DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8250.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Pearlescent Top

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með köðlum og pífu á ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 230-25
DROPS Design: Mynstur z-961
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-200-250-250-250-300 g litur 100, natur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
75-75-100-100-100-125 g litur 01, natur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3.5: lengd 40 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8250.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3.

LASKALÍNA:
Allar útaukningar eru gerðar á framstykki og bakstykki (ekki er aukið út yfir ermar).
Fyrst eru auknar út 2 lykkjur við hverja laskalínu á framstykki og bakstykki (= 8 lykkjur fleiri í umferð), síðan er aukið út um 1 lykkju við hverja laskalínu á framstykki og bakstykki (= 4 lykkjur fleiri í umferð).
Aukið út um 2 lykkjur á undan 1. og 3. prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, prjónamerkið situr hér.
Aukið út um 2 lykkjur eftir 2. og 4. prjónamerki þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Aukið út um 1 lykkju á undan 1. og 3. prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, prjónamerkið situr hér.
Aukið út um 1 lykkju á eftir 2. og 4. prjónamerki þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).
Endurtakið við hitt prjónamerkið (= 4 lykkjur færri í umferð).

ÚTAUKNING-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 148 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 28) = 5,2.
Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón ca frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 100-106-114-120-126-126 lykkjur á hringprjón 3,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir fyrstu 8-8-12-12-12-12 lykkjur, setjið 1. prjónamerki hér, prjónið A.1 yfir næstu 30-33-33-36-39-39 lykkjur, prjónið fyrstu 2 lykkjur í A.1, setjið 2. prjónamerki hér, prjónið (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 16-16-20-20-20-20 lykkjur, prjónið 2 lykkjur brugðið, setjið 3. prjónamerki hér, prjónið A.1 yfir næstu 30-33-33-36-39-39 lykkjur, prjónið fyrstu 2 lykkjur í A.1, setjið 4. prjónamerki hér, prjónið (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir síðustu 10-10-10-10-10-10 lykkjur í umferð.
Haldið svona áfram með stroff hringinn og endurtakið fyrstu 2 umferðir í A.1 þar til stykkið mælist 3 cm.
Skiptið yfir á hringprjón 4. Næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið sléttprjón fram að 1. prjónamerki, prjónið 3. umferð í A.1 fram að 2. prjónamerki (= 10-11-11-12-13-13 lykkjur fleiri), prjónið sléttprjón fram að 3. prjónamerki, prjónið 3. umferð í A.1 fram að 4. prjónamerki (= 10-11-11-12-13-13 lykkjur fleiri), prjónið sléttprjón út umferðina = 120-128-136-144-152-152 lykkjur. Prjónið 1 umferð til viðbótar með síðustu umferð í A.1 og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru.
Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð mitt að aftan. Héðan er nú stykkið mælt!

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 5.
Prjónið nú mynstur, jafnframt því sem aukið er út fyrir laksalínu. Lestu MYNSTUR og LASKALÍNA áður en þú prjónar áfram.

MYNSTUR:
Prjónið sléttprjón fram að 1. prjónamerki, prjónið A.2 yfir næstu 40-44-44-48-52-52 lykkjur (= 10-11-11-12-13-13 mynstureiningar), prjónið fyrstu 2 lykkjur í A.2, 2. prjónamerki situr hér, prjónið sléttprjón fram að 3. prjónamerki, prjónið A.2 yfir næstu 40-44-44-48-52-52 lykkjur (= 10-11-11-12-13-13 mynstureiningar), prjónið fyrstu 2 lykkjur í A.2, 4. prjónamerki situr hér, prjónið sléttprjón út umferðina.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

