DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9680.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Remembering Spring Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöfölum kanti í hálsmáli, laskalínu, gatamynstri og ¾ löngum ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 250-2
DROPS Design: Mynstur z-1016
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-250-250-300-300-350 g litur 100, natur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-100-125-125-150 g litur 07, ljós himinblár

TÖLUR:
DROPS TALA NR 522: 5-5-5-6-6-6 stykki.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: Lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
18 lykkjur á breidd og 24 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9680.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD:
Í BYRJUN UMFERÐAR:
Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 4 lykkjur í garðaprjóni.
Í LOK UMFERÐAR:
Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt.
Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu.

MYNSTUR:
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan/eftir lykkjum með merki.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður á framstykkjum/bakstykki brugðið frá röngu/réttu – þannig að það myndist gat. Uppslátturinn á ermum er prjónaður snúinn brugðið frá röngu – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni á framstykkjum/bakstykki og inn í gatamynstur á ermum.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan frá réttu.
UMFERÐ 1: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 síðustu lykkjur frá kanti að framan eins og áður.
UMFERÐ 2: Prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð á eftir kanti í hálsmáli, síðan er fellt af fyrir hnappagötum eftir:
S: 9-18-27-36 cm
M: 9½-19-28½-38 cm
L: 10-20-30-40 cm
XL: 8½-17-25½-34-42½ cm
XXL: 9-18-27-36-45 cm
XXXL: 9½-19-28½-38-47½ cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf.
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað ofan frá og niður fram og til baka á hringprjóna. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka er lykkjum skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Eftir að fram- og bakstykkið hefur verið prjónað eru ermar prjónaðar niður á við í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. Kantur í hálsmáli er brotin tvöfalt að röngu og saumaður niður. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 104-108-114-118-122-126 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Skiptið yfir á hringprjón 3,5 (fitjað er upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur).
Prjónið fram og til baka í sléttprjóni þar til stykkið mælist ca 2½ cm – stillið af að síðasta umferð sem prjónuð er sé frá röngu og fitjið upp 6 nýjar lykkjur í lok umferðar frá röngu = 110-114-120-124-128-132 lykkjur.
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið KANT AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan, prjónið slétt út umferðina og fitjið upp 6 nýjar lykkjur í lok umferðar = 116-120-126-130-134-138 lykkjur.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið KANT AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD, prjónið slétt frá röngu þar til 6 lykkjur eru eftir og prjónið KANT AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD. Síðar er kantur í hálsmáli brotinn niður í þessari umferð.

Nú er prjónað áfram með kanta að framan með I-cord í hvorri hlið og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru þar til kantur að framan mælist ca 6 cm (= ca 3 cm kantur að framan þegar hann hefur verið brotinn tvöfaldur). Setjið eitt merki að innanverðu í kanti að framan í annarri hlið á stykki, berustykkið er nú mælt frá þessu merki.

BERUSTYKKI:
Prjónið síðan með hringprjón 4,5.
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið sléttprjón yfir næstu 104-108-114-118-122-126 lykkjum jafnframt er fækkað um 10-10-12-12-12-12 lykkjur jafnt yfir og prjónið kant að framan eins og áður, fellt er af fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan = 106-110-114-118-122-126 lykkjur.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið brugðið þar til 6 lykkjur eru eftir og prjónið kant að framan eins og áður.
Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu.
Teljið 19-20-21-22-23-24 (= vinstra framstykki), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 19 lykkjur (= ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 26-28-30-32-34-36 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 19 lykkjur (= ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju, það eru eftir 19-20-21-22-23-24 lykkjur á eftir síðasta merki (= hægra framstykki).

