DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 21450.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Lavender Romance Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í garðaprjóni og áferðamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 243-18
DROPS Design: Mynstur z-997
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
350-400-400-450-500-550 g litur 4010, ljós lavender
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-150-175-175-200-225 g litur 40, perlubleikur

TÖLUR:
DROPS TALA NR 608: 3-3-3-4-4-4 st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
18 lykkjur á breidd og 23 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri garntegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 21450.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.4).
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

HNAPPAGAT (neðan frá og upp):
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
S: 9, 19 og 29 cm.
M: 9, 19 og 29 cm.
L: 9, 19 og 29 cm.
XL: 9, 18, 27 og 36 cm.
XXL: 9, 18, 27 og 36 cm.
XXXL: 9, 18, 27 og 36 cm.

ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum):
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn er staðsettur mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna upp að handvegi. Fram- og bakstykkið skiptist fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað áfram fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón upp að ermakúpu, síðan er afgangur af erminni prjónað fram og til baka.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 262-283-297-318-346-374 lykkjur á hringprjón 3,5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið stroffprjón með byrjun frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, prjónið A.1a, A.2, prjónið A.3a þar til 19 lykkjur eru eftir, A.2, A.1a og 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til A.1a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina.
Prjónið nú áfram þannig:
7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1b, A.2, prjónið A.3b þar til 19 lykkjur eru eftir, A.2, A.1b og 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til A.3b hefur verið prjónað alls 2 sinnum á hæðina. Stykkið mælist ca 9 cm, munið eftir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan.
Nú er mynstrið prjónað þannig:

Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 7 lykkjur í garðaprjóni, A.1b, A.2, prjónið A.4 þar til 19 lykkjur eru eftir JAFNFRAMT er fækkað um 64-69-67-72-84-88 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð, A.2, A.1b og 7 lykkjur í garðaprjóni = 198-214-230-246-262-286 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram.
Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, mælist stykkið ca 18-18-18-19-19-19 cm frá uppfitjunarkanti. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist ca 35-34-35-36-37-38 cm. Í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir handveg þannig: Prjónið 52-54-56-58-62-66 lykkjur eins og áður (hægra framstykki), setjið þær síðan á hjálparprjón/þráð, fellið af 2-6-10-14-14-18 lykkjur fyrir handveg, prjónið 90-94-98-102-110-118 lykkjur eins og áður (bakstykki), setjið þær síðan á hjálparprjón/þráð, fellið af 2-6-10-14-14-18 lykkjur fyrir handveg, prjónið síðustu 52-54-56-58-62-66 lykkjur eins og áður (vinstra framstykki). Hvert stykki er nú prjónað til loka, hvert fyrir sig.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 52-54-56-58-62-66 lykkjur.
Fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu.
Prjónið mynstur eins og áður þar til A.4 hefur verið prjónað alls 5 sinnum á hæðina. Síðan er prjónað sléttprjón yfir A.4 að loka máli. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm frá skiptingu, prjónið skáhallandi öxl með byrjun frá næstu umferð frá hálsmáli þannig:
Prjónið þar til 7-8-8-9-9-10 lykkjur eru eftir, snúið og prjónið til baka. Haldið svona áfram og prjónið yfir 7-8-8-9-9-10 lykkjur færri í hvert skipti sem snúið er við á öxl og alls 3 sinnum. Í síðustu umferð við hálsmál er prjónað þar til 17-17-18-18-19-20 lykkjur eru eftir, setjið síðustu 17-17-18-18-19-20 lykkjur á þráð fyrir sjalkraga. Prjónið 1 umferð sléttprjón til baka yfir allar 35-37-38-40-43-46 lykkjur frá öxl. Fellið af. Stykkið mælist 56-56-58-60-62-64 cm mælt frá innst við hálsmál og niður.

