Flaming Heart Cardigan |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með köðlum, tvöföldum kanti í hálsmáli og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 245-9 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 10, 18, 26, 34, 42 og 50 cm. M: 10, 18, 26, 34, 43 og 52 cm. L: 10, 18, 27, 36, 45 og 54 cm. XL: 10, 19, 28, 37, 46 og 55 cm. XXL: 10, 19, 28, 37, 47 og 57 cm. XXXL: 10, 19, 29, 39, 49 og 59 cm. ÚRTAKA (á við um hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG (hægri öxl): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (1 lykkja færri). FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG (vinstri öxl): Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (1 lykkja færri), prjónið 1 lykkju slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. ÚTAUKNING (á við um ermar): Byrjið 1 lykkju á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Nýjar lykkjur eru prjónaðar áfram í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp, í stykkjum sem saumuð eru saman í lokin. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Í lokin er prjónaður upp tvöfaldur kantur í hálsmáli. BAKSTYKKI: Fitjið upp 136-142-150-158-182-194 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað þannig – frá réttu. Stærð S og XXL: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 1-2 lykkjur slétt, A.1A yfir næstu 132-176 lykkjur, 1-2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Stærð M, L, XL, XXXL: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið * prjónið frá *-* yfir næstu 4-8-12-8 lykkjur, A.1A yfir næstu 132-132-132-176 lykkjur, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 4-8-12-8 lykkjur, 1 kantlykkja í garðaprjóni. ALLAR STÆRÐIR: Haldið svona áfram með stroff (A.1A er endurtekið á hæðina) þar til stykkið mælist 10 cm, endið með eina umferð frá réttu. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, brugðnar lykkjur yfir næstu 1-4-8-12-2-8 lykkjur, A.1B yfir lykkjur í A.1A, endið með 1-4-8-12-2-8 lykkjur brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni = 124-130-138-146-166-178 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjón, 1-4-8-12-2-8 lykkjur sléttprjón, A.2 yfir næstu 120-120-120-120-160-160 lykkjur, 1-4-8-12-2-8 lykkjur sléttprjón, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm, fellið af 4-6-9-11-14-19 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum = 116-118-120-124-138-140 lykkjur. Prjónið áfram með mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. Í næstu umferð eru miðju 32-34-36-38-40-42 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja = 41-41-41-42-48-48 lykkjur eftir á öxl. Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í kaðal, eru prjónaðar með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm og fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 75-78-82-86-98-104 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað þannig – frá réttu: Stærð S og XXL: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1A yfir næstu 66-88 lykkjur, 1-2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Stærð M, L, XL, XXXL: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1A yfir næstu 66-66-66-88 lykkjur, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 4-8-12-8 lykkjur, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff (A.1A er endurtekið á hæðina) þar til stykkið mælist 10 cm, endið með umferð frá réttu. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, brugðnar lykkjur yfir næstu 1-4-8-12-2-8 lykkjur, A.1B yfir lykkjur í A.1A, endið með 7 kantlykkjum að framan í garðaprjóni = 69-72-76-80-90-96 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá röngu: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.2 yfir næstu 60-60-60-60-80-80 lykkjur, 1-4-8-12-2-8 lykkjur sléttprjón, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Í þessari umferð byrjar úrtaka fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm, fellið af 4-6-9-11-14-19 lykkjur fyrir handveg í næstu umferð frá hlið = 65-66-67-69-76-77 lykkjur. Þegar stykkið mælist 51-53-55-56-58-60 cm, setjið ystu 20-21-22-23-24-25 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli, en til að þurfa ekki að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn. Síðan er lykkjum fækkað í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fækkið um 1 lykkju 4 sinnum – lesið ÚRTAKA = 41-41-41-42-48-48 lykkjur eftir á öxl. Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í kaðli, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 75-78-82-86-98-104 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað þannig – frá réttu: Stærð S og XXL: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 1-2 lykkjur slétt, A.1A yfir næstu 66-68 lykkjur, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Stærð M, L, XL, XXXL: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 4-8-12-8 lykkjur, A.1A yfir næstu 66-66-66-88 lykkjur, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff (A.1A er endurtekið á hæðina) þar til stykkið mælist 10 cm, endið með umferð frá réttu. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, brugðnar lykkjur yfir næstu 1-4-8-12-2-8 lykkjur, A.1B yfir lykkjur í A.1A, brugðnar lykkjur yfir næstu 1-4-8-12-2-8 lykkjur, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Skiptið yfir á hringprjón 5. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 1-4-8-12-2-8 lykkjur sléttprjón, A.2 yfir næstu 60-60-60-60-80-80 lykkjur, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm, fellið af 4-6-9-11-14-19 lykkjur fyrir handveg í næstu umferð frá hlið = 65-66-67-69-76-77 lykkjur. Þegar stykkið mælist 51-53-55-56-58-60 cm, setjið ystu 20-21-22-23-24-25 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli, en til að þurfa ekki að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn. Síðan er lykkjum fækkað í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fækkið um 1 lykkju 4 sinnum – lesið ÚRTAKA = 41-41-41-42-48-48 lykkjur eftir á öxl. Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í kaðli, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm. ERMI: Fitjið upp 60-60-64-64-68-68 lykkjur á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 4 með DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð slétt. Síðan er prjónað stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna / stutta hringprjóna 5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-10-12-10-12-10 lykkjur jafnt yfir = 48-50-52-54-56-58 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar = mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 11-11-11-12-12-12 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4½-4-3½-3-2½-2 cm millibili alls 8-9-10-10-11-12 sinnum = 64-68-72-74-78-82 lykkjur. Þegar ermin mælist 46-44-44-43-39-36 cm, prjónið ermakúpuna fram og til baka á hringprjóna (frá merkiþræði mitt undir ermi) að loka máli. Prjónið fram og til baka þar til ermin mælist 48-48-49-49-47-47 cm, þ.e.a.s. það er klauf 2-4-5-6-8-11 cm efst á ermi. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermakúpuna við handveg. Síðan er klaufin saumuð efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. Saumið hliðarsauma í ystu lykkjubogana, niður að stroffi (10 cm klauf í hvorri hlið). Saumið ermar í. Saumið tölur í vinstra framstykki. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp frá réttu ca 112 til 148 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur á þráðum), á stuttan hringprjón 4 með DROPS Brushed Alpaca Silk. Lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4. Prjónið með byrjun frá röngu þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið stroff svona í 8 cm. Fellið af 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið og haldið áfram með stroffið með 1 lykkju garðaprjón í hvorri hlið. Prjónið þar til stroffið mælist alls 16 cm. Fellið af. Brjótið kantinn í hálsmáli að innanverðu á stykki og saumið niður, passið uppá að kanturinn dragi ekki stykkið saman. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (6)
Gesche wrote:
Hallo, wollte die Jacke Groesse M stricken und habe mir die angegebenen Wolle und Nadeln besorgt - bin jedoch kurz nach Beginn der Arbeit gescheitert. Bei Maschenprobe 17M = 10cm ergeben 130M (Rueckenteil) 76,5cm und nicht 58cm. Da auf dem Bild 10 Zopfreihen im Vorderteil abgebildet sind, ist die Anzahl der Maschen in der Strickanleitung scheinbar richtig -> das wuerde aber ca. 22M = 10cm ergeben, woraus eine Nadelstaerke von ca. 3 resultiert! Dies ist fuer die Wolle jedoch zu duenn...
12.03.2024 - 10:36DROPS Design answered:
Liebe Frau Gesche, die Maschenprobe wird glatt rechts gestrickt, man braucht aber mehr Maschen für Zöpfe als für glattrecht. So sollte Ihre Maschenprobe stimmen, dann haben Sie die richtigen Maßnahmen wie bei der Skizze. Viel Spaß beim Stricken!
12.03.2024 - 13:04Irina Etobayeva wrote:
Pumpkin Spice
07.08.2023 - 06:34Sue wrote:
Along with the sweater, it looks interesting, warm and cosy, and suit all sizes.
04.08.2023 - 06:52Dianne wrote:
Wrap me up
04.08.2023 - 01:04Patricia wrote:
Fox
03.08.2023 - 14:43Patricia wrote:
Fox
03.08.2023 - 14:42