DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1408.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Tangerine Twist Top

Prjónaður toppur úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með köðlum og V-hálsmáli. Stærð XS - XXL.

DROPS 240-19
DROPS Design: Mynstur w-887
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
200-250-250-300-300-350 g litur 71, mandarína

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5,5: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4,5: lengd 80 cm.
DROPS KAÐLAPRJÓNN

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1408.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum á eftir A.3 þannig: 2 lykkjur slétt saman.
Fækkið lykkjum á undan A.2 þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna neðan frá og upp að V-hálsmáli og handvegi. Síðan skiptist stykkið fyrir bakstykki og hægra- og vinstra framstykki og hvert stykki er prjónað til loka fyrir sig.

TOPPUR:
Fitjið upp 120-132-148-152-168-192 lykkjur á hringprjón 4,5 með DROPS Paris. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 24-28-32-32-36-40 lykkjur, 1 lykkja brugðið, 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju slétt.
Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið næstu umferð þannig: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 25-29-33-33-37-41 lykkjur og fækkið um 1-2-3-0-0-1 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið A.1 (A.1 á að prjónast yfir 1 lykkju brugðið, 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 1 lykkju brugðið frá stroffi), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 25-29-33-33-37-41 lykkjur og fækkið um 1-2-3-0-0-1 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, setjið 1 prjónamerki hér, prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 60-64-72-76-84-96 lykkjur og fækkið um 2-0-2-0-0-2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur = 116-128-140-152-168-188 lykkjur. Nú er 1 prjónamerki í hvorri hlið á stykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu – þau eru notuð síðar. Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-34 cm frá uppfitjunarkanti, stillið af að næsta umferð sé umferð með kaðli í A.1, prjónið A.1B yfir lykkjur í A.1. Prjónið A.1B 1 sinni á hæðina. Klippið þráðinn. Nú eru lykkjur settar á þráð, það er gert án þess að prjóna lykkjurnar. Setjið fyrstu 8-8-8-10-10-12 lykkjur í byrjun á umferð á þráð fyrir handveg, setjið næstu 21-24-27-28-32-35 lykkjur á annan þráð fyrir vinstra framstykki, haldið eftir næstu 21-24-27-28-32-35 lykkjum á prjóni fyrir hægra framstykki, setjið næstu 8-8-8-10-10-12 lykkjur á þráð fyrir handveg, setjið næstu 8-8-8-10-10-12 lykkjur á þráð fyrir handveg, setjið næstu 42-48-54-56-64-70 lykkjur á annan þráð fyrir bakstykki og setjið síðustu 8-8-8-10-10-12 lykkjur á annan þráð fyrir handveg. Hvert stykki er síðan prjónað fyrir sig.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 5 lykkjur á hringprjón 5,5 með nýrri dokku af DROPS Paris.
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið A.2 yfir þessar 5 lykkjur, snúið.
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið A.2 til baka yfir fyrstu 4 lykkjur, prjónið síðustu lykkju slétt saman með 1. og 2. lykkju á eftir prjónamerki í hlið (þ.e.a.s. af 8-8-8-10-10-12 lykkjum af þræði), þannig að 5 lykkjur í A.2 eru prjónaðar saman með lykkjum af þræði fyrir handveg, snúið.
UMFERÐ 3: Prjónið A.2 yfir 5 lykkjur, snúið.
UMFERÐ 4: Prjónið A.2 til baka yfir fyrstu 4 lykkjur, prjónið síðustu lykkju slétt saman með 3. og 4. lykkju á eftir prjónamerki, þannig að 5 lykkjur í A.2 eru prjónaðar saman með lykkjum af þræði fyrir handveg, snúið.
Haldið svona áfram fram og til baka að prjóna síðustu lykkju í A.2 saman með næstu 2 lykkjum meðfram handvegi þar til allar 8-8-8-10-10-12 lykkjur meðfram handvegi hafa verið prjónaðar saman með A.2. Endið eftir umferð frá röngu og prjónið áfram eins og áður (frá röngu) yfir 21-24-27-28-32-35 lykkjur af þræði fyrir hægra framstykki (þ.e.a.s. prjónað er frá handvegi og fram að miðju á kaðli = mitt í A.1B) = 26-29-32-33-37-40 lykkjur í umferð.
Nú er mynstur prjónað frá réttu og lykkjum er fækkað fyrir V-hálsmáli og handveg þannig:
Prjónið A.3 yfir fyrstu 5 lykkjur, sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru eftir, A.2 yfir síðustu 5 lykkjur. Haldið svona áfram fram og til baka, JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir V-hálsmáli og handveg eins og útskýrt er að neðan – sjá ÚRTAKA.