SJALKRAGI:
Setjið 17-17-18-18-19-20 lykkjur af þræði á hringprjón 4,5. Prjónið kant að framan og mynstur A.1b og A.2 eins og áður. Jafnframt eru prjónaðar stutta umferðir þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið yfir allar lykkjur, snúið og herðið á þræði.
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið yfir fyrstu 7 lykkjurnar, snúið og herðið á þræði.
UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið yfir 7 lykkjur, snúið og herðið á þræði.
UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið yfir allar lykkjur.
Prjónið umferð 1 til 4 þar til sjalkraginn mælist ca 7-8-8-9-9-9 cm þar sem stykkið er styst. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjurnar. Fellið af.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 52-54-56-58-62-66 lykkjur.
Fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu.
Prjónið mynstur eins og áður þar til A.4 hefur verið prjónað alls 5 sinnum á hæðina. Síðan er prjónað sléttprjón yfir A.4 að loka máli. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm frá skiptingu, prjónið skáhallandi öxl með byrjun frá næstu umferð frá hálsmáli þannig:
Prjónið þar til 7-8-8-9-9-10 lykkjur eru eftir, snúið og prjónið til baka. Haldið svona áfram og prjónið yfir 7-8-8-9-9-10 lykkjur færri í hvert skipti sem snúið er við á öxl og alls 3 sinnum. Í síðustu umferð við hálsmál er prjónað þar til 17-17-18-18-19-20 lykkjur eru eftir, setjið síðustu 17-17-18-18-19-20 lykkjur á þráð fyrir sjalkraga. Prjónið 1 umferð sléttprjón til baka yfir allar 35-37-38-40-43-46 lykkjur frá öxl. Fellið af. Stykkið mælist 56-56-58-60-62-64 cm mælt frá innst við hálsmál og niður.

SJALKRAGI:
Setjið 17-17-18-18-19-20 lykkjur af þræði á hringprjón 4,5. Prjónið kant að framan og mynstur A.1b og A.2 eins og áður. Jafnframt eru prjónaðar stutta umferðir þannig:
UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið yfir allar lykkjur, snúið og herðið á þræði.
UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið yfir fyrstu 7 lykkjurnar, snúið og herðið á þræði.
UMFERÐ 3 (ranga): Prjónið yfir 7 lykkjur, snúið og herðið á þræði.
UMFERÐ 4 (rétta): Prjónið yfir allar lykkjur.
Prjónið umferð 1 til 4 þar til sjalkraginn mælist ca 7-8-8-9-9-9 cm þar sem stykkið er styst. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af.

BAKSTYKKI:
= 90-94-98-102-110-118 lykkjur.
Haldið áfram með mynstrið eins og áður þar til A.4 hefur verið prjónað alls 5 sinnum á hæðina og stykkið mælist ca 54-54-54-59-59-59 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm frá skiptingu, prjónið skáhallandi öxl og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli í næstu umferð frá réttu þannig:
Prjónið 36-38-39-41-44-47 lykkjur, fellið af næstu 18-18-20-20-24-24 lykkjur fyrir hálsmáli, prjónið þar til 7-8-8-9-9-10 lykkjur eru eftir í umferð. Snúið og prjónið til baka. Hvor öxl er nú prjónuð til loka hvor fyrir sig. Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið yfir 7-8-8-9-9-10 lykkjur færri í lok hverrar umferðar frá hálsmáli alls 3 sinnum og fækkið JAFNFRAMT um 1 lykkju fyrir hálsmáli í byrjun á fyrstu umferð frá hálsmáli = 35-37-38-40-43-46 lykkjur. Prjónið 1 umferð sléttprjón yfir allar lykkjur frá öxl. Fellið af. Stykkið mælist ca 56-56-58-60-62-64 cm mælt frá innst við hálsmál og niður.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 63-70-70-77-77-77 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Setjið 1 merkiþráð í byrjun á umferð, látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroffprjón eins og útskýrt er í A.3a yfir allar lykkjur. Þegar A.3a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.3b yfir allar lykkjur alls 4 sinnum á hæðina.
Prjónið A.3 hringinn yfir allar lykkjur JAFNFRAMT er fækkað um 17-20-20-23-23-19 lykkjur jafnt yfir í 1. umferð = 46-50-50-54-54-58 lykkjur. Stykkið mælist ca 15 cm.
Skiptið yfir á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4,5. Prjónið sléttprjón að loka máli. Þegar stykkið mælist 17-17-16-17-17-16 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð – lesið ÚTAUKNING.
Aukið svona út með 3-3-2½-2½-2-2 cm millibili alls 9-9-11-11-12-12 sinnum = 64-68-72-76-78-82 lykkjur. Þegar ermin mælist 46-45-44-43-42-41 cm, prjónið ermakúpuna fram og til baka á hringprjón að loka máli. Fellið af þegar ermin mælist ca 47-47-47-47-46-46 cm, þ.e.a.s. það er klauf 1-2-3-4-4-5 cm efst á ermi.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasaumana innan við affellingarkantinn. Saumið sjalkragann mitt að aftan og saumið við hálsmál aftan í hnakka. Saumið ermakúpuna við handveg og saumið klauf efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. Saumið tölur í vinstra framstykki.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju brugðið af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
symbols = ermakúpan er saumuð við handveg þannig: Saumið a við A og b við B

diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 243-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag May wrote:

Her er noe feil. Tegning og beskrivelse sier noe om sjalskrage men dette er en V-jakke. Oppdatering ønskes.

