DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6820.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Climbing Rose Sweater

Prjónuð peysa úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni og með v-hálsmáli. Stærð XS - XXL.

DROPS 240-5
DROPS Design: Mynstur ml-092
Garnflokkur D
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS MELODY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki D)
250-250-300-300-350-400 g litur 22, sæt orkidé

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 6: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
14 lykkjur á breidd og 16 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6820.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp.
Lykkjur eru prjónaðar upp í kringum hvorn handveginn. Ermar eru fyrst prjónaðar fram og til baka, síðan í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 82-90-94-102-110-122 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað fram og til baka í stroffprjóni (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) með 1 lykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 8 cm. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 14-16-16-18-20-24 lykkjur jafnt yfir = 68-74-78-84-90-98 lykkjur. Síðan er prjónað í sléttprjóni með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm, fellið af 2-3-4-6-7-9 lykkjur fyrir handvegi í byrjun á næstu 2 umferðum = 64-68-70-72-76-80 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm, fellið af miðju 12-14-14-16-16-16 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram eins og áður og fellið af lykkjur fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 22-23-24-24-26-28 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp jafnmargar lykkjur og prjónið alveg eins og á bakstykki þar til stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm = 68-74-78-84-90-98 lykkjur – síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Nú skiptist stykkið mitt að framan fyrir hægra og vinstra framstykki þannig: Setjið síðustu 34-37-39-42-45-49 lykkjurnar á þráð og prjónið síðan yfir fyrstu 34-37-39-42-45-49 lykkjur frá réttu þannig:

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 34-37-39-42-45-49 lykkjur. Lestu allan kaflann áður en þú prjónar áfram, það á að fækka lykkjum fyrir v-hálsmáli jafnframt því sem lykkjum er fækkað fyrir handveg. Prjónið næstu umferð frá réttu og fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli þannig: Prjónið sléttprjón þar til 4 lykkjur eru eftir fyrir hálsmál, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur sléttprjón. Fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 6-7-7-8-8-7 sinnum, síðan í 4. hverri umferð (annarri hverri umferð frá réttu) alls 4-4-4-4-4-5 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm, fellið af 2-3-4-6-7-9 lykkjur fyrir handveg í byrjun næstu umferðar frá réttu. Þegar öll úrtaka fyrir v-hálsmáli og handveg hefur verið gerð til loka eru 22-23-24-24-26-28 lykkjur eftir á öxl. Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið þar til stykkið mælist alls 50-52-54-56-58-60 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn = 32-34-35-36-38-40 lykkjur. Lestu allan kaflann áður en þú prjónar áfram, það á að fækka lykkjum fyrir v-hálsmáli jafnframt því sem lykkjum er fækkað fyrir handveg. Prjónið næstu umferð frá réttu og fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli þannig: Prjónið 2 lykkjur sléttprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið næstu lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið út umferðina. Fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 6-7-7-8-8-7 sinnum, síðan í 4. hverri umferð (annarri hverri umferð frá réttu) alls 4-4-4-4-4-5 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm, fellið af 2-3-4-6-7-9 lykkjur fyrir handveg í lok næstu umferðar frá réttu. Þegar öll úrtaka fyrir v-hálsmáli og handveg hefur verið gerð til loka eru 22-23-24-24-26-28 lykkjur eftir á öxl. Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið þar til stykkið mælist alls 50-52-54-56-58-60 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma þannig að saumurinn verði flatur og fallegur.

ERMI:
Notið hringprjón 6 og DROPS Melody. Prjónið upp 50-53-56-59-62-64 lykkjur – frá réttu með byrjun frá botni á handvegi. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – ermin er mæld frá þessu prjónamerki. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til ermin mælist 1-1-2-4-5-6 cm frá prjónamerki.
Nú er stykkið sett saman á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 6 – afgangur af ermi er prjónaður í hring. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu.
Byrjið umferðina við prjónamerkið og prjónið sléttprjón. Þegar ermin mælist 4-3-3-1-1-1 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 5-4½-4½-4-3½-3½ cm millibili alls 7-8-8-9-10-10 sinnum = 36-37-40-41-42-44 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 43 cm frá prjónamerki. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-11-12-11-14-12 lykkjur jafnt yfir = 48-48-52-52-56-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 51 cm frá prjónamerki. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið botninn á handvegi – sjá teikningu. Saumið hliðarsauminn innan við 1 kantlykkju.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 21.04.2023
Ný mynsturteikning fyrir ermakúpu.

Mynstur

symbols = ermakúpan er saumuð við handveg þannig: Saumið b við B
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 240-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (25)

country flag Luisa wrote:

Se ho capito bene, quando riprendo le maglie per la manica, non devo includere le 6 maglie intrecciate all’inizio dello scalfo. queste corrispondono a b nel disegno, e andranno poi cucite. corretto? grazie.

