DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8976.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Warm Blush

Prjónuð peysa úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, laskalínu og perlustroffi. Stærð S - XXXL.

DROPS 235-6
DROPS Design: Mynstur sk-171
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
300-350-400-400-450-500 g litur 09, trönuber

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með mynstri A.1 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8976.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju á undan/eftir 1 lykkju í sléttprjóni í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Prjónið lykkjuna með prjónamerki í, takið upp þráðinn sem er á milli lykkju með prjónamerki og næstu lykkju – takið þráðinn upp framan í með vinstri prjóni og prjónið lykkjuna slétt í aftari lykkjubogann – lykkjan verður snúin til vinstri. Í næstu umferð er lykkjan prjónuð inn í mynstur A.1.
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Prjónið fram að lykkju með prjónamerki í, takið upp þráðinn sem er á milli fyrri lykkju og lykkju með prjónamerki – takið upp þráðinn aftan í með vinstri prjóni og prjónið lykkjuna slétt í fremri lykkjubogann – lykkjan verður snúin til hægri. Í næstu umferð er lykkjan prjónuð inn í mynstur A.1.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju (prjónamerki situr í þessari lykkju), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 100-104-108-112-116-120 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Sky. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið hringinn í stroffprjóni (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 13 cm (það á síðar að brjóta stroffið saman tvöfalt og þá mælist það ca 6 cm).

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4. Nú er prjónuð 1 umferð slétt þar sem aukið er út og prjónamerki sett í stykkið þannig:
Prjónið 1 lykkju slétt og setjið 1. prjónamerki í þessa lykkju, prjónið 21 lykkjur slétt (ermi), prjónið 1 lykkju slétt og setjið 2. prjónamerki í þessa lykkju, prjónið sléttar lykkjur og aukið út um 0-2-2-6-8-14 lykkjur jafnt yfir næstu 27-29-31-33-35-37 lykkjur (27-31-33-39-43-51 lykkjur fyrir framstykki), prjónið 1 lykkju slétt og setjið 3. prjónamerki í þessa lykkju, prjónið 21 lykkjur slétt (ermi), prjónið 1 lykkju slétt og setjið 4. prjónamerki í þessa lykkju, prjónið sléttar lykkjur og aukið út um 0-2-2-6-8-14 lykkjur jafnt yfir næstu 27-29-31-33-35-37 lykkjur (27-31-33-39-43-51 lykkjur fyrir bakstykki). Það eru 100-108-112-124-132-148 lykkjur í umferð. Setjið eitt prjónamerki mitt að aftan (á milli 1. og 4. prjónamerkis), berustykkið er síðar mælt héðan.

Nú er prjónað mynstur eftir mynsturteikningu A.1 (lykkjur með prjónamerki í eru prjónaðar allan tímann í sléttprjóni), JAFNFRAMT er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan!

Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð við hvert prjónamerki alls 6-8-12-19-19-21 sinnum = 148-172-208-276-284-314 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Lestu allan næsta kafla áður en þú prjónar áfram!
Nú breytist útaukningin og aukið er út mismunandi á fram- og bakstykki og ermum þannig:
FRAM- OG BAKSTYKKI: Aukið út á eftir 2. og 4. prjónamerki og á undan 3. og 1. prjónamerki. Aukið svona út í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út 24-24-22-19-21-21 sinnum til viðbótar, þar til aukið hefur verið út alls 30-32-34-38-40-42 sinnum á fram- og bakstykki.
ERMI: Aukið út á eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki. Aukið svona út í 4. hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 11-11-10-9-9-9 sinnum, aukið hefur verið út alls 17-19-22-28-28-30 sinnum á ermi.