02.03.2024 - 13:39

country flag Vivi Engholm Tecza wrote:

Der er en fejl i diagram beskrivelsen. Iflg den, er hvid firkant og sort firkant det samme. Heldigvis tjekkede jeg med den norske udgave, da jeg har haft rimelig problem med at strikke det korrekt, så min fornemmelse af, at der var noget galt med vejledningen, var korrekt

17.02.2024 - 19:05

country flag Ene Jalakas wrote:

Tere. Teen mustreid A1a, A2 ja A3a ja jôudes rea lõppu enne 19 silma, lõpetan kolme vasakpidi silmaga A3. Alustan ju A3a kahe vasakpidi silmaga. Kaks hôlma tulevad ju nii erinevad? Ene

31.01.2024 - 08:01

DROPS Design answered:

Tere Ene Jalakas! See 1 silmus jääb ripskoes esiliistu kõrvale ja ei jää näha. Soovikorral võite teha mõlemad pooled ühesugused. Head kudumist!

31.01.2024 - 23:03

country flag Ute wrote:

Hallo, leider ist die deutsche Übersetzung hier mangelhaft. Im Englischen steht eindeutig „then“ A.3a until there are 19 stitches left. Im deutschen Text „ A.1a,A.2,A.3a bis noch 19 Maschen übrig sind. Das liest sich nach einer Wiederholung von A1.a,A.2 und A.3a und NICHT von der eigentlich gemeinten alleinigen Wiederholung von NUR A.3a. Ich stricke seit Jahrzehnten eigentlich alles und gerne schwierige Muster. Das kann man besser und eindeutiger formulieren. Danke

19.01.2024 - 16:45

DROPS Design answered:

Liebe Ute, es tut uns leid, dass es bei Ihnen zu einem Missverständnissen gekommen ist. Die deutsche Übersetzung entspricht allerdings der bei Strickanleitungen etablierten Darstellungsweise, jeden Einzelschritt mit einem Komma abzutrennen, und ist daher nicht mangelhaft. Wir können die Anleitung hier zwar deutlicher machen, Sie werden diese Formulierung allerdings auch in anderen Anleitungen finden. Weiter gutes Gelingen!

22.01.2024 - 10:03

country flag Ute wrote:

Es wäre schön, wenn die Anleitung längst korrigiert worden wäre. Ich saß jetzt selbst daran und habe gerechnet und nach Bild meine Berechnung vorgenommen. Und natürlich erstmal wieder aufgetrennt. Maschenzahl 283: 7 Maschen Rippen, A.1a(6Maschen) A2(6Maschen)= 19 Maschen Jetzt A.3a 35x wiederholen (35x7= 245) A2, A1.a und 7 Maschen Rippen, =19 Maschen Gesamtanzahl Maschen: 283

18.01.2024 - 15:32

DROPS Design answered:

Liebe Ute, ja genauso soll man am Anfang vom Rumpfteil in M stricken, missverstehe ich Ihre Frage?

19.01.2024 - 08:30

country flag Ida Razmilic wrote:

Mw Pultrum heeft gelijk. Nu zie ik het ook. Het patroon klopt niet. Graag gecorrigeerd patroon publiceren.

28.11.2023 - 15:12

DROPS Design answered:

Dag Ida,

Als je volgens patroon breit en ook A.2 breit, krijg je ribbelsteken naast A.1

29.11.2023 - 19:22

country flag Ida Razmilic wrote:

Urdir 283 ptos. Tejer 7 y dp repetitir 19 (a1,a2,a3) hasta que queden 19. A mi me quedan 29. 7+(19x13=247)=254 283-254=29! Por favor explíqueme Gracias

28.11.2023 - 09:20

country flag Maribel wrote:

No termino de entender por qué este modelo se ha diseñado de modo que los cruces de los "ochos" se hacen por el lado del revés, lo cual lo hace más difícil desde el punto de vista intuitivo. Además, el gráfico A4 también se ha diseñado de modo que los surcos haya que hacerlos del revés, lo cual hace que muchas de las filas haya que trabajarlas del revés. Hubiese sido mucho más sencillo añadir una fila más y de ese modo la mayor parte de las filas se trabajarían del derecho.

16.10.2023 - 21:53

country flag Corrie Pultrum wrote:

Volgens mij staat er een foutje in dit patroon. Voor het lijf staat er 7 voorbies steken in ribbelsteek dan verder, A.1a,A.2,dan A.3a en zo verder. Als ik naar het plaatje kijk moet daar na A.1a , nog eens 7 voorbiessteken. Groet Corrie Pultrum.

15.09.2023 - 08:50

country flag Svetla Tsvetkova wrote:

Lavanda dreams

04.08.2023 - 10:04