DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 16390.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Pine Hill

Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með háum kanti í hálsmáli, tölukanti að framan og áferðamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 244-28
DROPS Design: Mynstur me-263
Garnflokkur B + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
500-550-600-700-750-800 g litur 37, skýjaskógur
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
125-150-150-175-200-200 g litur 37, norðursjór

TÖLUR:
DROPS TALA NR 537: 5 stykki í allar stæðir

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 21 umferð á hæð með áferðamynstri og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 16390.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

TILFÆRSLA Á LYKKJUM Í HÁLSMÁLI:
VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fækkið um 1 lykkju á undan merkiþræði og aukið út 1 lykkju á eftir merkiþræði þannig:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið út umferðina eins og áður.

Til að koma í veg fyrir að stroffið dragist saman, aukið út um 1 lykkju í stað þess að fækka lykkjum á eftir 3. hverja útaukningu / úrtöku. Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð og er prjónaður jafnóðum inn í stroff 1 lykkja slétt, 3 lykkjur brugðið (séð frá réttu).

Þ.e.a.s. lykkjum er aukið út og fækkað þannig:
UMFERÐ 1: aukið út og fækkið lykkjum
UMFERÐ 2-4: prjónið eins og áður.
UMFERÐ 5: aukið út og fækkið lykkjum
UMFERÐ 6-8: prjónið eins og áður
UMFERÐ 9: aukið út og fækkið lykkjum
UMFERÐ 10: prjónið eins og áður
UMFERÐ 11: aukið út
UMFERÐ 12: prjónið eins og áður
Endurtakið þessar 12 umferðir

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Aukið er út um 1 lykkju á undan merkiþræði og fækkað er um 1 lykkju á eftir merkiþræði þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið næstu lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið út umferðina eins og áður.
Aukið út og fækkið lykkjum á sama hátt og á vinstra framstykki:

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
S: 34, 41, 48 og 55 cm
M: 36, 43, 50 og 57 cm
L: 38, 45, 52 og 59 cm
XL: 39, 47, 54 og 61 cm
XXL: 41, 49, 56 og 63 cm
XXXL: 43, 51, 58 og 65 cm
Fellið af fyrir síðasta hnappagatinu þegar kantur í hálsmáli mælist ca 6 cm.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Byrjið 1 lykkju á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur A.2.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum og frágangur er útskýrður í uppskrift. Hálsmálið er formað með tilfærslum á lykkjum þannig að það verða fleiri lykkjur í stroffi við miðju að framan og færri lykkjur í mynstri (A.2) að hlið. Í lokin er prjónaður kantur í hálsmáli.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 102-111-117-126-135-144 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Prjónið síðan stroff þannig:
1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 8 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 22-23-21-22-23-24 lykkjur jafnt yfir = 80-88-96-104-112-120 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið síðan A.1 með 1 lykkju garðaprjón í hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm, fellið af 3-6-8-10-13-15 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum = 74-76-80-84-86-90 lykkjur.
Prjónið A.1 og 1 lykkju garðaprjón í hvorri hlið, passið uppá að mynstrið passi yfir mynstur sem var prjónað áður en lykkjum var fækkað fyrir handveg.
Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, fellið af miðju 36-36-36-42-42-42 lykkjur yfir hálsmáli. Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Síðan er felld af 1 lykkja í næstu umferð frá hálsmáli = 18-19-21-20-21-23 lykkjur. Prjónið A.1 með 1 lykkju garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. Fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp jafn margar lykkjur og prjónið á sama hátt og á bakstykki þar til stykkið mælist 33-35-37-38-40-42 cm, en prjónið A.2 í stað A.1 þegar mynstrið er prjónað = 80-88-96-104-112-120 lykkjur. Nú skiptist stykkið og auka á út lykkjum og fækka í umferð til að forma hálsmálið. Setjið síðustu 40-44-48-52-56-60 lykkjur á þráð, prjónið síðan yfir fyrstu 40-44-48-52-56-60 lykkjur þannig:

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Lestu allan kaflann fyrir vinstra framstykki áður en þú prjónar áfram!
Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.2 yfir næstu 30-34-38-42-46-50 lykkjur, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, 3 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, 3 lykkjur garðaprjón, og fitjið upp 4 lykkjur í lok umferðar = 44-48-52-56-60-64 lykkjur.
Prjónið frá röngu þannig: 7 lykkjur garðaprjón, 1 lykkja brugðið, 3 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju brugðið, setjið 1 merkiþráð hér, 1 lykkja slétt, prjónið út umferðina eins og áður.

Haldið áfram með þetta mynstur og prjónið TILFÆRSLA Á LYKKJUM Í HÁLSMÁLI – lesið útskýringu að ofan (munið eftir úrtöku fyrir handvegi – sjá neðan). Aukið út 1 lykkju og fækkið 1 lykkju í 4. hverri umferð (= önnur hver umferð frá réttu) alls 12-12-12-15-15-15 sinnum. ATH! Að auki er aukið út um 1 auka lykkju alls 4-4-4-5-5-5 sinnum. Nú koma til með að verða fleiri og fleiri lykkjur í stroffi við miðju að framan og færri og færri lykkjur í A.2 að hlið. Lykkjum er fækkað og aukið út hvoru megin við 2 lykkjur stroff (prjónamerkið situr mitt á milli þessa lykkja), þær halda áfram í línu þversum upp í átt að öxlinni.

JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm, fellið af 3-6-8-10-13-15 fyrstu lykkjur frá hlið fyrir handveg. Passið uppá að mynstrið passi yfir mynstur sem var prjónað áður en lykkjum var fækkað fyrir handveg. Þegar tilfærsla á lykkjum í hálsmáli er lokið, eru 45-46-48-51-52-54 lykkjur í umferð. Haldið áfram þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm, fellið af fyrstu 18-19-21-20-21-23 lykkjur frá hlið = 27-27-27-31-31-31 lykkjur í umferð. Geymið stykkið og prjónið hægra framstykki.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Lestu allan kaflann fyrir hægra framstykki áður en þú prjónar áfram!
Fitjið upp 4 nýjar lykkjur á prjóninn, setjið til baka 40-44-48-52-56-60 lykkjur á prjóninn og prjónið 40-44-48-52-56-60 lykkjur af þræði þannig: Prjónið 3 lykkjur garðaprjón, 1 lykkja slétt, 3 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, prjónið A.2 þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 43-47-51-55-59-63 lykkjur.
Prjónið frá röngu þannig:
1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.2 þar til 13 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt, setjið 1 merkiþráð hér, 1 lykkja brugðið, prjónið 3 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.

Haldið áfram með þetta mynstur og prjónið TILFÆRSLA Á LYKKJUM Í HÁLSMÁLI – (munið eftir úrtöku fyrir handvegi – sjá neðan). Aukið út 1 lykkju og fækkið 1 lykkju í 4. hverri umferð (= önnur hver umferð frá réttu) alls 12-12-12-15-15-15 sinnum. ATH! Að auki er aukið út um 1 auka lykkju alls 4-4-4-5-5-5 sinnum. Nú koma til með að verða fleiri og fleiri lykkjur í stroffi við miðju að framan og færri og færri lykkjur í A.2 að hlið. Lykkjum er fækkað og aukið út hvoru megin við 2 lykkjur stroff (merkiþráðurinn situr mitt á milli þessa lykkja), þær halda áfram í línu þversum upp í átt að öxlinni. Fellt er af fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan.

JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm, fellið af 3-6-8-10-13-15 fyrstu lykkjur frá hlið fyrir handveg. Passið uppá að mynstrið passi yfir mynstur sem var prjónað áður en lykkjum var fækkað fyrir handveg. Þegar tilfærsla á lykkjum í hálsmáli er lokið, eru 45-46-48-51-52-54 lykkjur í umferð. Haldið áfram þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm, fellið af fyrstu 18-19-21-20-21-23 lykkjur frá hlið = 27-27-27-31-31-31 lykkjur í umferð. Geymið stykkið.

ERMI:
Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.
Fitjið upp 48-48-51-51-57-60 lykkjur á sokkaprjóna 4. Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroffprjón (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stykkið mælist 8 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 5. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 4-4-3-3-5-4 lykkjur jafnt yfir = 44-44-48-48-52-56 lykkjur. Setjið einn merkiþráð í byrjun umferðar = mitt undir ermi. Síðan er prjónað eftir A.1, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 11-12-11-12-11-13 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4-3-3-2½-2½-1½ cm millibili alls 10-12-12-13-13-13 sinnum = 64-68-72-74-78-82 lykkjur. Þegar ermin mælist 49-47-46-45-42-41 cm, prjónið ermakúpu fram og til baka (frá miðju undir ermi) á hringprjón að loka máli.
Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 50 cm í öllum stærðum, þ.e.a.s. það er klauf 1-3-4-5-8-9 cm efst á ermi.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasaumana. Saumið ermakúpuna við handveg. Síðan er klaufin saumuð efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. Saumið hliðarsauma, en skiljið eftir neðstu 8 cm = klauf.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Setjið 27-27-27-31-31-31 lykkjur frá hvoru framstykki á hringprjón 4 og prjónið að auki upp 37-37-37-45-45-45 lykkjur frá kanti í hálsmáli á bakstykki = 91-91-91-107-107-107 lykkjur í umferð. Fyrsta umferð er prjónuð þannig – frá röngu: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 3 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið stroff svona í 8 cm – munið eftir hnappagat, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Leggið hægri kant að framan yfir vinstri kant að framan og saumið saman op neðst. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = ermakúpan er saumuð við handveg þannig: Saumið a við A og b við B
symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 244-28