V-HÁLSMÁL:
Fækkið lykkjum fyrir V-hálsmáli í annarri hverri umferð alls 9-10-11-11-12-13 sinnum.

HANDVEGUR:
Fækkið lykkjum fyrir handveg í annarri hverri umferð 0-2-5-7-12-14 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 4-4-3-2-0-0 sinnum.

Eftir alla úrtöku eru 13 lykkjur á prjóni. Nú er prjónað A.4 yfir síðustu 13 lykkjur. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 10 lykkjur eftir á prjóni.
Endurtakið síðustu 8 umferðir í mynsturteikningu (frá umferð með ör) þar til stykkið mælist 17-18-19-20-21-23 cm frá fyrstu úrtöku fyrir V-hálsmáli – stillið af að endað sé eftir umferð með kaðli. Fellið af frá röngu með brugðnum lykkjum, jafnframt þar sem 2 og 2 lykkjur eru prjónaðar brugðið saman. Toppurinn mælist alls ca 48-50-52-54-56-58 cm frá uppfitjunarkanti.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 5 lykkjur á hringprjón 5,5 með DROPS Paris.
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið A.3 yfir fyrstu 4 lykkjur, prjónið síðustu lykkju brugðið saman með 1. og 2. lykkju á eftir prjónamerki í hlið (þ.e.a.s. af 8-8-8-10-10-12 lykkjum af þræði), þannig að 5 lykkjur í A.3 eru prjónaðar saman með lykkjum af þræði fyrir handvegi, snúið.
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið A.3 yfir 5 lykkjur, snúið.
UMFERÐ 3: Prjónið A.3 til baka yfir fyrstu 4 lykkjur, prjónið síðustu lykkju brugðið saman með 3. og 4. lykkju á eftir prjónamerki, þannig að 5 lykkjur í A.3 eru prjónaðar saman með lykkjum af þræði fyrir handveg, snúið.
Haldið svona áfram fram og til baka og prjónið síðustu lykkju í A.3 saman með næstu 2 lykkjum meðfram handvegi þar til allar 8-8-8-10-10-12 lykkjur meðfram handveg hafa verið prjónaðar saman með A.3. Endið eftir umferð frá röngu.
Nú er mynstur prjónað frá réttu og lykkjum er fækkað fyrir V-hálsmáli og handveg þannig:
Prjónið A.3 yfir fyrstu 5 lykkjur, sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru eftir, A.2 yfir síðustu 5 lykkjur. Haldið svona áfram fram og til baka, JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir V-hálsmáli og handveg eins og útskýrt er að neðan – sjá ÚRTAKA.

V-HÁLSMÁL:
Fækkið lykkjum fyrir V-hálsmáli í annarri hverri umferð alls 9-10-11-11-12-13 sinnum.

HANDVEGUR:
Fækkið lykkjum fyrir handveg í annarri hverri umferð 0-2-5-7-12-14 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 4-4-3-2-0-0 sinnum.

Eftir alla úrtöku eru 13 lykkjur á prjóni. Nú er prjónað A.5 yfir síðustu 13 lykkjur. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 10 lykkjur eftir á prjóni.
Endurtakið síðustu 8 umferðir í mynsturteikningu (frá umferð með ör) þar til stykkið mælist 17-18-19-20-21-23 cm frá fyrstu úrtöku fyrir hálsmáli – stillið af að endað sé eftir umferð með kaðli. Fellið af frá röngu með brugðnum lykkjum, jafnframt þar sem 2 og 2 lykkjur eru prjónaðar brugðið saman. Toppurinn mælist alls ca 48-50-52-54-56-58 cm.

