Sunshine Trail Cardigan |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð peysa úr 3 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með gatamynstri, V-hálsmáli og I-cord. Stærð XS - XXL.
DROPS 249-6 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið fimmtu og sjöttu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: XS: 4, 12, 19 og 26 cm S: 4, 12, 20 og 28 cm M: 4, 11, 17, 23 og 29 cm L: 4, 11, 17, 24 og 30 cm XL: 4, 11, 18, 25 og 31 cm XXL: 4, 11, 18, 25 og 32 cm V-HÁLSMÁL: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum fyrir V-hálsmáli innan við 7 lykkjur í kanti að framan á báðum framstykkjum. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið kant að framan eins og áður, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið kant að framan eins og áður. ÚTAUKNING (á við um ermar): Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað neðan frá og upp. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka með kanti að framan í hvorri hlið upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvert stykki er prjónað fram og til baka hvert fyrir sig. Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp og prjónað er í hring fram að handvegi, síðan er ermin prjónuð til loka fram og til baka. Stykkin eru saumuð saman. Í lokin eru kantar að framan saumaðir við hálsmál aftan í hnakka. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 204-220-236-252-268-300 lykkjur á hringprjón 3,5 með 3 þráðum DROPS Kid-Silk. Prjónið stroff og kanta að framan með byrjun frá réttu þannig: Prjónið 7 lykkjur KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan, * prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 7 lykkjum í kanti að framan með I-cord. Prjónið fram og til baka með stroffprjóni og kanti að framan í hvorri hlið þar til stykkið mælist 4 cm. Síðasta umferð er prjónuð frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 5. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 7 lykkjur í kanti að framan eins og áður, prjónið brugðið og fækkið um 45-49-53-57-61-69 lykkjur jafnt yfir næstu 190-206-222-238-254-286 lykkjur og prjónið 7 lykkjur í kanti að framan eins og áður = 159-171-183-195-207-231 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið kant að framan eins og áður – fellt er af fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan, prjónið MYNSTUR A.1 yfir fyrstu 30-35-36-36-42-47 lykkjur, prjónið 3-0-0-3-0-0 lykkjur slétt, setjið 1 merkiþráð hér, prjónið 6-8-12-12-12-14 lykkjur slétt (í hlið), setjið 1 merkiþráð hér, prjónið 4-0-1-4-1-0 lykkjur slétt, prjónið A.1 yfir næstu 60-71-72-72-84-95 lykkjur, prjónið 3-0-0-3-0-0 lykkjur slétt, setjið 1 merkiþráð hér, prjónið 6-8-12-12-12-14 lykkjur slétt (í hlið), setjið 1 merkiþráð hér, prjónið 4-0-1-4-1-0 lykkjur slétt, prjónið A.1 yfir næstu 29-35-35-35-41-47 lykkjur, endið með kant að framan eins og áður. Haldið áfram með kanta að framan eins og áður og endurtakið A.1 á hæðina þannig að það komi gatamynstur í 4. Hverri umferð (þ.e.a.s. annarri hverri umferð frá réttu). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið þar til stykkið mælist 27-29-30-31-32-33 cm. Nú byrjar úrtaka fyrir V-HÁLSMÁL – lesið útskýringu að ofan. Haldið áfram með kanta að framan og A.1 og fækkið lykkjum fyrir V-hálsmáli í hvorri hlið í 4. hverri umferð 2 sinnum, síðan í annarri hverri umferð 16-16-16-16-19-19 sinnum, alls 18-18-18-18-21-21 lykkjur færri í hvorri hlið. ATH! Þegar lykkjum er fækkað fyrir V-hálsmáli eru lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í heilt gatamynstur prjónaðar í sléttprjóni. Það fækkar um 3-3-3-3-4-4 mynstureiningar með A.1 á hvoru framstykki. Jafnframt þegar stykkið mælist 29-31-32-33-34-35 cm fellið af fyrir handveg eins og útskýrt er að neðan. SKIPTING FYRIR HANDVEG: Í næstu umferð frá réttu skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki, prjónið frá réttu þannig: Prjónið eins og áður fram að 1. merkiþræði (hægra framstykki, fellið af næstu 6-8-12-12-12-16 lykkjur fyrir handveg, prjónið næstu 67-71-73-79-85-95 lykkjur eins og áður fram að 3. merkiþræði (bakstykki), fellið af næstu 6-8-12-12-12-16 lykkjur fyrir handveg, prjónið þær lykkjur sem eftir eru eins og áður (vinstra framstykki). Nú eru framstykkin og bakstykkið prjónað til loka hvert fyrir sig. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu. Framstykkið er prjónað fram og til baka með A.1 og kanti að framan eins og áður jafnframt því sem lykkjum er fækkað fyrir V-hálsmáli –passið uppá að mynstureiningarnar komi yfir hverja aðra. Þegar úrtöku fyrir V-hálsmáli er lokið, eru 22-24-25-28-28-33 lykkjur á framstykki. Nú eru 2-3-3-3-3-4 mynstureiningar með gatamynstri á öxl. Prjónið eins og áður þar til stykkið mælist 48-51-53-55-57-59 cm. Í byrjun á næstu umferð frá handvegi, fellið af 15-17-18-21-21-26 fyrstu lykkjur þannig að einungis kantur að framan er eftir. Prjónið kant að framan eins og áður í næstu 15-15-15-15-17-17 cm. Fellið af. HÆGRA FRAMSTYKKI: Framstykkið er prjónað fram og til baka með A.1 og kant að framan jafnframt því sem lykkjum er fækkað fyrir V-hálsmáli á sama hátt og vinstra framstykki. BAKSTYKKI: = 67-71-73-79-85-95 lykkjur. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu. Bakstykkið er prjónað fram og til baka með A.1 eins og áður – passið uppá að mynstureiningarnar komi yfir hverja aðra. Þegar stykkið mælist 45-48-50-52-54-56 cm. Fellið af miðju 33-33-33-33-39-39 lykkjur og prjónið hvora öxl fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsmáli eru felldar af 2 lykkjur fyrir hálsmáli = 15-17-18-21-21-26 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 48-51-53-55-57-59 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMAR: Fitjið upp 56-56-64-64-72-72 lykkjur á sokkaprjón 3,5 með 3 þráðum DROPS Kid-Silk. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) hringinn þar til stykkið mælist 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5, prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem fækkað er um 14-14-16-16-18-18 lykkjur jafnt yfir = 42-42-48-48-54-54 lykkjur. Setjið einn merkiþráð í byrjun umferðar. Prjónið A.1 hringinn yfir allar lykkjur. Þegar ermin mælist 11-6-9-7-7-7 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út í hverjum 5-5-5-4½-5-4 cm alls 8-9-8-9-8-9 sinnum = 58-60-64-66-70-72 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni, mynstureining með A.1 er prjónað eins og áður. Það eru alltaf 7-7-8-8-9-9 mynstureiningar A.1 á erminni. Prjónið síðan þar til ermin mælist 50-49-48-47-46-43 cm, stillið af að síðasta umferð sé annað hvort 1. eða 3. umferð í mynsturteikningu. Nú skiptist stykkið við merkiþráðinn og prjónað er fram og til baka yfir allar lykkjur. Prjónið fram og til baka þar til ermin mælist 52-52-52-51-50-48 cm. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermakúpuna við handveg innan við 1 lykkju. Síðan er klaufin saumuð efst á erminni við botninn á handvegi – sjá teikningu. Saumið tölur í vinstri kant að framan. Saumið saman kanta að framan mitt að aftan og saumið við hálsmál aftan í hnakka. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (14)
Antje Gerwe wrote:
Ich möchte die Jacke Sunshine Trail Cardigan stricken. In der Anleitung steht "in 3 Fäden DROPS Kid-Silk" - heißt das dass ich mit 3 Fäden, d.h. 3 Knäuel gleichzeitig stricken muss? Vielen Dank im Voraus uns viele Grüße
07.04.2024 - 11:55DROPS Design answered:
Liebe Frau Gerwe, ja genau, man wird mit je 1 Faden von 3 Knäuel zusammenstricken. Viel Spaß beim Stricken!
08.04.2024 - 08:12Charron wrote:
Page 4 de 7 après avoir ouvert la première boutonnière, tricoter le point A.1 que veut dire ... (au-dessus des 36 premières mailles ?) et à combien de cm je dois faire les autres boutonnières en distance chacune?
20.03.2024 - 20:36DROPS Design answered:
Bonjour Mme Charron, pour tricoter A.1 au-dessus des 36 premières mailles, répétez simplement 6 fois au total les 6 mailles A.1 (6x6 = 36 mailles). Vous trouverez toutes les indications pour les boutonnières au début des explications, sous le paragraphe BOUTONNIÈRES:. Bon tricot!
21.03.2024 - 08:48Kim Miller wrote:
The chart symbol description is incorrect for the yarnover.
05.02.2024 - 14:09DROPS Design answered:
Dear Mrs Miller, thanks for noticing, diagram text is now updated. Happy knitting!
06.02.2024 - 09:35Maria Roshed Sandström wrote:
After beach
21.01.2024 - 08:57Karen wrote:
Sunny Romance
20.01.2024 - 04:36Kimberly Colon wrote:
Artemisia since the vertical lace resembles how these types of plants grow with tall straight stems.
18.01.2024 - 20:56Sylvie wrote:
Sorbet
18.01.2024 - 20:23Notjustnanasknit wrote:
Another vote for Summer Breeze
18.01.2024 - 19:39TURPIN MONIQUE wrote:
Brise d'été
18.01.2024 - 17:03Ann-Christine Corneliusson wrote:
Veteäng
18.01.2024 - 16:35