Moonlit Ocean Cardigan |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, laskalínu, köðlum og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 245-35 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Lykkjufjöldinn í A.1 er breytilegur á milli 7 og 6 lykkjur. Uppgefinn lykkjufjöldinn er byggður á þeirri forsendu að það séu 7 lykkjur í A.1. LASKALÍNA: Aukið er út á undan / eftir A.1 í hverri skiptingu á milli framstykkja / bakstykkis og erma. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt (lykkja með prjónamerki), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur í hálsmáli mælist ca 1 cm á eftir stroff. Fellið síðan af fyrir 5-6-6-6-6-7 næstu hnappagötum með ca 9-8-8½-9-9-8 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 81-87-89-95-95-103 lykkjur með 1 þræði DROPS Merino Extra Fine og 1 þræði DROPS Kid-Silk yfir stuttan hringprjón 5 og stuttan og stuttan hringprjón 3,5 sem haldið er saman. Dragið út stutta hringprjón 5 og haldið lykkjum eftir á hringprjóni 3,5. (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka. Þegar kantur í hálsmáli mælist 5 cm, fitjið upp 5 nýjar lykkjur í lok 2 næstu umferða fyrir kanta að framan = 91-97-99-105-105-113 lykkjur. Prjónið stroff eins og áður með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og 6 ystu lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni (kantar að framan). Prjónið þar til kantur í hálsmáli mælist ca 10 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Nú er mynstur prjónað og aukið er út þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 9-11-11-13-13-15 lykkjur sléttprjón og aukið út 2-2-2-1-2-1 lykkjur jafnt yfir þessar (framstykki), A.1, 7 lykkjur sléttprjón og aukið út 3 lykkjur jafnt yfir þessar (ermi), A.1, 19-21-23-25-25-29 lykkjur sléttprjón og aukið út 3-6-4-4-6-4 lykkjur jafnt yfir þessar (bakstykki), A.1, 7 lykkjur sléttprjón og aukið út 3 lykkjur jafnt yfir þessar (ermi), A.1, 9-11-11-13-13-15 lykkjur sléttprjón og aukið út 2-2-2-1-2-1 lykkjur jafnt yfir þessar, 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (framstykki). Það eru núna 104-113-113-117-121-125 lykkjur í umferð. MUNIÐ EFTIR HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – lesið útskýring að ofan. Haldið áfram með A.1 fram og til baka með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan, jafnframt því sem aukið er út fyrir LASKALÍNA í næstu umferð frá réttu – lesið útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Aukið svona út í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 16-17-19-21-22-23 sinnum. Nú eru 232-249-265-285-297-309 lykkjur í umferð. Aukið áfram út fyrir lasaklínu, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykkjum / bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. það er aukið út á framstykkjum / bakstykki í annarri hverri umferð eins og áður og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið út svona 4-4-4-4-4-6 sinnum á framstykkjum / bakstykki (2-2-2-2-2-3 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 20-21-23-25-26-29 sinnum á framstykkjum / bakstykki og 18-19-21-23-24-26 sinnum á ermum. Á eftir síðustu útaukningu eru 256-273-289-309-321-345 lykkjur í umferð (á þeirri forsendu að það séu 7 lykkjur í A.1). Prjónið sléttprjón og A.1 án útaukninga þar til stykkið mælist ca 21-23-25-27-28-31 cm, mælt mitt að framan á eftir stroffi í hálsmáli. Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 35-38-40-43-45-49 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 52-54-58-62-64-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7-7-9-9-11-11 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), 70-77-81-87-91-99 lykkjur sléttprjón (bakstykki), setjið næstu 52-54-58-62-64-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7-7-9-9-11-11 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), 35-38-40-43-45-49 lykkjur sléttprjón og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 166-179-191-203-215-231 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju af 7-7-9-9-11-11 lykkjur sem fitjaðar voru upp í hliðum undir ermum. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu – prjónamerkin eru notuð þegar stykkinu er skipt upp fyrir klauf í hvorri hlið. Prjónið fram og til baka í sléttprjóni og A.1 yfir 7 miðju lykkjur sem fitjaðar voru upp í hliðum með 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 19-19-19-19-20-19 cm frá skiptingu, skiptist fram- og bakstykkið við bæði prjónamerkin og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. Lykkjur með prjónamerki tilheyra framstykkjum. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 45-48-51-54-57-61 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 16-19-18-21-22-24 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kant að framan) = 61-67-69-75-79-85 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið fyrstu umferð frá röngu (frá hlið) þannig: 2 lykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 10 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 45-48-51-54-57-61 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 16-19-18-21-22-24 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kant að framan) = 61-67-69-75-79-85 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið fyrstu umferð frá röngu (frá miðju að framan) þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 10 cm. Fellið laust af með sama hætti og á vinstra framstykki. BAKSTYKKI: = 76-83-89-95-101-109 61 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 33-38-38-42-44-48 lykkjur jafnt yfir = 109-121-127-137-145-157 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig: 2 lykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 10 cm. Fellið laust af með sama hætti og á framstykkjum. ERMI: Setjið 52-54-58-62-64-68 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 7-7-9-9-11-11 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 59-61-67-71-75-79 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju af 7-7-9-9-11-11 lykkjum undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur. Þegar ermin mælist 4-4-4-1-4-1 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 3-2½-2-2-1½-1½ cm millibili alls 9-10-12-13-14-15 sinnum = 41-41-43-45-47-49 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 33-31-30-28-28-25 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út 19-19-19-19-19-21 lykkjur jafnt yfir = 60-60-62-64-66-70 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til stroffið mælist 10 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 43-41-40-38-38-35 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermin á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykkinu. Saumið það niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju að framan í kanti að framan með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (7)
Christina wrote:
Var hamnar A1, när man delar arbetet i vänster framstycke, ärm, bakstycke, ärm, höger framstycke
01.04.2024 - 19:04DROPS Design answered:
Hei Christina. Når du er ferdig med bærestykket (oket) blir også de 4 A.1`ene avsluttet. Men når du legger opp nye masker under ermene, skal A.1 strikkes i disse maskene (i de 7 miderste maskene av de nye maskene). mvh DROPS Design
08.04.2024 - 09:33Karin Nielsen wrote:
Hvilken farve Drops Kid Silk vil passe sammen med Merino Ekstra Fine: 27 Marineblå (uni colour)?
19.03.2024 - 11:55DROPS Design answered:
Hej Karin, DROPS Kid-Silk 28 marineblå vil være superflot til DROPS Merino Extra Fine 27 marineblå :)
19.03.2024 - 14:01Grażyna Kołodziejak wrote:
Co oznacza:(Przerabiać ściągaczem następująco: 1 oczko ŚCIEGIEM FRANCUSKIM
04.03.2024 - 15:12DROPS Design answered:
Witaj Grażyno, pierwsze i ostatnie oczko w rzędzie jest to oczko brzegowe i jest przerabiane ściegiem francuskim (w każdym rzędzie na prawo), oczka między oczkami brzegowymi (wszystkie pozostałe) przerabiasz ściągaczem 1 oczko prawe/1 oczko lewe. Pozdrawiamy!
04.03.2024 - 17:49Stefania wrote:
Mod:245 35 Moonlit Ocean Cardigan\r\nNon riesco a capire come proseguire il lavoro, dopo sprone ho diviso corpo e maniche ma sulla spiegazione del davanti e dietro viene scritto di lavorare 1 ferro diritto e aumentare maglie ma non capisco se devo farlo subito o arrivata al bordo in basso anche perché subito dopo dice di cambiare ferri per eseguire il bordo Grazie
02.01.2024 - 18:38DROPS Design answered:
Buonasera Stefania, deve lavorare 1 ferro diritto e su quel ferro aumentare il n° di maglie indicato per la sua taglia. Buon lavoro!
02.01.2024 - 19:32Satu Tanninen wrote:
Onko virhe ohjeessa? Kun aloitetaan takakappaleen alareunus, ohjeessa sanotaan, että 6 ainaoikein, mutta mielestäni kuuluu olla 2 ainaoikeaa. Vain etu- ja takakappaleelle kuuluisi tulla 6.
08.12.2023 - 09:14DROPS Design answered:
Olet oikeassa, ohjeessa oli väärä numero. Takakappaleen alareunuksen alussa neulotaan 2 silmukkaa ainaoikeaa.
08.12.2023 - 14:18Danielle Llorens wrote:
Sweet sky
06.08.2023 - 16:23Helvédina Corrêa Mendonça wrote:
Nocturne
04.08.2023 - 02:53