17.04.2024 - 13:35

country flag Johanna wrote:

Hei, miksi etu- ja takakappaleiden resorien jälkeen kavennetaan?

06.04.2024 - 18:58

DROPS Design answered:

Tällä tavoin joustinneuleen ja sileän neuleen rajakohdasta tulee siistimpi.

08.04.2024 - 18:03

country flag Dani Scupin wrote:

Hallo, benutze ich Nadeln in 5 und 6 mm (oder size 5 und size 6) ? Mit welcher Nadelstärke mache ich die Maschenprobe? Danke. liebe Grüße, DAni

09.03.2024 - 19:20

DROPS Design answered:

Liebe Dani, die Maschenprobe wird mit den grösseren Nadeln gestrickt. Viel Spaß beim Stricken!

11.03.2024 - 08:13

country flag Radha Korsoski wrote:

Hej. Ska kantmaskorna mot halsringningen i framstycket stickas i rätstickning? Hälsningar Radha

17.12.2023 - 22:15

DROPS Design answered:

Hei Radha. Kantmaskene strikkes rett fra retten og vrangen fra vrangen = glattstrikk (slätstickning) mot halsen. Sidemaskene mot ermhullene strikkes i riller (rätstickning). mvh DROPS Design

18.12.2023 - 11:03

country flag Louise wrote:

Ska det stickas en maska i rätstickning på varje sida även efter att man minskat för ärmen?

10.12.2023 - 18:55

DROPS Design answered:

Hei Louise. Ja. Husk å lese hele avsnittet før det strikkes og nederst på avsnittet står det: Sticka slätstickning och 1 kantmaska i rätstickning mot sidan till arbetet mäter totalt 50-52-54-56-58-60 cm. mvh DROPS Design

11.12.2023 - 13:00

country flag Le Boulaire wrote:

Hallo, der Anschlag mit 94 Maschen für Gr. M kommt mir sehr groß vor! Das sind dann ungefähr 67 cm für den Rücken…meine Maschenprobe stimmt mit Ihrer Maschenprobe überein, aber 94 Maschen scheint mir viel zu viel zu sein….

30.08.2023 - 14:37

DROPS Design answered:

Liebe Frau Le Boulaire, mit kleineren Nadeln braucht man für Bündchen mehr Maschen (= 94 in M) als für später glatt rechts und grösseren Nadlen (= 78 Maschen) - so haben Sie mit 14 Maschen = 10 cm, die 78 Maschen mit Nadeln 6/ die 94 M mit Nadeln 5 ca 54 cm genauso wie bei der Maßskizze. Viel Spaß beim stricken!

30.08.2023 - 16:20

country flag Kristell wrote:

Bonjour, faut-il faire les mailles lisières uniquement sur les côtés des manches ou également près de l’encolure ? Merci d’avance

29.05.2023 - 08:46

DROPS Design answered:

Bonjour Kristell, on tricote 1 maille lisière au point mousse avant les emmanchures, mais plus après. Bon tricot!

30.05.2023 - 11:05

country flag Kirsten wrote:

Hallo liebes Drops Team, in der Anleitung steht für Größe M 94 Maschen anschlagen, dann 2 Maschen rechts/ 2 Maschen links, mit je 1 Masche Kraus Rechts beidseitig. Sollen dann 96 Maschen angeschlagen werden? Viele Grüße Kirsten

07.05.2023 - 22:54

DROPS Design answered:

Liebe Kirsten, so stricken Sie die 94 Maschen: 1 Masche kraus rechts, *2 Maschen rechts, 2 Maschen links*, von *bis* insgesamt 23 Mal stricken (über die nächsten 92 Maschen), es ist noch 1 Masche übrig, stricken Sie diese Masche rechts, so sind es; 1 +92+1=94. Viel Spaß beim stricken!

08.05.2023 - 09:32

country flag Yvonne wrote:

Ik had hetzelfde probleem als Katleen hieronder. Ik heb de steken rond de V-hals met een extra draad na-geweven (raar woord, maar je snapt vast wat ik bedoel ;)). Zo blijven ze wat beter bij elkaar en door het pluizige garen valt het nauwelijks op.

22.03.2023 - 20:01

country flag Yvonne wrote:

I agree with Mrs Eva Hargell here below: the neckline isn't very neat with just the cast off stiches. This pattern reminded me of pattern 228-11, also in Melody. I decided to add the i-cord finishing of the neckline of that pattern to this pattern. This slightly tightens the neckline so you may have to lengthen the sleeves somewhat. But since these are knitted top down anyway, you can try on the sweater and size the sleeves accordingly. (Just first knit the i-cord, then the sleeves.)

22.03.2023 - 19:57