DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Lili Rose

Prjónaður galli fyrir börn úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í perluprjóni. Stærð 0 – 4 ára.

DROPS Baby 45-5
DROPS Design: Mynstur bm-149-by
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Stærð: 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mánaða (2 - 3/4) ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92-104)

GARN:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-250-250-250 (300-300) g litur 49, eyðimerkurrós

TÖLUR:
DROPS TALA NR 628: 5-5-5-6 (6-6) st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: lengd 60 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 60 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með A.1 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (á við um innanverðu á skálm):
Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur saman, (prjónamerki), prjónið 2 lykkjur snúnar saman.

ÚTAUKNING (á við um mitt undir ermum):
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

GALLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykkið og framstykkin er prjónað hvert fyrir sig, ofan frá og niður áður en þau eru sett saman og síðan er prjónað fram – og til baka á hringprjóna. Lykkjum er fækkað í klofbót og hvor skálm er prjónuð í hring hvor fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring og saumaðar í. Að lokum er prjónaður kantur að framan og kantur í hálsmáli.

BAKSTYKKI:
Hvor öxl er prjónuð fyrir sig, lykkjur eru fitjaðar upp fyrir hálsmáli, áður en stykkið er sett saman og síðustu lykkjur fyrir hálsmáli eru fitjaðar upp á milli stykkja.

HÆGRI ÖXL:
Fitjið upp 10-14-18-18 (22-22) lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Baby Merino. Fyrsta umferðin er frá réttu og er prjónuð þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið mynstur A.1 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 2 cm, fitjið upp 1 lykkju fyrir hálsmáli í lok umferðar frá röngu = 11-15-19-19 (23-23) lykkjur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Geymið stykkið.

VINSTRI ÖXL:
Fitjið upp og prjónið eins og hægri öxl, en fitjið upp 1 lykkju fyrir hálsmáli í lok umferðar frá réttu. Prjónið 1 umferð frá röngu, þannig að prjónað er frá réttu þegar stykkin eru sett saman við bakstykki eins og útskýrt er að neðan.

BAKSTYKKI:
Prjónið vinstri öxl og hægri öxl saman frá réttu þannig:
Prjónið yfir 11-15-19-19 (23-23) lykkjur frá vinstri öxl eins og áður, fitjið upp 20-20-20-24 (24-28) lykkjur fyrir hálsmáli og prjónið yfir 11-15-19-19 (23-23) lykkjur frá hægri öxl eins og áður = 42-50-58-62 (70-74) lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í mynstri eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 11-12-13-14 (15-16) cm og síðasta umferð er prjónuð frá röngu. Geymið stykkið.

FRAMSTYKKI:
Hvort framstykki er prjónað hvor fyrir sig og fitjaðar eru upp lykkjur fyrir hálsmáli. Stykkin eru sett saman og gallinn er síðan prjónaður í hring.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 10-14-18-18 (22-22) lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Baby Merino.
Fyrsta umferðin er frá réttu og prjónað er þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið mynstur A.1 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 3-3-4-4 (5-5) cm, fitjið upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli með því að fitja upp lykkjur í lok hverrar umferðar frá réttu þannig: 1 lykkja alls 2 sinnum og síðan 2 lykkjur alls 3-3-3-4-4-5 sinnum = 18-22-26-28 (32-34) lykkjur. Prjónið mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 11-12-13-14 (15-16) cm og síðasta umferð er prjónuð frá röngu (stillið mynstrið af eftir bakstykki). Geymið stykkið og prjónið vinstra framstykki.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið eins og hægra framstykki, nema það eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok hverrar umferðar frá röngu.

