DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Ocean Ropes

Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með áferðamynstri, köðlum. Stærð 2 – 12 ára.

DROPS Children 47-32
DROPS Design: Mynstur me-086-bn
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
92 - 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152

GARN:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-400-450-500-550-600 g litur 50, ljós beige

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
24 lykkjur á breidd með mynstri A.1 = 10 cm.
88 lykkjur með mynstri A.2, A.3, A.4, A.3 og A.2 (miðjumynstur) = 27 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (á við um mitt undir ermi):
Lykkjum er aukið út hvoru megin við lykkju með prjónamerki (= 1 lykkja slétt).
Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir lykkju með prjónamerki, prjónið út umferðina og aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan lykkju með prjónamerki. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúið. Eftir það eru nýjar lykkjur prjónaðar jafnóðum inn í mynstur A.1. Lykkja með prjónamerki er alltaf prjónuð slétt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi, eftir það skiptist stykkið.
Bakstykki og framstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig.
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp að ermakúpu, eftir það skiptist ermin mitt að neðan og prjónað er fram og til baka að loka máli. Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring á stuttan hringprjón.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 176-192-204-220-232-248 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Merino Extra Fine.
Prjónið stroffprjón hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm.
Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan og fækkið um 10-14-14-18-18-22 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 166-178-190-202-214-226 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið í byrjun umferðar og eftir 83-89-95-101-107-113 lykkjur = hliðar. Síðan er prjónað mynstur frá byrjun umferðar þannig: A.1 yfir fyrstu 7-10-13-16-19-22 lykkjur (endið með fyrstu lykkju í A.1), prjónið A.2, A.3, A.4, A.3, A.2 (70 lykkjur miðjumynstur), prjónið A.1 yfir næstu 13-19-25-31-37-43 lykkjur (endið með fyrstu lykkju í A.1), prjónið A.2, A.3, A.4, A.3, A.2 (70 lykkjur miðjumynstur), prjónið A.1 yfir síðustu 6-9-12-15-18-21 lykkjur.
Haldið áfram með þetta mynstur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 22-25-28-31-34-36 cm – stillið af að næsta umferð sé umferð með oddatölu í mynstri, prjónið næstu umferð þannig: Fellið af fyrstu 5-8-9-10-11-12 lykkjur í umferð fyrir handveg, prjónið 74-74-78-82-86-90 lykkjur eins og áður, fellið af næstu 9-15-17-19-21-23 lykkjur fyrir handveg, prjónið 74-74-78-82-86-90 lykkjur eins og áður, fellið af síðustu 4-7-8-9-10-11 lykkjur fyrir handveg. Klippið þráðinn. Nú er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Setjið fyrstu 74-74-78-82-86-90 lykkjur á þráð fyrir framstykki og prjónið áfram yfir síðustu 74-74-78-82-86-90 lykkjur á bakstykki.

BAKSTYKKI:
= 74-74-78-82-86-90 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður, þegar stykkið mælist 34-38-42-46-50-53 cm, fækkið um 6 lykkjur jafnt yfir miðju 34 lykkjur = 68-68-72-76-80-84 lykkjur. Í næstu umferð eru felldar af miðju 24-24-28-30-30-32 lykkjur fyrir hálsmáli og axlir eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsmáli er fækkað um 1 lykkju = 21-21-21-22-24-25 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður þar til stykkið mælist ca 35-39-43-47-51-54 cm. Í næstu umferð er fækkað um 2 lykkjur yfir kaðal í A.2 = 19-19-19-20-22-23 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 36-40-44-48-52-55 cm.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Setjið til baka 74-74-78-82-86-90 lykkjur af þræði á hringprjón 4. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 32-35-39-42-46-48 cm, fækkið um 6 lykkjur jafnt yfir miðju 34 lykkjurnar = 68-68-72-76-80-84 lykkjur.
Í næstu umferð eru miðju 16-16-20-22-22-24 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og axlir eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig. ATH! Nú er ekki lengur prjónað kaðlamynstur í A.4, lykkjur sem eru eftir af A.4 eru prjónaðar brugðið frá réttu og slétt frá röngu.
Fækkið lykkjum í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fækkið um 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 3 sinnum = 21-21-21-22-24-25 lykkjur. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 35-39-43-47-51-54 cm. Í næstu umferð er fækkað um 2 lykkjur yfir kaðal í A.2 = 19-19-19-20-22-23 lykkjur.
Fellið af þegar stykkið mælist 36-40-44-48-52-55 cm.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.
Fitjið upp 48-50-54-56-58-60 lykkjur á sokkaprjóna 3 með DROPS Merino Extra Fine.
Prjónið stroffprjón (1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Prjónið 4 umferðir garðaprjón og fækkið jafnframt um 3-2-3-2-4-4 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 45-48-51-54-54-56 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið A.1 hringinn – setjið 1 prjónamerki í fyrstu sléttu lykkjuna í umferð og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu.
Þegar stykkið mælist 6 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út hvoru megin við lykkjuna með prjónamerki í – lesið ÚTAUKNING. Haldið áfram með A.1 og endurtakið útaukningu með 1½-2-2-2½-2-2½ cm millibili alls 12-12-12-14-15-17 sinnum = 69-72-75-82-84-90 lykkjur. Þegar stykkið mælist 25-29-33-37-40-45 cm, skiptist stykkið með því að fella af lykkju með prjónamerki í. Prjónið síðan fram og til baka í mynstri eins og áður þar til ermin mælist alls 26-32-36-40-44-49 cm, það er núna klauf ca 1-3-3-3-4-4 cm efst undir ermi. Fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermakúpu við handveg. Eftir það er klaufin saumuð efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið frá réttu með DROPS Merino Extra Fine og stuttan hringprjón 3 – prjónið upp ca 64 til 90 lykkjur (ásamt lykkjum af þræði, lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2). Prjónið 4 umferðir garðaprjón.
Prjónið síðan stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið þar til kantur í hálsmáli mælist 8½ cm og fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli ca 4 cm. Til að koma í veg fyrir að kanturinn í hálsmáli verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 05.04.2024
Uppskriftin hefur verið yfirfarin og uppfærð. Leiðrétting á fram- og bakstykki í stærð 3/4 ára.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju brugðið af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju brugðið af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = saumið a við A og b við B
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 47-32

