DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6468.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Sage Twist Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, tvöföldum kanti í hálsmáli, köðlum og sléttprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 237-32
DROPS Design: Mynstur bm-101
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
350-400-450-500-550-600 g litur 50, salvíugrænn

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

DROPS TALA NR 516: 6-6-6-7-7-7 st.

PRJÓNFESTA:
26 lykkjur á breidd og 34 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6468.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við mynsturteikningu A.1/A.2. Aukið út með því að slá einu sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður í næstu umferð þannig:
Á UNDAN A.1/A.2:
Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann. Lykkjan snýr til hægri.
Á EFTIR A.1/A.2:
Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann. Lykkjan snýr til vinstri.
Aukið svona út hvoru megin við A.1/A.2, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið 2 lykkjur slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu strax eftir stroff. Síðan er fellt af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8½-9-9½-8-8½-9 cm millibili.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 122-130-130-138-138-142 lykkjur með DROPS Baby Merino yfir stuttan hringprjón 3 og stuttan hringprjón 2,5 sem haldið er saman. Dragið út stuttan hringprjón 3 og haldið eftir lykkjunum á stuttum hringprjóni 2,5 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff eftir stærðum þannig:
STÆRÐ S, XL og XXL:
Prjónið 2 lykkjur brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* og endið með 2 lykkjur brugðið.
STÆRÐ M, L og XXXL:
Prjónið 2 lykkjur slét, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* og endið með 2 lykkjur slétt.
Prjónið stroff fram og til baka svona í 4½ cm.
Í næstu 2 umferðum eru fitjaðar upp 7 lykkjur í lok umferðar = 136-144-144-152-152-156 lykkjur. Prjónið áfram í stroffprjóni eins og áður, en með 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið þar til stykkið mælist ca 9 cm frá uppfitjunarkanti, stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu.
Nú er stroffið brotið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð í stroffprjóni eins og áður, jafnframt því sem önnur hver lykkja er prjónuð saman með annarri hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli, héðan er nú stykkið mælt. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantlykkjur að framan halda áfram eins og áður).

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið nú útaukningu frá réttu þannig: Prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið sléttprjón og aukið út um 2-1-2-1-2-3 lykkjur jafnt yfir næstu 12-14-14-16-16-18 lykkjur (14-15-16-17-18-21 lykkjur fyrir framstykki), prjónið A.1, prjónið sléttprjón og aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir næstu 10 lykkjur (14 lykkjur fyrir ermi), prjónið A.1, prjónið sléttprjón og aukið út 6-4-6-4-6-8 lykkjur jafnt yfir næstu 22-26-26-30-30-34 lykkjur (28-30-32-34-36-42 lykkjur fyrir bakstykki), prjónið A.1, prjónið sléttprjón og aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir næstu 10 lykkjur (14 lykkjur fyrir ermi), prjónið A.1 prjónið sléttprjón og aukið út um 2-1-2-1-2-3 lykkjur jafnt yfir næstu 12-14-14-16-16-18 lykkjur (14-15-16-17-18-21 lykkjur fyrir framstykki) og prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni – ATH! Fyrsta HNAPPAGATIÐ er núna gert – sjá útskýringu að ofan = 162-166-170-174-178-190 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu eins og mynstrið sýnir.

Lestu næsta kafla áður en þú prjónar áfram!
Lestu LASKALÍNA í útskýringu að ofan og byrjið útaukningu í næstu umferð frá réttu. JAFNFRAMT þegar mynsturteikning A.1 hefur verið prjónuð til loka á hæðina er mynsturteikning A.2 prjónuð yfir mynsturteikningu A.1.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Það er aukið út mismunandi á ermum og framstykki/bakstykki þannig:
ERMAR:
Aukið út í annarri hverri umferð 10-12-10-20-30-40 sinnum, aukið síðan út í 4. hverri umferð 10-12-15-12-9-4 sinnum.
FRAMSTYKKI / BAKSTYKKI:
Aukið út í annarri hverri umferð 24-27-31-40-49-54 sinnum, aukið síðan út í 4. hverri umferð 7-8-7-3-0-0 sinnum.