Í næstu umferð er prjónað MYNSTUR og aukið út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan og prjónið þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta):
Prjónið kant að framan eins og áður, 13-14-15-16-17-18 lykkjur sléttprjón (= vinstra framstykki), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 1 lykkju sléttprjón (1. merki situr í þessari lykkju), prjónið A.1, prjónið A.2 yfir næstu 12 lykkjur, prjónið A.3, prjónið 1 lykkju sléttprjón (2. merki situr í þessari lykkju) (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 26-28-30-32-34-36 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu (= bakstykki), prjónið 1 lykkju sléttprjón (3. merki situr í þessari lykkju), prjónið A.1, prjónið A.2 yfir næstu 12 lykkjur, prjónið A.3, prjónið 1 lykkju sléttprjón (4. merki situr í þessari lykkju) (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 13-14-15-16-17-18 lykkjur sléttprjón og kant að framan eins og áður (= hægra framstykki). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Haldið svona áfram fram og til baka með mynstur, en það er aukið út mismunandi á framstykkjum/bakstykki og ermum – lestu því næstu kafla ÚTAUKNING ERMAR og ÚTAUKNING FRAMSTYKKI / BAKSTYKKI að neðan, áður en þú prjónar áfram!

ÚTAUKNING ERMAR:
Á ermum er aukið út alls 17-20-21-23-24-25 sinnum í hvorri hlið (ásamt útaukningu í fyrstu umferð eins og útskýrt var að ofan).
Útaukning á ermum er teiknuð inn í mynsturteikningu A.1 og A.3. Í hvert skipti sem A.1, A.2 og A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, er pláss fyrri 2 mynstureiningar af A.2 á milli A.1 og A.3.
Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri í hvorri hlið á ermum eru prjónaðar í sléttprjóni.

ÚTAUKNING FRAMSTYKKI / BAKSTYKKI:
Á framstykkjum og bakstykki er aukið út fyrir LASKALÍNA alls 22-24-26-29-33-36 sinnum (ásamt útaukningu í fyrstu umferð eins og útskýrt var að ofan), aukið er út þannig:
Aukið út í hverri umferð alls 0-0-0-0-4-6 sinnum, síðan er aukið út í annarri hverri umferð alls 22-24-26-29-29-30 sinnum.

Á EFTIR SÍÐUSTU ÚTAUKNINGU:
Þegar öll útaukning hefur verið gerð eru 262-286-302-326-350-370 lykkjur í umferð (41-44-47-51-56-60 lykkjur á hvoru framstykki, 55-61-63-67-69-71 lykkjur á ermum (ásamt 1 lykkju með merki í hvorri hlið á ermum) og 70-76-82-90-100-108 lykkjur á bakstykki).
Haldið áfram með mynstur, sléttprjón og kanta að framan eins og áður, en nú er prjónað án útaukningar.
Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri í hvorri hlið á ermum eru prjónaðar í sléttprjóni. Haldið áfram þar til stykkið mælist ca 19-23-24-26-27-28 cm frá merki í hálsmáli.

SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 41-44-47-51-56-60 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 55-61-63-67-69-71 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið undir ermi), prjónið 70-76-82-90-100-108 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki), setjið næstu 55-61-63-67-69-71 lykkjur á þráð fyrir ermi, fijtið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 41-44-47-51-56-60 lykkjur í sléttprjóni (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er stykkið mælt!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 172-184-200-216-240-260 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kantlykkjur að framan eins og áður þar til stykkið mælist 20-18-19-18-19-20 cm frá skiptingunni. Í næstu umferð (= rétta) byrjar stroffið jafnframt því sem í fyrstu umferð er aukið út um 1-5-5-9-9-13 lykkjur jafnt yfir = 173-189-205-225-249-273 lykkjur, prjónað er þannig:
Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið kanta að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukningu). Þar til stroffið mælist 3-3-3-4-4-4 cm, fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Peysan mælist ca 47-49-51-53-55-57 cm frá öxl.

ERMAR:
Setjið 55-61-63-67-69-71 lykkjur frá annarri erminni af þræði á hringprjóna 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 65-71-75-79-83-87 lykkjur.
Setjið 1 merkiþráð mitt í 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn.
Prjónið hringinn í mynstri eins og áður, lykkjur mitt undir ermi og lykkjum sem ekki ganga jafnt upp í mynstri í hvorri hlið eru prjónaðar í sléttprjóni – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3-3-3-4-4-4 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 4-2½-2-1½-1½-1 cm alls 6-8-9-10-11-12 sinnum = 53-55-57-59-61-63 lykkjur.
Prjónið síðan þar til ermin mælist 30-27-26-23-23-22 cm frá skiptingunni.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT því sem aukið er út um 1-1-3-3-5-7 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 54-56-60-62-66-70 lykkjur.
Þegar stroffið mælist 3-3-3-4-4-4 cm, fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Ermin mælist ca 33-30-29-27-27-26 cm frá skiptingunni.

