DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15972.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Blue Diamonds Sweater

Prjónuð peysa úr DROPS Karisma og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með skáhallandi öxl, áferðamynstri, klauf í hliðum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.

DROPS 245-14
DROPS Design: Mynstur u-966
Garnflokkur B + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
600-650-750-800-900-950 g litur 30, ljós gallabuxnablár
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-175-175-200-225-225 g litur 08, ljós gallabuxnablár

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
16 lykkjur á breidd og 27 umferðir á hæð með A.1 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15972.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur brugðið saman / 2 lykkjur snúnar slétt saman sem fer eftir hvernig síðasta lykkja í A.1 var prjónuð, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), prjónið 2 lykkjur brugðið saman / 2 lykkjur slétt saman sem fer eftir hvernig á að prjóna næstu lykkju í A.1.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig, ofan frá og niður. Stykkið byrjar með að fitjaðar eru upp lykkjur fyrir skáhallandi öxl og hálsmáli. Síðan er mynstur prjónað ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón ofan frá og niður. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er tvöfaldur kantur í hálsmáli.

BAKSTYKKI:
Byrjið með vinstri öxl séð þegar stykkið liggur flatt (þetta verður hægri öxl þegar stykkið er mátað).
Lestu allan kaflann áður en þú prjónar áfram.
Fitjið upp 3-5-9-7-5-9 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði DROPS Karisma og 1 þræði DROPS Kid-Silk (2 þræðir).
Prjónið A.1 fram og til baka yfir allar lykkjur (1. umferð = rétta) – JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir skáhallandi öxl í lok hverrar umferðar frá réttu þannig: Fitjið upp 4-4-4-5-6-6 lykkjur alls 6 sinnum (nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1, en ysta lykkjan að hlið er prjónuð í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan).
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm, mælt frá hæsta punkti á öxl, eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok hverrar umferðar frá röngu þannig: Fitjið upp 1 lykkju 2 sinnum.
Þegar allar lykkjur hafa verið fitjaðar upp fyrir skáhallandi öxl og hálsmáli eru 29-31-35-39-43-47 lykkjur í umferð og síðasta umferð er prjónuð frá röngu. Klippið þráðinn. Geymið stykkið og prjónið hægri öxl eins og útskýrt er að neðan.

Hægri öxl þegar bakstykkið liggur flatt (þetta verður vinstri öxl þegar flíkin er mátuð).
Fitjið upp 3-5-9-7-5-9 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir).
Prjónið A.1 fram og til baka (1. umferð = rétta) – JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir skáhallandi öxl í lok hverrar umferðar frá röngu þannig: Fitjið upp 4-4-4-5-6-6 lykkjur alls 6 sinnum (nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1, en ysta lykkjan að hlið er prjónuð í garðaprjóni).
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm, mælt frá hæsta punkti á öxl, eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok hverrar umferðar frá réttu þannig: Fitjið upp 1 lykkju 2 sinnum. Prjónið til baka frá röngu = 29-31-35-39-43-47 lykkjur.

Í næstu umferð (rétta) eru stykkin sett saman þannig: Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, haldið áfram með A.1 eins og áður yfir næstu 28-30-34-38-42-46 lykkjur frá hægri öxl, fitjið upp 23-25-25-25-25-27 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli (mitt að aftan), setjið til baka 29-31-35-39-43-47 lykkjur frá vinstri öxl á prjóninn, haldið áfram með A.1 eins og áður yfir fyrstu 28-30-34-38-42-46 lykkjur og endið með 1 lykkju í garðaprjóni = 81-87-95-103-111-121 lykkjur.
Haldið áfram með A.1 fram og til baka með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 12-13-14-14-15-16 cm, mælt frá hæsta punkti á öxl. Síðan er mynstur prjónað eins og útskýrt er að neðan.

A.2:
Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið A.2 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð og aukið jafnframt út um 4 lykkjur jafnt yfir lykkjur í A.2 – lesið ÚTAUKNING, prjónið fyrstu lykkju í A.2 (í 7. umferð í mynsturteikningu er þessi lykkja prjónuð slétt), endið með 1 lykkju í garðaprjóni = 85-91-99-107-115-125 lykkjur.
Haldið áfram með mynstur – JAFNFRAMT í næst síðustu umferð í A.2 er aukið út um 6-8-8-8-8-6 lykkjur jafnt yfir = 91-99-107-115-123-131 lykkjur.

