DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6160.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sea Maiden Sweater

Prjónuð peysa úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með tvöföldum kanti í hálsmáli, laskalínu og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 244-18
DROPS Design: Mynstur u-960
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
500-550-600-650-750-800 g litur 87, mosagrænn

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6160.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

LASKALÍNA-1:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Öll útaukning er gerð á undan / eftir 2 lykkjum í sléttprjóni í hverri skiptingu á milli framstykkis / bakstykkis og erma (merkiþráður situr á milli þessa 2 lykkja og þessar lykkjur eru núna kallaðar laskalínulykkjur).
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn eins og útskýrt er að neðan, síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni.

Uppslátturinn er prjónaður frá röngu á undan og á eftir laskalínulykkjum þannig:
Á UNDAN laskalínulykkjum:
Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt.
Á EFTIR laskalínulykkjum:
Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt.

Uppslátturinn er prjónaður frá réttu á undan og á eftir laskalínulykkjum þannig:
Á UNDAN laskalínulykkjum:
Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri). Það eiga ekki að myndast göt.
Á EFTIR laskalínulykkjum:
Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann (uppslátturinn snýr til vinstri). Það eiga ekki að myndast göt.

LASKALÍNA-2:
Aukið út um 1 lykkju aukalega á eftir / undan laskalínulykkjum á framstykki / bakstykki (ekki á ermum). Laskalína-2 er prjónuð sem viðbót við Laskalína-1. Þetta er gert þannig:
Á UNDAN 2 laskalínulykkjum:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan 2 laskalínulykkjum, takið upp þráðinn á undan næstu lykkju, þráðurinn er tekinn upp aftan frá og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.
Á EFTIR 2 laskalínulykkjum:
Prjónið 3 lykkjur fram hjá 2 laskalínulykkjum (hugsanlega er uppsláttur frá útaukningu í sömu umferð sem er ekki talinn sem lykkja hér), takið upp þráðinn á undan næstu lykkju, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli er prjónaður í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Síðan er hálsmálið prjónað með stuttum umferðum fram og til baka á hringprjóna. Þegar hálsmálið hefur verið prjónað til loka, prjónið afgang af berustykki í hring á hringprjóna frá miðju að aftan.
Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 116-120-124-128-132-136 lykkjur með DROPS Karisma yfir stuttan hringprjón 3 og stuttan hringprjón 4 sem haldið er saman. Dragið út stutta hringprjón 4 og haldið lykkjum eftir á stuttum hringprjóni 3 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur).
Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 11 cm.
Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, brjótið stroffið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð í stroffprjóni eins og áður JAFNFRAMT því sem fjórða hver lykkja er prjónuð saman með 4. hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (mitt að aftan).

Nú eru sett 4 merkiþræðir í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Hver merkiþráður er settur á milli 2 lykkja (laskalínulykkja).
Teljið 14-16-16-18-18-20 lykkjur (hálft bakstykki), setjið 1. merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 29 lykkjur (ermi), setjið 2. merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 29-31-33-35-37-39 lykkjur (framstykki), setjið 3. merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 29 lykkjur (ermi), setjið 4. merkiþráð á undan næstu lykkju. Það eru 15-15-17-17-19-19 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta merkiþræði (hálft bakstykki).