BAKSTYKKI:
Kantur vinstri handvegur:
Fitjið upp 5 lykkjur á hringprjón 5,5 með nýrri dokku DROPS Paris.
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið A.2 yfir allar lykkjur, snúið.
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið A.2 til baka yfir fyrstu 4 lykkjur, prjónið síðustu lykkju slétt saman með 1. og 2. lykkju á eftir prjónamerki í hlið (þ.e.a.s. af 8-8-8-10-10-12 lykkjum af þræði), þannig að 5 lykkjur í A.2 eru prjónaðar saman með lykkjum af þræði fyrir handveg, snúið.
UMFERÐ 3: Prjónið A.2 yfir 5 lykkjur, snúið.
UMFERÐ 4: Prjónið A.2 til baka yfir fyrstu 4 lykkjur, prjónið síðustu lykkju slétt saman með 3. og 4. lykkju á eftir prjónamerki, þannig að 5 lykkjur í A.2 eru prjónaðar saman með bakstykki, snúið.
Haldið svona áfram fram og til baka að prjóna síðustu lykkju í A.2 saman með næstu 2 lykkjum meðfram handvegi þar til allar 8-8-8-10-10-12 lykkjur meðfram handvegi hafa verið prjónaðar saman með A.2. Endið eftir umferð frá röngu. Geymið stykkið.

Kantur hægri handvegur:
Fitjið upp 5 lykkjur á hringprjón 5,5 með DROPS Paris.
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið A.3 yfir fyrstu 4 lykkjur, prjónið síðustu lykkju brugðið saman með 1. og 2. lykkju á eftir prjónamerki í hlið (þ.e.a.s. 8-8-8-10-10-12 lykkjur af þræði), þannig að 5 lykkjur í A.3 eru prjónaðar saman með bakstykki, snúið.
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið A.3 yfir 5 lykkjur, snúið.
UMFERÐ 3: Prjónið A.3 til baka yfir fyrstu 4 lykkjur, prjónið síðustu lykkju brugðið saman með 3. og 4. lykkju á eftir prjónamerki, þannig að 5 lykkjur í A.3 eru prjónaðar saman með lykkjum af þræði fyrir handveg, snúið.
Haldið svona áfram fram og til baka að prjóna síðustu lykkju í A.3 saman með næstu 2 lykkjum meðfram handvegi þar til allar 8-8-8-10-10-12 lykkjur meðfram handvegi hafa verið prjónaðar saman með A.3. Endið eftir umferð frá röngu.

Nú eru lykkjur frá þræði fyrir bakstykki prjónaðar saman með 5 lykkjum fyrir kant meðfram handvegi frá réttu þannig:
Prjónið A.3 yfir fyrstu 5 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir 42-48-54-56-64-70 lykkjur af þræði fyrir bakstykki, prjónið A.2 yfir síðustu 5 lykkjur (= 52-58-64-66-74-80 lykkjur í umferð), jafnframt byrjar úrtaka fyrir handveg – munið eftir ÚRTAKA. Fækkið lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umferð 1-2-5-7-12-14 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 4-4-3-2-0-0 sinnum = 42-46-48-48-50-52 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist 9-10-11-11-12-14 cm frá fyrstu úrtöku fyrir handveg.
Prjónið 1 umferð frá réttu með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og aukið út 0-0-2-2-0-2 lykkjur jafnt yfir (en ekki yfir ystu 5 lykkjur í hvorri hlið) = 42-46-50-50-50-54 lykkjur. Prjónið 1 umferð í mynstri til baka frá röngu.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Nú er prjónað stroff þannig: Prjónið 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 10 lykkjur eru eftir í umferð, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt.
Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 2 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, prjónið frá næst síðustu umferð í A.5 yfir fyrstu 10 lykkjur áður en þessar lykkjur eru settar á þráð (= band / hlýri á öxl), fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 22-26-30-30-30-34 lykkjur, prjónið frá næst síðustu umferð í A.4 yfir síðustu 10 lykkjur í umferð (= band / hlýri).
Endurtakið mynstur frá umferð með ör, fram og til baka yfir þessar 10 lykkjur þar til band / hlýri mælist ca 6-6-6-7-7-7 cm – stillið af að endað sé eftir næst síðustu umferð í mynsturteikningu. Fellið af frá röngu með brugðnum lykkjum, jafnframt því sem 2 og 2 lykkjur eru prjónaðar brugðið saman.
Setjið til baka 10 lykkjur af þræði á prjóninn og prjónið síðustu umferð í A.5 (= frá röngu). Endurtakið síðan mynstur frá umferð með ör þar til band / hlýri á öxl mælist ca 6-6-6-7-7-7 cm – stillið af að endað sé eftir umferð með kaðli. Fellið af frá röngu með brugðnum lykkjum, jafnframt því sem 2 og 2 lykkjur eru prjónaðar brugðið saman.