GALLI:
Nú eru framstykkin og bakstykkið sett saman og prjónað er fram og til baka á hringprjóna 3,5 þannig:
Prjónið eins og áður yfir lykkjur frá vinstra framstykki, fitjið upp 14-10-10-10 (10-10) nýjar lykkjur fyrir handvegi, prjónið eins og áður yfir lykkjur frá bakstykki, fitjið upp 14-10-10-10 (10-10) nýjar lykkjur fyrir handveg og prjónið eins og áður yfir lykkjur frá hægra framstykki = 106-114-130-138 (154-162) lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 12-18-24-29 (30-29) cm frá þar sem stykkið var sett saman undir ermum. Nú eru kantlykkjur felldar af í 2 næstu umferðum (byrjið frá réttu) = 104-112-128-136 (152-160) lykkjur. Fitjið síðan upp lykkjur fyrir klofbót þannig: Prjónið yfir allar lykkjur eins og áður og fitjið upp 8 nýjar lykkjur í lok umferðar frá réttu = 112-120-136-144 (160-168) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki – látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónið mynstur hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 17-23-29-34-35-34 cm frá þar sem stykkið var sett saman undir ermum.
Nú er stykkinu skipt og hvor skálm er prjónuð áfram hvor fyrir sig á sokkaprjóna þannig:
Byrjið 6-8-10-10 (14-14) lykkjur á undan prjónamerki, fellið af næstu 4-8-12-12 (20-20) lykkjur, prjónið yfir fyrstu 52-52-56-60 (60-64) lykkjur eins og áður og setjið þessar lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, fellið af 4-8-12-12 (20-20) lykkjur, prjónið yfir næstu 52-52-56-60 (60-64) lykkjur eins og áður. Nú er hægri skálm prjónuð í hring eins og útskýrt er að neðan.

SKÁLM:
= 52-52-56-60 (60-64) lykkjur.
Notið sokkaprjón 3,5. Setjið 1 prjónamerki í innanverðu á stykki og haldið áfram með mynstur A.1 hringinn. Þegar skálmin mælist 2 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-7-7-5 (10-15) cm millibili alls 4-2-2-4 (2-2) sinnum = 44-48-52-52 (56-60) lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 14-15-17-20 (24-34) cm. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 4-4-4-4 (8-12) lykkjur jafnt yfir = 48-52-56-56 (64-72) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-3-4-5 (5-5) cm. Fellið af með sléttum lykkjum. Skálmin mælist alls 17-18-21-25 (29-39) cm.
Prjónið hina skálmina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 44-44-48-56 (56-60) lykkjur á sokkaprjóna 3 með DROPS Baby Merino. Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-3-4-5 (5-5) cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar = mitt undir ermi.
Prjónið síðan A.1, jafnframt þegar stykkið mælist 5-6-7-9 (9-10) cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – lesið ÚTAUKNING.
Aukið svona út með 2-1½-1½-1½ (2-2½) cm millibili alls 4-7-7-6 (8-8) sinnum = 52-58-62-68 (72-76) lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist alls 13-17-19-22 (26-30) cm.
Nú skiptist stykkið við prjónamerkið og ermakúpan er prjónuð fram og til baka á hringprjóna.
Fellið af þegar ermin mælist alls 16-20-21-24 (28-32) cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Byrjið frá réttu neðst þar sem lykkjur voru fitjaðar upp fyrir klofbót. Notið hringprjón 3 og prjónið upp ca 48 til 96 lykkjur (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4) innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni meðfram hægra framstykki upp að hálsmáli.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað stroff þannig (frá réttu): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til kantur að framan mælist ca 1 cm. Nú er fellt af fyrir 5-5-5-6 (6-6) hnappagötum jafnt yfir. 1 hnappagat = fellið af 2 lykkjur. Í næstu umferð eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur yfir lykkjur sem felldar voru af – ATH: Fallegast er ef fellt er af fyrir hnappagötum í einingu með brugðnum lykkjum (séð frá réttu). Neðsta hnappagatið er staðsett ca 3 cm frá neðri kanti og efsta hnappagatið ca 1 cm frá kanti efst. Staðsetjið þau hnappagöt sem eftir eru jafnt yfir á milli þessa tveggja.
Prjónið áfram þar til kanturinn mælist 3 cm. Fellið af.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Byrjið frá réttu efst við hálsmál. Notið hringprjón 3 og prjónið upp lykkjur alveg eins og á hægra framstykki niður þar sem lykkjur voru fitjaðar upp. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið stroff alveg eins og á hægri kantur að framan – ekki er fellt af fyrir hnappagötum í vinstri kanti að framan. Prjónið þar til kantur að framan mælist 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið mitt að framan og frá réttu og prjónið upp ca 68 til 88 lykkjur (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4) í kringum hálsmál og á hringprjón 3 með DROPS Baby Merino. Prjónið stroff þannig – fyrsta umferð er prjónuð frá röngu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 2 lykkjur brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 2-2-3-3 (3-3) cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermakúpu við handveg. Síðan eru efstu 3-3-2-2 (2-2) cm á ermi saumað við botn á handveg – sjá teikningu. Saumið opið saman á milli skálma. Leggið hægri kant að framan yfir vinstri kanti að framan og saumið niður við gallann þar sem lykkjur voru fitjaðar upp í klofbót. Saumið tölur í vinstri kant að framan. Brjótið e.t.v. uppá stroffið á skálmum og á ermum.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu

