Peach Blossom Cardigan |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca Bouclé og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með köðlum, sléttprjóni og klauf í hliðum. Stærð XS - XXL.
DROPS 241-34 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum): Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndast göt (= 2 lykkjur fleiri). Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: XS: 6, 14, 22 og 30 cm. S: 6, 14, 22 og 30 cm. M: 6, 14, 23 og 32 cm. L: 7, 16, 25 og 34 cm. XL: 7, 14, 21, 28 og 35 cm. XXL: 7, 14, 21, 28 og 35 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkin er prjónað neðan frá og upp, fram og til baka hvert fyrir sig. Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, hringinn á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. BAKSTYKKI: Fitjið upp 96-100-108-116-128-140 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði DROPS Alpaca Bouclé og 1 þræði DROPS Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 1 lykkja slétt, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt og 1 lykkja í garðaprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið sléttprjón jafnframt því sem fækkað er um 28-28-30-32-36-40 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 68-72-78-84-92-100 lykkjur. Stykkið mælist nú ca 9 cm. Skiptið yfir á hringprjón 7. Haldið áfram í sléttprjóni með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg = 66-70-76-82-90-98 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Nú á að fækka lykkjum fyrir hálsmáli og prjóna skáhallandi öxl, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 27-29-31-33-37-40 lykkjur sléttprjón og setjið þessar lykkjur á þráð fyrir öxl, fellið af næstu 12-12-14-16-16-18 lykkjur fyrir hálsmáli = 27-29-31-33-37-40 lykkjur eftir á prjóni. Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Fellið af 1 lykkju fyrir hálsmáli = 26-28-30-32-36-39 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til 6-7-7-8-9-9 lykkjur eru eftir, snúið. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 12-14-14-16-18-18 lykkjur eru eftir, snúið. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 5 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 18-21-21-24-27-27 lykkjur eru eftir, snúið. UMFERÐ 6 (ranga): Prjónið brugðið. Fellið síðan laust af allar lykkjur með sléttum lykkjum frá réttu. Bakstykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm. Setjið til baka lykkjur af þræði á hringprjón 7 og prjónið hina öxlina á sama hátt, en fyrsta umferð er prjónuð frá röngu. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 60-64-68-72-76-80 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.2, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur – JAFNFRAMT er fellt af fyrir hnappatötum – lesið HNAPPAGAT að ofan. Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, hafa verið auknar út 2 lykkjur í A.2 = 62-66-70-74-78-82 lykkjur í umferð. Stykkið mælist nú ca 9 cm. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið mynstur þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.3 yfir lykkjur í A.2, prjónið 37-41-45-49-53-57 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt um 17-19-20-21-21-21 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 45-47-50-53-57-61 lykkjur. Prjónið svona áfram með 7 kantlykkjum að framan í garðaprjóni, A.3, sléttprjóni og 1 lykkju í garðaprjóni í hlið. Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41, cm fellið af 1 lykkju í hlið fyrir handveg = 44-46-49-52-56-60 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Nú er prjónuð skáhallandi öxl í byrjun á næstu umferð frá réttu þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið mynstur eins og áður þar til 6-7-7-8-9-9 lykkjur eru eftir, snúið. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið mynstur eins og áður. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið mynstur eins og áður þar til 12-14-14-16-18-18 lykkjur eru eftir, snúið. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið mynstur eins og áður. UMFERÐ 5 (rétta): Prjónið mynstur eins og áður þar til 18-21-21-24-27-27 lykkjur eru eftir, snúið. UMFERÐ 6 (ranga): Prjónið mynstur eins og áður þar til 18-18-19-20-20-21 lykkjur eru eftir við hálsmál og setjið síðan þessar lykkjur á þráð fyrir sjalkraga = 26-28-30-32-36-39 lykkjur eftir á prjóni. Fellið síðan laust af allar lykkjur með sléttum lykkjum frá réttu. SJALKRAGI: Setjið 18-18-19-20-20-21 lykkjur frá þræði á stuttan hringprjón 7. Prjónið með byrjun frá röngu þannig: 0-0-0-1-1-2 lykkjur garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram (þ.e.a.s. köðlum er ekki snúið við lengur) og prjónið stuttar umferðir þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið yfir fyrstu 14-14-15-15-15-16 lykkjur, snúið og herðið á þræði. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið yfir 14-14-15-15-15-16 lykkjur. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið yfir allar lykkjur, snúið og herðið á þræði. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið yfir allar lykkjur. Endurtakið umferð 1 til 4 þar til sjalkraginn mælist ca 7-8-8-9-9-9 cm innst þar sem stykkið er styst – stillið e.t.v. lengdina af – sjalkraginn á að ná mitt að aftan þegar strekkt er létt á honum. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 60-64-68-72-76-80 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni og brugðnar lykkjur út umferðina. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, prjónið A.1 þar til 18 lykkjur eru eftir, prjónið A.4 og 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar A.1 og A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, hafa verið auknar út 2 lykkjur í A.4 = 62-66-70-74-78-82 lykkjur í umferð. Stykkið mælist nú ca 9 cm. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið 36-40-44-48-52-56 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt um 17-19-20-21-21-21 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið A.5 yfir lykkjur í A.4 og endið með 7 kantlykjum að framan = 45-47-50-53-57-61 lykkjur. Prjónið með 1 lykkju í garðaprjóni í hlið, sléttprjón, A.3 og 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm, fellið af 1 lykkju í hlið fyrir handveg = 45-47-50-53-57-61 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Nú er prjónuð skáhallandi öxl með byrjun í næstu umferð frá röngu þannig: UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið mynstur eins og áður þar til 6-7-7-8-9-9 lykkjur eru eftir, snúið. UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið mynstur eins og áður. UMFERÐ 3 (ranga): Prjónið mynstur eins og áður þar til 12-14-14-16-18-18 lykkjur eru eftir, snúið. UMFERÐ 4 (rétta): Prjónið mynstur eins og áður. UMFERÐ 5 (ranga): Prjónið mynstur eins og áður þar til 18-21-21-24-27-27 lykkjur eru eftir, snúið. UMFERÐ 6 (rétta): Prjónið mynstur eins og áður þar til 18-18-19-20-20-21 lykkjur eru eftir við hálsmál og setjið síðan þessar lykkjur á þráð fyrir sjalkraga = 26-28-30-32-36-39 lykkjur eftir á prjóni. Fellið síðan laust af allar lykkjur með brugðnum lykkjum frá röngu. SJALKRAGI: Setjið 18-18-19-20-20-21 lykkjur frá þræði á stuttan hringprjón 7. Prjónið með byrjun frá réttu þannig: 0-0-0-1-1-2 lykkjur garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram (þ.e.a.s. köðlum er ekki snúið við lengur) og prjónið stuttar umferðir þannig: UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið yfir fyrstu 14-14-15-15-15-16 lykkjur, snúið og herðið á þræði. UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið yfir 14-14-15-15-15-16 lykkjur. UMFERÐ 3 (ranga): Prjónið yfir allar lykkjur, snúið og herðið á þræði. UMFERÐ 4 (rétta): Prjónið yfir allar lykkjur. Endurtakið umferð 1 til 4 þar til sjalkraginn mælist ca 7-8-8-9-9-9 cm innst þar sem stykkið er styst – stillið lengdina eftir sjalkraga á hægra framstykki. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af. ERMI: Fitjið upp 56-56-60-60-64-64 lykkjur á sokkaprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 21-20-22-21-24-22 lykkjur jafnt yfir = 35-36-38-39-40-42 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón eða sokkaprjóna 7 og setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 14-13-13-12-11-13 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 5½-4½-4½-4-3½-3 cm millibili alls 6-7-7-8-9-9 sinnum = 47-50-52-55-58-60 lykkjur. Fellið af þegar ermin mælist 44-44-44-43-41-39 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við 1 lykkju meðfram kanti. Saumið sjalkragann saman mitt að aftan og saumið við hálsmál aftan í hnakka. Saumið ermar í. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju niður að stroffi svo það myndist klauf í hvorri hlið. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |