Fairy Woods Cardigan |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað neðan frá og upp, með gatamynstri, pífukanti og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 231-14 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 5, 15 og 25 cm M: 5, 15 og 26 cm L: 6, 16 og 27 cm XL: 5, 13, 21 og 28 cm XXL: 5, 13, 21 og 29 cm XXXL: 6, 14, 22 og 30 cm. ÚRTAKA FYRIR V-HÁLSMÁLI: Fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli innan við A.2 og A.3. Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkið lykkjum á undan A.2 þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir A.3 þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið næstu lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. STUTTAR UMFERÐIR: Það verður að prjóna nokkrar fleiri umferðir á hæðina yfir pífukantinn meðfram v-hálsmáli til að pífukanturinn leggist fallega. Þetta er gert þannig: * Prjónið 6 umferðir yfir allar lykkjur á framstykki, prjónið 2 umferðir einungis yfir A.2 / A.3 *, endurtakið frá *-*. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkin eru prjónuð fram og til baka í stykkjum, neðan frá og upp. Framstykkin eru prjónuð með v-hálsmáli og pífukanti. Ermar eru prjónaðar fram og til baka. Frágangur á peysunni er útskýrður í uppskrift. BAKSTYKKI: Fitjið upp 102-114-120-132-144-159 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Sky. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju snúin slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 10-10-10-10-10-13 lykkjur jafnt yfir = 92-104-110-122-134-146 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm, fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið: Fellið af 4 lykkjur 0-0-0-1-1-1 sinnum, 3 lykkjur 1-1-1-1-2-2 sinnum, 2 lykkjur 1-3-4-4-5-7 sinnum og 1 lykkja 3-4-4-5-5-6 sinnum = 76-78-80-82-84-86 lykkjur eftir á prjóni. Haldið áfram með A.1 – lykkjur í hvorri hlið sem ekki ganga jafnt upp í mynstri eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm, fellið af miðju 22-22-24-24-26-28 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 26-27-27-28-28-28 lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram með A.1 þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 61-67-70-79-85-91 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Sky. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja snúin slétt *, prjónið frá *-* þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 9 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 6-6-6-9-9-9 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur að framan) = 55-61-64-70-76-82 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (og hlið): 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 þar til 12-12-9-9-9-9 lykkjur eru eftir, prjónið 3-3-0-0-0-0 fyrstu lykkjur í A.1, prjónið 9 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm, prjónið þannig (frá réttu): 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 þar til 9 lykkjur eru eftir – þessar eru síðan prjónaðar í A.2. Að auki eru nú prjónaðar STUTTAR UMFERÐIR – sjá útskýringu að ofan! ÚRTAKA FYRIR V-HÁLSMÁLI: Jafnframt sem byrjað er að prjóna A.2 yfir ystu 9 lykkjurnar, fækkið um 1 lykkju fyrir V-hálsmáli – sjá ÚRTAKA, fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð alls 12-12-13-13-14-15 sinnum. Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í A.1 þegar lykkjum fækkar, eru prjónaðar í sléttprjóni. HANDVEGUR: Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm, fellið af fyrir handvegi í hlið á sama hátt og á bakstykki. Eftir alla úrtöku fyrir v-hálsmáli og handvegi eru 26-27-27-28-28-28 lykkjur + A.2 (talan getur verið frá 9-21 lykkjur) eftir í umferð. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af 26-27-27-28-28-28 ystu lykkjur við öxl = einungis lykkjur í A.2 eru eftir á prjóni. Til að kraginn leggist fallega meðfram hálsmáli á bakstykki er prjónað A.2 yfir þessar lykkjur þannig: (1. umferð = rétta): 1 umferð yfir allar lykkjur, * 2 umferðir yfir allar lykkjur nema 2 innstu lykkjur við hálsmál, 2 umferðir yfir allar lykkjur *, endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist ca 5-5-6-6-7-7 cm meðfram stystu hliðinni (endið eftir 1 heila mynstureiningu á hæðina), fellið af. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 61-67-70-79-85-91 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Sky. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan þannig – frá réttu: 9 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 6-6-6-9-9-9 lykkjur jafnt yfir = 55-61-64-70-76-82 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (og miðju að framan): 9 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 þar til eftir eru 4-4-1-1-1-1 lykkjur, prjónið 3-3-0-0-0-0 fyrstu lykkjur í A.1 og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur. Fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm, prjónið þannig (frá réttu): A.3 yfir lykkjur í kanti að framan, A.1 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni, að auki eru prjónaðar STUTTAR UMFERÐIR. ÚRTAKA FYRIR V-HÁLSMÁLI: Jafnframt sem byrjað er að prjóna A.3 yfir ystu 9 lykkjurnar, fækkið um 1 lykkju fyrir V-hálsmáli – sjá ÚRTAKA, fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð alls 12-12-13-13-14-15 sinnum. Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í A.1 þegar lykkjum fækkar, eru prjónaðar í sléttprjóni. HANDVEGUR: Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm, fellið af fyrir handvegi í hlið á sama hátt og á bakstykki. Eftir alla úrtöku fyrir v-hálsmáli og handvegi eru 26-27-27-28-28-28 lykkjur + A.3 (talan getur verið frá 9-21 lykkjur) eftir í umferð. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af 26-27-27-28-28-28 ystu lykkjur við öxl = einungis lykkjur í A.3 eru eftir á prjóni. Til að kraginn leggist fallega meðfram hálsmáli á bakstykki er prjónað A.3 yfir þessar lykkjur þannig: (1. umferð = ranga): 1 umferð yfir allar lykkjur, * 2 umferðir yfir allar lykkjur nema 2 innstu lykkjur við hálsmál, 2 umferðir yfir allar lykkjur *, endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist ca 5-5-6-6-7-7 cm meðfram stystu hliðinni (endið eftir 1 heila mynstureiningu á hæðina), fellið af. ERMI: Fitjið laust upp 62-65-68-71-74-77 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Sky. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 kantlykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 1 lykkju í öllum brugðnu einingum, aukið út með því að slá einu sinni uppá prjóninn í lokin á öllum 2 lykkjum brugðið. Í næstu umferð (ranga), eru allar lykkjur prjónaðar brugðið, uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið = 82-86-90-94-98-102 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 4 og haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 11 cm, fellið af fyrir handvegi í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni og 2 lykkjur 3 sinnum, fellið síðan af 1 lykkju í hvorri hlið þar til stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm. Í næstu umferð frá réttu eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2. Prjónið 6 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur, fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið í ermakúpu, saumið innan við 6 lykkjur garðaprjón í umferðinni efst á ermakúpu, þessar eru brotnar inn í ermi og gefa puffermunum stöðugleika efst í ermakúpu. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (8)
Jyotsna Naik wrote:
While knitting the rib how to knit the wrong side row? How to knit the 'knit 1 twisted ' from the wrong side?
17.03.2024 - 06:12DROPS Design answered:
Dear Jyotsna, from the purl side you knit the stitches that were twisted knit on the right side as twisted purl. Happy Knitting!
17.03.2024 - 10:30Eva Malmberg Beckman wrote:
Hej, problem har uppstått i tidigt skede. Kan jag sticka modellen i Fine Merino istället för Drops Sky? Båda garnerna ligger i samma garngrupp dvs B. Samma 21x28 =10 cm och105 m på 50gr garn. Kan jag följa mönstret rakt av som det ser ut med SKY-garnet? undrar Eva
08.05.2022 - 20:56DROPS Design answered:
Hei Eva. Ja, det kan du. Bare pass på at strikkefastheten stemmer. DROPS Merino Extra Fine har en løpelengde på 105 meter, mens DROPS Sky har 190 meter, så du trenger mer DROPS Merino Extra Fine. Bruk vår Garnkalkulator for å finne ut hvor mye. mvh DROPS Design
09.05.2022 - 13:26Chris wrote:
Beste, hoe breid je de 2 rij van de boorsteek aub?
06.05.2022 - 17:52DROPS Design answered:
Dag Chris,
De gedraaid rechte steken brei je aan de verkeerde kant averecht, en de averechte steken brei je aan de verkeerde kant recht.
09.05.2022 - 17:10Catherine wrote:
I have difficulties in understanding the short rows description *work 6 rows over all stitches & 2rows only over A2/A3*. Please help me. Thank you very much.
30.04.2022 - 02:33DROPS Design answered:
Dear Catherine, when working left front piece and starting from RS, work all stitches starting from the side (1 edge st and A.1, and ending A.2), turn and work the next row from WS (with A.2, A.1 and 1 edge st in garter st), repeat these 2 rows 3 more times (= 6 rows in total), then work the next row from RS as before, turn and work the next row in A.2 from WS, turn, work the next row from RS, turn and work all the stitches on the row again (A.2, A.1 and 1 edge st in garter st). Continue like this, continuing A.2 from the last row worked. Happy knitting!
02.05.2022 - 08:07Rahier wrote:
Impatiente d’avoir ce beau modèle !
13.03.2022 - 08:10Charlaine wrote:
Col très original comme une corolle de fleur
02.02.2022 - 14:14Annie Charland wrote:
Sugar and Spice
15.01.2022 - 05:35Gwenael wrote:
Sweet orchid
14.01.2022 - 15:11