HÁLSMÁL:
Skiptið yfir á hringprjón 4. Nú er prjónað hálsmál með stuttum umferðum eins og útskýrt er að neðan, byrjið mitt að aftan:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA-1 – lesið útskýringu að ofan, hvoru megin við 2 fyrstu merkiþræðina (4 lykkjur fleiri), snúið við þegar prjónaðar hafa verið 3 lykkjur fram hjá 2. merkiþræði (hægra megin við hálsmál, séð þegar flíkin er mátuð) = 120-124-128-132-136-140 lykkjur.
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið sléttprjón (uppslátturinn frá fyrri útaukningu er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina), snúið þegar prjónaðar hafa verið 3 lykkjur fram hjá 3. merkiþræði (vinstra megin við hálsmál, séð þegar flíkin er mátuð).
UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalína-1 hvoru megin við 4 merkiþræðina (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning = 128-132-136-140-144-148 lykkjur.
UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið sléttprjón, snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning.
UMFERÐ 5 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalína-1 hvoru megin við 4 merkiþræðina (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning = 136-140-144-148-152-156 lykkjur.
UMFERÐ 6 (ranga): Prjónið sléttprjón, snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning.
UMFERÐ 7 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalína-1 hvoru megin við 2 fyrstu merkiþræðina (4 lykkjur fleiri), prjónið að miðju að aftan = 140-144-148-152-156-160 lykkjur.

Stuttar umferðir hafa núna verið prjónaðar til loka og aukið hefur verið út 3 sinnum fyrir laskalínu hvoru megin við 4 merkiþræðina. Prjónið 1 umferð sléttprjón yfir allar lykkjur. Síðan er berustykkið prjónað eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Prjónið sléttprjón og haldið áfram með útaukningu eins og útskýrt er að neðan.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
ATH: Það á núna að auka út fleiri lykkjur á framstykki / bakstykki en á ermum, þess vegna á að auka út til auka lykkjum á framstykki / bakstykki með jöfnu millibili (laskalína-2).
Þetta er gert sem viðbót við laskalína-1. Lestu því allan kaflann um berustykki áður en þú prjónar áfram.

Aukið út fyrir laskalína-1 hvoru megin við 4 merkiþræðina í annarri hverri umferð alls 3-2-7-13-13-12 sinnum (þ.e.a.s. 6-5-10-16-16-15 sinnum meðtaldar 3 útaukningar fyrir hálsmáli).
JAFNFRAMT í fyrstu umferð, aukið út fyrir LASKALÍNA-2 á framstykki og bakstykki – lesið útskýringu að ofan (laskalína-2 er prjónuð sem viðbót við laskalína-1). Aukið út fyrir laskalína-2 í 12.-24.-18.-12.-8.-8. hverri umferð alls 4-2-3-5-7-8 sinnum.

Þegar aukið hefur verið út fyrir laskalína-1 alls 3-2-7-13-13-12 sinnum eins og útskýrt er að ofan, heldur útaukning fyrir laskalína-1 áfram í annarri hverri umferð, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykki / bakstykki. Þ.e.a.s. aukið er út á framstykki / bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 22-26-22-18-20-24 sinnum á fram- og bakstykki (11-13-11-9-10-12 sinnum á ermum) – munið eftir laskalína-2. Nú hefur verið aukið út alls 32-33-35-39-43-47 sinnum á framstykki / bakstykki og 17-18-21-25-26-27 sinnum á ermum.

Eftir alla útaukningu fyrir laskalína-1 og laskalína-2 eru 312-324-348-384-408-432 lykkjur í umferð (93-97-103-113-123-133 lykkjur á milli merkiþráða á framstykki / bakstykki og 63-65-71-79-81-83 lykkjur á milli merkiþráða á ermum).
Prjónið sléttprjón án þess að auka út þar til stykkið mælist 21-23-24-25-27-29 cm, mælt mitt að aftan á eftir stroffi í hálsmáli.

Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 47-50-52-58-62-68 lykkjur sléttprjón (hálft bakstykki ásamt laskalínulykkjum), setjið næstu 61-63-69-77-79-81 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-14-16-18-20 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 95-99-105-115-125-135 lykkjur sléttprjón (framstykki ásamt laskalínulykkjum), setjið næstu 61-63-69-77-79-81 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-14-16-18-20 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið þær 48-49-53-57-63-67 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (hálft bakstykki ásamt laskalínulykkjum). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 210-222-238-262-286-310 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki – mitt í 10-12-14-16-18-20 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið merkiþræðina fylgja með í stykkinu – merkiþræðirnir eru notaðir þegar stykkið skiptist fyrir klauf í hvorri hlið. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 19-19-20-21-21-21 cm frá skiptingu.
Setjið lykkjur frá framstykki á hringprjón 3 og látið lykkjur á bakstykki hvíla á hringprjón 4.

