DROPS Wish
DROPS Wish
50% Alpakka, 33% Bómull, 17% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13640.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Louise Slipover

Prjónað vesti / slipover úr DROPS Wish eða 2 þráðum DROPS Air. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með háum kraga eða tvöföldum kanti í hálsmáli og köntum í stroffprjóni og garðarpjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 226-59
DROPS Design: Mynstur wi-034
Garnflokkur E eða C + C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S/M - L/XL - XXL/XXXL

EFNI:
DROPS WISH frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
500-550-600 g litur 03, ljós grár

Eða notið:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
500-550-600 g litur 03, perlugrár

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 9: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 40 cm og 80 cm.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

TALA:
DROPS TALA NR: 630. 4 st.

PRJÓNFESTA:
10 lykkjur á breidd og 14 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm með 1 þræði DROPS Wish eða 2 þráðum DROPS Air.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Wish
DROPS Wish
50% Alpakka, 33% Bómull, 17% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13640.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum hvoru megin á framstykki. Þau 2 fyrstu hnappagötin eru gerð þegar stykkið mælist 14 cm og 2 seinni hnappagötin eru gerð þegar stykkið mælist 28 cm. Hnappagötin eru gerð þannig:
Prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið eins og áður þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð. Prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.

ÚRTAKA:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum í byrjun á umferð frá hálsi þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
Fækkið lykkjum í lok umferðar við hálsmál þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman og prjónið 1 lykkju slétt (= 1 lykkja færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna í 2 stykkjum. Stykkin eru saumuð saman á öxlum og prjónað er annað hvort hár kragi eða tvöfaldur kantur í hálsmáli í hring á stutta hringprjóna.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 82-88-90 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði DROPS Wish eða 2 þráðum DROPS Air.
Prjónið 4-5-6 kantlykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) og endið með 4-5-6 kantlykkjum í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 3 cm er skipt yfir á hringprjón 9 og prjónað er frá réttu þannig: Prjónið 4-5-6 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið sléttprjón og fækkið um 10-12-10 lykkjur jafnt yfir næstu 74-78-78 lykkjur og prjónið 4-5-6 kantlykkjur í garðaprjóni = 72-76-80 lykkjur.
Prjónið nú sléttprjón með 4-5-6 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið að loka máli.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 57-61-65 cm, fellið af miðju 18-20-22 lykkjur fyrir hálsmáli og axlir eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja = 26-27-28 lykkjur eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 60-64-68 cm eru lykkjur settar á þráð.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 14 cm frá uppfitjunarkanti. Nú byrjar affelling fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.
Prjónið eins og bakstykki þar til stykkið mælist 54-56-58 cm. Setjið nú miðju 12-14-16 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 2 lykkjur fyrir hálsmáli í næstu umferð frá hálsmáli. Síðan er lykkjum fækkað innan við 1 lykkju frá hálsmáli – sjá ÚRTAKA í útskýringu að ofan, fækkið lykkjum svona alls 2 sinnum = 26-27-28 lykkjur eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 60-64-68 cm eru lykkjur settar á þráð.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Notið lykkjuspor og saumið axlirnar saman sem settar voru á þráð. Saumið tölur í bakstykkið þannig að þær passi við hnappagötin á framstykki.

HÁR KRAGI EÐA TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp 64-68-72 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði) á stuttan hringprjón 8. Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið stroffprjón hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) prjónið þar til stroffið mælist 15 cm, ef þú vilt hafa kragann hærri eða prjónaðu þar til stykkið mælist ca 20 cm ef kanturinn í hálsmáli á að vera tvöfaldur. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Ef kanturinn á að vera tvöfaldur: Brjótið kantinn niður í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 08.11.2023
BAKSTYKKI:...Prjónið 4-5-6 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið sléttprjón og fækkið um 10-12-10 lykkjur jafnt yfir næstu 74-78-78 lykkjur og prjónið 4-5-6 kantlykkjur í garðaprjóni = 72-76-80 lykkjur.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-59

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Esther wrote:

Ik begrijp niet hoe ik de hals moet opzetten. Er staat “neem 68 steken op rondom de hals”. Maar van achterpand 20 + voorpand 14, kom ik op 34 steken. Ben beginner, dus ik snap dit niet…?

24.03.2024 - 20:46

DROPS Design answered:

Dag Esther,

Je hoeft niet precies in dezelfde steken op te nemen. Het gaat erom dat je gelijkmatig verdeeld rondom de hals 68 steken opneemt.

