DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11088.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 27-2
DROPS Design
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S (M-L)
Efni:
DROPS Karisma frá Garnstudio
550 (550-550) gr litur nr 016, grár
150 (200-200) gr litur nr 001, natur
50 (50- 50) gr litur nr 018, rauður
50 (50- 50) gr litur nr 046, kóral
50 (50- 50) gr litur nr 045, grænn
50 (50- 50) gr litur nr 010, gulur

DROPS HRINGPRJÓNAR OG SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 OG 4 – eða þá stærð sem þarf til að 20 lykkjur og 26 umferðir verða 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
DROPS TALA – 5 stk.

SOKKAR:
Stærð (38-41) (41-44)
Hæð á sokk: 58 (65) cm. - Lengd fótar: 23 (26) cm.
Efni:
DROPS Karisma frá Garnstudio
200 (200) g litur nr 016, grár
100 (100) g litur nr 001, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 og 3 – eða þá stærð sem þarf til að 22 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11088.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.
Ef óskað er eftir að hafa peysuna síðari (sjá mynd 2 og 3) er hægt að prjóna M.2 áfram. Athugið samt að efnismagnið breytist.

KANTUR:
Prjónið 3 cm sléttprjón, 1 umferð brugðin (= uppábrot – HÉÐAN ER NÚ MÆLT!), 3 cm sléttprjón.
----------------------------------------------------------

PEYSA:
Peysan er prjónuð á hringprjóna og er klippt upp fyrir handveg + miðju að framan í lokin.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 188 (192-198) l á hringprjóna 2,5 með grár og prjónið KANTUR – fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. Í síðustu umferð er aukið út um 5 lykkjur við miðju að framan (þessar lykkjur eru til að klippa upp í lokin og eru ekki prjónaðar inn í mynstur), nú er prjónað áfram hringinn. Skiptið yfir á hringprjóna 4 og prjónið M.1 JAFNFRAMT er aukið út um 40 (48-54) l jafnt yfir í 1. umferð = 228 (240-252) l. Eftir M.1 er prjónað M.2 uppúr – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 29 (30-30) cm er aukið út um 5 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (þessar lykkjur eru til að klippa upp í lokin og eru ekki prjónaðar inn í mynstur).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 31 (32-32) cm (stillið af eftir M.2) prjónið M.3, eftri 1 umferð með grár, M.4 og til loka með grár JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 54 (55-55) cm fellið af miðju 32 (34-34) lykkjur + 5 lykkjur fram að hálsmáli og stykkið er prjónað til loka fram og til baka. Fækkið nú lykkjum við háls í 2. umferð 2 lykkjur 2 sinnum, 1 lykkja 2 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 58 (59-59) cm fellið af miðju 40 (42-42) l fyrir hálsmáli að aftan og í næstu umferð við háls eru felldar af 2 lykkjur á hvorri hlið. Fellið af þegar stykkið mælist 59 (60-60) cm.

ERMI:
Fitjið upp 44 (46-48) l á sokkaprjóna 2,5 með grár og prjónið kant. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 JAFNFRAMT því sem aukið er út um 12 (12-12) l jafnt yfir í 1. umferð = 56 (58-60) l. Prjónið mynstur uppúr þannig (staðsetjið eina mynstureiningu mitt á ermi): M.4, M.6, M.2 þar til stykkið mælist 41 (40-40) cm (stillið af eftir mynstri, eftir það M.3 til loka. JAFNFRAMT eftir kant er aukið út mitt undir ermi hvoru megin við miðju lykkju 1 lykkja 33 (32-32) sinnum til skiptis í *3. og 4. umferð *= 122 (122-124) l. Þegar stykkið mælist 50 (49-49) cm prjónið 2 cm sléttprjón með rönguna út fyrir saum yfir kant sem verður klipptur á búk. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið merkiþráð niður mitt í útauknar lykkjur á hvorri hlið + miðju að framan. Saumið tvo sauma með saumavél hvoru megin við merkiþráðinn, 1. Saumur = ½ l frá 1. Lykkju frá þræði, 2. Saumur = 1/2 l frá fyrsta saumi. Klippið upp fyrir handvegi og við miðju að framan. Saumið axlasauma. Brjótið uppá kant neðst á búk og ermi tvöfaldan að röngu og saumið. Takið upp ca 110 l meðfram vinstra framstykki með grár á prjóna 2,5 og prjónið M.4, eftir það til loka með grár, 1 umferð brugðið, 16 umferðir sléttprjón, fellið af og brjótið uppá kantinn tvöfaldan að röngu og saumið. Endurtakið meðfram hægra framstykki en eftir 1 cm eru prjónuð 5 hnappagöt jafnt yfir uppúr – 1 hnappagat = fellið af 2 l aukið út 2 nýjar lykkjur í næstu umferð, leggið kantinn tvöfaldan að röngu yfir kant sem er klipptur og saumið. Takið upp ca 104 lykkjur í kringum hálsmál á prjóna 2,5 með grár og prjónið 2,5 cm sléttprjón, skiptið yfir í rauður, 1 umferð sléttprjón, 1 umferð brugðið, 2,5 cm sléttprjón, fellið af og brjótið upp að röngu og saumið. Saumið ermar við búk frá réttu þannig: Saumið til skiptis 1 spor í síðustu umferð með garðaprjóni á ermi innan við kant fyrir saum og 1 spor í búk á eftir spori frá saumavél. Snúið peysunni við með rönguna út og saumið í höndunum kant fyrir saum frá ermi yfir kant sem klipptur var á bol. Saumið tölur í.
----------------------------------------------------------