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (7)

country flag Meike wrote:

In der Anleitung steht, dass bei Größe 98/104 bei einer Länge von 35 cm der Armausschnitt abgekettet wird. Ist das richtig? Oder soll es 25 cm heißen? Die Gesamtlänge soll dann 40 cm betragen. Ich befürchte ich muss da etwas aufrippeln. Danke für eine schnelle Antwort und viele Grüße

14.03.2024 - 14:43

DROPS Design answered:

Liebe Meike, ja stimmt, danke für den Hinweis, eine Korrektur kommt. Viel Spaß beim Stricken!

14.03.2024 - 16:18

country flag Bals wrote:

Was bedeuten die Unterstreichungen bei den Groeßen? Ich weiß nicht, wieviel Wolle ich bestellen muss.92-110 ist unterstrichen, 116 dann wieder nicht usw. Welche Groeße gehört zu welcher Wollmenge? Vielen Dank!

18.01.2024 - 16:34

DROPS Design answered:

Liebe Frau Bals, die Größen sind die folgenden: 2 Jahre = 92 cm, dann 3/4 Jahren = 98/104 Jahren, 5/6 Jahren =110/1216 cm usw. Am besten messen Sie einen ähnlichen Pullover das Kind hat und vergleichen Sie alle Maße mit den in der Maßskizze so finden Sie die beste passende Größe, hier lesen Sie mehr. Viel Spaß beim stricken!

19.01.2024 - 08:38

country flag MICHEL Véronique wrote:

Bonjour. Je recherche le tuto pour augmenter de chaque côté de la maille avec le marqueur et 1 jeté après la maille avec le marqueur. Merci

09.12.2023 - 20:36

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Michel, tricotez la maille avec le marqueur au début du tour, faites 1 jeté, tricotez jusqu'à la fin du tour et faites 1 jeté avant la maille avec le marqueur (vous avez maintenant 1 jeté de chaque côté de la maille avec un marqueur); au tour suivant, tricotez les jetés torse (dans le brin arrière); dans cette vidéo, nous montrons comment augmenter avec des jetés; au rang suivant, on tricote les jetés torse à l'envers, mais ici, vous tricotez les manches en rond, tricotez le jeté torse à l'endroit. Bon tricot!

11.12.2023 - 08:41

country flag Susi wrote:

Leider wird auch dieser 2. neue Kinderpullover im Strukturmuster nicht nahtlos von oben gestrickt :-( Ob wir bald die Chance bekommen, so eine Anleitung topdown zu arbeiten ???

04.12.2023 - 11:33

DROPS Design answered:

Liebe Susi, hier finden Sie alle unsere Pullover, die von oben nach unten gestrickt sind (für Kinder). Viel Spaß beim stricken!

04.12.2023 - 16:14

country flag Jacqueline wrote:

Marion Er zit een fout in de beschrijving voor de leeftijd 3/4 jaar. De minderingen van de armsgaten moet aan 25cm gebeuren en niet aan 35cm. Zo zal het wel kloppen.

03.12.2023 - 20:00

country flag Marion Van Der Form wrote:

Hoe kan ik dit patroon heen en weer breien? Tot en met 35 centimeter gaat het prima maar daarna kom ik er niet uit! Gevoelsmatig klopt het patroon dan niet meer. Ik stagneer bij de armsgaten...

20.11.2023 - 19:50

DROPS Design answered:

Dag Marion,

Je kant 4 steken af aan elke kant voor het armsgat en je houdt dan 74 steken over. Je kunt vervolgens de instructie onder de paragraaf 'ACHTERPAND' brein.

21.11.2023 - 23:01

country flag Elisabeth Balcerak wrote:

Liebe Frau Matzau, sind die Angaben auf der Maßskizze um den Halsausschnitt mit der Halsblende oder ohne angegeben? Ich kann nicht von oben stricken, deshalb ist das für mich wichtig. Grüße Elisabeth Balcerak

18.11.2023 - 12:51

DROPS Design answered:

Liebe Frau Balcerak, diese Angaben sind ohne Halsblende gemessen. Viel Spaß beim stricken!

20.11.2023 - 10:00