FRÁGANGUR:
Saumið böndin / hlýra á öxlum saman með lykkjuspori. Saumið saman uppfitjunarkanta í hliðum þar sem fitjaðar voru upp 5 nýjar lykkjur (A.3/A.2). Saumið með lykkjuspori til að koma í veg fyrir að saumurinn verði of þykkur. Klippið þræðina og festið.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 2 næstu lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt, steypið 2 lyftu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjóni aftan við stykkið, 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = endurtakið mynstur frá þessari umferð
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 240-19

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (25)

country flag Christy wrote:

I am to the area I need to start the right front piece but I'm really confused on where I need to cast on. If I cast on near the arm hole I end up knitting backwards (from right needle to left). Is there a video or instructions to help me?

06.04.2024 - 19:22

DROPS Design answered:

Dear Christy, you can find all the relevant videos to this to (including what to do for armholes and the V neck) if you click on the "Videos" sign near to the top pf the page , just below the title. I hope you will find the one that can help you. Happy Knitting!

06.04.2024 - 20:21

country flag Angela wrote:

Sto lavorando la taglia L, al momento di dividere i 152 non mi tornano i conti. Credo vi sia un errore nelle spiegazioni. Devo sospendere in sequenza 10maglie, 28,28,10maglie,56, 10maglie. Così ho uno scalo di 10maglie e uno di 20. Credo che le 10 maglie tra il davanti destro e il dietro debbano essere 20. Potete verificare? Grazie

30.03.2024 - 21:20

DROPS Design answered:

Buonasera Angela, grazie per la segnalazione; abbiamo corretto la versione italiana. Buon lavoro!

01.04.2024 - 20:15

country flag Hinke wrote:

Klopt het dat de schouderbandjes van de voorpanden met naald 5,5 en die van het achterpand met 4,5?

10.09.2023 - 11:38

country flag Chiara wrote:

Bonjour, Le diagramme A4 ne me semble pas logique. Si l’on fait suivre le motif on devrait avoir au 1er rang 3 mailles endroit, 2 m. envers 3 m. ensemble 2 m envers 3 m endroit, alors que c’est marqué 5 m endroit 3 m ensemble 5 m endroit. Ai - je mal compris ? Merci de votre aise et votre formidable travail.

09.08.2023 - 23:17

DROPS Design answered:

Bonjour, Le diagramme A.4 concerne la torsade des bretelles après montage de mailles supplementaires pour les emmanchures de chaque côté et après avoir diminué pour chaque devant. Il s'agit du début de la bretelle et se tricote plus en côtes. Bon tricot!

28.09.2023 - 14:58

country flag Bogi Gökler wrote:

Hi! I want to make this pattern, but have a hard time deciding which size to choose. Is the pattern made with a positive or negative ease? My bust circumference is 95cm/37,4 inch, should I size down and make size M, or make size L? Thank you for the answer in advance!

