Climbing Vines |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með köðlum, skáhallandi öxl og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 244-29 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- KANTLYKKJUR: Kantlykkjur eru prjónaðar slétt frá réttu og slétt frá röngu (garðaprjón). MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. . Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um hálsmál á framstykki): Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli í byrjun umferðar frá réttu þannig: Prjónið 3 lykkjur sléttprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli í lok umferðar frá réttu þannig: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir að hálsmáli, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 3 lykkjur sléttprjón. ÚTAUKNING (á við um mitt undir ermum): Byrjið 2 lykkjum á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúið slétt, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, hvort fyrir sig, neðan frá og upp, þar til klaufin hefur verið gerð. Stykkin eru sett saman og fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna upp að handvegi. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna, hvort fyrir sig, að loknu máli. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp að byrjun á ermakúpu, ermakúpan er prjónuð fram og til baka á hringprjóna að loknu máli. Frágangur á stykki er útskýrður í uppskrift. Að lokum eru prjónaðar upp lykkjur í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli sem brotinn er saman tvöfaldur. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 114-122-130-146-154-170 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 KANTLYKKJUR – lesið útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 4-5-5-7-7-9 sinnum, 2 lykkjur slétt, A.1, A.2, A.3, A.2, A.1, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 4-5-5-7-7-9 sinnum, 2 lykkjur slétt, 2 kantlykkjur. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 8 cm, endið eftir umferð frá röngu. Klippið þráðinn. Setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón og prjónið bakstykkið eins og útskýrt er að neðan. BAKSTYKKI: Fitjið upp 114-122-130-142-154-166 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 2 kantlykkjur. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 8 cm, endið eftir umferð frá röngu. Nú eru stykkin sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5, prjónið sléttprjón yfir 114-122-130-142-154-166 lykkjur á bakstykki og fækkið jafnframt um 28-30-32-34-36-38 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, síðan er prjónað yfir lykkjur frá framstykki þannig: Prjónið 20-24-24-32-32-40 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt um 4-5-4-7-5-8 lykkjur jafnt yfir, prjónið A.4 yfir lykkjur í A.1, prjónið 14-14-18-18-22-22 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt um 2-2-4-4-5-5 lykkjur jafnt yfir, prjónið A.5 yfir lykkjur í A.3, prjónið 14-14-18-18-22-22 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt um 2-2-4-4-5-5 lykkjur jafnt yfir, prjónið A.4 yfir lykkjur í A.1, prjónið 20-24-24-32-32-40 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt um 4-5-4-7-5-8 lykkjur jafnt yfir. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, í skiptinguna á milli framstykkis / bakstykkis. Það er 188-200-212-232-252-272 lykkjur í umferð (102-108-114-124-134-144 lykkjur á milli merkiþráða á framstykki og 86-92-98-108-118-128 lykkjur á milli merkiþráða á bakstykki). Síðan er prjónað þannig: Prjónið sléttprjón yfir lykkjur á bakstykki og prjónið yfir lykkjur á framstykki þannig: 16-19-20-25-27-32 lykkjur sléttprjón, A.4, 12-12-14-14-17-17 lykkjur sléttprjón, A.5, 12-12-14-14-17-17 lykkjur sléttprjón, A.4, 16-19-20-25-27-32 lykkjur sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm og næsta umferð er umferð með oddatölu í mynsturteikningu, fellið af fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Byrjið 2-3-4-5-6-7 lykkjur á undan fyrra prjónamerki, fellið af 4-6-8-10-12-14 lykkjur fyrir handveg, prjónið eins og áður þar til eftir eru 2-3-4-5-6-7 lykkjur á undan seinna prjónamerki, fellið af 4-6-8-10-12-14 lykkjur fyrir handveg og prjónið sléttprjón út umferðina. Framstykkið og bakstykkið er núna prjónað hvort fyrir sig. FRAMSTYKKI: = 98-102-106-114-122-130 lykkjur. Byrjið frá röngu og haldið áfram með mynstur fram og til baka með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 48-50-51-53-54-56 cm og næsta umferð er prjónuð frá réttu, fækkið um 8 lykkjur jafnt yfir lykkjur í A.5 (fækkið um 4 lykkjur yfir hvorn kaðal) = 90-94-98-106-114-122 lykkjur. Í næstu umferð eru miðju 18-18-20-20-22-22 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 36-38-39-43-46-50 