DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6820.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Lighthouse Vest

Prjónað vesti fyrir herra úr DROPS Air. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 233-7
DROPS Design: Mynstur ai-422
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
250-250-300-300-350-350 g litur 03, perlugrár

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6820.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerkið situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og prjónað er til loka fram og til baka að loknu máli.
Kantur í hálsmáli og kantar í handvegi er prjónað í hring á hringprjóna í lokin.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 170-188-196-214-242-268 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Air. Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið jafnframt um 18-20-20-22-26-28 lykkjur jafnt yfir = 152-168-176-192-216-240 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 76-84-88-96-108-120 lykkjur, látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu – þau eru notuð síðar þegar auka á út í hliðum.
Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 10 cm, aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 10-14-7-7-14-14 cm millibili alls 3-2-4-4-2-2 sinnum = 164-176-192-208-224-248 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm. Í næstu umferð er fellt af fyrir handveg þannig: Byrjið 3-4-5-6-7-8 lykkjur á undan fyrra prjónamerki, fellið af 6-8-10-12-14-16 lykkjur, prjónið fram að 3-4-5-6-7-8 lykkjum á undan seinna prjónamerki í hinni hliðinni, fellið af 6-8-10-12-14-16 lykkjur. Prjónið síðan framstykki og bakstykki til loka hvort fyrir sig, setjið fyrstu 76-80-86-92-98-108 lykkjur á þráð fyrir framstykki.

BAKSTYKKI:
= 76-80-86-92-98-108 lykkjur. Prjónið fram og til baka í sléttprjóni og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 1-1-2-2-3-4 sinnum, 1 lykkja 4-4-3-5-4-5 sinnum = 64-68-72-74-78-82 lykkjur. Fellið síðan af fyrir skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan.

SKÁHALLANDI ÖXL - lesið allan kaflann að neðan:
Þegar stykkið mælist 57-59-61-63-65-67 cm, setjið lykkjur á þráð í hvorri hlið fyrir öxl (til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, eru lykkjur prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn):
Setjið lykkjur á þráðinn frá hlið þannig: 5-6-6-6-7-8 lykkjur 2 sinnum á þráðinn og síðan eru síðustu 8-8-9-10-9-9 lykkjur settar á þráðinn. Þegar allar lykkjur sitja á þræðinum, setjið lykkjur til baka á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð sléttprjón yfir allar lykkjur (til að sleppa við göt í skiptingunni þar sem lykkjur voru settar á þráð, sækið þráðinn á milli 2 lykkja upp og prjónið snúið saman með fyrstu lykkju á vinstri prjóni). Fellið af í næstu umferð.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Jafnframt þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm, fellið af miðju 26-26-28-28-30-30 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Jafnframt í næstu umferð er felld af 1 lykkja frá hálsmáli. Þegar allar lykkjur hafa verið felldar af, mælist stykkið ca 60-62-64-66-68-70 cm frá hæsta punkti á öxl og niður. Endurtakið við hina öxlina.

FRAMSTYKKI:
= 76-80-86-92-98-108 lykkjur. Prjónið fram og til baka í sléttprjóni og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 1-1-2-2-3-4 sinnum, 1 lykkja 4-4-3-5-4-5 sinnum = 64-68-72-74-78-82 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 52-54-55-57-58-60 cm, setjið miðju 14-14-16-16-18-18 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 18-20-21-22-23-25 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram og fellið af fyrir skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan.

SKÁHALLANDI ÖXL:
Þegar stykkið mælist 57-59-61-63-65-67 cm, setjið lykkjur á þráð alveg eins og á bakstykki, þ.e.a.s. setjið 5-6-6-6-7-8 lykkjur á þráðinn 2 sinnum og síðan eru síðustu 8-8-9-10-9-9 lykkjur settar á þráðinn.
Þegar allar lykkjur sitja á þræðinum prjónið 1 umferð sléttprjón yfir allar lykkjur eins og á bakstykki, áður en fellt er af í næstu umferð. Þegar allar lykkjur hafa verið felldar af, mælist stykkið ca 60-62-64-66-68-70 cm frá hæsta punkti á öxl og niður. Endurtakið á hinni öxlinni.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið við aðra öxlina, notið stuttan hringprjón 4 og prjónið upp ca 68 til 82 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2).
Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

KANTUR Í HANDVEGI:
Byrjið mitt í handvegi, notið stuttan hringprjón 4 og prjónið upp ca 78-82-86-88-92-96 lykkjur í kringum allan handveginn (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2). Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Prjónið hinn kant í handvegi á sama hátt.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 233-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (29)

country flag McSherry Linda wrote:

I’m very confused about how to proceed with the diagonal shoulder instructions. Even my knitting instructor couldn’t follow them. There is no mention of shirt rows in the pattern. Do you bind off the 28 stitches first, before putting the 6 stitches on threads? No mention of cutting the yarn. When is that done?

27.03.2024 - 13:12

DROPS Design answered:

Dear Linda, HERE you can fine a few videos that can help you with how to knit the diagonal shoulders. I hope they would be of help. happy Knitting!