SOKKAR:

STROFF:
* 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðnar *. Endurtakið frá *-*.

ÚRTAKA:
* Takið næstu lykkju óprjónaða , 1 lykkja slétt (ranga = 1 lykkja brugðin) og steypið óprjónuðu lykkjuna yfir lykkjuna sem var prjónuð *.

HÆLÚRTAKA:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 6 (7) lykkjur eru eftir á prjóni. Snúið stykkinu.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 6 (7) lykkjur eru eftir á prjóni. Snúið stykkinu.

UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 8 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið ÚRTAKA – sjá skýringu að ofan. Snúið stykkinu.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 8 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið ÚRTAKA. Snúið stykkinu.
Prjónið áfram svo að það verði 1 lykkju er færri hvoru megin innan úrtöku. Haldið áfram þar til eftir eru 12 (14) l.
----------------------------------------------------------
SOKKUR:
Fitjið upp 72 (80) lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með grár og prjónið 14 (16) cm STROFF – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið 2 umferðir sléttprjón JAFNFRAMT er aukið út um 0 (4) lykkjur jafnt yfir í 1. umferð = 72 (84) lykkjur. Prjónið M.7 (en mynstureiningin snýr upp/niður). Eftir það er prjónað áfram með M.2. Þegar stykkið mælist 30 (32) cm byrjar úrtaka fyrir kálfa.
Fækkið lykkjum hvoru megin við miðju lykkju að aftan þannig: Prjónið 2 lykkjur fyrir framan miðju lykkju saman – sjá ÚRTAKA – og 2 lykkjur á eftir miðju lykkju slétt saman – endurtakið svona í 5. hverri umferð (4. hverri umferð) alls 12 (16) sinnum = 48 (52) lykkjur. Þegar stykkið mælist 50 (56) cm eru miðju 24 (26) lykkjur að framan settar á þráð og prjónað er til loka með grár. Prjónið nú 5 (6) cm sléttprjón (hæll) yfir 24 (26) miðju lykkjur að aftan, prjónið nú HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan.
Takið upp 12 (13) lykkjur hvoru megin við hæl og setjið allar lykkjur á sama prjón = 60 (66) lykkjur. Fækkið lykkjum þannig: Prjónið 2 fyrstu lykkjur í efstu 24 (26) lykkjur slétt saman og 2 síðustu lykkjur af þeim efstu 24 (26) lykkjum slétt saman í annarri hverri umferð alls 6 sinnum 48 (54) lykkjur. Prjónið þar til fótur mælist ca 19 (21,5) cm. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið á fæti og fækkið lykkjum fyrir tá hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið 2 lykkjur fyrir merki slétt saman og 2 lykkjur á eftir merki slétt saman, endurtakið 3 sinnum í annarri hverri umverð = 36 (42) l. Eftir það 7 (9) sinnum í hverri umferð = 8 (6) lykkjur.
Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og festið.

Prjónið annan sokk alveg eins.

Mynstur

symbols = grár
symbols = natur
symbols = gulur
symbols = grænn
symbols = rauður
symbols = kórall
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 27-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag Paola wrote:

Questo lo faccio, il problema nasce quando ci sono quattro colori differenti sulla stessa riga e trasportando i vari fili per forza di cose mi si intrecciano, sino a non riuscire più a lavorarli....Chiedevo una soluzione o un truccco per questo problema. I vari video presenti spiegano la lavorazione ma sempre con due colori....e questo non crea problemi. grazie

21.02.2022 - 14:15

DROPS Design answered:

Buonasera Paola, deve lavorare in modo da mantenere la tensione costante, ma portandosi dietro tutti i fili. Buon lavoro!

22.02.2022 - 22:39

country flag Paola wrote:

Buonasera ad nello schema M4 si lavora anche con 4colori differenti sulla stessa riga. C\'è qualche trucco x non ingarbugliare tutti i fili? Lavorare il bordo da attaccare successivamente ai lati del davanti, essendo abbastanza lungo sarebbe veramente difficoltoso..