LASKALÍNA:
Jafnframt í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan.
Aukið út um 2 lykkjur í annarri hverri umferð alls 8-11-12-14-15-20 sinnum, síðan er aukið út um 1 lykkju í annarri hverri umferð alls 7-5-4-4-8-3 sinnum = 23-27-28-32-38-43 lykkjur fleiri í hvorri hlið á framstykki og bakstykki.
Þegar allar útaukningar fyrir laskalínu hafa verið gerðar til loka eru 212-236-248-272-304-324 lykkjur í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 15-16-18-19-20-22 cm frá prjónamerki – stillið af að endað sé eftir 3. umferð í A.2 – þ.e.a.s. næsta umferð sem á að prjóna er 4. umferð í A.2.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og kanta á ermum þannig:
Prjónið eins og áður yfir fyrstu 31-35-40-44-50-55 lykkjur (= ca hálft bakstykki), setjið næstu 42-46-46-50-54-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir næstu 64-72-78-86-98-108 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 42-46-46-50-54-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir síðustu 33-37-38-42-48-53 lykkjur(= ca hálft bakstykki).
Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 148-164-176-192-216-236 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi (= 5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar fækka á lykkjum og auka út í hliðum.
Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 3 cm millibili alls 2 sinnum = 140-156-168-184-208-228 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 12 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-1. Aukið svona út með ca 3 cm millibili alls 4 sinnum = 156-172-184-200-224-244 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 29-29-29-29-30-30 cm frá skiptingu. Nú er eftir ca 3 cm stroff til loka máls. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff.
Til að stroffið komi ekki til með að draga stykkið saman, aukið út um 32-32-36-40-44-48 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-2 = 188-204-220-240-268-292 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.
Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 42-46-46-50-54-54 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 52-56-56-60-64-64 lykkjur. Prjónið A.2 hringinn í umferð – stillið af að mynstrið haldi áfram yfir lykkjur frá berustykki eins og áður. Þegar ermin mælist 12-12-10-10-10-9 cm frá skiptingu – stillið af að endað sé eftir heila mynstureiningu á hæðina, það á að prjóna pífukant. Nú eru eftir 4 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið síðan að óskaðri lengd á ermi.
Prjónið A.3 yfir A.2. Þegar öll útaukning í A.3 hefur verið gerð til loka, eru 117-126-126-135-144-144 lykkjur. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 16-16-14-14-14-13 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið eða slétt – sjá næstu umferð í mynsturteikningu (það á að myndast gat)

symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn (svo ekki myndist gat).
symbols = prjónið 3 lykkjur slétt, lyftið fyrstu lykkju sem var prjónuð yfir hinar 2, þannig að lykkjan liggi utan um tvær síðustu lykkjurnar sem voru prjónaðar (= 1 lykkja færri)
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju, farðu áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-25

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (8)

country flag Alexandra Marshall wrote:

I just finished this (lovely!) but I'm wondering if in the Pattern section where it says work the first 2 stitches in A2 if it should say K2 every row? That's what I ended up doing as otherwise using the A2 chart (first 2 stitches each row) changes and you create an extra hole. Maybe I did it wrong? But it looks fine with K2 instead of following A2 chart for those two stitches.

05.09.2023 - 18:32

DROPS Design answered:

Dear Msr Marshall, with working only the first 2 stitches in A.2 we mean to work the pattern in A.2 over these 2 sts, just without the last P2, ie with yarn over and then decrease as in all other A.2 (so that pattern is symmetrical). Happy knitting!

06.09.2023 - 08:54

country flag Gitte wrote:

Fortsættes mønstret A2 på de nyopståede masker under armen? Og hvordan? Der er 10 masker, men mønstret dækker kun 8.

14.02.2023 - 18:29

country flag Charlotte Oure wrote:

Garn forbruget passer desværre ikke på denne opskrift

24.01.2023 - 20:34

country flag Diana wrote:

Hola! Estoy trabajando este patrón. La duda que tengo es donde aumentar los puntos al dejar las mangas en aguja auxiliar y luego como se retoman al tejer las mangas. Agradecería mucho la respuesta.

27.04.2022 - 04:12

DROPS Design answered:

Hola Diana, con aumentar te refieres a montar bajo la manga los puntos? En ese caso, este vídeo podría ayudarte: https://www.garnstudio.com/video.php?id=1634&lang=es En el siguiente vídeo también te explican cómo retomar los puntos de las mangas: https://www.garnstudio.com/video.php?id=592&lang=es

27.04.2022 - 21:58

country flag Sue Sommer wrote:

Snowdrop The sleeves remind me of the flower :)

04.02.2022 - 17:29

country flag Helena Mjöberg wrote:

Summer nights

15.01.2022 - 08:48

country flag Annie Charland wrote:

Spring bells

15.01.2022 - 05:31

country flag Sabine wrote:

Sweet memories

14.01.2022 - 23:02