Rustic Berry Cardigan |
||||||||||
|
|
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alaska. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með áferðamynstri, skáhallandi öxl og háu hálsmáli. Stærð S-XXL.
DROPS 245-27 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 12, 21, 30, 40 og 50 cm. M: 12, 22, 32, 42 og 52 cm. L: 12, 20, 28, 36, 45 og 54 cm. XL: 12, 20, 28, 37, 46 og 55 cm. XXL: 12, 21 30, 39, 48 og 57 cm. XXXL: 12, 21, 30, 39, 49 og 59 cm. ÚRTAKA (á við um hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli að innanverðu við 3 lykkjur, fækkið lykkjum með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman. ÚTAUKNING (á við um ermar): Byrjið 1 lykkju á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn er staðsettur mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndast göt (= 2 lykkjur fleiri). Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í mynstur. ------------------------------------------------------ BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp þar til klaufin hefur verið prjónuð til loka. Síðan eru stykkin sett saman og fram- og bakstykkið er prjónað í fram og til baka frá miðju að framan og upp að handvegi. Síðan er bakstykkið og framstykkin prjónað til loka hvert fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Í lokin er prjónaður kantur í hálsmáli í stroffprjóni sem brotinn er saman og verður tvöfaldur. BAKSTYKKI: Fitjið upp 95-101-113-119-131-143 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Alaska. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið þar til stroffið mælist 4 cm, endið eftir umferð frá röngu, geymið stykkið og prjónið framstykkin eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 53-59-59-65-71-77 lykkjur á hringprjón 4 með Alaska. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 10 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur slétt og 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 4 cm, endið með umferð frá röngu, geymið stykkið og prjónið hægra framstykki eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 53-59-59-65-71-77 lykkjur á hringprjón 4 með Alaska. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 7 kantlykkjur í garðaprjóni, * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur slétt og 1 kantlykkju að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 4 cm, endið með umferð frá röngu. Nú eru stykkin sett saman eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið hægra framstykki, bakstykki og vinstra framstykki á sama hringprjón 5,5 = 201-219-231-249-273-297 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið jafnframt um 28-30-28-30-36-40 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kanta að framan) = 173-189-203-219-237-257 lykkjur. Prjónið A.1 fram og til baka með 7 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. A.1 byrjar og endar með 1 lykkju í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12 cm, byrjar affelling fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm frá uppfitjunarkanti, fellið af fyrir handvegi þannig: Prjónið 45-47-51-53-55-57 lykkjur eins og áður (framstykki), fellið af 3-7-7-11-15-21 lykkjur fyrir handveg, prjónið 77-81-87-91-97-101 lykkjur eins og áður (bakstykki), fellið af 3-7-7-11-15-21 lykkjur fyrir handveg, prjónið 45-47-51-53-55-57 lykkjur eins og áður (framstykki). Bakstykkið og framstykkin eru prjónuð til loka hvert fyrir sig. BAKSTYKKI: = 77-81-87-91-97-101 lykkjur. Prjónið A.1 fram og til baka yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Í næstu umferð eru felldar af miðju 25-25-25-27-27-27 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka hvor fyrir sig eins og útskýrt er að neðan. SKÁHALLANDI ÖXL: Haldið áfram með A.1 og setjið ystu lykkjur við handveg á þráð fyrir skáhallandi öxl, en til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn. Setjið 6-7-8-8-8-9 lykkjur á þráð 3 sinnum og síðan síðustu 8-7-7-8-11-10 lykkjur á þráð. Allar lykkjur hafa nú verið felldar af eða settar á þráð. Setjið til baka 26-28-31-32-35-37 lykkjur af þræði á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð sléttprjón, en til að koma í veg fyrir göt þar sem stykkinu var snúið við, takið þráðinn upp á milli 2 lykkja og prjónið saman með fyrstu lykkju á vinstri prjóni. Fellið síðan laust af allar lykkjur. Stykkið mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá uppfitjunarkanti að efsta punkti á öxl. Prjónið hina öxlina á sama hátt. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 45-47-51-53-55-57 lykkjur. Prjónið A.1 fram og til baka með 7 kantlykkjum að framan í garðaprjóni við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 51-53-55-56-58-60 cm, setjið ystu 15-15-16-17-16-16 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli, en til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli og setjið lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. Lestu kaflana HÁLSMÁL og SKÁHALLANDI ÖXL áður en prjónað er áfram. HÁLSMÁL: Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli í lok hverrar umferðar frá réttu þannig: Fækkið um 1 lykkju 4 sinnum – munið eftir ÚRTAKA. SKÁHALLANDI ÖXL: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, setjið ystu lykkjur við handveg á þráð fyrir skáhallandi öxl á sama hátt og á bakstykki. Þegar allar lykkjur hafa verið felldar af eða settar á þráð, setjið 26-28-31-32-35-37 lykkjur af þræði til baka á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð sléttprjón á sama hátt og á bakstykki og fellið síðan laust af allar lykkjur. Stykkið mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá uppfitjunarkanti að efsta punkti á öxl. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, en fækkið lykkjum fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá réttu. ERMI: Fitjið upp 66-72-78-78-78-84 lykkjur á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 4 með Alaska. Prjónið stroffprjón (3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 12 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 22-26-30-30-28-32 lykkjur jafnt yfir = 44-46-48-48-50-52 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar. Prjónið A.1 yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 14 cm, aukið út 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4½-4-4-3-3-2½ cm millibili alls 8-9-9-11-11-12 sinnum = 60-64-66-70-72-76 lykkjur. Þegar ermin mælist 49-48-47-46-44-42 cm, prjónið ermakúpuna fram og til baka á hringprjóna að loka máli. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 50-50-49-49-48-48 cm, þ.e.a.s. það er klauf 1-2-2-3-4-6 cm efst á ermi. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermakúpu við handveg innan við ystu lykkju á framstykki / bakstykki. Síðan er klaufin saumuð efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. Saumið tölur í vinstri kant að framan. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu á annarri öxlinni og prjónið upp ca 101 til 113 lykkjur í kringum hálsmál (ásamt lykkjum á þráðum), á stuttan hringprjón 4. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 6 + 5. Prjónið með byrjun frá röngu þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 10 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur brugðið og 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið stroff svona í 7 cm. Fellið af með 6 kantlykkjum að framan í hvorri hlið og haldið áfram með stroff með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið þar til stroffið mælist alls 14 cm. Fellið af. Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki og saumið niður. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (4)
Rebecka wrote:
"VÄNSTER FRAMSTYCKE: = 45-47-51-53-55-57 maskor. Sticka slätstickning fram och tillbaka med 7 framkantsmaskor i rätstickning mot mitt fram." (Andra gången det står vänster framstycke)
11.01.2024 - 14:32DROPS Design answered:
Hei Rebecka. Jo, du har riktig, skal ikke være glattstrikk, men A.1. Oppskriften er oversendt design avd. for en dobbeltsjekk og evnt en korrigering. mvh DROPS Design
15.01.2024 - 14:08Rebecka wrote:
Jag tror det här är fel? Det ska väl stå "sticka A.1" istället för "slätstickning"? På bilden är det A1 hela vägen upp till halsen, inte slätstickning från armhålet och upp på framsidan.
08.01.2024 - 20:51DROPS Design answered:
Hej Rebecka, hvor langt er du kommet? Hvor skriver vi at du skall sticka slätstickning?
11.01.2024 - 14:11NATHALIE LEMAIRE wrote:
J aime beaucoup ce modele je n arrive pas a distinguer le point
05.08.2023 - 09:21Heather Ellery wrote:
Should be called "cranberry hug"
04.08.2023 - 14:36