DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9680.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Provence Purple

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með tvöföldum kanti í hálsmáli og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 232-51
DROPS Design: Mynstur z-958
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-250-250-300-300-350 g litur 4010, ljós lavender
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-100-125-125-150 g litur 09, ljós lavender

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9680.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.

ÚRTAKA (á við um handveg og hálsmál):
Lykkjum er fækkað innan við 2 lykkjur:
Fækkið lykkjum í lok umferðar frá réttu þannig:
Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju sléttprjón og 1 lykkju garðaprjón.
Fækkið lykkjum í byrjun á umferð frá röngu þannig:
Prjónið 1 lykkju garðaprjón, 1 lykkju sléttprjón, lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið út umferðina eins og áður.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi, síðan skiptist stykkið og framstykkið og bakstykkið er prjónað til loka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Ermar skiptast þegar fellt er af fyrir handveg og síðan er prjónað fram og til baka. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli.

PEYSA:
Fitjið upp 280-308-336-364-406-434 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (2 lykkjur slétt, 5 lykkjur brugðið). Haldið svona áfram með stroff. Þegar stykkið mælist 3 cm, fækkið um 1 lykkju í hverri brugðinni einingu með því að prjóna 2 fyrstu lykkjurnar í hverri brugðinni einingu brugðið saman.
Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 4 cm, en nú eru prjónaðar 2 síðustu lykkjurnar í hverri brugðinni einingu brugðið saman = 200-220-240-260-290-310 lykkjur. Í næstu umferð er A.1 prjónað yfir allar lykkjur í umferð (20-22-24-26-29-31 sinnum). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 160-176-192-208-232-248 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 9 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-12-16-16-16-12 lykkjur jafnt yfir = 148-164-176-192-216-236 lykkjur í umferð. Prjónið A.2 yfir allar lykkjur, þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í heilli mynstureiningu í umferð með gatamynstri, eru prjónaðar í sléttprjóni. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið síðan sléttprjón.

ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm, prjónið næstu umferð þannig – nú er lykkjum fækkað fyrir handveg og framstykkið/bakstykkið er prjónað til loka hvort fyrir sig. Byrjið 3 lykkjum á undan byrjun á umferð, fellið af 6 lykkjur, prjónið 68-76-82-90-102-112 lykkjur, fellið af 6 lykkjur, prjónið 68-76-82-90-102-112 lykkjur.
Hvort stykki er nú prjónað til loka fyrir sig, fram og til baka. Setjið fyrstu 68-76-82-90-102-112 lykkjurnar á þráð og prjónið áfram yfir síðustu 68-76-82-90-102-112 lykkjur á bakstykki.

BAKSTYKKI:
= 68-76-82-90-102-112 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir handveg í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju 2-4-5-8-12-15 sinnum = 64-68-72-74-78-82 lykkjur. Þegar stykkið mælist 45-47-49-51-53-55 cm, fellið af miðju 24-26-28-30-32-34 lykkjur af fyrir hálsmáli og axlir eru prjónaðar til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 19-20-21-21-22-23 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm (19-20-21-22-23-24 cm frá skiptingu fyrir handveg), fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
= 68-76-82-90-102-112 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir handveg í hvorri hlið – munið eftir ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju 2-4-5-8-12-15 sinnum = 64-68-72-74-78-82 lykkjur. Þegar stykkið mælist 42-44-45-47-48-50 cm, setjið miðju 18-20-22-24-26-28 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og axlir eru prjónaðar til loka fyrir sig. Fækkið síðan lykkjum við hálsmál í annarri hverri umferð, fækkið um 1 lykkju 4 sinnum – munið ÚRTAKA = 19-20-21-21-22-23 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm (= 19-20-21-22-23-24 cm frá skiptingu fyrir handveg), fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 44-46-48-50-52-54 lykkjur á sokkaprjóna 4 með 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið A.3 í hring. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, haldið áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 8 lykkjur jafnt yfir = 52-54-56-58-60-62 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Þegar stykkið mælist 6 cm (mælt frá uppábroti), aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 10-6-4-3-1-1 cm millibili alls 2-3-4-6-7-9 sinnum = 56-60-64-70-74-80 lykkjur. Þegar stykkið mælist 21-20-20-20-19-17 cm, fellið af 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki (= 6 lykkjur færri mitt undir ermi), prjónið síðan handveg fram og til baka. Fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 3-3-3-3-3-4 sinnum, 1 lykkja 1-2-2-2-3-3 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til ermin mælist 28 cm í öllum stærðum, fellið síðan af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist 29 cm í öllum stærðum.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið frá réttu og prjónið upp ca 68 til 96 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði og deilanlegt með 2) með 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Prjónið síðan A.4 yfir allar lykkjur. Fellið aðeins laust af. Brjótið uppá stykkið við gataumferð í A.4 þannig að faldur fyrir saum verði að innanverðu á stykkinu. Saumið affellingarkantinn við efsta garðaprjón.

