DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8536.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Heart Catcher

Prjónuð peysa úr DROPS Flora og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með gatamynstri og kúlum. Stærð S - XXXL.

DROPS 231-4
DROPS Design: Mynstur fl-071
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS FLORA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-200-250-250-300-300 g litur 22, hvít þoka
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-125-125-150-150 g litur 40, perlubleikur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm 80 cm.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8536.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (á við um ermi):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 2 lykkjur í hvorri hlið á stykki (2 lykkjur fleiri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum, neðan frá og upp og er saumað saman í lokin. Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 90-98-110-122-130-142 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið um 13-13-19-19-21-21 lykkjur jafnt yfir = 77-85-91-103-109-121 lykkjur.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Prjónið síðan mynstur þannig:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 6-1-4-1-4-1 lykkjur sléttprjón, A.1 alls 3-4-4-5-5-6 sinnum á breiddina, A.2, 6-1-4-1-4-1 lykkjur sléttprjón og 1 kantlykkja í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með mynstur á hæðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, fellið lykkjur af fyrir handvegi í hlið í byrjun á hverri umferð þannig (haldið áfram með mynstur þar sem heilt gatamynstur / kúlumynstur gengur jafnt upp á breiddina, lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri eru prjónaðar í sléttprjóni): Fellið af 3-3-3-5-5-7 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 0-0-0-1-2-3 sinnum og 1 lykkja 1-1-2-2-2-2 sinnum = 69-77-81-85-87-91 lykkjur.

Haldið áfram með mynstur yfir lykkjur sem ganga jafnt upp í heilu gatamynstri / kúlumynstri á breiddina, þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 46-48-48-50-52-54 cm (stillið af þannig að næsta umferð sé umferð í sléttprjóni frá réttu), fellið af miðju 27-27-29-29-31-31 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig (21-25-26-28-28-30 lykkjur eftir á hvorri öxl).
Haldið áfram með mynstur yfir lykkjur sem ganga jafnt upp í heilu gatamynstri / kúlumynstri á breiddina, þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
JAFNFRAMT er fellt af fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsi þannig:
Fellið af 1 lykkju 2 sinnum = 19-23-24-26-26-28 lykkjur fyrir öxl. Haldið áfram fram og til baka eins og áður þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið eins og bakstykki þar til stykkið mælist ca 42-44-44-46-46-48 cm (stillið af að næsta umferð sé umferð í sléttprjóni frá réttu). Setjið nú miðju 19 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka hvor fyrir sig (25-29-31-33-34-36 lykkjur eftir á hvorri öxl).
Haldið áfram með mynstur yfir lykkjur sem ganga jafnt upp í heilu gatamynstri / kúlumynstri á breiddina, þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar í sléttprjóni og 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið.
JAFNFRAMT er fellt af fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsi þannig:
Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 2-2-3-3-4-4 sinnum = 19-23-24-26-26-28 lykkjur fyrir öxl. Haldið áfram fram og til baka eins og áður þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 50-54-54-58-62-62 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Prjónið síðan frá réttu þannig: Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Í fyrstu umferð er fækkað um 8-10-8-10-10-8 lykkjur jafnt yfir = 42-44-46-48-52-54 lykkjur. Þegar ermin mælist 12 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING!
Aukið svona út með 5½-5-4½-4-3-2½ cm millibili alls 6-7-8-8-9-11 sinnum = 54-58-62-64-70-76 lykkjur. Þegar ermin mælist 46-46-45-43-43-41 cm, fellið af lykkjur fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð þannig:
Fellið af 4 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 3 sinnum, 1 lykkju 2 sinnum, síðan eru felldar af 2 lykkjur þar til stykkið mælist 51 cm, fellið síðan af 3 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum. Fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í og saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni.

KANTUR Í HÁLSMÁLI.
Prjónið upp ca 74 til 92 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði) frá réttu, innan við 1 kantlykkju með stuttan hringprjón 4. Lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar kantur í hálsmáli mælist 2½ cm, prjónið kant fyrir uppábrot þannig: Prjónið * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Fellið af þegar kantur í hálsmáli mælist 2 cm frá uppábroti. Saumið kant í hálsmáli niður að röngu á peysu.

Mynstur

symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju laust af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = kúla: Stingið hægri prjóni inn í lykkjuna 2 umferðum fyrir neðan, takið þráðinn upp með prjóninum, passið uppá að þráðurinn herði ekki á stykki (þ.e.a.s. lykkjan verður ca 2 cm löng, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið upp 1 lykkju alveg eins *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum (4 lykkjur og 3 uppslættir), lyftið 7 lykkjunum / uppsláttum yfir á vinstri prjón og prjónið snúið slétt saman með næstu lykkju á vinstra prjóni (þ.e.a.s. engar útauknar lykkjur)
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (18)

country flag Concetta La Scala wrote:

Come si lavora con 2 filati , alternandosi con con i filati?Prima una maglia con un filo e poi la 2 con l'altro filo e via di seguito. Grazie

08.03.2024 - 16:51

DROPS Design answered:

Buonasera Concetta, deve lavorare con entrambi i filati. Buon lavoro!

