Green Grove Cardigan |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Muskat eða DROPS Cotton Merino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og gatamynstri. Stærð S - XXXL
DROPS 239-25 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum í stærð L, XL, XXL og XXXL): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8-8½-9-8-8-8½ cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 133-137-143-149-155-161 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Muskat eða DROPS Cotton Merino. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt, 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið brugðnar lykkjur þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð og aukið jafnframt út um 36-38-40-44-48-50 lykkjur jafnt yfir, endið með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni = 169-175-183-193-203-211 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð. Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkju í A.1 (í 5. umferð í mynsturteikningu er þessi lykkja prjónuð slétt), endið með 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (uppslátturinn frá útaukningu er prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat), munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón fram og til baka með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 4-4-5-5-6-6 cm frá prjónamerki, aukið út um 42-44-50-56-60-66 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 211-219-233-249-263-277 lykkjur. Þegar stykkið mælist 7-7-8-8-9-10 cm frá prjónamerki, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.2A, prjónið A.2B þar til 12 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.2C og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í hverri umferð mektri með ör í mynsturteikningu er aukið út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan (ekki er aukið út yfir kanta að framan): Ör-1: Aukið út 42-46-50-58-62-66 lykkjur jafnt yfir = 253-265-283-307-325-343 lykkjur (nú er pláss fyrir 38-40-43-47-50-53 mynstureiningar með A.2B). Ör-2: Aukið út 38-42-46-56-58-58 lykkjur jafnt yfir = 291-307-329-363-383-401 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.3 þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.3 (í 7. umferð í mynsturteikningu er þessi lykkja prjónuð slétt), endið með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út í umferð merktri með ör í mynsturteikningu þannig: Ör-3: Aukið út 29-38-41-47-52-54 lykkjur jafnt yfir = 320-345-370-410-435-455 lykkjur. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.4 þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 3 fyrstu lykkjur í A.4 þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins, endið með 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka í þinni stærð, prjónið sléttprjón með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan, en athugið að í nokkrum stærðum skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er að neðan, áður en A.4 hefur verið prjónað til loka. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar berustykkið mælist 17-18-20-21-23-25 cm frá prjónamerki, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Ef A.4 hefur ekki verið prjónað til loka í þinni stærð, prjónið A.4 til loka á fram- og bakstykki og ermum. Prjónið 53-57-60-66-72-75 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 60-64-70-78-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 94-103-110-122-131-141 lykkjur eins og áður (bakstykki), setjið næstu 60-64-70-78-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið síðustu 53-57-60-66-72-75 lykkjur eins og áður (framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað til loka hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 220-237-254-278-303-323 lykkjur. Ef A.4 hefur ekki verið prjónað til loka á berustykki í þinni stærð, prjónið A.4 til loka (mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp í hliðum mitt undir hvorri ermi, en passið uppá að mynstrið haldið beint áfram yfir lykkjur frá berustykki og prjónið mynstur eins langt og hægt er inn að hvorri hlið undir ermum, þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar í sléttprjóni). Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður út til 221-237-255-279-303-323 lykkjur (ef A.4 hefur verið prjónað til loka í þinni stærð er lykkjufjöldinn jafnaður út í fyrstu umferð á fram- og bakstykki). Þegar prjónaðir hafa verið 6-6½-7-7-7½-7½ cm sléttprjón eftir A.4, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: * 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.3 þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkju í A.3 (í 7. umferð í mynsturteikningu er þessi lykkja prjónuð slétt), endið með 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni *. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið í 6-6½-7-7-7½-7½ cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið síðan frá *-* einu sinni til viðbótar. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 25-26-26-27-27-27 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 22-24-24-26-26-28 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 243-261-279-305-329-351 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið, 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið aðeins laust af. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl. ERMI: Setjið 60-64-70-78-80-82 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 70-74-82-90-94-98 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi (mitt í 10-10-12-12-14-16 lykkjur). Byrjið umferð við prjónamerki. Ef A.4 hefur ekki verið prjónað til loka á berustykki í þinni stærð, prjónið A.4 til loka (mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp mitt undir ermi, en passið uppá að mynstrið haldið beint áfram yfir lykkjur frá berustykki og prjónið mynstur eins langt og hægt er að miðju undir ermi, þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar í sléttprjóni). Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón hringinn. Í stærð L, XL, XXL og XXXL á að fækka lykkjum mitt undir ermi eins og útskýrt er að neðan (lykkjum er ekki fækkað í stærð S og M). STÆRÐ L, XL, XXL og XXXL: Þegar ermin mælist 4-3-3-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-3-3-2 cm millibili alls 2-3-3-3 sinnum = 78-84-88-92 lykkjur. ALLAR STÆRÐIR: Þegar ermin mælist 14-14-12-11-10-8 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4-6-8-10-10-10 lykkjur jafnt yfir = 66-68-70-74-78-82 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið aðeins laust af. Ermin mælist ca 18-18-16-16-14-12 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (3)
Civario Marie wrote:
Laine coton merinos drops Peut on utiliser des aiguilles numéro 3
29.04.2024 - 09:50DROPS Design answered:
Bonjour Mme Civario, Cotton Merino appartient au même groupe que Muskat, vous pouvez ainsi utiliser soit l'une soit l'autre laine, pensez à juste bien vérifier votre échantillon au préalable: 21 mailles x 28 rangs jersey avec les aiguilles 4 (ou la taille requise) = 10 x 10 cm. Bon tricot!
29.04.2024 - 12:41Regine Grøttem wrote:
Hei jeg lurer på norr man skal øke i en oppskrift med diagram. det står at vær gang man ser en pil i diagrammet så skal man øke men jeg forstår ikke hvordan jeg skal lese av diagrammet.
23.04.2023 - 10:58DROPS Design answered:
Hej Regine, jo, når du strikker 5.pind (ret fra retsiden) i A.2 (den med pilen) tager du 42 m (i den mindste størrelse) ud jævnt fordelt på pinden. Det er først når du kommer op til 9.pind du strikker hulmønster og det gør du ifølge diagrammet :)
25.04.2023 - 13:44Véronique wrote:
Longueur de manches idéale pour les femmes qui veulent cacher leurs bras moins musclés .
18.01.2023 - 19:49