lykkjur á hvorri öxl. Síðan er lykkjum fækkað fyrir hálsmáli og prjónuð er skáhallandi öxl. Lestu því kaflann HÁLSMÁL og SKÁHALLANDI ÖXL áður en þú prjónar áfram. HÁLSMÁL: Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu alls 5 sinnum – lesið ÚRTAKA. SKÁHALLANDI ÖXL: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, prjónið skáhallandi öxl þannig. Prjónið eins og áður þar til eftir eru 4-5-5-6-6-7 lykkjur að hlið, snúið, herðið á þræði og prjónið til baka. Snúið, herðið á þræði, prjónið eins og áður þar til eftir eru 8-10-10-12-12-14 lykkjur að hlið, snúið, herðið á þræði og prjónið til baka. Haldið svona áfram fram og til baka yfir 4-5-5-6-6-7 lykkjur færri þar til eftir eru 7-3-4-2-5-3 lykkjur á prjóni. Prjónið til baka yfir síðustu lykkjurnar. Prjónið síðan 1 umferð yfir allar 31-33-34-38-41-45 axlalykkjur og fækkið jafnframt um 4 lykkjur yfir kaðal í A.4 = 27-29-30-34-37-41 lykkjur. Fellið af næstu umferð. Prjónið hina öxlina á sama hátt. BAKSTYKKI. = 82-86-90-98-106-114 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, setjið 1 prjónamerki mitt í umferð. Prjónamerkið er notað síðar þegar fella á af fyrir hálsmáli. Nú er prjónuð skáhallandi öxl í hvorri hlið á stykki. Jafnframt er fellt af fyrir hálsmáli. Lestu því kaflann SKÁHALLANDI ÖXL og HÁLSMÁL áður en þú prjónar áfram. SKÁHALLANDI ÖXL: Prjónið eins og áður þar til eftir eru 4-4-4-5-5-6 lykkjur að hlið, snúið, herðið á þræði og prjónið þar til eftir eru 4-4-4-5-5-6 lykkjur í hinni hliðinni. Snúið, herðið á þræði og prjónið þar til eftir eru 8-8-8-10-10-12 lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið þar til eftir eru 8-8-8-10-10-12 lykkjur í hinni hliðinni. Haldið svona áfram fram og til baka og prjónið yfir 4-4-4-5-5-6 lykkjur færri þar til eftir eru 3-5-6-4-7-5 lykkjur í hvorri hlið. Prjónið til baka yfir síðustu lykkjurnar. Prjónið síðan 1 umferð yfir allar 27-29-30-34-37-41 lykkjur. Fellið af næstu umferð. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÁLSMÁL: Jafnframt þegar stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm, fellið af miðju 24-24-26-26-28-28 lykkjur fyrir hálsmáli (fellið af 12-12-13-13-14-14 lykkjur í hvoru megin við prjónamerki). Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram að prjóna skáhallandi öxl. Að auki er lykkjum fækkað fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu alls 2 sinnum – lesið ÚRTAKA. ERMI: Fitjið upp 64-68-68-68-72-72 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt. Síðan er prjónað stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 16-18-18-16-18-16 lykkjur jafnt yfir = 48-50-50-52-54-56 lykkjur. Setjið 1merkiþráð í byrjun umferðar og látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu. Merkiþráðurinn er notaður þegar auka á út mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 10-10-12-12-10-13 cm, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4-3½-3-2½-2½-2 cm millibili alls 10-11-12-13-14-14 sinnum = 68-72-74-78-82-84 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 50-49-49-46-44-43 cm frá uppfitjunarkanti. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka frá merkiþræði þar til ermin mælist 51-51-51-49-48-47 cm, þ.e.a.s. það er klauf 1-2-2-3-4-4 cm efst á ermi. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermakúpuna við handveg. Síðan er klaufin saumuð efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið stuttan hringprjón 3,5 og DROPS Air. Byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp frá réttu ca 96-96-104-104-112-112 lykkjur í kringum hálsmál – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 13-13-15-15-17-17 cm. Fellið af aðeins laust. Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki og saumið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (4)
Liesbeth wrote:
Bij telpatronen A4 en A5: zitten er steeds 9 toeren tussen de toeren waarin je kanelnaald gebruikt? Dus: de eerste keer kanelnaald in de 5e toer en daarna elke 10e toer?
04.04.2024 - 21:27DROPS Design answered:
Dag Liesbeth,
Klopt, de eerste keer kabel je op de 5e toer en daarna steeds op de 10e toer.
07.04.2024 - 17:55Rossana wrote:
Vorrei fare questo maglione con i ferri diritti. Potete spiegarmi come fare? Grazie
07.03.2024 - 18:15DROPS Design answered:
Buonasera Rossana, questo modello inizia con la lavorazione in piano e poi in tondo. Se vuole continuare in piano deve adattare la lavorazione: per un'assistenza più personalizzata può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!
07.03.2024 - 19:27Belki wrote:
Into the vines
03.08.2023 - 17:53E Veiga wrote:
Memories of Spring (the cables remind me of climbing vines, and the fresh green is definitely the color of new sprouts)
03.08.2023 - 12:56