symbols = ermakúpan er saumuð við handveg þannig: Saumið a við A og b við B
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 45-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag Judy Hartley wrote:

When the pattern stated to knit until the piece measures a certain number of cm is this from the shoulder or from the back of the neck?

14.01.2024 - 11:05

DROPS Design answered:

Dear Judy, unless otherwise indicated, it should be from the beginning of the piece (cast on edge). For example, in this sentence: "Continue the pattern back and forth with 1 edge stitch in garter stitch on each side until the piece measures 11-12-13-14 (15-16) cm" in the BACK PIECE it means until the length of the whole back piece is 11.... cm. So you measure it from the cast-on edge/ start of the shoulders. Happy knitting!

14.01.2024 - 13:24

country flag Nora wrote:

Vad menas med "Sedan sys de översta 3-3-2-2 (2-2) cm på ärmen till botten av ärmhålet"?

27.12.2023 - 23:35

DROPS Design answered:

Hej Nora, se skissen nederst i opskriften, sy b til B :)

02.01.2024 - 12:17

country flag Uzma Shafqat wrote:

I am happy to find this website. Seems very beneficial. Hope I would be able to follow the pattern.

14.12.2023 - 12:01

country flag Mona Ashjari wrote:

I love you❤

09.12.2023 - 07:14

country flag Stephanie wrote:

Die Videos zur Anleitung sind super angelegt, nur leider ohne Ton (zumindest bei mir). Das wäre toll, wenn das noch behoben werden würde. Liebe Grüße

06.12.2023 - 11:19

country flag Ans Bezema wrote:

Er staat bij dit patroon : wordt gebreid in gerstekorrel maar in beschrijving staat ribbelsteek, kunt u mij dit uitleggen?

24.11.2023 - 15:29

country flag Nadine wrote:

Ich möchte gerne die Arme von oben nach unten Stricken aus Maschen, die ich direkt aus dem Armloch aufnehme. Bin mir aber unsicher wie viele Maschen ich aus dem Armloch aufnehmen muss. Wären das bei Größe 56/62 dann die 58 Maschen? Liebe Grüße

24.10.2023 - 17:55

country flag Stephanie wrote:

Mit welcher Nadelstärke wurde denn die Maschenprobe gestrickt?

12.10.2023 - 12:34

DROPS Design answered:

Liebe Stephanie, die Maschenprobe stricken Sie mit den grösseren Nadeln und im Muster A.1. Viel Spaß beim stricken!

12.10.2023 - 14:14

country flag Patricia wrote:

When do you start knitting in the round in this pattern

06.10.2023 - 12:17

DROPS Design answered:

Dear Patricia, you will work in the round when working SUIT part, after you have cast on the 8 new stitches for bands, just before dividing for legs (legs are also worked in the round). Sleeves are worked in the round to the sleeve cap which is worked back and forth. Happy knitting!

06.10.2023 - 14:31

country flag Patricia wrote:

Cast on for the neck at the end of each row from the right side as follows: 1 stitch 2 times, then 2 stitches 3-3-3-4-4-5 times = 18 Does this mean 1 increase next 2 rows, 2 stitches increase over 3 rows

02.10.2023 - 20:51

DROPS Design answered:

Hi Patricia, Yes, on the first row from the right side, cast on 1 stitch and again on the next row from the right side. Then 2 stitches on 3 subsequent rows from the right side. Happy knitting!

03.10.2023 - 06:51