FRAMSTYKKI:
= 105-111-119-131-143-155 lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 34-36-38-40-44-50 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 139-147-157-171-187-205 lykkjur.
Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 10 cm.
Fellið af, notið e.t.v. ítalska affellingu. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl.

BAKSTYKKI:
Færið 105-111-119-131-143-155 lykkjur yfir á hringprjón 3 og prjónið á sama hátt og á framstykki.

ERMI:
Setjið 61-63-69-77-79-81 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-12-14-16-18-20 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 71-75-83-93-97-101 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 10-12-14-16-18-20 lykkjur. Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu.
Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar ermin mælist 3-2-2-3-3-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 4-3½-2½-1½-1½-1½ cm millibili alls 8-9-12-16-17-18 sinnum = 55-57-59-61-63-65 lykkjur.
Prjónið þar til ermin mælist 34-32-32-32-30-29 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 10 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 17-17-17-19-19-21 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 72-74-76-80-82-86 lykkjur. Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 10 cm. Fellið af á sama hátt og framstykki / bakstykki. Ermin mælist ca 44-42-42-42-40-39 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 244-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (6)

country flag Merete Cakmak wrote:

Dette er en kommentar til jeres fotos., og det gælder ikke kun denne opskrift, men den illustrerer min pointe fint for flertallet af jeres fotos: blusen er vist fra samme vinkel i alle fotos, kun modellens ansigt ses fra to forskellige sider. Jeg ville meget hellere se bluserne forfra, bagfra og fra siden. Før i tiden kunne man forstørre/zoome ind på billederne, det kan man heller ikke mere.

14.04.2024 - 16:43

country flag Marion wrote:

Ik heb een proeflapje(op normale penen) gemaakt eerst op naald 4, daarna op 3,5. Het aantal steken klopte bij 3,5. Na de boord op naald 3, ben ik in tricotsteek op 3,5 verder gegaan op een rondbreinaald. Nu na 7 toeren klopt de steken verhouding niet meer. (te weinig steken).Komt dat door het verschil tussen een rondbreinaald en gewone rechte pennen? Kan ik nu gewoon verder gaan op naald nr.4, of moet ik het gebreide nu uithalen en vanaf de boord opnieuw beginnen? Wat is uw advies?

11.12.2023 - 17:28

DROPS Design answered:

Dag Marion,

Het kan inderdaad zo zijn dat je stekenverhouding anders is op de rondbreinaald. Je zou even een proeflapje kunnen maken met de rondbreinaald nr. 4 om te kijken of het dan wel de juiste stekenverhouding is. Dan zou je inderdaad verder kunnen breien met naald nr 4. Als het verschil niet te groot is, hoef je het denk ik niet uit te halen.

13.12.2023 - 21:21

country flag Helena Hugosson wrote:

Hej! Stickade om och om igen enligt mönstret, föjande; Efter halsen och de 4 markeringarna är satta kommer 7 förkortade varv. Varv 1 är rätt men varv 2, att sticka 3 maskor "efter den 3: dje" markeringen, blir FEL. Det ska vara "efter den 4:de" markeringen. Repade upp maskorna ett antal gånger. Jämförde sedan med liknande mönster och fick tillslut det att stämma perfekt. Mvh Helena

31.10.2023 - 21:19

country flag Irina wrote:

Irish Dream

07.08.2023 - 06:25

country flag Evergreen wrote:

The color matches with the evergreen forests.

04.08.2023 - 18:31

country flag Evergreen wrote:

The color matches with the evergreen forests.

04.08.2023 - 18:31