27.03.2024 - 14:29

country flag Rosa wrote:

I am confused about the section after the diagonal shoulder, where i should complete each shoulder seperately. I am knitting size xl. I therefore have 21 stitches on each shoulder. Should I cast off one stitch in every row by the neck, or just do this once and then continue without casting off? And is it really correct that i only do this for 2cm before casting the whole shoulder off? This doesn't seem like it would be enough to create the shoulders. Thanks

09.02.2024 - 10:55

DROPS Design answered:

Dear Rosa, you cast off the 28 middle stitch then 1 stitch by the neck on each shoulder. Then you have finished the decreases for the neck. Finish, if necessary, the shape of the diagonal shoulders: (Place stitches from the side as follows: 5-6-6-6-7-8 stitches 2 times then place the last 8-8-9-10-9-9 stitches on the thread. ......, pick up the strand between the 2 stitches and work it twisted together with the next stitch on the left needle). Once you have finished shaping both you should have reached the approx. 60-62-64-66-68-70 cm and you can cast off the whole shoulder. Happy knitting!

11.02.2024 - 23:54

country flag Agnes Oreglia wrote:

Bonjour, au tout début du pull, on compte pour la première augmentation de chaque côté ; après 10cm, en comptant les côtes ou non ? Merci..

17.12.2023 - 12:08

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Oreglia, on doit mesurer à partir du rang de montage, soit 4 cm après les côtes. Bon tricot!

18.12.2023 - 08:35

country flag Anna wrote:

Buonasera, Non capisco la sezione diagonale dell spalla e collo per la la taglia L. Lavoro 6 maglie, le metto in sospeso, finisco la riga, giro, lavoro 6 maglie le metto in sospeso, finisco la riga. Ripeto entrambe queste righe un’altra volta. Da qua in poi non capisco, mettere in sospeso le ultime 9 maglie? Quali ultime 9 maglie? Allo stesso tempo intrecciare per il collo? Allo stesso tempo quando? Grazie mille per l’aiuto.

22.11.2023 - 23:35

DROPS Design answered:

Buonasera Anna, le ultime 9 maglie sono le maglie ai due lati del dietro. Gli intrecci per il collo vanno fatti quando si raggiunge la misura indicata. Buon lavoro!

30.12.2023 - 14:29

country flag Fanny wrote:

Bonjour, Je ne trouve nul par le nombre de pelotes qu’il faut acheter pour faire ce modèle en taille L?

31.10.2023 - 09:41

DROPS Design answered:

Bonjour Fanny, vous trouverez les quantités indiquées pour chaque taille, au poids, sous l'en-tête, il faut par ex ici en taille S et M: 250 g DROPS Air / 50 g la pelote = 5 pelotes dans ces 2 premières tailles. Bon tricot!

31.10.2023 - 16:08

country flag Alexandra wrote:

Hallo, Ihre Antwort vom 12.2.23 an Alice ist falsch! Es geht um die Zunahme am Rumpf in Größe L. In der Anleitung steht, daß bei Größe L insgesamt 4 mal zugenommen werden muß. Einmal nach 10 cm und dann 3 mal nach je 7 cm. Das sind 16 zugenommene Maschen und man kommt von 176 auf 192 Maschen. Sie schreiben in der Antwort an Alice aber fälschlicherweise, daß sie nach 10 cm und dann noch weitere 4 mal zunehemen soll! LG Alexandra

29.10.2023 - 14:24

country flag Docteurcousette wrote:

Je ne comprends pas: Mettre en attente en début de rang à partir du côté: 2 fois 5-6-6-6-7-8 mailles puis les 8-8-9-10-9-9 dernières mailles. Reprendre toutes les mailles sur l’aiguille circulaire 5 et tricoter 1 rang jersey sur toutes les mailles (pour éviter un trou aux transitions entre les mailles mises en attente, Pouvez-vous préciser ?

21.10.2023 - 23:42

DROPS Design answered:

Bonjour, vous allez former ainsi le biais des épaules en tricotant davantage de rangs sur les mailles côté encolure: au début de chaque rang à partir de l'emmanchure (sur l'endroit: épaule droite du dos/gauche du devant et sur l'envers: épaule gauche du dos/droite du devant), tricotez les premières mailles et glissez les en attente, terminez le rang comme avant, tournez, tricotez le rang suivant, et répétez ces 2 rangs jusqu'à ce que toutes les mailles aient été mises en attente. Tricotez ensuite 1 rang sur toutes les mailles, pour éviter 1 trou, relever le fil avant la 1ère des mailles en attente et tricotez le torse avec cette maille. Bon tricot!

23.10.2023 - 09:56

country flag Kristina wrote:

Jeg synes at delen med “skrå skulder” er virkelig uforståeligt.

17.10.2023 - 21:15

country flag Chrissi wrote:

Hallo. Es heißt bei der Anleitung beim stricken von Glatt rechts nach 10 cm Maschen zunehmen. Muss ich da die 6 cm vom Bund mit dazu zählen?

25.08.2023 - 11:13

DROPS Design answered:

Liebe Chrissi, diese 10 cm messen Sie ab der Anschlagskante. Viel Spaß beim stricken!

25.08.2023 - 12:12

country flag Graciela Schmidt wrote:

Buenas tardes. No veo muy claro cómo hacer la sisa de la espalda.

19.07.2023 - 23:22

DROPS Design answered:

Hola Graciela, Vas a cerrar al inicio de filas tanto por el lado derecho como por el lado revés. Primero cierras 2 pts al inicio de las siguientes 1-1-2-2-3-4 filas por el lado derecho y por el lado revés (es decir, cuando pone 1 vez significa 1 vez por el lado derecho y 1 vez por el lado revés). Después cierras 1 punto al inicio de cada fila 4-4-3-5-4-5 veces (igual que antes, serían en total 8 filas para la talla más pequeña, 4 por el lado derecho y 4 por el lado revés).

20.07.2023 - 11:58