09.03.2024 - 17:06

country flag Rita wrote:

Kan ik voor dit patroon alpaca silk brushed (Color14 al in bezit)gebruiken in combinatie met Flora 14 ijsblauw

17.12.2023 - 18:59

DROPS Design answered:

Dag Rita,

In het patroon worden 2 draden van garencategorie A gebruikt. Dit komt ongeveer overeen met de dikte van garens uit garencategorie C. Als je alleen Brushed Alpaca Silk gebruikt komt de stekenhouding wel ongeveer overeen, maar als je er nog een draad van categorie A bij neemt, komt het niet meer overeen.

P.s.: met de garenvervanger kun je ook een vervangend garen berekenen. Hiervan vindt je een link onderaan de materialenlijst bij ieder patroon.

20.12.2023 - 19:26

country flag DEVOT JOSIANE wrote:

Bonjour. Pouvez vous me faire parvenir un tuto explicatif pour ce modèle afin de tricoter la nope avec les mailles à deux rangs dessous et jeté, soit sur 7 mailles (4 mailles et 3 jetés) Avec mes remerciements. Cordialement

23.10.2023 - 17:10

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Devot, au lieu de piquer l'aiguille dans la maille suivante sur l'aiguille gauche (vous la tricoterez à la fin), *piquez l'aiguille droite 2 rangs sous cette maille, faites 1 jeté sur l'aiguille droite et ramener le fil, cette maille doit faire environ 2 cm, faites 1 jeté*, puis recommencez de *-* jusqu'à ce qu'il y ait un total de 4 mailles et 3 jetés = 7 mailles au total- avec l'aiguille gauche, reprenez ces 7 mailles (à partir de la dernière tricotée), puis tricotez les ensemble à l'endroit avec la maille suivante sur l'aiguille gauche (celle au-dessus de là où vous avez piqué votre aiguille). Bon tricot!

24.10.2023 - 08:57

country flag Aline Deschesnes wrote:

J ai de la difficulté a comprendre l'emmanchure. J aimerai avoir plus explication ou un vidéo merci

30.11.2022 - 13:57

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Deschesnes , pour l'emmanchure dos/devant, vous devez rabattre de chaque côté tous les 2 rangs: fois 3-3-3-5-5-7 mailles, 0-0-0-1-2-3 fois 2 mailles et 1-1-2-2-2-2 fois 1 maille soit un nombre différent de mailles et de fois en fonction de votre taille, pensez à bien rabattre le même nombre de mailles à chaque fois en début de rang sur l'endroit et en début de rang sur l'envers. N'hésitez pas à nous indiquer votre taille si besoin. Bon tricot!

30.11.2022 - 17:00

country flag Sofia wrote:

Finn det någon instruktionsvideo för den här typen av musch där man ska hämta upp tråd från varv nedanför?

08.05.2022 - 09:34

DROPS Design answered:

Hej Sofia, denne video viser samme princip: bubblor

11.05.2022 - 08:19

country flag Caroline wrote:

Bonjour, je peine à faire les nopes dans ce modèle. Il ne s’agit pas de la même façon de faire que dans le tutoriel de nopes joint aux explications. Serait-il possible d’avoir une vidéo pour ce type de nopes s’il-vous-plaît ? Merci d’avance. Caroline

28.02.2022 - 21:24

DROPS Design answered:

Bonjour Caroline, cette vidéo montre ce type de nope pour un autre modèle, la seule différence est qu'ici vous allez piquer l'aiguille 2 rangs plus bas et non 6 rangs plus bas comme dans la vidéo, le reste de la nope se fait de la même façon - cf time code 01:33. Bon tricot!

01.03.2022 - 09:56

country flag Kiya Stangbye Thorberg wrote:

Flora 22 hedder Tåge og ikke Kridt. Plus Kid-Silk 40 Perlerosa virker for varm ift. den kolde farve i viser på billedet. Kan der være skrevet forkert og der er brugt Kid-Silk 04 Rosa med Flora Tåge? Hilsen Kiya Thprberg

15.02.2022 - 06:06

DROPS Design answered:

Hej Kiya, Tak for info, nu stemmer det, den er strikket i DROPS Flora 22 hvid tåge og DROPS Kid-Silk 40 perlerosa

15.02.2022 - 09:04

country flag Marion wrote:

Als ik het patroon lees begrijp ik niet dat je een rondbreinaald moet gebruiken voor het aparte achter en voorpand …. dan krijg je rond achter- en voor pand? Kunnen mij vertellen hoe ik dat moet zien ?

08.02.2022 - 21:38

DROPS Design answered:

Dag Marion,

Vanwege het grote aantal steken wordt een rondbreinaald geadviseerd omdat de steken dan beter op de naald passen (met name bij de grotere maten), maar je kunt de panden inderdaad ook op rechte naalden breien.

11.02.2022 - 14:30

country flag Beverley Tooth wrote:

Spring awakens

01.02.2022 - 18:06

country flag Beverley Tooth wrote:

Enchanted

01.02.2022 - 18:03