Þegar öll útaukning hefur verið gerð fyrir laskalínu eru 288-312-336-388-404-436 lykkjur í umferð. Prjónið mynstur án útaukninga þar til stykkið mælist 22-24-25-27-29-31 cm frá prjónamerki mitt að aftan.
Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir ermar og fram- og bakstykki þannig: Prjónið 1 lykkju slétt (lykkja með 1. Prjónamerki, tilheyrir bakstykki), setjið næstu 55-59-65-77-77-81 lykkjur á þráð fyrir ermi án þess að prjóna þær, fitjið upp 11-11-13-13-15-17 nýjar lykkjur í hlið undir ermi, prjónið 89-97-103-117-125-137 lykkjur mynstur A.1, setjið næstu 55-59-65-77-77-81 lykkjur á þráð fyrir ermi án þess að prjóna þær, fitjið upp 11-11-13-13-15-17 nýjar lykkjur í hlið undir ermi, prjónið mynstur A.1 yfir síðustu 88-96-102-116-124-136 lykkjur í umferð (bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 200-216-232-260-280-308 lykkjur. Prjónið mynstur A.1 eins og áður. Prjónið þar til ermin mælist 22-22-23-23-23-23 cm frá skiptingu – eða prjónið að óskaðri lengd (nú eru eftir 5 cm að loknu máli). Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 20-24-24-24-28-32 lykkjur jafnt yfir í umferð = 220-240-256-284-308-340 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

ERMI:
Setjið lykkjur frá öðrum þræðinum á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 4. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 11-11-13-13-15-17 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið undir ermi = 66-70-78-90-92-98 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í miðju af nýjum lykkjum sem prjónaðar voru upp og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónið mynstur A.1 eins og áður. Þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚRTAKA í útskýringu að ofan. Endurtakið úrtöku með ca 6-5-3½-2-2-1½ cm millibili alls 6-7-10-14-15-16 sinnum = 54-56-58-62-62-66 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist ca 39-38-37-36-34-33 cm. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 6-4-6-6-6-6 lykkjur jafnt yfir = 60-60-64-68-72-72 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið nokkur spor þannig að kanturinn í hálsmáli verði tvöfaldur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 235-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Andrea Veth wrote:

Hallo, was mir nicht ganz klar ist, werden die Zunahmen an Rumpf und Ärmeln nacheinander gestrickt oder zusammen? Liebe Grüße A. Veth

29.03.2024 - 18:04

DROPS Design answered:

Liebe Frau Veth, die Raglanzunahmen werden gleichzeitig gestrickt, es wird zuerst in jeder 2. Runde zugenommen (8 Zunahmen) und danach am einen unterschiedlichen Rythmus: abwechslungsweise 4 Maschen (nur Rumpfteil) und 8 Maschen (Rumpfteil + Ärmel) zugenommen. Viel Spaß beim Stricken!

02.04.2024 - 14:20

country flag Carola Kaandorp wrote:

Ik heb een vraag over het meerderen vanaf 208 steken (large), verschillend voor lijf en mouwen. Ik begrijp meerderen voor het lijf elke 2e naald, dus in naald 1, 3, 5, 7, 9, 11, …, 39, 41, 43 (22x). En meerderen voor de mouwen elke 4e naald, dus in naald 3, 7, 11, … 35, 39 (10x). Dan zijn er afwisselend 4 en 8 meerderingen vanaf naald 1 (+4 steken) tot en met naald 41 (+4) en daarna in naald 43 alweer +4. De reeks is dus niet 4-[8-4]-8-4, maar 4-[8-4-]8-4-4. Klopt dat?

19.12.2023 - 16:30

DROPS Design answered:

Dag Carola,

Vanaf het punt dat je verschillend meerdert voor het lijf en de mouwen, meerder je voor maat L nog 22 keer op het lijf en nog 10 keer op de mouwen. Als je met de mouwen klaar bent, dan moet je voor het lijf inderdaad nog 2 keer meerderen, dus eindigt de reeks inderdaad met -4-4.