07.02.2022 - 22:46

DROPS Design answered:

Buonasera Paola, nella lavorazione a più colori, deve portare i colori non utilizzati sul retro del lavoro, in modo da non tirare il lavoro. Buon lavoro!

08.02.2022 - 23:32

country flag Cecilie Eid wrote:

Skal man felle av samtidig som man strikker M4 på bilen? Jeg skal i følge oppskriften felle de midterste 32 maskene + 5 masker foran.. hva vil det si, skal jeg felle 37 masker foran (utenom klippemaskeme midt foran?) Ang knappestolpene: det skal vel være knapphull i M4 som er på venstre side, og ikke på det grå som er på høyre side, slik som det står i oppskriften??

03.01.2021 - 21:42

DROPS Design answered:

Hej Cecilie, du feller 32 masker fra mønsteret og de 5 midterste klippemasker. Du strikker knaphuller på højre forkant (når jakken er på) og husk at strikke både i mønsteret og på bukkekanten. God fornøjelse!

14.01.2021 - 14:03

country flag Louise wrote:

Kan den strikke i 3xl og hvordan gange man evt.

27.11.2020 - 20:29

DROPS Design answered:

Hei Louise. Denne jakken er bare skrevet opp til str. L. Om den skal strikkes i en større størrelse er det ikke bare å gange med maskeantallet, den må omskrives evnt lage nye diagrammer som passer med maskeantallet osv. Det har vi dessverre ikke muligheten til å gjøre. mvh DROPS design

30.11.2020 - 12:11

country flag Michaela wrote:

Man soll für die Armlöcher auf beiden Seiten 5 Maschen aufnehmen. Auf welchen Seiten, man strickt doch rund? Da vorne noch nachträglich eine Blende angestrickt wird, gehe ich davon aus, daß man die Maschenzahl für Vorderteil und Rücken nicht einfach teilen kann. Bitte teilen Sie mir doch mit, wie die Verteilung der Maschen: rechtes Vorderteil, linkes Vorderteil Rückenteil sein soll.

29.02.2020 - 06:36

DROPS Design answered:

Liebe Michaela, diese 5 Maschen sind für die Seiten, dh die sollen auf beiden Seiten sein, in die 1. Grösse z.B. haben Sie 228 M + 5 SteekMaschen = 114 Maschen für den Rückenteil und 57 M für jeden Vorderteil. Diese 5 Maschen schlagen Sie zwischen jedem Vorderteil und Rückenteil. Viel Spaß beim stricken!

02.03.2020 - 09:36

country flag Julia wrote:

Kann es sein das die Jacke auf dem Bild viel länger gearbeitet ist als in der Anleitung beschrieben? Mit welcher Technik sollte man am besten die zusätzlichen Maschen für den Armausschnitt verwenden?

23.03.2019 - 19:56

DROPS Design answered:

Liebe Julia, stimmt, die Jacke im Foto 2 und 3 ist länger als in die Beschreibung - die Garnmenge anpassen. so können die neuen Maschen angeschlagen (Steek-Maschen). Viel Spaß beim stricken!

01.04.2019 - 15:51

country flag Alice Teunis wrote:

In de beschrijving van het vest staat dat het breien van 36 naalden Karisma op pen 4 een hoogte van 10 cm. oplevert. Bij de beschrijving van de sokken staat dat het breien van 32 naalden op pen 3 een hoofte van 10 cm. oplevert. Op de wikkel van Karisma staat dat op pen 4 mar 28 naalden gebreid moeten worden voor 10 cm lengte. Hier lijkt dus iets niet te kloppen!

17.08.2018 - 13:11

country flag Gitte wrote:

Kan det virkelig passe at jakken kun er 60 cm i højden ?

30.06.2018 - 11:48

DROPS Design answered:

Hej Gitte, Ja det stemmer originalopskriften er kun 60 cm i højden. God fornøjelse!

02.07.2018 - 15:17

country flag Linda Hughes wrote:

I had never heard of steeking, never knitted a Norwegian sweater before, I was very unsure of the method. Thanks to your video I am ready to give it a go.

19.06.2018 - 15:46

country flag Ingrid Mohr wrote:

I would like to make this pattern, but I'm unsure as the small says it's 45"?? To me that's a pretty large sweater. How many stitches would I need to cut down the size to around 36" bust?

08.06.2015 - 20:49

DROPS Design answered:

Dear Mrs Mohr, you can adapt to your size with the help of the measurement chart and another similar pattern. Remember you can get any individual assistance by your DROPS store. Happy knitting!

09.06.2015 - 08:46