04.08.2023 - 20:37

DROPS Design answered:

Dear Bogi, you can see the measurements of the garment in the schematic after the pattern instructions. For size M of the garment the chest will measure 88 cm, while the L size will measure 96cm. Happy knitting!

06.08.2023 - 21:33

country flag Anna wrote:

Właśnie mam wątpliwość co do wskazówek. Moim zdaniem po wzorze A3 powinna być redukcja z nachyleniem w lewo , a przed wzorem A2 w prawo. Czyli żeby redukowane oczka nachylały się do środka przodów. Wiec odwrotnie niż podano we wzorze.

17.07.2023 - 12:49

DROPS Design answered:

Witaj Aniu, wzór stanowi tak jak jest napisane. Jeśli bardziej podoba Ci się odwrotne zamykanie oczek, możesz to oczywiście zmienić. Serdecznie pozdrawiam!

17.07.2023 - 13:56

country flag Anna wrote:

W którą stronę powinny być pochylone oczka przy kształtowaniu oczek na dekolcie i w pokroju pachy ? Robiąc prawy przód oczka redukowane przy warkoczu powinny być pochylone na prawo czy na lewo ?

16.07.2023 - 23:44

DROPS Design answered:

Witaj Aniu, patrz część wzoru pt. ZAMYKANIE OCZEK. Przy przerobieniu 2 oczek razem na prawo, powstałe oczko będzie nachylone w prawo. Przy zamykaniu oczek typu 'zdjąć 1 oczko jak do przerobienia na prawo, przerobić 1 oczko prawe, przełożyć oczko zdjęte nad przerobionym oczkiem' - powstałe w ten sposób oczko będzie nachylone w lewo. Zobacz jeszcze video, które znajdują się pod wzorem. Pozdrawiamy!

17.07.2023 - 11:52

country flag Hanne Mette Andersson wrote:

Er det en feil i oppskriften når man kommer til bakstykke, kant venstre ermehull? Det står strikk A.2, men skal det være A.3 slik at det blir rette masker øverst slik som på framstykket? Skulle ønske det var et bilde av den fra baksiden..

26.06.2023 - 18:05

DROPS Design answered:

Hei Hanne Mette. Jo, det skal være riktig. Men husk at når du skal strikke A.2 sammen med bakstykket så skjer dette fra vrangen, så den siste masken i A.2 (som er en rett maske) strikkes RETT sammen med 1. og 2. maske etter merketråden i siden på bakstykket (disse 2 maskene er vrang). Du vil da få de 3 rettmaskene i kanten. mvh DROPS Design

03.07.2023 - 09:29

country flag Thea Isabel wrote:

Hei! Jeg har problemer med å forstå hvordan jeg skal strikke det venstre fortykket? Det må vel strikkes speilvendt i forhold til det høyre forstykke? Hvordan gjør jeg dette?

24.06.2023 - 13:19

DROPS Design answered:

Hei Thea Isabel. Se under (ditt 1. spørsmål). mvh DROPS Design

26.06.2023 - 11:14

country flag Thea Isabel wrote:

Hei! Jeg har problemer med å forstå hvordan jeg skal strikke det venstre fortykket. Jeg skjønner ikke oppskriften. Det står akkurat det samme som på det høyre forstykket, men jeg må jo gjøre det speilvendt? Jeg har prøvd å strikke det venstre fortykket ved å felle fra vrangen, men det er akkurat som om det går en rad med rett oppover v-halsen. På det høyre forstykket forsvinner radene i hverandre.

23.06.2023 - 13:47

DROPS Design answered:

Hei Thea Isabel. LItt usikker på hvor det blir feil hos deg, hvilken str strikker du? Husk at det strikkes forskjellige diagrammer på høyre og venstre forstykke. Har du titten på hjelpevideoen: Hvordan strikke et høyre forstykke til en topp. Se den og kanskje det blir lettere å skjønne Venstre Forstykke. mvh DROPS Design

26.06.2023 - 11:06