20.12.2023 - 18:55

country flag Alex wrote:

Jeżeli potrzebuję rozmiaru XXS to w jaki sposób powinnam zmniejszyć liczbę oczek dla poszczególnych elementów swetra?

07.12.2023 - 13:53

DROPS Design answered:

Witaj Alex, niestety nie jesteśmy w stanie dopasować naszych wzorów do indywidualnych wymagań. Zalecamy zwrócenie się do sklepu, w którym kupujesz włóczkę, tam na pewno uzyskać pomoc. Pozdrawiamy!

07.12.2023 - 15:18

country flag Mc Cransac wrote:

Bonjour, peut-on tricoter ce modèle en soft tweed ? merci

07.11.2023 - 21:53

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Cransac, tout à fait car les 2 laines sont du même groupe, utilisez notre convertisseur pour calculer la nouvelle quantité correspondante. Bon tricot!

08.11.2023 - 08:09

country flag Kate wrote:

Is the second increase section where it says to increase differently for body and sleeve, not work out as the same as the yoke increase in the paragraph before; that is -increase before and after each marker

30.10.2023 - 22:48

Kate answered:

Sorry I’ve worked out the answer to my own question. - it is different. Apologies!

30.10.2023 - 22:59

country flag Lena wrote:

Guten Abend, ich würde sehr gerne diesen Pullover stricken, Größe S wird aber anhand der angegebenen Maße zu groß für mich werden, ich bräuchte Größe XS. Haben Sie einen Tipp für mich, wie ich es am besten umrechnen kann? Vielen Dank!

27.03.2023 - 22:21

DROPS Design answered:

Liebe Lena, vielleicht können Sie sich von einem ähnlichen Pullover in XS inspirieren? Viel Spaß beim stricken!

28.03.2023 - 10:12

country flag Sophie Barbe wrote:

Bonjour Combien y a-t-il d'aisance pour ce modèle ?merci

28.02.2023 - 14:54

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Barbe, mesurez un vêtement que vous avez et dont vous aimez la forme et comparez ces mesures à celles du schéma, ainsi, vous pourrez trouver la taille (et l'aisance) que vous souhaitez. Retrouvez plus d'infos ici. Bon tricot!

28.02.2023 - 17:51

country flag Marta wrote:

Does this pattern have short rows? Will the back be raised higher than the front? Thank you!

31.01.2023 - 11:36

country flag Simone wrote:

Onderstaande is onduidelijk voor mij: Meerder voor de raglan iedere andere naald op elke markeerdraad in totaal 6-8-12-19-19-21 keer op iedere markeerdraad = 148-172-208-276-284-314 steken. Voor M 64 steken erbij: per naald 8: voor en na de markeersteek. Om de naald: meerdere in naald 1,3,5,7,9,11,13,15? Steekverhouding?

09.12.2022 - 23:13

country flag Iris wrote:

Muss ich bei den Zunahmen am Rumpf erst die Zunahmen in jeder 2. Reihe machen bis ich diese dann 24x in der Höhe gemacht habe und dann erst die Zunahmen für die Ärmel beginnen? Oder mach ich diese im Wechsel mit den Zunahmen vom Rumpf?

08.12.2022 - 14:40

DROPS Design answered:

Liebe Iris, bei der 1. Runde der Passe stricken Sie glatt rechts und nehmen gleichzeitig regelmäßig zu, dann nehmen Sie für den Raglan: 8 Maschen in jeder 2. Runde (6-8 Mal = 148-172 Maschen) - dann nehmen Sie in jeder 2. Runde für Rumpfteil aber nur in jeder 4. Runde für Ärmel, dh Sie nehmen abwechslungsweise 4 Maschen (nur Rumpf) und 8 Maschen (Rumpf + Ärmel) bis die Zunahmen 30-32 7-Mal beim Rumpf und 17-19 Mal bei den Ärmeln (also ingsesamt von Anfang an) gearbeitet wurden. Viel Spaß beim stricken!

08.12.2022 - 17:32