Þegar öll útaukning fyrir laskalínu hefur verið gerð til loka eru 366-402-422-474-530-582 lykkjur í umferð. Á milli hverra A.2 eru 54-62-64-78-92-102 lykkjur fyrir hvorri ermi og 90-100-108-120-134-150 lykkjur fyrir bakstykki og 52-57-61-67-74-82 lykkjur fyrir hvort framstykki.
Nú er prjónað sléttprjón, kantlykkjur að framan í garðaprjóni, mynstur án útaukninga og án þess að gera kaðla í A.2 (prjónið einungis slétt og brugðið eins og í mynsturteikningu) þar til stykkið mælist 25-27-28-30-32-34 cm frá eftir kanti í hálsmáli.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar frá réttu þannig: Prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið 53-58-62-68-75-83 lykkjur (mitt í A.2), setjið næstu 70-78-80-94-108-118 lykkjur á þráð fyrir ermi án þess að prjóna þær, fitjið upp 12-12-14-14-16-16 nýjar lykkjur í hlið undir ermi, prjónið 106-116-124-136-150-166 lykkjur slétt (bakstykki), setjið næstu 70-78-80-94-108-118 lykkjur á þráð fyrir ermi án þess að prjóna þær, fitjið upp 12-12-14-14-16-16 nýjar lykkjur í hlið undir ermi, prjónið 53-58-62-68-75-83 lykkjur slétt og endið með 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig og stykkið er nú mælt héðan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 250-270-290-314-346-378 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með kantlykkjum að framan í garðaprjóni þar til stykkið mælist 19-19-20-20-20-20 cm frá skiptingu eða prjónið að óskaðri lengd (nú eru eftir ca 4 cm að loka máli). Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 14-18-22-26-26-30 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kantlykkjur að framan) = 264-288-312-340-372-408 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu.
Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið stroff eftir stærðum þannig (fyrsta umferð er prjónuð frá réttu):
STÆRÐ S, XL og XXL:
Prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið 2 lykkjur brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* og endið með 7 kantlykkjum að framan í garðaprjóni.
STÆRÐ M, L og XXXL:
Prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 lykkjur slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* og endið með 7 kantlykkjum að framan í garðaprjóni.

ALLAR STÆRÐIR:
Prjónið stroff í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 70-78-80-94-108-118 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 3, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 12-12-14-14-16-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 82-90-94-108-124-134 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt í lykkjur sem prjónaðar voru upp undir ermi. Sjá ÚRTAKA!
Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4-4-4-4-2-2 cm fækkið lykkjum mismunandi eftir stærðum þannig:

STÆRÐ S, M, L, XL og XXL:
Fækkið lykkjum með 2½-2-1½-1-1-½ cm millibili alls 12-15-16-21-28 sinnum.
STÆRÐ XXXL:
Fækkið lykkjum til skiptis með ½ og 1 cm millibili alls 32 sinnum.

ALLAR STÆRÐIR:
= 58-60-62-66-68-70 lykkjur.
Prjónið þar til ermin mælist 36-34-34-32-31-30 cm frá skiptingu eða prjónið að óskaðri lengd (nú eru eftir 4 cm að loka máli). Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 10-8-10-6-8-10 lykkjur jafnt yfir = 68-68-72-72-76-80 lykkjur. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt og prjónið sléttar 3 lykkjur af kaðlaprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 237-32

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (18)

country flag Anita Lislevand wrote:

Hva blir målene på denne jakken i str M

19.02.2024 - 15:13

DROPS Design answered:

Hei Anita, Det finner en målskisse på bunnen av oppskriften, som har alle mål til de forskjellige størrelsene. God fornøyelse!

20.02.2024 - 07:10

country flag Lucia Calamita wrote:

Buongiorno, mi scusi ma sommando tutte le maglie che risultano alla fine dello sprone per la taglia S non risultano 366 ma 350 (54+54+52+52+90+(12*4)=350) c'è un errore di calcolo? Grazie

14.02.2024 - 11:31

DROPS Design answered:

Buonasera Lucia, il diagramma A.2 è formato da 16 maglie, non 12. Buon lavoro!