27.03.2024 - 13:46

country flag Claudia wrote:

Hallo, also ich schlage 82 M. an und nach dem Rippen soll ich 10 M abnehmen ( nach Wechsel auf größere Nadel ). Ich habe dann 72 M auf der Nadel, wie kommt Ihr auf 74 M?

27.10.2023 - 13:49

DROPS Design answered:

Liebe Claudia, es sieht wie ein Typo aus, hier sollte man 72 Maschen lesen. Danke für den Hinweis, Anleitung wird korrigiert. Viel Spaß beim stricken!

28.10.2023 - 08:32

country flag Delphine wrote:

Je pense que il y a une erreur dans les nombres de maille entre les diminutions et le nombre de maille restante pour la taille S. Sur quel chiffre faut il se baser, nombre maille restantes ou nombre de diminution? Merci pour votre réponse

09.03.2023 - 11:17

DROPS Design answered:

Bonjour Delphine, effectivement, nos stylistes vont corriger cela, il semble qu'en diminuant 10 m vous ayez 72 mailles, puis 26 pour l'épaule après l'encolure. Bon tricot!

09.03.2023 - 13:37

country flag Karoline wrote:

Ønsker å strikke denne i 2 tråder Air. Hvor mye garn må jeg beregne?

01.02.2023 - 13:10

DROPS Design answered:

Hej Karoline, brug garnkalkulatoren. Vælg DROPS Wish, vælg antal gram i din størrelse og vælg 1 tråd, så får du et alternativ op med 2 tråde DROPS Air :)

02.02.2023 - 15:42

country flag Camilla wrote:

Hej Hvad størrelse er vesten strikket i S/M eller L/XL, for at jeg kan få en indtryk af, hvad størrelse man selv skal strikke i for at få oversize-looket?

29.11.2022 - 01:31

DROPS Design answered:

Hej Camille, du finder vestens mål i måleskitsen nederst i opskriften :)

30.11.2022 - 15:28

country flag Iris Schuster wrote:

Hallo wieviele Knäuel Wolle brauche ich bin Anfängerin und weiß nie wieviele Knäuel ich brauche

22.11.2022 - 17:22

DROPS Design answered:

Liebe Frau Schuster, die Garnmenge finden Sie im Kopfzeilen oben bei der Anleitung, zusammen mit den Größen, Nadeln, usw. So in S/M brauchen Sie z.B. 500 g DROPS Wish / 50 g das Knäuel = 10 Knäuel Wish. Viel Spaß beim stricken!

23.11.2022 - 08:51

country flag Monika Hoeflich wrote:

Das mit dem Rückenteil ergibt sich von alleine! Am Rückenteil auf die Außenseite oder die Innenseite! Vielen Dank, M.Hoeflich

07.10.2022 - 15:21

DROPS Design answered:

Liebe Frau Hoeflich, die Knöpfe werden auf die Außenseiten (Vorderseite) genäht. Viel Spaß beim fertigstellen!

07.10.2022 - 16:08

country flag Monika Hoeflich wrote:

Da ich sonst eher Socken stricke wundere ich mich, wie die Knöpfe angenäht werden sollen. (Die Technik verstehe ich). Die Frage ist, ob der Knopf auf der Vorderseite oder Rückseite des Rückenteils angebracht wird. Ein Foto der Seitenansicht wäre da bestimmt hilfreich. Vielen Dank, Monika

06.10.2022 - 08:35

DROPS Design answered:

Liebe Frau Hoeflich, die Knopflöcher wird man am Vorderteil arbeiten (1 Knopf auf beiden Seiten, je nach 14 cm + nach 28 cm) - die Knöpfe werden dann am Rückenteil angenäht. Viel Spaß beim stricken!

06.10.2022 - 09:03

country flag Sesemi wrote:

Der Pullunder lässt sich sehr gut mit einem italienischen Anschlag stricken.. Die kraus rechten Maschen an den Rändern werden wie angegeben gestrickt; ich musste keine Reihen auslassen.

10.09.2022 - 17:35

country flag Laurence Canepa wrote:

Après les cotes pourquoi diminuer de 12 mailles alors que le modèle a l’air de forme droite? Merci

14.08.2022 - 15:54

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Canepa, il faut plus de mailles pour la même largeur pour tricoter en côtes avec les aiguilles 8 que pour tricoter en jersey/point fantaisie avec les aiguilles 9, raison pour laquelle on va diminuer après les côtes, pour conserver la bonne largeur. Bon tricot!

15.08.2022 - 08:28