DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5632.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Vestfjord Vest

Prjónað vesti fyrir herra úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 246-13
DROPS Design: Mynstur ne-376
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS NEPAL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
400-450-450-500-550-600 g litur 0206, beige

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5632.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúið slétt, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um handveg og hálsmál):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG:
1 kantlykkja í garðaprjóni, 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG:
Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna neðan frá og upp að handvegi. Stykkið skiptist síðan fyrir framstykki og bakstykki og er prjónað fram og til baka að loka máli.
Kantur í hálsmáli og kantur í handvegi er síðan prjónað í hring á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 188-196-214-242-268-282 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Nepal. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 20-20-22-26-28-30 lykkjur jafnt yfir = 168-176-192-216-240-252 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar og 1 merkiþráð eftir 84-88-96-108-120-126 látið merkiþræðina fylgja með í stykkinu – það á að nota þau síðar þegar auka á út í hliðum. Skiptið yfir á hringprjón 5.
Prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 10 cm, aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út í 14.-6.-6.-16.-16.-17. hverjum cm alls 2-4-4-2-2-2 sinnum = 176-192-208-224-248-260 lykkjur.

Prjónið þar til stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm. Í næstu umferð er lykkjum fækkað fyrir handveg þannig: Byrjið 5-6-7-8-9-10 lykkjum á undan fyrra prjónamerki, fellið af 10-12-14-16-18-20 lykkjur, prjónið áfram þar til 5-6-7-8-9-10 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki í hinni hliðinni, fellið af 10-12-14-16-18-20 lykkjur. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað til loka hvort fyrir sig, setjið fyrstu 78-84-90-96-106-110 lykkjur á þráð fyrir framstykki.

BAKSTYKKI:
= 78-84-90-96-106-110 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – lesið ÚRTAKA. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni (með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið) og fækkið lykkjum fyrir handveg í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 5-7-9-10-15-14 sinnum og síðan í 4. hverri umferð (annarri hverri umferð frá réttu) alls 3-3-2-2-1-2 sinnum = 62-64-68-72-74-78 lykkjur.
Síðan er lykkjum fækkað fyrir skáhallandi öxl og hálsmáli eins og útskýrt er að neðan.

SKÁHALLANDI ÖXL og HÁLSMÁL:
Lykkjum er fækkað fyrir skáhallandi öxl samtímis sem lykkjum er fækkað fyrir hálsmáli, lestu því allan kaflann áður en þú prjónar áfram.

Þegar stykkið mælist 57-59-61-63-65-67 cm, setjið lykkjur á þráð í hvorri hlið fyrir skáhallandi öxl (til að þurfa ekki að klippa þráðinn frá sem prjónað er með eru lykkjurnar prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn):
Setjið lykkjur á þráð frá hlið þannig: 5-6-6-7-7-7 lykkjur 2 sinnum og síðan eru síðustu 7-6-6-6-6-9 lykkjur settar á þráð. Þegar allar lykkjur sitja á þræðinum, setjið lykkjurnar til baka yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð sléttprjón yfir allar lykkjur (til að koma í veg fyrir göt í skiptingunum þar sem lykkjur voru settar á þráðinn, er þráðurinn tekinn upp á milli 2 lykkja og prjónað snúið saman með fyrstu lykkju á vinstri prjóni). Fellið af í næstu umferð.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm, fellið af miðju 26-26-28-28-30-30 lykkjur fyrir hálsmáli (18-19-20-22-22-24 lykkjur á hvorri öxl) og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Jafnframt í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju frá hálsmáli. Þegar allar lykkjur hafa verið felldar af, mælist stykkið ca 60-62-64-66-68-70 cm frá hæsta punkti á öxl og niður.
Endurtakið á hinni öxlinni.

FRAMSTYKKI:
= 78-84-90-96-106-110 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – munið eftir ÚRTAKA. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni (með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið) og fækkið lykkjum fyrir handveg í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) 5-7-9-10-15-14 sinnum og síðan í 4. hverri umferð (annarri hverri umferð frá réttu) alls 3-3-2-2-1-2 sinnum = 62-64-68-72-74-78 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 52-54-55-57-58-60 cm, setjið miðju 18-18-18-18-20-20 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli (22-23-25-27-27-29 lykkjur á hvorri öxl) og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið síðan og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli – munið eftir ÚRTAKA. Haldið áfram fram og til baka og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 5-5-6-6-6-6 sinnum = 17-18-19-21-21-23 lykkjur á öxl. Prjónið síðan og fækkið lykkjum fyrir skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan.

SKÁHALLANDI ÖXL:
Þegar stykkið mælist 57-59-61-63-65-67 cm, setjið lykkjur á þráð í hvorri hlið fyrir skáhallandi öxl á sama hátt og á bakstykki, þ.e.a.s. setjið 5-6-6-7-7-7 lykkjur 2 sinnum og síðan síðustu 7-6-6-6-6-9 lykkjur á þráð.
Þegar allar lykkjur sitja á þræði er prjónuð 1 umferð sléttprjón yfir allar lykkjur eins og á bakstykki, áður en fellt er af í næstu umferð. Þegar allar lykkjur hafa verið felldar af, mælist stykkið ca 60-62-64-66-68-70 cm frá hæsta punkti á öxl og niður.
Endurtakið á hinni öxlinni.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið frá réttu við aðra öxlina, notið stuttan hringprjón 4 og prjónið upp ca 76 til 96 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði) innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2). Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

KANTUR Í HANDVEGI:
Byrjið frá réttu mitt í handvegi, notið stuttan hringprjón 4 og prjónið upp ca 96-98-102-106-110-114 lykkjur í kringum allan handveginn innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2). Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hinn kant í handvegi á sama hátt.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 246-13

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (3)

country flag Jonathan wrote:

Hi, I think this was a little ambitious for my first sweater but I’ve managed to get to diagonal shoulder and neckline section without an issue. If anybody could help me visualise this section though I’d be really grateful as I just can’t quite understand what I’m aiming for. Any guidance appreciated.

24.04.2024 - 10:34

DROPS Design answered:

Dear Jonathan, this video shows how to work a diagonal shoulder on a back piece for another pattern, the number of stitches will be different for your pattern/size but it might help you understanding how to do. Happy knitting!

24.04.2024 - 10:57

country flag Josyane wrote:

J’aime bcp vos modèles et surtout les explications données ne peuvent être mieux décrites. Merci pour votre générosité en partageant votre savoir.

12.03.2024 - 03:12

country flag Karolina wrote:

Opis od momentu kształtowania pokroju rękawów jest niesamowicie pogmatwany ciężko połapać się o co chodzi - ta część wykonuje wyłącznie bazując na własnej wiedzy.

09.02.2024 - 19:27

DROPS Design answered:

Witaj Karolino, napisz co sprawia Ci problem, a postaramy się pomóc. Pozdrawiamy!

13.02.2024 - 09:59