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Wendy wrote:

Just wanted to let you know that the listing of this pattern on Ravelry has the wrong catalog numbering. It says this pattern is 244-29 intead of 244-28. ;-) Thanks so much to all of you for all that you do! Garnstudio is the best!! :-)

16.04.2024 - 05:01

DROPS Design answered:

Dear Wendy, thanks for noticing, pattern number has now been edited on Ravelry. Happy knitting!

16.04.2024 - 08:26

country flag Catherine wrote:

Dear Editor, for the “Right Front” 1st paragraph under “cast on 4 stitches”……….. until before “from the wrong side”, is the description correct?I seems somehow some stitches missing. Thank you very much.

12.04.2024 - 06:39

DROPS Design answered:

Dear Catherine, your feedback has been forwarded to our design team, thanks for noticing.

12.04.2024 - 08:32

country flag Catherine wrote:

Please help me 1. Right front pc—after cast on 4 stitches + 48 stitches should be 52 stitches but it reads 51 stitches in the description, 2. On wrong side (continue next row), “until 13stitches left”, after work knit, purl , 7 band etc altogether only 12 stitches?., 3. Increase/decrease issue— sometimes increase every 4th row = every2nd row ?.? 4. Increase sometimes is after every 3rd increase.?? Thank you so much.

11.04.2024 - 12:20

DROPS Design answered:

Dear Catherine, 2: after "13 stitches are left" - knit 1, marker, purl 1, knit 3, purl 1, 7 band stitches. You have 13 stitches. 3: increase every 4th row means that you knit 3 rows and increase in the fourth. If you start in a row from the right side, then you increase on every 2nd/alternate row from the right side: right side - increase row, wrong side - normal row 1, right side - normal row 2, wrong side - normal row 3, right side - new increase row. 4: "Every 3rd increase" is only for the neck displacements; it means after every 3rd increase row. In that case, you work an extra, only increase (with no decreases) row in row 11 of the displacements, as shown. Happy knitting!

14.04.2024 - 18:18

country flag Catherine wrote:

Please help me to understand the neck displacement Row 1 — increase/decrease Row 2-4– work as before? etc Does it mean row 2 to row 4 no increase/decrease?

11.04.2024 - 11:57

DROPS Design answered:

Dear Catherine, in row 1 you increase and decrease as the instructions in the explanations (at the beginning of the pattern) tells you. In row 2-4 you work stitches as before (as the pattern shows), but no increase or decrease. Happy Knitting!

11.04.2024 - 13:30

country flag Catherine wrote:

Continue my confusion about neck displacement: 4. Some paragraphs said the increase is after every 3rd increase? Please help me. Thank you very much

11.04.2024 - 11:40

DROPS Design answered:

Dear Catherine, when doing the dsisplacement, for every increase there is a decrease, so even though the stitches slant, the number of stitches stay the same. However, in order to avoid the rib to become too thight, you leave out this decrease, so there will be more stitches at the end. I hope this helps. Happy Knitting!

11.04.2024 - 13:34

country flag Albertha wrote:

Om te voorkomen dat de boord te strak wordt, is een instructie te lezen. In één naald meerder en minder je, maar na iedere 3e keer minder je niet. Je krijgt hierdoor dus meer steken toch? Wordt je boordsteek dan 1 recht, 3 averecht? Op de foto is daar niets van te zien dus klopt dat wel?

07.11.2023 - 10:34

DROPS Design answered:

Dag Albertha,

Ja, dat klopt. Er komen daardoor meer steken bij in totaal, maar dit zie je niet terug in de boordsteek, deze blijft in tact. Normaal meerder je en minder je steeds om de halslijn te laten verschuiven, maar op iedere 3e keer dat je dit doet, minder je niet, maar maak je alleen de meerdering. Je houdt wel de boordsteek in tact. De hals wordt hierdoor wat ruimer.

08.11.2023 - 20:44

country flag Lígia Rodrigues wrote:

Autumn Sky

07.08.2023 - 10:17

country flag Patricia Scott wrote:

Promenade en forêt

05.08.2023 - 21:59

country flag Johanna wrote:

Herbststrand

04.08.2023 - 17:56

country flag Mariela wrote:

Dark woods

03.08.2023 - 14:28