FRÁGANGUR:
Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 06.03.2024
Uppskriftin hefur verið uppfærð. Leiðrétting í 1. umferð í laskalínu og mynstri á berustykki í öllum stærðum.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið – það á ekki að myndast gat
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið – það á að myndast gat
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman

symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 250-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (9)

country flag Karin wrote:

Die unterschiedlichen Zunahmen an Ärmeln und Vorder-/Rückenteil sind für mich unklar beschrieben: Wie viel Male werden die Diagramme für die Passe in die Höhe gestrickt oder hört man mitten im Diagramm auf, wenn die Anzahl Zunahmen erreicht wurde? Werden die Raglanzunahmen nicht in jeder zweiten Reihe gestrickt, also immer auf der Vorderseite? Es ist mir nicht klar, wie das unterschiedlich sein kann, da die Ärmelzunahmen im Muster vorgegeben sind. Danke!

01.04.2024 - 19:30

DROPS Design answered:

Liebe Karin, die Raglanzunahmen werden bei den Ärmeln und beim Rumfpteil an einem unterschiedlichen Rythmus gestrickt; für die Ärmel nehmen Sie wie in den Diagrammen zu; bei den Vorderteilen + Rückenteil nehmen Sie zuerst in jeder Reihe (nur in die 2 grösseren Grösse) dann in jeder 2. Reihe (in jeder Hin-Reihe). Bein den Diagramme wird es nicht in jeder 2. Reihe zugenommen, nur wie in A.1 + in A.3 gezeigt wird (siehe 2. Symbol). Viel Spaß beim Stricken!

02.04.2024 - 15:38

country flag Isabela wrote:

Dear Drops Team, in the pattern description it says: S - M - L - XL - XXL – XXXL Finished measurements: Chest measurements: 80-88-96-106-118-130 cm = 31 1/2"-34 5/8"-37 3/4"-41 3/4"-46 1/2"-51 1/4" Full length: 47-49-51-53-55-57 cm = 18 1/2"-19 1/4"-20"-21"-21 5/8"-22 1/2 BUT the numbers on the chart provide different information, so I am confused which one is true.

26.02.2024 - 13:42

DROPS Design answered:

Dear Isabella, the numbers in the US-English pattern gives the circumference of bust while the chart shows just the finished measurements when piece lays flat - full length is the same as stated in the written pattern. Read more about measurement charts here. Happy knitting!

26.02.2024 - 14:56

country flag Isabela wrote:

Dear Team, I am confused with the measurements in this pattern, the size description in the text is different from the sizes shown in the diagram. Which one of the two is correct?

23.02.2024 - 18:13

DROPS Design answered:

Dear lsabella, which measurements do you mean could be wrong? Can you tell us more so that we can check and explain/edit? Thanks for your help.

26.02.2024 - 07:16

country flag Sylvie wrote:

J'aime beaucoup ce modèle que j'aimerais réaliser avec un col qui ne soit pas double et des manches de longueur normale. Comment dois je procéder ?. En vous remerciant

13.02.2024 - 17:08

DROPS Design answered:

Bonjour Sylvie, aidez-vous d'un modèle similaire de même tension pour tricoter le col (car ici, c'est un ourlet, pas des côtes et il vous faudra alors adapter le nombre de mailles en fonction des côtes souhaités et de la taille) et trouver également les ajustements nécessaires pour la longueur des manches souhaitée. Bon tricot!

14.02.2024 - 07:53

country flag Fernanda Kazic wrote:

Saltsjöbad!

20.01.2024 - 22:12

country flag Caroline wrote:

Romance

19.01.2024 - 08:54

country flag Susie wrote:

Sailing Away

19.01.2024 - 06:51

country flag Marlies Van Dijk wrote:

Romantisch, uit andere tijden

18.01.2024 - 22:20

country flag Pia Charlotte Nicolaisen wrote:

Perlehyasint

18.01.2024 - 15:36