A.3 (ásamt handvegi):
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, A.3A, prjónið A.3B alls 10-11-12-13-14-15 sinnum, A.3C, 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm mælt yst meðfram handvegi (stykkið mælist ca 24-25-26-27-28-29 cm frá hæsta punkti á öxl), fitjið upp 2 nýjar lykkjur fyrir handveg í lok 2 næstu umferða = 95-103-111-119-127-135 lykkjur.
Haldið áfram með A.3 eins og áður með 1 lykkju í garðaprjóni og 2 lykkjur í sléttprjóni yst í hvorri hlið.
Prjónið A.3 alls 2½-2½-2½-3-3-3 sinnum á hæðina (í stærð S, M og L endar mynstur eftir 8. umferð í mynsturteikningu þegar mynstureiningin er prjónuð í 3. skipti á hæðina)
Stykkið mælist ca 33-34-35-37-38-39 cm, mælt frá hæsta punkti á öxl.

A.2:
Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka eins og útskýrt er að ofan, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið A.2 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð og fækkið jafnframt um 10-12-12-12-12-10 lykkjur jafnt yfir lykkjur í A.2, prjónið fyrstu lykkju í A.2 (í 7. umferð í mynsturteikningu er þessi lykkja prjónuð slétt), endið með 1 lykkju í garðaprjóni = 85-91-99-107-115-125 lykkjur.
Haldið áfram með mynstur – JAFNFRAMT í næst síðustu umferð í A.2 er aukið út um 11-13-13-13-13-11 lykkjur jafnt yfir = 96-104-112-120-128-136 lykkjur.

A.4:
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, 1 lykkja sléttprjón, A.4A, prjónið A.4B alls 11-12-13-14-15-16 sinnum, endið með 1 lykkju í sléttprjóni og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina.

A.5:
Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið A.5 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð og fækkið jafnframt um 11-13-13-13-13-11 lykkjur jafnt yfir lykkjur í A.5, prjónið fyrstu lykkju í A.5 (í 5. umferð í mynsturteikningu er þessi lykkja prjónuð slétt), endið með 1 lykkju í garðaprjóni = 85-91-99-107-115-125 lykkjur. Haldið áfram með mynstur þar til A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina.

A.1:
Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkjuna í A.1 þannig að mynstrið byrji og endi á sama hátt – endið með 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 53-55-57-59-61-63 cm, mælt frá hæsta punkti á öxl (ca 3-4-5-4-5-6 cm með A.1).
Nú er prjónað stroff með köðlum eins og útskýrt er að neðan.

STROFF MEÐ KÖÐLUM:
Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 59-65-73-77-83-91 lykkjur jafnt yfir = 144-156-172-184-198-216 lykkjur. Prjónið frá röngu þannig: 3 lykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og 3 lykkjur í garðaprjóni.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 lykkjur í garðaprjóni, prjónið A.6 þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 fyrstu lykkjur í A.6 þannig að mynstrið byrji og endi á sama hátt, endið með 3 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til stroffið mælist 8 cm. Fellið af aðeins laust. Bakstykkið mælist ca 61-63-65-67-69-71 cm, mælt frá hæsta punkti á öxl.

FRAMSTYKKI:
Byrjið með vinstri öxl þegar stykkið liggur flatt (þetta verður einnig vinstri öxl þegar stykkið er mátað). Lestu allan kaflann áður en þú prjónar áfram.
Fitjið upp 3-5-9-7-5-9 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þráð í hvorri tegund (2 þræðir).
Prjónið A.1 fram og til baka yfir allar lykkjur (1. umferð = rétta) – JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir skáhallandi öxl í lok hverrar umferðar frá réttu þannig: Fitjið upp 4-4-4-5-6-6 lykkjur alls 6 sinnum (nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1, en ysta lykkjan að hlið er prjónuð í garðaprjóni).
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4-4-4-6-6-6 cm, mælt frá hæsta punkti á öxl, fitjið upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok hverrar umferðar frá röngu þannig: Fitjið upp 1 lykkju 2 sinnum og 2 lykkjur 3 sinnum.
Þegar allar lykkjur hafa verið fitjaðar upp fyrir skáhallandi öxl og hálsmáli eru 35-37-41-45-49-53 lykkjur í umferð og síðasta umferð er prjónuð frá röngu. Klippið þráðinn. Geymið stykkið og prjónið hægri öxl eins og útskýrt er að neðan.

Hægri öxl þegar stykkið liggur flatt (þetta verður einnig hægri öxl þegar stykkið er mátað).
Fitjið upp 3-5-9-7-5-9 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þráð í hvorri tegund (2 þræðir).
Prjónið A.1 fram og til baka yfir allar lykkjur (1. umferð = rétta) – JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir skáhallandi öxl í lok hverrar umferðar frá röngu þannig: Fitjið upp 4-4-4-5-6-6 lykkjur alls 6 sinnum (nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1, en ysta lykkjan að hlið er prjónuð í garðaprjóni).
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4-4-4-6-6-6 cm, mælt frá hæsta punkti á öxl, fitjið upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok hverrar umferðar frá réttu þannig:
Fitjið upp 1 lykkju 2 sinnum og 2 lykkjur 3 sinnum = 35-37-41-45-49-53 lykkjur.
Prjónið til baka frá röngu.

Í næstu umferð (rétta) eru stykkin sett saman þannig: Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, haldið áfram með A.1 eins og áður yfir næstu 34-36-40-44-48-52 lykkjur frá hægri öxl, fitjið upp 11-13-13-13-13-15 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli (mitt að framan), setjið til baka 35-37-41-45-49-53 lykkjur frá vinstri öxl á prjóninn, haldið áfram með A.1 eins og áður yfir fyrstu 34-36-40-44-48-52 lykkjur og endið með 1 lykkju í garðaprjóni = 81-87-95-103-111-121 lykkjur.
Haldið áfram með A.1 fram og til baka með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 12-13-14-14-15-16 cm, mælt frá hæsta punkti á öxl. Síðan er mynstrið prjónað og lykkjur fitjaðar upp fyrir handveg á sama hátt og á bakstykki og prjónað til loka máls.

ERMI:
Fitjið upp 57-61-63-67-71-73 lykkjur á stuttan hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir).
Prjónið 6 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Síðan er stykkið sett saman og afgangur af ermi er prjónaður í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna, ofan frá og niður.
Prjónið 1 umferð slétt. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar. Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu – það á að nota hann síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi.
Prjónið síðan þannig: 1 lykkja slétt, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkju í A.1 svo að mynstrið byrji og endi á sama hátt, endið með 1 lykkju slétt. Haldið svona áfram með mynstur.
Þegar ermin mælist 3-3-3-3-4-4 cm frá uppfitjunarkanti, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 6-4½-4-3½-2½-2½ cm millibili alls 7-9-9-10-12-12 sinnum = 43-43-45-47-47-49 lykkjur.
Prjónið þar til ermin mælist 42-42-40-39-37-35 cm. Það eru eftir ca 6 cm að loka máli.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 25-25-27-25-29-27 lykkjur jafnt yfir – ekki er aukið út yfir 2 lykkjur slétt mitt undir ermi = 68-68-72-72-76-76 lykkjur. Byrjið umferð 1 lykkju á undan merkiþræði og prjónið A.6 alls 17-17-18-18-19-19 sinnum í hring á ermi – ATH. Þær 2 fyrstu lykkjur í A.6 eru prjónaðar yfir 2 lykkjur slétt mitt undir ermi. Prjónið þar til stroffið mælist 6 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 48-48-46-45-43-41 cm frá uppfitjunarkanti.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma frá handvegi og niður að stroffi innan við 1 lykkju í garðaprjóni (= ca 8 cm klauf í hvorri hlið). Saumið ermakúpuna við handveg innan við 1 lykkju í garðaprjóni á fram- og bakstykki / uppfitjunarkantur á ermi. Saumið botninn á handvegi – sjá teikningu.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp frá réttu innan við uppfitjunarkantinn á stuttan hringprjón 3,5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir), ca 92-96-96-100-100-104 lykkjur í kringum hálsmál.
Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 13-13-13-15-15-15 cm. Fellið af aðeins laust.
Brjótið niður stroffið að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið, það á að myndast gat
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið vinstri lykkju á kaðlaprjóni slétt, ekki lyfta lykkjunni af prjóni, en prjónið hægri lykkju slétt svo að sú lykkja komi í miðju, lyftið síðan báðum lykkjum af kaðlaprjóni
symbols = prjónstefna
symbols = saumið a við A og b við B
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 245-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (8)

country flag Yvonne wrote:

Kan ik het patroon breien zonderDROPS KID-SILK

09.04.2024 - 19:28

DROPS Design answered:

Hej Yvonne, da må du lægge til en anden tråd fra garngruppe A, feks DROPS Alpaca eller Nord eller Flora :)

10.04.2024 - 09:40

country flag Susi wrote:

Bei diesem Modell müsste man doch die Ärmel auch direkt anstricken können, oder nicht ?

03.11.2023 - 13:19

DROPS Design answered:

Liebe Susi, in diesem Modell werden die Ärmel separat gestrickt, aber wahrscheinlich können Sie auch direkt bei der Ärmel anstricken, einfach die Anleitung so anpassen. Viel Spaß beim stricken!

03.11.2023 - 14:04

country flag Izabela wrote:

Heaven State

06.08.2023 - 09:29

country flag Franziska wrote:

Ice Floes

05.08.2023 - 04:54

country flag Vesna wrote:

Nice work ❤️

04.08.2023 - 18:35

country flag Conni Foged wrote:

Spot on

04.08.2023 - 16:22

country flag Hanne Lund wrote:

Denne minder meget om trøje fra pititknit.dk bør udgå

04.08.2023 - 01:21

country flag Mayara wrote:

Ipanema Sweater

03.08.2023 - 13:05