Oatfield |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air eða DROPS Big Merino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með útaukningu fyrir axlarsætir og áferðamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 248-7 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir í útaukningu): Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt – svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (frá réttu): Aukið út um 1 lykkju til vinstri: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. Aukið út um 1 lykkju til hægri: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. ÚTAUKNING-3 (frá röngu): Aukið út um 1 lykkju til vinstri: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. Aukið út um 1 lykkju til hægri: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 2 lykkju í umferð með því að fækka um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað ofan frá og niður og allt stykkið (fyrir utan upphækkun), er prjónað í hring á hringprjóna. Þegar kantur í hálsmáli og berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Ermar eru síðan prjónaðar niður á við í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 84-86-90-94-96-100 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Air eða DROPS Big Merino. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Síðan er berustykkið prjónað eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 18-16-16-20-22-18 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING-1 = 102-102-106-114-118-118 lykkjur. Setjið 1 merki í fyrstu lykkju í umferð (= mitt að aftan) og setjið 1 merki í 52-52-54-58-60-60 lykkju í umferð (= mitt að framan). Berustykkið er nú mælt frá merki sem var sett í mitt að framan. Merkin eru einnig notuð til að telja út frá hlið hvar mynstrið á að byrja, eins og útskýrt er aðeins neðar í mynstri. Að auki eru settir 4 merkiþræðir í stykkið þannig: Merkiþræðirnir eru settir í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar og hver merkiþráður er settur á milli 2 lykkja. Merkiþræðirnir eru notaðir þegar auka á út fyrir axlarsæti. MERKIÞRÁÐUR 1: Byrjið mitt að aftan, teljið 18-18-19-19-20-20 lykkjur meðtalin lykkja með merki 1 (= ½ bakstykki), setjið 1. merkiþráðinn á undan næstu lykkju. MERKIÞRÁÐUR 2: Teljið 16-16-16-20-20-20 lykkjur á eftir 1. merkiþræði (= axlalykkjur), setjið 2. merkiþráðinn á undan næstu lykkju. MERKIÞRÁÐUR 3: Teljið 35-35-37-37-39-39 lykkjur á eftir 2. merkiþræði (= framstykki), setjið 3. merkiþráðinn á undan næstu lykkju. MERKIÞRÁÐUR 4: Teljið 16-16-16-20-20-20 lykkjur á eftir 3. merkiþræði (= axlalykkjur), setjið 4. merkiþráðinn á undan næstu lykkju. Það eru 17-17-18-18-19-19 lykkjur eftir í umferð á eftir 4. merkiþræði (= ½ bakstykki). Látið 4 merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, það á að auka út við hvern af þessum merkiþráðum. Nú er prjónuð upphækkun aftan í hnakka eins og útskýrt er að neðan. UPPHÆKKUN: Öll upphækkunin er prjónuð fram og til baka í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Byrjið mitt að aftan, prjónið 8-8-9-9-10-10 lykkjur slétt, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið 15-15-17-17-19-19 lykkjur brugðið – þegar stykkinu er snúið myndast lítið gat – það er hægt að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina GERMAN SHORT ROWS – leitaðu í myndböndunum okkar. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið 23-23-26-26-29-29 lykkjur slétt, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið 31-31-35-35-39-39 lykkjur brugðið. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið 39-39-44-44-49-49 lykkjur slétt – að auki er aukið út um 1 lykkju á UNDAN 1. merkiþræði – lesið ÚTAUKNING-2 (útaukna lykkjan kemur sem viðbót við lykkjufjölda í upphækkun), snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið 47-47-53-53-59-59 lykkjur brugðið – að auki er aukið út um 1 lykkju á EFTIR 1. merkiþræði og á UNDAN 4. merkiþræði – lesið ÚTAUKNING-3 (munið að útauknar lykkjur koma sem viðbót), snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka að miðju að aftan – að auki er aukið út um 1 lykkju á EFTIR 4. merkiþræði, klippið þráðinn. Nú hafa verið auknar út 2 lykkjur á undan 1. merkiþræði og 2 lykkjur á eftir 4. merkiþræði (séð frá réttu), þ.e.a.s. það eru 4 lykkjur fleiri á bakstykki en á framstykki = 106-106-110-118-122-122 lykkjur á prjóni. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Síðan byrjar umferðin strax eftir 1. merkiþráð (færið lykkjur sem eru á milli mitt að aftan og 1. merkiþræði, yfir á hægri prjón). Í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir axlarsætis útaukningu og prjónað er í hring á hringprjóna – jafnframt því sem aukið er út fyrir axlarsæti, prjónið mynstur á framstykki og bakstykki. Lestu kaflann ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI og MYNSTUR að neðan, áður en prjónað er áfram! ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI: Prjónið sléttprjón og aukið út 4 lykkjur fyrir axlarsæti í fyrstu umferð þannig: Aukið út um 1 lykkju á EFTIR 2. og 4. merkiþræði og aukið út á UNDAN 1. og 3. merkiþræði – munið eftir ÚTAUKNING-2. Einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami. Haldið svona áfram hringinn og aukið út á sama hátt í hverri umferð alls 16-18-18-18-20-20 sinnum. Síðan eru prjónaðar 2 umferðir þar sem einungis er aukið út í hvorri hlið á framstykki, þannig að það verða jafn margar lykkjur á framstykki og á bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á EFTIR 2. merkiþræði og á UNDAN 3. merkiþræði í báðum umferðum = 174-182-186-194-206-206 lykkjur í umferð (= 16-16-16-20-20-20 lykkjur í umferð á hvorri öxl og 71-75-77-77-83-83 lykkjur á framstykki/bakstykki). Á eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 8-9-9-9-10-10 cm frá þar sem merki var sett mitt að framan. Síðan er aukið út fyrir ermar eins og útskýrt er aðeins neðar í mynstri. MYNSTUR: Jafnframt þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir í sléttprjóni á eftir kanti í hálsmáli og upphækkun hefur verið prjónuð til loka, byrjar mynstrið. A.1 er einungis prjónað á framstykki og bakstykki, á ermum er prjónað sléttprjón. Prjónið þannig: Prjónið sléttprjón yfir axlalykkjur og á framstykki er byrjun mynsturs talið út frá merki mitt að framan – sjá tákn í A.1 sem merkir miðju að framan / miðju að aftan, teljið út að hlið (að 2. merkiþræði) eins langt og hægt er að axlarsætis útaukningu og byrjið mynstrið. ATH: Það er best að forðast «hnútamynstur» alveg við axlarsætis útaukningu, skiptið e.t.v. út þessum lykkjum með sléttprjóni, síðan er prjónað A.1 eins langt og hægt er að axlarsætis útaukningu í annarri hlið (að 3. merkiþræði) og prjónið síðustu lykkjur í sléttprjóni þannig að mynstrið byrjar og endar á sama hátt í hvorri hlið, prjónið sléttprjón yfir axlarsætis lykkjur og prjónið mynstur á bakstykki á sama hátt og á framstykki. Haldið svona áfram hringinn. Útauknar lykkjur frá axlarsætis útaukningu og síðar frá berustykkis útaukningu, eru prjónaðar jafn óðum inn í mynstur, en passið uppá að það komi ekki «hnútamynstur» alveg við útaukningar. ÚTAUKNING ERMAR: Þegar útaukningu fyrir axlarsætis útaukningu er lokið, aukið út 4 lykkjur fyrir ermar í næstu umferð þannig: Aukið út 1 lykkju á EFTIR 1. og 3. merkiþræði og aukið út á UNDAN 2. og 4. merkiþræði – munið eftir ÚTAUKNING-2! Það er einungis aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 12-13-15-13-13-10 sinnum og síðan í hverri umferð alls 3-2-0-0-0-0 sinnum = 234-242-246-246-258-246 lykkjur. Stykkið mælist ca 20-22-23-21-22-19 cm frá þar sem merkið var sett á framstykki. Síðan er aukið út fyrir berustykki eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING BERUSTYKKI: Takið frá 4 merkiþræðina frá útaukningu á ermum og setjið 1 merki í ystu lykkju í hvora hlið á framstykki og bakstykki (4 ný merki). Það eru 71-75-77-77-83-83 lykkjur á framstykki/bakstykki ásamt lykkjum með merki í og 46-46-46-46-46-40 lykkjur á hvorri ermi. Í næstu umferð eru auknar út 8 lykkjur fyrir berustykki með því að auka út bæði fyrir og á eftir hverjum 4 lykkjum með merki í. Nú er lykkjum aukið út á framstykki, bakstykki og báðum ermum – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1 á framstykki/bakstykki og í sléttprjóni á ermum. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 0-0-1-3-5-12 sinnum og síðan í hverri umferð alls 1-2-3-5-3-0 sinnum. Á eftir síðustu útaukningu eru 242-258-278-310-322-342 lykkjur í umferð. Þegar öll útaukning hefur verið gerð, mælist stykkið ca 21-23-25-26-28-30 cm frá þar sem merki var sett á framstykki og ca 26-28-30-32-34-36 cm frá öxl. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Setjið fyrstu 48-50-54-62-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi (= allar lykkjur á milli 1. og 2. merkiþráða), fitjið upp 6-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 73-79-85-93-99-107 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 48-50-54-62-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi (= allar lykkjur á milli 3. og 4. merkiþráða), fitjið upp 6-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið mynstur eins og áður yfir síðustu 73-79-85-93-99-107 lykkjur (= bakstykki). Takið frá öll merki og merkiþræði í stykkinu. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrri sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 158-174-190-206-222-242 lykkjur. Setjið 1 nýtt merki í aðra hliðina á stykki (= mitt í 6-8-10-10-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið sléttprjón fram að merki – umferðin byrjar héðan og er prjónuð í hring. Haldið áfram með mynstur hringinn eins og áður. ATH: Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri í hvorri hlið undir hvorri ermi, eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið þar til stykkið mælist 20-20-20-19-19-19 cm frá skiptingunni – stillið af að prjónaðar séu nokkrar umferðir sléttprjón eftir umferð með «hnútar». Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 16-20-22-24-24-28 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 174-194-212-230-246-270 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5 cm, fellið aðeins laust af. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 48-50-54-62-62-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna / hringprjóna 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-72-74-78 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur undir ermi. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4-4-4-3-3-3 cm frá skiptingunni, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í hverjum 8-6-4-2½-2½-2 cm alls 4-5-7-10-11-12 sinnum = 46-48-50-52-52-54 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 35-34-32-30-30-28 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 4-4-4-5-5-5 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 6 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum í umferð 1 = 52-54-56-58-58-60 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5 cm, fellið aðeins laust af. Ermin mælist ca 39-38-36-35-35-33 cm frá skiptingunni. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (6)
Ann wrote:
Hey, the specifics of increasing seem to be missing here--while each of the methods are explained, the type of increase for each specific increase is not mentioned. If you're looking to make this, you will need to carefully watch the videos as well as reading the pattern and reading the diagram. This pattern could really use some errata
18.02.2024 - 19:37Dorothee wrote:
Mir gefällt die Schulterpartie sehr gut
20.01.2024 - 13:31Melanie wrote:
Polka Harmony, Speckled Elegance, Coffee Cream
19.01.2024 - 09:29Ursula Nürnberger wrote:
Find ich sehr nett, aber, wie all Ihre Modelle in diesem Jahr viel zu kurz, nichts geeignet für ältere Frauen
18.01.2024 - 21:30Sylvie wrote:
Nougat
18.01.2024 - 20:25Sabine HENRICH wrote:
Simplicité et intemporalité pour ce joli pull, fin et léger comme une brise de printemps
18.01.2024 - 13:29