15.02.2024 - 17:54

country flag Lucia Calamita wrote:

Mi scusi ma il diagramma considera i ferri di andata e ritorno o di sola andata e quindi i soli ferri a diritto. Grazie Lucia

09.02.2024 - 16:17

DROPS Design answered:

Buonasera Lucia, i diagrammi mostrano tutti i ferri, sia di andata che di ritorno. Buon lavoro!

10.02.2024 - 19:10

country flag Lucia Calamita wrote:

Mi scusi ma i diagrammi sono di andata e ritorno o devo considerare soltanto i ferri a diritto? Grazie Lucia

09.02.2024 - 16:16

DROPS Design answered:

Buonasera Lucia, i diagrammi mostrano tutti i ferri, sia di andata che di ritorno. Buon lavoro!

10.02.2024 - 19:11

country flag Annie Pang wrote:

HELP!!! Have I folded the neck wrongly? Can I do a purl row over the wrong side and start the yoke from right side and do the increase?

23.06.2023 - 12:40

DROPS Design answered:

Dear Mrs Pang, after working neck together from RS, just work 1 row from WS (added in the pattern to make it more clear). Happy knitting!

02.10.2023 - 09:25

country flag Annie Pang wrote:

I have completed folding the double neck. I want to start the yoke. However I seem to be on the WRONG side and not the right side. Have I done something incorrectly?

22.06.2023 - 11:43

country flag Lorena Maria Virlinzi wrote:

Gratitudine per il vostro servizio di commenti e spiegazioni: questo sito è veramente eccellente. Però mi permetto di suggerirvi di correggere le spiegazioni indicando chiaramente che gli unici aumenti, dopo lo sprone, sono quelli del raglan e anche spiegando che nel conteggio del davanti sono inserite anche le 7 maglie del bordo. In questo modo credo che tutto sarebbe più chiaro e ricevereste anche meno domande. Adesso è tutto chiaro anche per me dopo aver scucito posso procedere

19.04.2023 - 10:39

country flag Lorena Maria Virlinzi wrote:

Buongiorno credo di aver capito come procedere, anche se non era specificato nella spiegazione che bisogna aumentare 2 maglie sia per le maniche sia per il dietro con il numero di volte poi specificato. Però questo non mi torna per il davanti perché si dice che alla fine ci sono 61 maglie -16 che erano nello sprone ne restano 45: come raggiungo 45 maglie? Su 38 volte di aumento (31+7) non mi è chiaro perché il numero non è divisibile in modo esatto, grazie

18.04.2023 - 08:27

DROPS Design answered:

Buonasera Lorena, ha contato le 7 maglie del bordo sul davanti? Buon lavoro!

18.04.2023 - 22:25

country flag Lorena Maria Virlinzi wrote:

Buonasera mi riferisco alla taglia L. Ho fatto tutti i conti e ho capito che si chiede di aumentare 2 maglie per le volte indicate sia per le maniche sia per il dietro, ma facendo tutti i conti coincidono per il dietro e le maniche, ma non riesco a spiegarmi come si possono it tenere 61 maglie per ciascuno dei due davanti sono dei numeri non divisibili per i giri di aumento 31 e 7 (38) 🤔🤔🤔 grazie

17.04.2023 - 23:58

DROPS Design answered:

Buonasera Lorena, per il davanti parte da 16 maglie e ne aumenta 38 con il raglan + 7 maglie per il bordo = 61 maglie totali. Buon lavoro!

18.04.2023 - 22:25

country flag Lorena Maria Virlinzi wrote:

Buonasera a me non tornano i conti con gli aumenti: se bisogna continuare ad aumentare come indicato nella spiegazione dello sprone per esempio nelle maniche aumentando 10 × 6 =60; 4x 15 =84 più 14 totale 138 e non 64 🤔🤔🤔🤔 perché non avete fatto uno schema per gli aumenti? Faccio riferimento a misura L grazie 🙏

16.04.2023 - 23:27

DROPS Design answered:

Buonasera Lorena, per il davanti aumenta 38 maglie con il raglan arrivando a 61 maglie e per le maniche aumenta 50 maglie arrivando a 64 maglie. Buon lavoro!

18.04.2023 - 22:27