Mynstur

symbols = Slétt lykkja
symbols = Brugðin lykkja
symbols = Sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt þegar prjónað er í hring / brugðið þegar prjónað er fram og til baka (ekki snúið), það eiga að myndast göt
symbols = 2 lykkjur slétt saman

symbols = Setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = Setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið af kaðlaprjóni
symbols = Setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = Setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur snúnar slétt saman af kaðlaprjóni
symbols = Þessi umferð er prjónuð þannig: Brjótið uppá gataumferð (= 4. umferð í mynsturteikningu) að röngu á stykkinu. Setjið fyrstu lykkju frá uppfitjunarkanti yst á vinstra prjón, prjónið 2 fyrstu lykkjurnar (þ.e.a.s. fyrstu lykkju í umferð + fyrstu lykkju frá uppfitjunarkanti) slétt saman. Setjið næstu lykkju frá uppfitjunarkanti yst á vinstri prjón, prjónið 2 fyrstu lykkjurnar saman (þ.e.a.s. næsta lykkja í umferð + næsta lykkja frá uppfitjunarkanti). Haldið svona áfram að prjóna eina lykkju frá uppfitjunarkanti saman við næstu lykkju á vinstra prjóni þar til allar lykkjurnar hafa verið prjónaðar saman með uppfitjunarkant.
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 232-51

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (8)

country flag Ana Oliveira wrote:

Boa noite, É possível substituir o fio usado pelo fio cotton light? Será que dá para usar o mesmo número de malhas? Obrigada

09.10.2023 - 22:54

DROPS Design answered:

Bom dia, è possível, sim, mas desde que, depois de fazer uma amostra de 10 cm, a meça e obtenha a mesma tensão, ou seja, o mesmo número de malhas em largura. Para este modelo, a amostra deve ter 17 malhas em largura e 22 carreiras em altura, em ponto meia. Bons tricôs!

10.10.2023 - 08:35

country flag Cristina Oliveira wrote:

Boa tarde, se as mangas são tricotadas em carreiras de idas e voltas porque precisamos de agulhas de pontas duplas? Não estou a perceber a necessidade de usar as agulhas de pontas duplas. Podemos utilizar as agulhas circulares 4mm e 5mm e tricotarem carreiras de idas e voltas. Obrigada

19.09.2023 - 19:19

DROPS Design answered:

Boa tarde, As mangas tanto se podem tricotar em redondo como em idas e voltas. As agulhas de pontas duplas são sempre mencionadas para quem não utiliza a técnica do Magic Loop para se tricotar em redondo. Bons tricôs!.

20.09.2023 - 15:18

country flag Cristina Oliveira wrote:

Boa tarde, é possível fazer as mangas do início ao fim em carreiras de idas e voltas? Ou temos que começar em voltas circulares e só depois de fazer uma parte é que temos que fazer em carreiras de idas e voltas? Obrigada

16.09.2023 - 16:16

DROPS Design answered:

Bom dia, As mangas deste modelo tricotam-se em idas e voltas, começando no punho. Bons tricôs!

19.09.2023 - 10:15

country flag Cristina Oliveira wrote:

Bom dia, estive a analisar a explicação do modelo em questão é reparei que na parte das mangas falta a explicação de como fazer o trabalhado rendado no final da manga conforme está na figura. Como se faz esse trabalhado? Obrigada

15.09.2023 - 10:06

DROPS Design answered:

Bom dia, Como, neste modelos, as mangas se tricotam a começar pelo punho, o rendado é tricotado logo no princípio (corresponde ao diagrama A.3). Depois, é só continuar a manga. Bons tricôs!

19.09.2023 - 10:20

country flag Ana Oliveira wrote:

Bom dia, estava a pensar fazer esta camisola no tamanho S. Gostaria de saber caso queira fazer de mangas compridas a quantidade de lã que é aconselhada chega para aumentar as mangas? Obrigada

13.09.2023 - 08:11

DROPS Design answered:

Bom dia, Aconselhamos a que use, pelo menos, mais 2 novelos para uma versão de mangas compridas para o tamanho S. Bons tricôs!

14.09.2023 - 13:22

country flag Ewa wrote:

W opisie wkradł się mały błąd. Jest: "Na krótkich drutach z żyłką nr 4 nabrać 280-308-336-364-406-434 oczka", a powinno być: Na DŁUGICH drutach z żyłką nr 4 nabrać 280-308-336-364-406-434 oczka. Nie zmieści się tyle oczek na 40 cm. drut.

05.04.2022 - 11:36

DROPS Design answered:

Bardzo dziękujemy Ewo. Poprawimy błąd. Pozdrawiamy!

05.04.2022 - 13:56

country flag Anna wrote:

Bellissimo! Potreste consigliarmi come lavorare le maniche lunghe? Oppure a quale vostro modello ispirarsi? Grazie in anticipo:-)

28.03.2022 - 10:42

DROPS Design answered:

Buonasera Anna, può semplicemente lavorare più cm prima di iniziare ad intrecciare le maglie. Buon lavoro!

29.03.2022 - 22:49

country flag Sonja wrote:

Sehr schön! Greta wäre ein schöner Name

08.02.2022 - 19:24