast on new sts for neck/shoulders and work the sts of right front band sts. In this video, we show for another pattern how to work the 2 front band together but remember that's just an example, remember to work the front band stitches here just as explained in the written pattern. Happy knitting!

25.04.2024 - 08:05

country flag Johanna wrote:

Skall det ökas 2 m PÅ EN GÅNG på varje sida om ärmen.

23.04.2024 - 17:37

country flag Johanna wrote:

Skall det ökas 2 m PÅ EN GÅNG i varje sida av ärmen innanför de 2 rätmaskorna? 4 m x 16= 64 ökade maskor till ärmen.

23.04.2024 - 17:35

DROPS Design answered:

Hej Johanna. Du ökar 1 maska på varje sida av ärmen till raglan (ökning innanför 2 slätstickade maskor), så totalt är det 4 ökade maskor på ärmarna på ett varv. Så om du stickar storlek M så ska du öka 16 gånger på ärmarna, dvs 16x4 = 64 maskor ökade. Mvh DROPS Design

24.04.2024 - 11:32

country flag Nancy wrote:

Hallo, Ik ben klaar met de pas in maat M en heb 317 steken, exact zoals in de beschrijving, volgende stap is de verdeling voor de mouwen en het lijf. Mijn werkje meet echter maar 22 cm in plaats van 27 cm (vanaf bovenkant halsboord gemeten), dat is 5 cm minder dan aangegeven in de beschrijving en ik vrees dat het te kort gaat zijn. Zal ik nogmaals 1x het patroon breien (12 naalden) alvorens de verdeling voor de mouwen te doen? Dankjewel voor jullie antwoord. Vriendelijke groeten.

23.04.2024 - 12:10

DROPS Design answered:

Dag Nancy,

Ja, je kunt gewoon door breien in patroon, zonder meerderingen te maken voor de raglan, tot de juiste lengte. Er komt dan wel a.h.w. een 'knik' in de raglanlijn ter hoogte van de oksel. Dit is niet erg, maar als je dat niet mooi vindt zou je er ook voor kunnen kiezen om toch met deze afmetingen door te gaan. Het armsgat is namelijk relatief vrij groot bij dit patroon. Controleer ook nog even of je de afmetingen goed hebt opgenomen, door het werk plat neer te leggen en dan de maten van jouw werk te vergelijken met de maten die bij de maattekening staan.

24.04.2024 - 12:21

country flag Jannie wrote:

Graag wil ik ook verder breien. Als ik met de pas begin in S, moet ik A1 van onder af beginnen. Maar ook dan klopt het aantal steken niet aan het eind van de naald, maar houd ik steken over. Wat doe ik fout?

22.04.2024 - 21:40

DROPS Design answered:

7 voorbiessteken, A.1 (= 1 steek), 2 ribbelsteken, 2 recht, 1 steek meerderen, 20 tricotsteken, 1 steek meerderen, 2 recht, 2 ribbelsteken, A.2 (= 10 steken), A.3 over 20 steken (A.4 (= 11 steken), 2 ribbelsteken, 2 recht, 1 steek meerderen, 20 tricotsteken, 1 steek meerderen, 2 recht, 2 ribbelsteken, A.1 (= 1 steek) en 7 voorbiessteken. Als je bovenstaande (schuingedrukte) steken optelt kom je op 113 steken.

24.04.2024 - 12:49

country flag Ingrid Ehret wrote:

Hallo,wie ist dies bei Raglan zu verstehen: In jeder 2. Reihe 3-2 ?in der Höhe, in jeder 4. Reihe 13-13 ? in der Höhe . Werden drei oder zwei das erste mal zugeneommen und beim 2. Mal 13 und nochmal 13. Ist mir nicht erklärlich. Um baldige Antwort danke ich Ihnen da ich weiterstricken möchte.

21.04.2024 - 16:11

DROPS Design answered:

Liebe Frau Ehret, beim Abschnitt "M-L" ird manfür den Raglan/Ärmel: 3 Mal in M und 2 Mal in L zunehmen. So wird man insgesamt 16 Mal in M und 15 Mal in L zunehmen. Viel spaß beim Stricken!

22.04.2024 - 09:08

country flag Jannie wrote:

Bij de start van de pas met 113 steken kom ik niet uit met de beschrijving. Waar begin ik met A1, boven of onderaan het telpatroon? Als ik bovenaan begin heb ik al 43 steken gebreid en dan komen er nog heel veel

19.04.2024 - 22:37

DROPS Design answered:

Dag Jannie,

Je breit eerst 7 voorbiessteken en dan begin je gelijk met A.1. Het telpatroon lees je van onder naar boven, dat betekent dus dat A.1 1 steek heeft op de eerste naald.

22.04.2024 - 21:34

country flag Christine wrote:

Bonjour Je pense qu'il y a une erreur pour DOS/DEVANTS : pour la taille L si on suit les indications "sur l'envers tricoter le rang 2 de A3 avec 7 mailles de bordure..." le motif se trouve décalé. J'ai fait dès ce moment le rang 2 de A5/A3/A6 avec les 7 mailles de bordure de chaque côté et cela fonctionnera très bien.

15.04.2024 - 17:13

DROPS Design answered:

Bonjour Christine, quand les diagrammes sont terminés, on a 313 mailles en taille L, on tricote le 1er rang de A.3 sur toutes les mailles lors de la division, ainsi, au rang suivant sur l'envers (le 1er rang du dos/devants), on tricote le 2ème rang de A.3 (on ne doit plus augmenter). Bon tricot!

16.04.2024 - 08:03

country flag Yvonne wrote:

Har 251 m sammanlagt. 41 m x2 till mönster. Helt ok. Hur många maskor till ärm resp ok när A1 är stickat en gång? Storlek M.

15.04.2024 - 14:21

DROPS Design answered:

Hei Yvonne. Hvert erme skal da bestå da: 2 rettmaskene + de økte maskene til raglan + de 20 maskene du hadde i starten + de økte maskene til raglan + 2 rettmaskene. Mvh DROPS Design

23.04.2024 - 07:11

country flag Yvonne wrote:

Hej igen. Frågan oklar? Har jag missat något då jag inte får ihop det på första varvet A 1.

13.04.2024 - 23:02

DROPS Design answered:

Hei Yvonne. Se vårt forrige svar til deg, evnt opplys hvor mange masker du har etter å ha strikket A.1 1 gang i høyden. mvh DROPS Design

15.04.2024 - 09:09